Í dag hjólaði ég í miðborgina í 27 gráðu hita og sól.
Yndislegt veður og þægilegt.
Ég stefndi á „Stalíns-tertuna“
og turnana sem kallas á við þá stóru og miklu byggingu.
Ég skissaði með blýanti og svo málaði ég fyrsta vask, eins og það er kallað á vatnslitamáli.
Tók skissuna svo heim og kláraði hana þar.
Hér eru tvær myndir,
önnur af fyrsta vaski
og hin af verkinu loknu.
Segja má að hér kallist á
kommúnisminn og kapitalisminn
með þessum miklu turnum.


You must be logged in to post a comment.