“Six Tuscan Poets” by the Italian Renaissance painter, architect, and art historian Giorgio Vasari

  • +Bergljót Halldórsdóttir 1938-2022

    Örn Bárður Jónsson

    Minningarorð

    +Bergljót Halldórsdóttir

    1938-2022

    Útför (bálför) frá Fríkirkjunni í Rvk.

    þriðjudaginn 19. apríl 2022

    Sálmaskráin er neðanmáls og kveðjur sem bárust voru fluttar eftir blessun og eru ekki með á hljóðupptökunni.

    (more…)
  • Vitstöðvarnar þrjár

    Við, mannfólkið, höfum þrjár vitstöðvar sem ég kalla svo.

    Sú sem oftast er talin stjórna öllu viti okkar er í höfðinu. Þar er bókvitið, getan til að lesa, reikna og teikna og vinna allskonar vísindaleg verkefni. Þar býr rökhugsunin sem er svo skemmtilegt að glíma við og þroska. En þessi stöð ræður ekki við allt sem að manninum snýr.

    Við þekkjum öll orðið brjóstvit sem vísar til vitstöðvar sem við köllum stundum hjartað. Ég finn það í hjarta mér, er stundum sagt. Í Íslensku hómilíubókinni eru stólræður presta frá því snemma eftir kristnitöku og er þar að finna líklega elstu texta sem til eru á íslenskri tungu. Í einni þeirra talar prestur um að taka til í bróstkirkjum órum eða brjóstkirkjum vorum. Brjóstkirkjan er helgidómur andans og þar skiljum við margt sem heilinn ræður ekki við. Við getum t.d. skynjað eilífðina, óendanleikann, trúna, handanveruna, hið yfirnáttúrulega – og sjálfa ástina. Heilinn getur ekki sett ástina í excelskjal og reiknað hana út en brjóstvitið kann að reikna hana fram og til baka og skilgreina á þann hátt sem engin orð megna að tjá.

    Svo kemur þriðja vitstöðin og hún er enn neðar í líkamanum en hjartað. Á ensku er talað um “gut feeling”, að finna eitthvað djúpt inni í sjálfum sér. Þegar Jesús gekk um og gerði gott er þess oftar en einu sinni getið í guðspjöllunum að hann hafi kennt í brjósti um einstaklinga eða hópa fólks, hann fann til með þeim.

    “Þegar Jesús steig á land sá hann þar margt manna og hann kenndi í brjósti um þá því að þeir voru sem sauðir er engan hirði hafa.” (Mark 6.34)

    Orðið í frumtexta Nýja testamentisins um þessa kennd er “ἐσπλαγχνίσθη” sem vísar til kviðarins, iðra, innyfla. Þarna er þriðja vitið. Ég hef gefið því tvö nöfn: iðravit og kviðvit og nota hið síðara því bókviti mínu hugnast þeð betur, hitt vísar í iðrakvef og fleiri óþægilega hluti og miður þekkilega.

    Kviðvitið hjálpar okkur t.d. að finna til samkenndar með fólki og setja okkur í spor annarra.

    Við finnum oft eitthvað á okkur, skynjum kenndir í líkamanum sem vísa okkur veg, stýra gjörðum okkar mun oftar en við kannski áttum okkur á. Hvaðan kemur okkur þetta vit? Stundum úr höfðinu eða hjartanu eða kviðnum.

    Vitið er nefnilega víðar en í höfðinu.

    Við höfum í raun þrjár vitstöðvar:

    Bókvit

    Brjóstvit og

    Kviðvit.

    Ritað föstudaginn langa 2022.

    Guð gefi þér innri frið og kyrrð um bænadagana og svo yfirfljótandi gleði þegar páskahátíðin sjálf gengur í garð, sunnudaginn stærsta.

  • Tears in Heaven – Tár á himnum – þýðing

    Fyrir mörgum árum þýddi ég textann góða, Tears in Heaven, eftir Eric Clapton, sem hann orti eftir að hafa misst son sinn sem féll út um glugga háhýsis.

    Eric syrgði son sinn og orti þetta ljóð um himininn. Mundi drengurinn þekkja hann þar í fyllingu tímans? Hann veit að hann sjálfur á ekki heima á himum, ekki fyrr en kannski síðar, og því verður hann að halda lífinu áfram og vinna úr sorginni.

    Erfitt er að fylgja sagnhætti enskunnar og því þýddi ég textann í framsöguhætti germyndar í stað viðtengingarháttar.

    Ung stúlka sem tók þátt í söngvakeppni framhaldsskólanna fyrir margt löngu hafði samband við mig og spurði hvort hún mætti syngja þýðingu mína sem fulltrúi Menntaskólans í Borgarnesi, að mig minnir, og gaf ég leyfi mitt.

    En svo týndist textinn og hvarf af netinu en nú hef ég rifjað hann upp og birti hann hér aftur og líklega í sömu mynd og fyrr.

    Hér er upptaka þar sem þýðandinn raular textann. Er þetta ekki í lagi?

    Muntu þekkja mig

    ef ég sé þig á himnum?

    Verður allt sem var,

    ef ég sé þig á himnum?

    Ég þrauka verð,

    hald’ áfram ferð

    Því ég veit ég á ei heima

    hér á himnum

    Muntu leiða mig

    ef ég sé þig á himnum?

    Muntu styrkja mig

    ef ég sé þig á himnum?

    Ég finna verð

    leið, ljúka ferð

    Því ég veit ég get ei dvalið

    hér á himnum

    Tíminn bugar hug

    Tíminn beygir kné

    Tíminn hjartað sker

    Miskunnaðu mér

    Hjálpa mér!

    Við mærin há

    er frið að fá

    og ég veit að engin verða

    tár á himnum

    Muntu þekkja mig

    ef ég sé þig á himnum?

    Verður allt sem var

    ef ég sé þig á himnum?

    Ég þrauka verð

    hald’ áfram ferð,

    Því ég veit ég á ei heima

    hér á himnum

    Því ég veit ég á ei heima

    hér á himnum.

    Þýðing: Örn Bárður Jónssons sem á réttinn á íslenska textanum ©

    Leitið leyfis þýðanda og/eða getið hans við flutning.

  • Elli og Ella ræða um innviði

    Þau kjarna þetta, eins og kerlingin sagði.
  • Þúfan og Féþúfan – tvö kennileiti í Reykjavík

    Þúfan og Féþúfan. Hugrenningatengsl að lokinni sölu hlutabréfa í Íslandsbanka vorið 2022.

    Alþingi hefur varið arðrán kvótagreifanna um árabil og nú þessi drullupollur!

    Þetta er nú meira þjóðfélagið og stærstur hluti fólks algerlega blindur á glæpaverkin sem framkvæmd eru daglega.


    Yfir þjóðinni voma hræfuglar sem leita að tækifærum til að fita sig.

    Á Alþingi og víða í kerfinu eiga þeir skósveina og meyjar sem hlaupa fyrir þá og hagræða svo þeir komist í æti og þá helst á laun.

    Svei ykkur!