Sagnfræðingur útskýrir á mannamáli og með víðtækri þekkingu hvað islam stendur fyrir.
Writer – Painter – Theologian
Rithöfundur – Málari – Guðfræðingur
“Six Tuscan Poets” by the Italian Renaissance painter, architect, and art historian Giorgio Vasari
Sagnfræðingur útskýrir á mannamáli og með víðtækri þekkingu hvað islam stendur fyrir.
Þrjár upptökur.
Í hinni fyrstu spjalla ég um ritningarlestur og hver miklu máli hann skiptir fyrir andlegt líf okkar.
Þá er upptaka á texta úr Lúkasarguðspjalli.
Og loks upptaka úr Jesaja spámanni.

Hugvekjan:
Lestur úr Jesaja:
Lestur úr Lúkasi:
Ein lítil bók sem er á stærð við póstkort sem ég hóf að nota 2019 en svo lá hún í bið þar til í vor 2026 að ég tók hana til brúks og fyllti hana á nokkrum vikum.
Hér er sumt af því sem þar varð til.
Viltu hlusta á teiknarann spjalla um myndirnar?





















Fyrritækið WorsPress sem vistar heimasíðu mína sendi mér kveðju í dag og þakkaði 13 ára samfylgd.
203 þúsund heimsóknir!
S.l. 3 ár hafa greinar/prédikanir/líkræður fengið 203 þúsund heimsóknir og af þeim fjölda hafa 3/4 eða yfir 150 þúsund hlustað á ræður og upplestur greina!
Þakka WP og ykkur öllum sem lesið og hlustið!

Birt til gamans mynd sem fermingarsonur minn birti á FB-síðu sinni í gær. Hún var tekin 1986, fyrir 40 árum, en þá var ég ekki byrjaður að blogga og enginn blogg voru þekkt á þeim tíma en ég var hins vegar duglegur að prédika og halda námskeið um kristna trú bæði í Grindavík og víðar.

Grein eftir Örn Bárð Jónsson úr Morgunblaðinu 14. apríl 2026
Viltu hlusta? Tekur rúmar 7 mínútur!

Þessa dagana þá þetta er ritað, 13. apríl 2026, trompast Trump yfir skoðunum Leós XIV páfa um stríðsrekstur og sýnir enn hvað hann er skjótráður og gjarn á að ofnota trompin í spilastokknum.
Til að upplýsa almenning um kenningar kirkjunnar um stríð er hér texti í þýðingu sem gerð var með vitlíkinu Claude og lagfært af handhafa þessarar síðu.
Viltu hlusta? Smelltu á upptökuna fyrir neðan myndina.

Um réttlátt stríð
Hugmyndir um réttlát stríð (latína: bellum iustum) eru kenning, einnig nefnd hefð, um hernaðarsiðfræði sem hefur að markmiði að tryggja að stríð sé siðferðilega réttlætanlegt með röð skilyrða, sem öll verða að vera uppfyllt til þess að stríð teljist réttlátt. Hana hafa rannsakað herforingjar, guðfræðingar, siðfræðingar og stefnumótendur. Skilyrðunum er skipt í tvo hópa: jus ad bellum („réttur til að fara í stríð”) og jus in bello („rétt framferði í stríði”). Kallað hefur verið eftir því að þriðji flokkur kenningar um réttlátt stríð (jus post bellum) verði tekinn upp, sem fjallar um siðfræði uppgjörs og enduruppbyggingar eftir stríð. Kenningin um réttlátt stríð heldur því fram að stríð, þótt það sé hræðilegt — þó síður svo með réttu framferði — sé ekki alltaf versti kosturinn, heldur réttlætanlegt þegar réttlæti er markmið vopnaðra átaka. Mikilvægar skyldur, óæskilegar afleiðingar eða það að forðast grimmdarverk mótaðila geta réttlætt stríð.
(more…)Þýddi texta við lag Marks Knopfler Piper to the End. Þú getur horft á myndband með honum og hlustað neðanmáls.
Hér raula ég lagið:

Og hér kemur textinn á ensku ásamt þýðingu minni.

Og hér er tengill á myndband með Mark Knopfler:
Langi frjádagur er gamalt nafn föstudagsins langa.
Sögnin að frjá merkir að elska.
Dagurinn er þar með hinn langi dagur elskunnar
þegar Jesús sýndi sinn dýpsta kærleik
með því að deyja fyrir mannkyn.
Um það orti séra Hallgrímur Pétursson í sálminum
Um dauðans óvissan tíma
Hér eru vers 11 og 12 af 13 en þau vísa til krossdauðans á degi elskunnar – langa frjádag
11 Með sínum dauða’ hann deyddi
dauðann og sigur vann,
makt hans og afli eyddi,
ekkert mig skaða kann,
þó leggist lík í jörðu
lifir mín sála frí,
hún mætir aldrei hörðu
himneskri sælu í.
12 Jesús er mér í minni,
mig á hans vald ég gef
hvort ég er úti’ eða inni,
eins þá ég vaki’ og sef.
Hann er mín hjálp og hreysti,
hann er mitt rétta líf,
honum af hjarta’ eg treysti,
hann mýkir dauðans kíf.

Ertu að leita að tækifærisgjöf?
Ferming? Hjónavígsla? Afmæli? Útskrift? Tímamót?
Birti hér myndir sem ég hef málað á s.l. misserum.
Þær eru allar til sölu.
Flestar eru þær 37×27 cm,
stærri 74×54
og þær minnstu 37×18
Verð mynda er frá IKR 25.000 – 100.000
Myndirnar eru í sýndarrömmum á þessari síðu og seljast án ramma.
Sendið mér skilaboð á vefnum ef þið hafið spurningar eða athugasemdir á netfangið:
ornbard@gmail.com







































Örn Bárður spjallar og segir frá reynslu sinni af messuferð þegar skvett var á hann í tvígang!
Hljóðupptaka sem tekur 14 mín+

Teikningar úr messunum hér fyrir neðan:
(more…)