Viltu hlusta í rúmar 5 mínútur?
Þankar í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga og eftir að kosningum lauk og niðurstöður lágu fyrir.

Fjöldi frambjóðenda hefur tjáð sig í fjölmiðlum vegna kosninga til sveitarstjórna 2026 og lofuðu flestir öllu fögru. Þeir sækjast eftir því að komast til valda og verja því fé til góðra verka sem við greiðum reglulega til sameiginlegra verkefna með sköttum okkar. Nákvæmlega sama á við um fólkið sem sækist eftir því að ná kjöri til Alþingis. Fólk sækir í völd og frama, að vera áberandi, að láta um sig muna og allt það. Auðvitað eru allir í þessu með góðum og göfugum hug, en svo spyr maður um árangurinn. Hvers vegna er svo mikill halli á rekstri margra sveitarfélaga og höfuðborgarinnar?
Orðið pólitík er komið af gríska orðinu polis sem merkir borg og því snýst pólítík um málefni borgaranna, velferð fólksins sem myndar samfélagið.
Lýðræðið er ein af mörgum leiðum til að stjórna landi og lýð og stjórnmálamenn, konur og karlar, hafa sér til aðstoðar fjölda sérfræðinga í kerfinu sem fylla ráðuneytin og skrifstofur sveitarfélaga.
Stundum hvarflar það að mér að við ættum að kalla til sérfræðinga til að stjórna landinu, kjósa þá til þess að beita sérþekkingu sinni í þágu almennings. Við gætum öll fengið að segja hug okkar um þau sem t.d. skoðanakannanir teldu bestu kostina í hvert embætti. Og þá þarf að velja fólk sem ekki er með jólasveinablæti heldur kaldan hug og hlýtt hjarta, því sérhvert þjóðfélag byggir á grunnstoðum Vestrænna samfélaga, réttlæti og kærleika, röklegu réttlæti og ríkri elsku.
Margir hafa stigið inn á sviðið í ár og sagst vilja bjarga sveitarfélaginu mínu og þínu. Ég skal segja þér hvað hefur farið um huga minn í sumum tilfellum þegar fólk hefur stigið fram og ég spurt mig: Hvað hefur hún fram að færa? Hvað vill hann uppá dekk?
Hvorki er ég rekstrarfræðingur né með gráðu í stjórnmálafræði. Ég veit að þessar hugmyndir mínar í þessum örpistli mun mörgum ykkar e.t.v. þykja fjarstæðukenndar, en þá bendi ég á að stærstu fyrirtæki heims, best reknu samstæður veraldar, eru reknar af sérfræðingum. Í hlutafélögum lúta stjórnendur hluthöfunum og þeirri stjórn sem þeir hafa kosið til að standa vörð um hag sinn. Hvers vegna ná slík fyrirtæki mörg gríðarlegum árangri? Ætli það sé vegna þess að markmiðin eru skýr og stefnan klár?
Stjórnmálamenn sækjast margir eftir völdum, valdanna vegna og líklega einnig vegna þeirrar miklu athygli sem fylgir störfum slíkra alla jafnan.
Ég veit að miklu þarf að breyta til að slíkar hugmyndir geti orðið að veruleika, en með þeim væru það ekki stjórnmálamennirnir sem réðu að öllu leyti hvernig fjármunum væri varið hverju sinni heldur sérfræðingarnir undir eftirliti kjörinna fulltrúa. Stjórn landins hefði í raun það eina hlutverk að gæta þess að réttlæti og kærleikur réði í öllum ákvörðunum sem sérfræðingarnir leggðu til. Ríkisstjórnin yrði þá í svipuðu hlutverki og eftirlitsnefnd Alþingis er núna. Og stjórnmálamönnum um land allt forðað frá því að verða jólasveinablætinu að bráð.
Lýðræði er líklega besta stjórnunartæki sem heimurinn hefur komið sér upp en, lýðræðið er ekki fullkomið, ekki alviturt, stundum á algjörum villgötum og missir oft sjónar á því sem mestu skiptir.
Lýðræðinu skal ekki kippt úr sambandi með þessum þönkum mínum heldur tel ég að við gætum náð betri árangri með því að fela lýðræðinu annað hlutverk en bara að velja úr hópi frambjóðenda sem margir kunna að vera haldnir ögn af jólasveinablæti og þurfa svo ekki að leggja fram nein prófskírteini eða menntagráður helur bara að hoppa upp á kosningavagninn og tala hátt með slagorðum sem í sumum tilfellum gæti a.m.k. túlkast sem lýðskrum.
Væri betra að velja sérfræðinga, snillinga, til að reka samfélagið og veita þeim svo stuðning og aðhald með lýðræðislegum hætti?
You must be logged in to post a comment.