Þann 1. maí, síðdegis, fór ég á hjólinu um Vesturbæinn, Þingholtin og Skuggahverfið. Á bakaleiðinni eftir heimsókn á gjörgæslu LHS við Hringbraut kom ég við á gatnamótunum við Hljómskálann og teiknaði mynd af Hljómskálanum og styttunni sem er í Hallargarðinum handan við gatnamótin. Sólin hafði lækkað mjög á lofti enda síðdegi og hitastigið undir frostmarki en litirnir voru tærir, himinninn blár og skær. Bjarkirnar eru enn króknaðar og fölar en þær munu vakna við vorsins yl. (more…)








