“Six Tuscan Poets” by the Italian Renaissance painter, architect, and art historian Giorgio Vasari

  • +Orri Freyr Jóhannsson 1983-2024

    Bálför í Neskirkju miðvikudaginn 20. mars 2024 kl. 15

    Þú getur hlustað á ræðuna með því að nota tengilinn hér fyrir neðan og lesið textann líka.

    (more…)
  • Minni heimskun! Verum hughraust í hremmingum!

    Í gær fór ég í Neskirkju til að hlusta á dr. Harald Hreinsson, ræða um Afhelgun bókaþjóðar. Hann gerði það vel og skilmerkilega með tilvísunum í bókmenntapáfa liðinnar aldar sem töldu flestir kristni skipta minna máli í menningunni en margir aðrir. Eina mótvægið sem eitthvað kvað að gegn nefndum páfum var biskup Sigurbjörn Einarsson sem fór gjarnan með himinskautum eins og honum einum var lagið!

    Haraldur ræddi í inngangi um hugtakið veraldarhyggja sem þýðing á orðinu sekularisering og ég setti fram í umræðum í lokin þá tillögu að nota orðið heimskun um veraldarhyggju, þ.e. þegar heimurinn tekur yfir og hafnar hinu himneska.

    Jesús sagði forðum við lærisveina sína: “Í heiminum hafið þér þrenging, en verið hughraustir, ég hef sigrað heiminn.” Þau orð gilda fyrir okkur öll, konur og karla.

    Myndina skissaði ég á staðnum með blekpenna og get því engu breytt fremur en í lífinu sjálfu, nema með vatnslitum.

    Ef þú smellir á myndina geturðu þysjað hana út og inn.

  • Messað á Mörkinni eins og Jesús gerði forðum

    Fór í messu sem séra Jón Ragnarsson annaðist á Mörkinni í Reykjavík sem tilheyrir svonefndum Grundarheimilum. Prédikun Jóns afbragð og samfélagið gott. Hjartans þakkir, kollega kær.

    Við Fríða drukkum svo kaffi með Jóni og Gyðu á kaffihúsi staðarins að messu lokinni.

    Skissaði í laumi mynd og litaði þegar heim kom. Hún er mér góð minning um atburðinn, en ég geri mér þó grein fyrir því, að portret af þessu tagi af prestinum, verður ekki notað í vegabréf!

    Svörtu flekkirnir eru munstur sem þekur allan kórvegginn en hér er aðeins hluti þess gefinn í skyn.

  • Sólarmegin

    Mynd af Austurvelli í miklu sólskini.

    Sólarmegin

    Myndflötur 25×34 cm. Myndin er í sýndarramma hér í þessari færslu en stærð mynflatar er álíka og forsíða dagblaðs.

    Við höfum okkar skoðanir og setjum þær fram á ýmsan hátt, sumir opinberlega, aðrir í einkasamtölum. Stundum erum við sammála ríkjandi viðhorfum og á öðrum tímum ósammála. Einvhersstaðar í samræðunni liggur “sannleikurinn”. Leitum hans því hann mun gera okkur frjáls skv. orðum Jesú Krists.

  • Er fastan megrunarkúr kirkjunnar? Hvers vegna voru lærisveinar Jesú eins og roggnir bankamenn sem biðu bónusa?

    Hér er prédikun sem ég flutti á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund, sunnudaginn 18. febrúar 2024, en þar messa eftirlaunaprestar tvisvar í mánuði til skiptist og eiga fund í félagi fv. presta að messu lokinni og njóta kaffiveitinga.

    Hér eru textar Biblíunnar fyrir 1. sunnudag í föstu. Takið eftir guðspjallinu:

    https://kirkjan.is/kirkjan/kirkjuarid/kirkjuarid-nanar/?itemid=f0b3acf2-7e48-11ee-9ba7-005056bc428f

    Svo kemur upptakan á prédikun minni hér:

  • +Ragnheiður Drífa Steinþórsdóttir 1948-2024

    Örn Bárður Jónsson

    Minningarorð

    +Ragnheiður Drífa Steinþórsdóttir

    1948-2024

    Bálför frá Neskirkju

    mánudaginn 19. febrúar 2024 kl. 13

    Hljóðupptaka og texti er hér fyrir neðan og sálmaskráin verður birt síðar.

    (more…)
  • Sýni tekið úr Ingólfi

    Starfsmaður Dómstóls götunnar mun á næstu vikum taka “vefsýni” úr öllum bronsstyttum af fólki í landinu til að rannsaka kenndir þess.

  • Kristur, lærisveinar hans og konurnar sem stóðu með þeim

    Jesús sagði: Í heiminum hafið þér þrenging, en verið hughraust, ég hef sigrað heiminn.

    Allir lærisveinar Krists létu lífið fyrir trú sína utan einn. Það var Jóhannes guðspjallamaður sem dó háaldraður í Efesus.

  • Þankar um framtíð Grindvíkinga

    Grindvíkingar eru mér ofarlega í huga, nú á þessum erfiðu tímum.


    Hvað skal gera?

    Gunnlaugur Scheving: Sjómaður að taka inn dufl
    (more…)