Í Málfarsbanka voru þessi verðmæti lögð þar inn á reikning:
„Í sögu Davíðs Stefánssonar, Sólon Islandus, kemur fram að Sölvi Helgason var stórlega ýkinn. Þar segir m.a. frá því að þóttist hafa keppt við ítalskan reiknimeistara. Ítalinn reiknaði barn í konu en Sölvi reiknaði það úr henni eða eins og segir í sögunni:
þá tókst þeim ítalska að reikna barn í eina danska. Ég var viðbúinn og reiknaði það strax úr henni;
Og loks tókst mér að reikna tvíbura í eina afríkanska, og var annað barnið hvítt en hitt svart. . . . „

eftir Michael Cheval
Vísindaafrek þetta virðist endurtekið hægri/vinsti á síðustu dögum. Konan í reiknisdæmum sérfræðinga heitir Evrópa og sýnist sitt hverjum um fegurð hennar og atgervi.
Ég hef dvalið í Varsjá í einar 6 vikur nú í maí/júní 2026 og hafði með mér kreditkort til að geta varið eftirlaunum mínum risaháum – eða þannig – í nauðsynjar hér á bæ í Séttumannalandi en svo var Pólland kallað forðum daga.
Þetta land er nú í Evrópusambandinu og í reikningum Mogganns skv. blaði dagsins 13. júní 2026, þurfa Pólverja að greiða langtum stærri hlut af sínum launum til kaupa á nauðsynjum en við Íslendingar þegar miðað er við hlutfall af ráðstöfunartekjum eins og það heitir á háskólamáli lélegsvísinda, afsakið félagsvísinda.
En nú er ég hér með mínar fáu, mánaðarlegu efturlaunakrónur og allt er hér á hálfvirði og jafnvel kostar ekki nema einn-þriðja-part af því sem það kostar heima.
Nú er ég mjög efins um að við eigum að ganga í EU, en er nema von að mér finnist snillingarnir heima hafi reiknað eins Sölvi Helgason sagði að unnt væri að gera, barn í konu og úr henni aftur?
Ég bar spyr.
You must be logged in to post a comment.