Seinni hluti
Viltu hlusta? Upptakan tekur 26 mínútur í hlustun.
Hlustað á múslimskan fræðimann í Jerúsalem
Árið 2024 fór ég í mína fyrstu ferð til Ísraels og hlýddi þar á fyrirlestur fræðimanns um islam, en hann er sjálfur múslimi og talaði yfir hópnum í einn og hálfan tíma um islam.
Auðvitað má segja margt gott um múslima en islam sem trúarkerfi er flókið og margslungið. Hann fræddi okkur um mál, sem hann berst fyrir, en það er að hætt verði að prenta svokallaðar “túlkanir” neðanmáls í Kóraninum, en þessar túlkanir eru seinni tíma fyrirbrigði og viðbætur, sem valda miklum misskilningi og gera islam að hans mati að þeim hættulegu og öfgafullu trúarbrögðum sem raun ber vitni. Útgáfur Kóransins með þessum viðbótum/túlkunum eru fjármagnaðar af olíugróða Saudi-Arabíu.











