
Allir lærisveinar Krists létu lífið fyrir trú sína utan einn. Það var Jóhannes guðspjallamaður sem dó háaldraður í Efesus.
Writer – Painter – Theologian
Rithöfundur – Málari – Guðfræðingur
“Six Tuscan Poets” by the Italian Renaissance painter, architect, and art historian Giorgio Vasari

Allir lærisveinar Krists létu lífið fyrir trú sína utan einn. Það var Jóhannes guðspjallamaður sem dó háaldraður í Efesus.
Grindvíkingar eru mér ofarlega í huga, nú á þessum erfiðu tímum.
Hvað skal gera?

Hér birti ég 4 myndir sem allar tengjast kaffihúsum, tvær stórar og tvær minni. Vatnslitir og blek.
Þær eru hér birtar í sýndar-römmum og umhverfi.
Myndirnar eru til sölu ásamt fjölda annarra hér á sama vef.
Upplýsingar um verð gefnar upp sem svar við vef-skilaboðum eða í símtali 854 2311.




Greinin birtist í Morgunblaðinu laugardaginn 13. janúar 2024.

Viltu hlusta á lestur höfundar? Smelltu þá á tengilinn:
Eru sýndarveruleiki og gervigreind hættuleg?
Skoðum söguna um það hvernig maðurinn hefur lært að hugsa óhlutbundið og nýtt sér tæknina.
Stafrófið er merkileg uppfinning. Það er rakið til Kanaaníta í Mið-Austurlöndum fyrir um 5000 árum. Íslenska stafrófið telur 32 stafi. Með þessu stafasetti eru öll orð mynduð, sem til eru á prenti á íslensku eða rafrænum textum.
(more…)Vatn er til margra hluta nytsamlegt. Vatnslitamynd dagsins unnin meðan regnið vann sitt hreinsunarstarf í Borginni.

Lutheran/Protestant Parish Church at Ísafjörður, NW-Iceland – Watercolor by Örn Bárður Jónsson – Bard Art.
Var að mála þessa með vatnslitum.
Stærð: 54×26 cm og svo bætist kartonið við. Heildin 70×50 cm.

Svo mætti fólk í kirkjugarðinn og þá varð ég að mála það inn. Sumir voru með blóm aðrir bara að spjalla saman.
Myndin er enn í vinnslu og mér finnst hún bara batna!
Átökin í Ísrael og Palestínu eru þyngri en tárum taki, glæpir á glæpi ofan eru framdir á báða bóga. Slíkt ber að fordæma.
Biðjum fyrir friði í Ísrael og að beinir gerendur slíðri vopnin.
Á liðnu sumri heimsótti ég Ísrael og í kjölfar þess málaði ég nokkrar vantslitamyndir. Hér er ein frá Jerúsalem þar sem Musteri Gyðinga stóð forðum, nú moska múslíma.
Sérstök upplifun var að fá að fara upp á Musterishæðina og skoða þessa merku byggingu og Grátmúrinn, sem er nánast undirstaða helgidómsins. Við, ferðafélagarnir, fengum að upplifa þetta allt í maí á liðnu ári, áður en átökin hófust síðar á árinu.

Tvær myndir málaðar eftir erlendum fyrirmyndum/mótífum.
Raunstærð myndflatar er 27×20 cm og þar við bætist svo kartonið.
Myndirnar eru mun minni en þær virðast í þeim sýndarveruleika sem hér birtist með sýndarrömmum með meiru.
Ef tölvan þín leyfir það legg ég til að þú þysjir myndirnar út og stækkir.


Viðtal í Pallborðinu hjá Vísi/Stöð2 hjá Hólmfríði ásamt séra Jónu Hrönn Bolladóttur, Pétri Markan, biskupsritara og yðar einlægum. Og ekki er nú alltaf að marka það sem fjölmiðillinn klippir út og kynnir á vefnum. Best er að hlusta á allan þáttinn en . . .
. . . lokaorðin örstutt átti Örn Bárður og hægt er að hlusta hér:
Hér er svo slóðin á þáttin þar sem hægt er að horfa og heyra á hann allan. Smelltu á slóðina:

Man Dokkuna frá barnæsku en nú er hún horfin.
