“Six Tuscan Poets” by the Italian Renaissance painter, architect, and art historian Giorgio Vasari

  • +Eðvarð Lárus Árnason 1936-2023

    Örn Bárður Jónsson

    Minningarorð

    +Eðvarð Lárus Árnason

    fv. verktaki og lögreglumaður

    f. 8. desember 1936, d. 28. janúar 2023

    Útför frá Fossvogskapellu

    mánudaginn 6. febrúar 2023 kl. 15

    Ræðuna er hægt að lesa og hlusta á hér fyrir neðan

    (more…)
  • Heim til Afríku!

    eftir Örn Bárð Jónsson

    Flestar ljósmyndirnar tók ég sjálfur nema þær sem ég get um sérstakletga að eigi sér annan uppruna. Skissurnar teiknaði ég með bleki og litaði svo með vatnslitum.

    YFIRSKRIFT þessarar ferðasögu kann að hljóma villandi: “Heim til Afríku” en undarleg var hún, tilfinningin sem fylgdi því að standa á sléttum Kenýu, í þjóðgarðinum Masai Mara og finna í eigin sál og sinni, þessa sérstöku, tilvistarlegu upplifun:

    HÉR Á LÍFIÐ HEIMA,

    HÉÐAN ER TEGUNDIN MAÐUR, HOMO SAPIENS, KOMINN!

    HÉÐAN ER ÉG!!!

    HÉÐAN ERT ÞÚ!!!

    Frjálslega farið með stærðir og form með þessari teikningu.
    Gríraffi og ljón í Afríku, lundi og lamb á Íslandi.
    (more…)
  • Sæstrengur til Suðurnesja!

    Íbúar í Vogum á Vatnsleysuströnd vilja ekki loftlínu í gegnum Vogana og rafstrengsmálin þ.a.l. í algjörum hnút því Landsnet vill ekki fara með hana í jörð. Innviðaráðherra tjáði sig í tíufréttum Sjónvarpsins 3. janúar 2023 og sagði brýnt að finna lausn í deilunni.

    Ég legg til að höggvið verði á Gordíonshnútinn með því að leggja sæstreng til Suðurnesja.

    Þar með verður landi ekki raskað í Hvassahrauni, á Strandaheiði og víðar. Um leið verður komist hjá því að taka áhættu vegna eldgosa og hraunrennslis sem kynni að skaða bæði loft- og jarðstrengi í bráð og lengd.

    Kostnaður kann að verða meiri en sjónmengun verður forðað og miklu jarðraski líka.

    Og svo lýkur þar með 20 ára deilu um málið.

    Er þetta ekki lausnin?

  • Þegar stjörnur fall´á storð

    Nýárskveðja 2023 – Gleðilegt nýtt ár og þakka liðið.

    Þankar á tímamótum. Hér er birt þýðing á “negrasálmi” sem ég þýddi í gær, gamlársdag 2022 og tók svo upp söng minn á honum ásamt hugvekju um mannlíf um áramót og einnig á þeim tímamótum sem hinst verða á jörðu.

    Mynd af Veraldarvefnum

    Hér fyrir neðan er hljóðskrá með söng mínum og hugvekju

    (more…)
  • +Magnús Vignir Pétursson 1932-2022

    Örn Bárður Jónsson

    Minningarorð

    +Magnús Vignir Pétursson

    1932-2022

    fv. verzlunarmaður, heildsali og knattspyrnudómari

    Þú getur lesið og hlustað á ræðuna á næstu smellu. Sálmaskráin er allra neðst.

    (more…)
  • Jól á norðurslóðum

    Sálmur sem ég þýddi úr norsku fyrir nokkrum árum og tjáir jólin í lífi fólks á köldum norðurslóðum.

    Guð hefur gefið fólkinu bústað og ból og þar þraukar það veturinn og er hörku duglegt eins og Guð sjálfur! Konur og karlar starfa saman og eru jöfn. Lífið er friðsælt og gjöfult en hafa þarf fyrir því.

