Kunnum við að tala?
Smelltu á fyrirsögnina efst til að sjá allan textann á skjánum.

Sat heima og horfði á Silfrið 23. febrúar 2026. Þar voru fimm eintaklingar að tjá sig um gervigreind sem opnuðu munninn um mikilvægt málefni, en opnuðu þó ekki munninn nægjanlega. Ég afréð að tjá mig um þetta algenga talmein fólks í þessum örpistli.
Ég skal skýra þetta betur. Ég hef unnið við það í áratugi að tala opinberlega og er enn að læra og er afar þakklátur fyrir það að þegar ég var í námi í Háskóla Íslands þá fékk ég nokkra tíma hjá talmeinafræðingi – og það fengum við öll sem vorum við námið án þess að við værum skilgreind sem einhverjir sjúklingar, öðru nær. Kennarinn var fenginn til þess að gefa góð ráð og kenna okkur að opna munninn og láta röddina sitja rétt eða liggja á réttum stað.
(more…)






