Hér les Örn Bárður grein Parrikars? Smelltu!

Writer – Painter – Theologian
Rithöfundur – Málari – Guðfræðingur
“Six Tuscan Poets” by the Italian Renaissance painter, architect, and art historian Giorgio Vasari
Hér les Örn Bárður grein Parrikars? Smelltu!

grein eftir Örn Bárð Jónsson · október 2026

Viltu hlusta á höfundinn lesa? Smelltu hér:
Í orðræðu á samfélagsmiðlum, þar sem talað er í símskeytastíl í hita leiks, fer ýmislegt forgörðum. Umræðan verður oft að eintómum upphrópunum og sleggjudómum. Sumir hafa bókstaflega hraunað yfir mig og ég í sumum tilfellum brugðist við þeim yfirgangi. Í hita leiksins geta menn svitnað og glíman orðið römm. Menn hjóla oft í manninn en ekki málefnið, ad hominem en ekki argumentum ad rem eins og það heitir í fræðunum. Ráðist er á manninn en ekki textann: “Þú er prestur . . . ” o.s.frv. í miklum hneykslunartón.
Ég settist niður og ritaði grein sem ég hef marg leiðrétt, legið yfir og lagað og loks unnið í samvinnu við góða ráðgjafa, þar á meðal gerivigreind, sem hefur skerpt margt af því sem var í frumtexta mínum, en leiðrétt annað. Ég leyfi mér að taka það fram að mér hefur líka tekist að leiðrétta gervigreindina – og hún viðurkenndi það! Gervigreindin (GG) ritaði ekki greinina en ég fékk hana til að lesa textann og gefa ráð.
Mikilvægt er að menn skoði vel afstöðu sína til alvarlegra mála sem eru í umræðunni og rökræði hana við þá sem eru tilbúnir til að leiðrétta með “hógvæðar anda” eins og sagt er í Hinni helgu bók.
Hér kemur afurðin:
(more…)Kona sem veit, þekkir og skilur, skrifar skilaboð til okkar allra
Viltu hlulsta í innan við 6 mínútur?

Fawzia Zouari, rithöfundur frá Túnis, blaðakona og doktorshafi í frönskum- og samanburðarbókmenntum frá Sorbonne-háskóla, birti þessa grein um að henni væri nóg boðið í blaðinu Jeune Afrique. Hún er hugrökk en ég er ekki viss um að allir skilji það. Ég mæli með lestri.
(more…)Viltu hlusta? Smelltu á tengilinn:
Nú í sumar 2026 hefur Borgarstjórn afturkallað lóð sem úthlutað hafði verið gefins til samfélags múslima í sjálfu “borgarhliðinu” þar sem stofnbrautir mætast úr vestri og suðri. Því ber að fagna enda sýnir islam það um allan heim að sú trú er til vandræða því hún er úrelt miðaldafyrirbrigði sem á ekkert sameiginlegt með vestrænni menningu.
(more…)Útför frá Neskirkju fimmtudaginn 8. október kl 13
Viltu hlusta? Smelltu hér:


eftir Örn Bárð Jónsson
Merkilegt hefur verið að upplifa viðbrögð við grein sem ég ritaði nýlega og birti í DV og tel mjög upplýsandi um áhrif islam í heiminum. Greinin ber yfirskriftina Taktu þér stöðu. Þar er því m.a. haldið fram að 3. heimstyrjöldin sé þegar hafin og framrás islam á Vesturlöndum staðreynd.
Vilstu hlusta á höfundinn lesa textann? Smelltu hér:
Fjöldi þeirra sem létu sér líka greinina er margfaldur við þá sem eru á öndverðum meiði en úr síðari hópnum eru ótrúlega margir sem geta ekki hamið sig í samskiptum við annað fólk, kunna hvorki háttvísi né samræðulist.
(more…)
Ég hef ítrekað vitnað í Jürgen Habermas, einn frægasta heimspeking Evrópu á síðustu öld og þessari. Hann lést í vor er leið. Habermas (18. júní 1929 – 14. mars 2026) var þýskur heimspekingur og þjóðfélagsfræðingur sem fylgdi hinni svoenfndu krítísku hefð og raunhyggju (critical theory og pragmatism).
Hann sagði að Vesturlönd ættu alla sína verlferð og grunn að þakka Biblíunni og nefndi hugtakið réttlæti í túlkun gyðinga í GT og kenningu Krists um kærleikann. Á þessum hugtökum er dómskerfi Vesturlanda byggt, mannréttindi, mannhelgi og allt sem við teljum tilheyra siðuðu samfélagi. Habermas var guðleysingi NB!
Þessi sama hugsun kemur skýrt fram í viðtali sem John Anderson, fv. varaforsætisráðherra Ástralíu tók við Melanie Phillips, blaðakonu sem er gyðingur og skrifar mikið um heimsálin.
Hvað hefur hún að segja um heiminn í dag og Vesturlönd spólandi föst í hjólförum villunnar. Tek það fram að samlíkingin er mín. En hér kemur viðtalið. Ef tengillinn sést ekki, smelltu þá á auða svæðið!
https://www.facebook.com/plugins/video.php?height=314&href=https%3A%2F%2Fwww.facebook.com%2Freel%2F1203206545298722%2F&show_text=false&width=560&t=0
https://fb.watch/v/4hAZqKlky/?fs=ehttps://fb.watch/v/4hAZqKlky/?fs=e
Dr. Jay Smith er þekktur fræðimaður sem gjörþekkir Kóraninn og islam.
Horfum og hlustum!
Smelltu á slóðina:

Merkilegur fyrirlestur Helen Andrews um framþróun feminisma og hvernig konur hafa breytt heiminum.
Afar yfirveguð umfjöllun sem bæði konur og karlar verða að heyra!!!
Tekið skal fram að ritstjóri síðunnar valdi ekki myndina sem kemur upp fremst í þessu myndbandi. Fyrirlesarinn er aftur á móti yfirveguð kona og ógrettin sem flytur frábæran fyrirlestur án upphrópana eða æsings.
Smelltu á myndina