Á leiðinnin til baka ók ég inn á lóð Ráðagerðis, skissaði og hitti svo tvo í kaffi.
Skissurnar eru allar gerðar með penna og vatnsheldu bleki og því ekki hægt að stroka út og laga, sem gerir þær “spontant” og einvhern veginn ekta í sínum einfaldleika með mistökum og “alles”!
Vatnslitum bætti ég við heima.
Stærð ca. 20×30 cm.
Grótta er ótæmandi uppspretta fyrir skissukall!RáðagerðiVinir tveir og vitringar
Verðugt lesefni um eitt hættulegasta mein samtímans
Mynd af Vefnum
Ég fékk tölvupóst frá fræðimanninum, Dr. Iain McGilchrist geðlækni, sem er í uppáhaldi hjá mér og hann mælir þar með grein eftir kollega sinn. Greinin vakti athygli mína og ég lagði í að þýða hana og bið lesendur að taka viljann fyrir verkið.
McGilchrist segir um grein Hönnu Spier:
Ég vil endilega deila með ykkur grein sem birtir djúpt innsæi höfundar sem er norskur geðlæknir, hvers skrifum ég fylgist með. Greinin hjálpar okkur að skilja brjálæðið sem umlykur okkur. Hún er hugrakkur höfundur, langt frá því að vera ofstækisfull, sem er mikilvæg aðgreining frá því fólki sem hún greinir svo vel hér.
[https://hannahspier.substack.com/about]
Þýðandi vill taka það fram, að í sumum tilfellum er erfitt að nota ætíð sama orðið á íslensku. Orðið Progressivism má t.d þýða sem framfaratrú/hyggju, en ég vil einnig þýða það stundum með orðinu róttækni.
Smelltu á fyrstu fyrirsögnina ef þú vilt sjá færsluna í heild, allan textann.
STIX – eyja duðans, hlustað á Rachmaninoff á YouTube með Mána dóttursyni Teiknað eftir mynd á VefnumEsjan aldrei sömKaffi og croissantGrótta í kvöldbirtuSigurbjörn biskup var svipmikill maður í öllum skilningi og einstakur kennimaðurSeltjarnarneskirkja – gert var hlé á hjólatúr og teiknaðGrótta, mikil fjara og skarpir jarðlitirFyrir knattspyrnuleik Gróttu og Þróttar Vogum, Keilir í baksýn og Vatnsleysuströnd
Grein á Krossmessu að hausti eftir Örn Bárð Jónsson
Í morgun, 14. september, áður en ég hélt til messu hafði ég sett inn færslu á Facebook þar sem ég undraðist að frétt um fjöldagöngu fólks í London væri komin niður á 5. hæð í kjallara netsins en á 1. hæðinni væri komin grein um nazistann Göring sem var réttilega dæmdur og drepinn fyrir sínar misgjörðir.
Viltu hlusta? Upptakan tekur 26 mínútur í hlustun.
Hlustað á múslimskan fræðimann í Jerúsalem
Árið 2024 fór ég í mína fyrstu ferð til Ísraels og hlýddi þar á fyrirlestur fræðimanns um islam, en hann er sjálfur múslimi og talaði yfir hópnum í einn og hálfan tíma um islam.
Auðvitað má segja margt gott um múslima en islam sem trúarkerfi er flókið og margslungið. Hann fræddi okkur um mál, sem hann berst fyrir, en það er að hætt verði að prenta svokallaðar “túlkanir” neðanmáls í Kóraninum, en þessar túlkanir eru seinni tíma fyrirbrigði og viðbætur, sem valda miklum misskilningi og gera islam að hans mati að þeim hættulegu og öfgafullu trúarbrögðum sem raun ber vitni. Útgáfur Kóransins með þessum viðbótum/túlkunum eru fjármagnaðar af olíugróða Saudi-Arabíu.
Fræðimaður á sviði islam flytur okkur ferðalöngum fyrirlestur sinn(more…)