“Six Tuscan Poets” by the Italian Renaissance painter, architect, and art historian Giorgio Vasari

  • HINN “RÓTTÆKI” JESÚS

    HINN “RÓTTÆKI” JESÚS

    “Af sjónarhóli hinna vinnandi stétta horfir það svo við að Kristur hafi tekið sér bólfestu hjá kirkjunni og hinum borgaralegu öflum.”

    Sá Jesús sem birtist í guðspjöllunum var hvorki íhaldssamur miðstéttarmaður né pólitískur róttæklingur. Han slóst hvorki í för með Saddúkeum né Selótum. Jesús ruddi braut fyrir annan skapandi valmöguleika. Hann gerði Guðs ríki að kjarna alls er hann gerði, og hafnaði þeim mannasetningum sem setja fram guðhræðslu, sem ekki frelsar fólk frá synd, vonleysi og félagslegri útskúfun. Eitt er algjörlega á hreinu: Jesús tilheyrir ekki kirkjunni fyrst og síðast, heldur heiminum, og vissulega ekki þeim sem hafa allt, heldur þeim sem hungrar og þyrstir eftir réttlætinu.”

    TIL ÍHUGUNAR:

    Jesús tilheyrir ekki hinni stofananlegu trúrækni, heldur þeim sem leita hans vegna þess að þeir þarfnast hans.

    Hinn “róttæki” Jesús
    Mynd af Vefnum

    Úr bókinni:

    Charles Ringma

    Grip dagen med Dietrich Bonhoeffer

    Verbum 1992

    Bæn 12. janúar

    I Korintubréf 1,26-28

    26 Minnist þess, systkin, hvernig þið voruð þegar Guð kallaði ykkur: Mörg ykkar voru ekki vitur að manna dómi, ekki voldug eða ættstór. 27 En Guð hefur útvalið það sem heimurinn telur heimsku til að gera hinum vitru kinnroða og hið veika í heiminum til þess að gera hinu volduga kinnroða. 28 Og hið lítilmótlega í heiminum, það sem heimurinn telur einskis virði, hefur Guð útvalið til þess að gera að engu það sem er í metum.

    Úr Biblíu 21. aldar (2007)

    Dietrich Bonhoeffer var þýskur guðfræðingur sem Nazistar tóku af lífi rétt fyrir stríðslok. “Glæpur” hans var að mótmæla og taka þátt í undirbúningi að tilræði við Hitler.

    Upphafsorðin eru eftir Bonhoeffer, hugvekjan eftir Ringma

    Þýðandi: Örn Bárður Jónsson 12. janúar 2021

  • Orkuskipti á Vestfjörðum

    Vestfirðingar búa á köldu svæði og jarðhiti lítill. Rafmagn er flutt langa vegu yfir fjöll og úfið landslag þar sem vetrarveður ógna oft mannvirkjum og fella rafmagnsmöstur eins og eldspýtur væru.

    Skutulsfjörður þar sem Ísafjarðarkaupstaður stendur á Eyri.
    Myndin tekin úr Arnardal.
    (more…)
  • Snerting eftir Ólaf Jóhann

    Snerting

    Var að ljúka við bók Ólafs Jóhanns Ólafssonar, Snerting.

    Afar vel skrifuð bók. Ég hugsaði, reyndar eins og fleiri að ég held: Hvenær kemur hann sér að efninu?

    Biðin var þess virði því það gerði hann á einstakan hátt.

    Framvindan hæg, fögur, næm .

    Hann fæst við stór stef liðinnar aldar, örlög Japana í heimstyrjöldinni síðari, tengsl ólíkra menningarheima og siða, tilvist ungs manns og svo glímu hans á síðari hluta ævinnar.

    Og svo kemur lokahnykkurinn, “the punch line” – og einmitt á réttum stað.

    Bókin endar á stórkostlegan hátt en án þess að hann vinni frekar úr því sem þar er afhjúpað.

    Það gerir gæfumuninn því þá á lesandinn eftir sitt verkefni, að vinna úr niðurstöðunni.

    Takk fyrir frábæra sögu!

  • +Vilborg Sigríður Árnadóttir 1946-2020

    +Vilborg Sigríður Árnadóttir

    1946-2020

    Söngkona

    Bálför frá Fossvogskirkju

    mánudaginn 19. október 2020 kl. 15

    Jarðsett verður í Hólavallagarði

    Minningarorð eftir Örn Bárð Jónsson

    _____

    “Tilvera okkar er undarlegt ferðalag”.