    Neðst er að finna hljóðupptöku þar sem þýðandinn raular sálminn. Takið viljann fyrir verkið, kæru áheyrendur!

    Myndin var fengin að láni af vef Rannís: Vísindavika Norðurslóða 2020
    Send blessun og frið yfir fjörðinn,
    fær blessun og ljós yfir lönd.
    Og blessa þau eilífu orðin
    um vonir og útrétta hönd.
    Vernda það smáa þú gafst oss
    þann daginn oss bar hér að strönd,
    gef oss að trúa og lát oss ei flækjast
    í fátæktarbönd.

    Vér horfðum oft grátand' í gaupnir
    en glæst er hin sterka trú,
    nú karlarnir konunum jafnir,
    öll hörkudugleg sem þú.
    Nú bíður vor harðasta hríðin
    með harðfylgi náum vér heim,
    þar ljósið lýsir og aðventutíðin
    er kom frá Betlehem.

    Guðs friður í djúpi, á fjalli,
    svo farnist vel byggð og jörð,
    Guðs friður í fjárhús' og stalli,
    yfir fannir og harðan svörð.
    Þú sérð gegnum mæðu og myrkur,
    þín miskunn nær út yfir jörð,
    heimilin, fjörðinn, fjöllin og kirkjur
    og fólkið - þína hjörð.

    Lag og norskur texti: Trygve Hoff 1985.
    Þýðing: Örn Bárður Jónsson, október 2019.
  • Eftirprentanir af vatnslitamyndum. Tilboðsverð.

    Eftirprentanir í takmörkuðu upplagi af vatnslitamyndum eftir Örn Bárð Jónsson.

    Prentun: Idigo Digital á Munken Polar 240 gramma pappír.

    10 eintök af flestum myndunium eru til sölu. Stærð flestra þeirra er A4 og seljast þær til innmrömmunar en sumar eru ferningslaga 25×25 cm

    Prentun: Pixel ehf. Vandaður pappír, hágæðaprentun.

    Viltu sjá meira?

    (more…)
  • +Jón Guðlaugur Þórðarson 1931-2022

    Örn Bárður Jónsson

    Minningarorð

    +Jón Guðlaugur Borgfjörð Þórðarson

    múrarameistari frá Ísafirði

    Brákarhlíð, Borgarnesi

    Útför frá Lindakirkju, Kópavogi

    þriðjudaginn 6. desember 2022 kl. 13

    Jarðsett í Kópavogskirkjugarði

    Fyrr í athöfninni voru lesnir þessir textar:

    Ef Drottinn byggir ekki húsið, erfiða smiðirnir til ónýtis. Ef Drottinn verndar eigi borgina, vakir vörðurinn til ónýtis. (Sálmarnir 127.1)

    Úr Fjallræðu Jesú: Mattheus 7:

    24 Hver sem heyrir þessi orð mín og breytir eftir þeim, sá er líkur hyggnum manni er byggði hús sitt á bjargi. 25 Nú skall á steypiregn, vatnið flæddi, stormar blésu og buldu á því húsi en það féll eigi því það var grundvallað á bjargi.

    (more…)
  • +Albert Guðmundsson 1952-2022

    Örn Bárður Jónsson

    Minningarorð

    +Albert Guðmundsson

    verkfræðingur

    frá Grænagarði, Ísafirði

    Útför (bálför) frá Neskirkju mánudaginn 5. desember kl. 13, jarðsett verður í Sóllandi. Texti ræðunnar og hljóðupptaka eru hér fyrir neðan.

    (more…)
  • +Guðbjörg Septima Halldórsdóttir 1923-2022

    Örn Bárður Jónsson

    Minningarorð

    Saumakona frá Bæjum á Snæfjallaströnd í Ísafjarðardjúpi.

    Útför frá Neskirkju í Reykjavík

    föstudaginn 2. desember 2022 kl. 09:30

    Texti og hljóðupptaka eru hér fyrir neðan. Innskot eru á hljóðupptökunni sem ekki eru í textanum.

    (more…)