Langi frjádagur er gamalt nafn föstudagsins langa.
Sögnin að frjá merkir að elska.
Dagurinn er þar með hinn langi dagur elskunnar
þegar Jesús sýndi sinn dýpsta kærleik
með því að deyja fyrir mannkyn.
Um það orti séra Hallgrímur Pétursson í sálminum
Um dauðans óvissan tíma
Hér eru vers 11 og 12 af 13 en þau vísa til krossdauðans á degi elskunnar – langa frjádag
11 Með sínum dauða’ hann deyddi
dauðann og sigur vann,
makt hans og afli eyddi,
ekkert mig skaða kann,
þó leggist lík í jörðu
lifir mín sála frí,
hún mætir aldrei hörðu
himneskri sælu í.
12 Jesús er mér í minni,
mig á hans vald ég gef
hvort ég er úti’ eða inni,
eins þá ég vaki’ og sef.
Hann er mín hjálp og hreysti,
hann er mitt rétta líf,
honum af hjarta’ eg treysti,
hann mýkir dauðans kíf.

ÖBJ 2025
You must be logged in to post a comment.