    Ég veit að það er ekki ýkja frumlegt að byrja minningarorð yfir henni Vilborgu Sigríði Árnadóttur með tilvísun í ljóð Tómasar Guðmundssonar, Hótel Jörð!

    En svo má spyrja: Hvernig er annað hægt?

    (more…)
  • Ég vil aðskilnað ríkis og kirkju

    Örn Bárður Jónsson

    23. október 2020

    Ég vil aðskilnað ríkis og kirkju

    Nú berast þær fréttir til almennings að nokkrir þingmenn standi saman að þingslyktunartillögu um aðskilnað ríkis og kirkju. Sjá nánar hér: https://www.althingi.is/altext/150/s/0128.html

    Sagan

    Árið 1907 gekkst biskup Íslands fyrir því að ná samningi við íslenska ríkið um að það tæki yfir nær allar jarðeignir kirkjunnar til forvöltunar sem merkir að ríkið skyldi reka þær og ávaxta. Gegn þeirri afhendingu var það tilskilið að ríkið greiddi tilteknum fjölda presta laun, sem kirkjan hafði til þess tíma séð um sjálf, en í reynd lifðu flestir prestar á þeim tíma af búskap á prestsetursjörðum. Biskup var orðinn þreyttur á því að standa í rekstri jarða og umsýslu eigna. Í 90 ár var þessi samningur í gildi, árin 1907-1997.

    Ríkið, sem átti að gæta eignanna, var eins og aðrar veraldlegir aðilar, markað syndinni eða óflullkomleikanum. Vert er að minna á að orðið synd í Nýja testamentinu, hamartia, merkir geigun eða það að missa marks, ná t.d. ekki að uppfylla það sem er siðlegt og rétt. Menn brenna af í vítaspyrnu í fótbolta, hjón rífast, börn eru óhlýðin og allir klúðra lífi sínu á einn eða annan hátt.

    (more…)
  • Þankar um Bakþanka Davíðs en þó engir bakþankar

    Til Davíðs Þorlákssonar vegna Bakþanka hans í Fréttablaðinu 21. október 2020 og samskipta við hann á Facebook í kjölfarið.

    “Ákrot” heitir það í þínum pistli. Huggulegt orðaval. Já, þetta fólk “krotar” til að ná fram sínum málstað og setur kusk á hvítflibbann þinn.

    Svo er sagt það hafi verið slæm hugmynd “að skipa stjórnlagaráð með fólki sem hafði flest hvorki sérfræðiþekkingu ný lýðræðislegt umboð til að skrifa nýja stjórnarskrá.”

    Er þetta sannleikanum samkvæmt?

    Nei, það sér hver heiðarlegur maður.

    Hverjir hafa sérfræðiþekkingu til að skrifa stjórnarskrá?

    (more…)
  • Bjagað vald

    Svar við grein Sighvats Björgvinssonar í Kjarnanum 20. október 2020 https://kjarninn.is/skodun/2020-10-19-stjornarskrargjafinn-og-thu-sjalfur/

    Hvatur þykir mér þú vera, sveitungi sæll, og bera nafn þitt með rentu, Sighvatur, hugrakkur til orrustu. En það er Bárður einnig því nafnið merki “sá sem ann orrustum”. Báðir höfum við vestfirskan anda í brjósti. En í bardaga er ekki gott að höggva í eigin fót. Það þykir mér þú nefnilega gera í grein þinni í Kjarnanum 20. október 2020 þegar 8 ár eru liðin frá því þjóðin sagði hugs sinn til tillagna Stjórnlagaráðs um nýja stjórnarskrá.

    (more…)
  • Geðþótti og gerræði

    Grein í KJARNANUM um nýju stjórnarskrána. Alþingi virðir ekki eigin lög og samþykktir. Hvað með þig?
    https://kjarninn.is/skodun/2020-10-16-gedthotti-og-gerraedi/

    Þú getur lesið með því að opna tengilinn frá Kjarnanum hér að ofan og svo geturðu hlustað með því að smella á hljóðtakkann fyrir neðan.

  • Guð og náttúran

    Grein í Kjarnanum sem fjallar m.a. um guðfræðilega aðgreiningu skapara og sköpunar.
    https://kjarninn.is/skodun/2020-09-25-gud-og-natturan/


  • Nýjar skissur – New Sketches from Iceland

    Strong wind in Eyjafjörður north Iceland showing a range of colours in the ocean.
    A choice of houses in the centre of Reykjavik
    The Icelandic Art Museum, formerly a dance house from my days of youth in the seventies and before that a fish freezing factory!