“Six Tuscan Poets” by the Italian Renaissance painter, architect, and art historian Giorgio Vasari

  • Morgunspjall 21. apríl 2026

    Þrjár upptökur.

    Í hinni fyrstu spjalla ég um ritningarlestur og hver miklu máli hann skiptir fyrir andlegt líf okkar.

    Þá er upptaka á texta úr Lúkasarguðspjalli.

    Og loks upptaka úr Jesaja spámanni.

    JESAJA
    vatnslitur
    21.4.2026 BARD

    Hugvekjan:

    Lestur úr Jesaja:

    Lestur úr Lúkasi:

  • KROT – Skannað úr skissubók

    Ein lítil bók sem er á stærð við póstkort sem ég hóf að nota 2019 en svo lá hún í bið þar til í vor 2026 að ég tók hana til brúks og fyllti hana á nokkrum vikum.

    Hér er sumt af því sem þar varð til.

    Viltu hlusta á teiknarann spjalla um myndirnar?

    Þúfan, Harpan, Hallgrímskirkja, vitarnir tveir og fleiri hús
    – skissað í hjólatúr 16. apríl 2026 – forsmekkur sumars
    Hljóðnemi og ímynduð bílatraffík
    Blessuðn brauðsins og æfing með fólk
    Karlar taka stöðuna og klerkur á sinn hátt
    Söngkona á skjánum og munir í glugga
    Skipt yfir á sumardekk og Jón Baldvin í viðtali
    Hús og fólk og bifhjólamenn – Reynisdrangar
    Ímynduð draumahöll og páfinn á yngri árum
    Keilir, Álverið og tré fyrir utan gluggann í Hrafnistu í Hafnarfirði
    Messugjörð, prédikun flutt og leikmaður sem las texta
    Sumir kallar spjalla meðan aðrir messa
    Karlar við pontu og Keilir á Reykjanesi séð frá Hrafnistu í Hafnarifirði
    Kirkja, Iðnó og gamla skólahúsið við Tjörnina, snjór á þökum
    Davíð biskup prédikar.
    Fólk krýpur við gráturnar
    og svo tvö í kirkjubekk
    Fermingarmessa í Áskirkju
    Amora 3ja ára nýtur sín í messunni
    Kirkja og fólk á leið til altaris – og í andanum til Jerúsalem
    Kirkja og karlar
    Messa í Kristskirkju 20206
    Hjólið gert klárt fyrir sumarið 2020 og áning við Gróttu
    Í Oberdorf í Austurríki er lítil kapella sem er til minningar um sálminn Heims um ból. Þar kom saman hópur íslenskra ferðalanga og söng sálminn einum rómi meðan heimamenn brynntu músum af aðdáun.
  • Bloggað í 13 ár!

    Fyrritækið WorsPress sem vistar heimasíðu mína sendi mér kveðju í dag og þakkaði 13 ára samfylgd.


    203 þúsund heimsóknir!
    S.l. 3 ár hafa greinar/prédikanir/líkræður fengið 203 þúsund heimsóknir og af þeim fjölda hafa 3/4 eða yfir 150 þúsund hlustað á ræður og upplestur greina!
    Þakka WP og ykkur öllum sem lesið og hlustið!

    Birt til gamans mynd sem fermingarsonur minn birti á FB-síðu sinni í gær. Hún var tekin 1986, fyrir 40 árum, en þá var ég ekki byrjaður að blogga og enginn blogg voru þekkt á þeim tíma en ég var hins vegar duglegur að prédika og halda námskeið um kristna trú bæði í Grindavík og víðar.

    Séra Örn Bárður leggur hönd á höfuð Guðmundi Birki Agnarssyni
  • Grunnur Vesturlanda og gæði

    Grein eftir Örn Bárð Jónsson úr Morgunblaðinu 14. apríl 2026

    Viltu hlusta? Tekur rúmar 7 mínútur!

