Örn Bárður Jónsson – and "BARD-art"

The beauty of Life – Social Issues – Justice – Truth // Fegurði lífsins – Þjóðfélagið – Réttlæti – Sannleikur

Greinar og hugvekjur / Articles

Minningarorð / Funeral Speeches

Myndlistin mín / My Art

Að brjótast út

Þegar ein beygja í lífinu breytir miklu

Stundum þarf maður að brjótast út úr aðstæðum.

Nýleg hjólaði ég í miðborg Varsjár til þess að kaupa nýjar skissubækur.

Fann þær í góðri búð og keypti þrjár.

Þær kostuðu hver um sig eins og skáldsaga

enda þótt í þeim væru ekki staf að finna.

Bækurnar þrjár eru frá Þýskum framleiðanda

sem heitir Hahnemühle og kostuðu 14 þúsund ÍKR.

Ég þurfti smá atrennu til að byrja á fyrstu bókinni

v.þ.a. mér fannst ég fastur í einhverjum gír og það þarf áræðni til að byrja á nýrri, dýrri bók.

Og svo fór ég á vefinn og fann hann Toby sem er skissari sem hefur léttan stíl og frjálsan. Sjá tengil neðanmáls.

Ég hef oft séð myndbönd með honum og nú kíkti ég aftur á kallinn.

Og viti menn.

Ég fann aftur þennan lausa stíl, opnaði fyrstu dýru bókina

og hóf að skissa.

Hér eru nokkrar . . .

Smelltu á áfram til að skoða!

Á Hygge með íslenskum vini
Á mögnuðum stað þar sem gamalli verksmiðju hefur verið breytt í markað með veitingahúsum, tónleikasölum og fleiru
Kirkja
Horft af svölunum heima
Kirkja og hús
Vatn, Nes-kaffi, vatn og penslar
Horft á byggingarkrana af svölunum heima
Tveir í þröngri götu

https://youtu.be/o77RGda5XR0?is=dhUaI-ZdWpekFxtByoutu.be/o77RGda5XR0?is=dhUaI-ZdWpekFxtB

Posted on

Greinar og hugvekjur / Articles
Minningarorð / Funeral Sermons
Myndlist / Art
Prédikanir / Sermons