  • Um réttlátt stríð

    Þessa dagana þá þetta er ritað, 13. apríl 2026, trompast Trump yfir skoðunum Leós XIV páfa um stríðsrekstur og sýnir enn hvað hann er skjótráður og gjarn á að ofnota trompin í spilastokknum.

    Til að upplýsa almenning um kenningar kirkjunnar um stríð er hér texti í þýðingu sem gerð var með vitlíkinu Claude og lagfært af handhafa þessarar síðu.

    Viltu hlusta? Smelltu á upptökuna fyrir neðan myndina.

    Um réttlátt stríð

    Hugmyndir um réttlát stríð (latína: bellum iustum) eru kenning, einnig nefnd hefð, um hernaðarsiðfræði sem hefur að markmiði að tryggja að stríð sé siðferðilega réttlætanlegt með röð skilyrða, sem öll verða að vera uppfyllt til þess að stríð teljist réttlátt. Hana hafa rannsakað herforingjar, guðfræðingar, siðfræðingar og stefnumótendur. Skilyrðunum er skipt í tvo hópa: jus ad bellum („réttur til að fara í stríð”) og jus in bello („rétt framferði í stríði”). Kallað hefur verið eftir því að þriðji flokkur kenningar um réttlátt stríð (jus post bellum) verði tekinn upp, sem fjallar um siðfræði uppgjörs og enduruppbyggingar eftir stríð. Kenningin um réttlátt stríð heldur því fram að stríð, þótt það sé hræðilegt — þó síður svo með réttu framferði — sé ekki alltaf versti kosturinn, heldur réttlætanlegt þegar réttlæti er markmið vopnaðra átaka. Mikilvægar skyldur, óæskilegar afleiðingar eða það að forðast grimmdarverk mótaðila geta réttlætt stríð.

    (more…)
  • PÁSKAFÖNDUR 2026 – Leik’á flautu unz eg dey – Piper to the End

    Þýddi texta við lag Marks Knopfler Piper to the End. Þú getur horft á myndband með honum og hlustað neðanmáls.

    Hér raula ég lagið:

    Ally Crowley-Duncan, known as Ally the Piper, is an American musician, bagpiper, and social media personality.

    Og hér kemur textinn á ensku ásamt þýðingu minni.

    Og hér er tengill á myndband með Mark Knopfler:

  • Langi frjádagur

    Langi frjádagur er gamalt nafn föstudagsins langa.

    Sögnin að frjá merkir að elska.

    Dagurinn er þar með hinn langi dagur elskunnar 

    þegar Jesús sýndi sinn dýpsta kærleik

    með því að deyja fyrir mannkyn.

    Um það orti séra Hallgrímur Pétursson í sálminum

    Um dauðans óvissan tíma

    Hér eru vers 11 og 12 af 13 en þau vísa til krossdauðans á degi elskunnar – langa frjádag

    11 Með sínum dauða’ hann deyddi
    dauðann og sigur vann,
    makt hans og afli eyddi,
    ekkert mig skaða kann,
    þó leggist lík í jörðu
    lifir mín sála frí,
    hún mætir aldrei hörðu
    himneskri sælu í.

    12 Jesús er mér í minni,
    mig á hans vald ég gef
    hvort ég er úti’ eða inni,
    eins þá ég vaki’ og sef.
    Hann er mín hjálp og hreysti,
    hann er mitt rétta líf,
    honum af hjarta’ eg treysti,
    hann mýkir dauðans kíf.

    Fyrir þig
    ÖBJ 2025
  • Gallerí Bard

    Ertu að leita að tækifærisgjöf?

    Ferming? Hjónavígsla? Afmæli? Útskrift? Tímamót?

    Birti hér myndir sem ég hef málað á s.l. misserum.

    Þær eru allar til sölu.

    Flestar eru þær 37×27 cm,

    stærri 74×54

    og þær minnstu 37×18

    Verð mynda er frá IKR 25.000 – 100.000

    Myndirnar eru í sýndarrömmum á þessari síðu og seljast án ramma.

    Sendið mér skilaboð á vefnum ef þið hafið spurningar eða athugasemdir á netfangið:

    ornbard@gmail.com

    Kristólógía og lavender
    Tilbrigði við upphaf kvikmyndar eftir Tarkovsky – Nostalgia
    Þúfan og tankarnir í Örfirisey
    Hvað er bak við ystu sjónarrönd?
    Faðmur
    Tvö í skógi
    Hofsá í Vopnafirði – vor í nánd og laxinn snýr aftur heim!
    Fyrir þig
    Götuhorn á Ítalíu
    Kvöldkyrrð
    Ljósið kemur
    Þúfan
    Ljós
    Tvö
    Saman og ein
    Hús við fjörð
    Hús við flóa
    Ævintýri á gönguför
    Náttúrulaug á Seltjarnarnesi
    Jarðhiti
    Skarpir litir hálendis
    Sól yfir Skeggjastað
    Litagleði á heiðum
    Stormar geysa I og II
    Horft yfir Arnarfjörð
    Björkin græðir
    Fiskurinn úr djúpinu – þankar um lífið
    Frjáls!
    Saman
    Næturbirta
    Kaffið, ó, kaffið
    Læknishúsið á Hesteyri í Jökulfjörðum I
    Læknishúsið á Hesteyri í Jökulfjörðum II
    Ljósið, já, ljósið!
    Sjö fley við Hörpu
    Kvöld á Ítalíu
    [máluð á skírdag 2026]
    Tilbrigði við kvöld í Skutulsfirði 1
    Tilbrigði við kvöld í Skutulsfirði 2
    Sólin skín á Engey
  • Góðspjall 5 – Kyrravika/dymbilbika og páskar

    Örn Bárður spjallar og segir frá reynslu sinni af messuferð þegar skvett var á hann í tvígang!

    Hljóðupptaka sem tekur 14 mín+

    Tilbrigði við upphafsatriði myndarinnar NOSTALGÍA e. Andrei Tarkovsky sem ég fann í bók dr. Gunnlaugs Andreasar Jónssonar, Áhrifasaga Saltarans. Vatnslitamyndina gerði Örn Bárður á Hofi í Vopnafirði árið 2025 eftir lestur bókarinnar

    Teikningar úr messunum hér fyrir neðan:

    (more…)
  • Lennox í Westminster: Að fjarlægja Guð úr stjórnmálum

    skapar siðferðilegt tómarúm

    sem veraldarhyggjan getur ekki fyllt

    Vídindi – Trú

    Úr greininni:

    “Jafnvel Jürgen Habermas viðurkennir, [látinn 14. mars 2026] fremsti heimspekingur gyðleysingja, að vestræn lykilgildi komi úr Biblíunni. Hann skrifar að hugmyndir eins og mannréttindi, frelsi og lýðræði, séu bein arfleifð gyðinglegrar siðfræði um réttlætið og kristinnar siðfræði um kærleikann. Þrátt fyrir veraldlegar fullyrðingar, lifum við enn á siðferðilegri arfleifð kristninnar. Allt annað, sagði Habermas, er bara aumt hjal í anda póstmódernisma.”

    Og hér er greinin öll:

    Grein eftir Dr. JOHN LENNOX, fv. stærðfræðiprófessor við Cambridge háskólann í Bretlandi.

    Að fjarlægja Guð úr stjórnmálum

    skapar siðferðilegt tómarúm

    sem veraldarhyggjan getur ekki fyllt

    Á morgunverðarfundi breska þingsins í Westminster hélt hinn þekkti kristni hugsuður og stærðfræðiprófessor, John Lennox, því fram að það að fjarlægja Guð úr stjórnmálum myndi skapa siðferðilegt tómarúm sem veraldarhyggjan eigi enga möguleika á að fylla upp í. Hér eru orð hans í heild sinni:

    (more…)