“Six Tuscan Poets” by the Italian Renaissance painter, architect, and art historian Giorgio Vasari

  • Hvað ógnar Vesturlöndum? I

    Það sem fáir þora að tala um

    Grein eftir Örn Bárð Jónsson sem les

    Fyrri hluti

    I. Framandi menning og siðir

    Margt er það sem ógnar Vesturlöndum og þeirri menningu sem hefur sprottið fram innan þeirra og tekið aldir að þróa.

    Að margra áliti er það andvaraleysi sem er að gera út af við menningu okkar.

    (more…)
  • Fallnar með 4,9

    Sigríður Hagalín Björnsdóttir og Silja Bára Ómarsdóttir í Silfrinu

    Umræðunni í Silfrinu í gær um ofbeldið gegn ísraelska prófessornum sem var meinað að tjá sig í fyrirlestri um lífeyrismál innan vébanda HÍ var alvarlega ábótavant.

    Því sem mestu skipti var sópað undir teppið.

    Ítrekað var í þættinum að málfrelsi væri mikilvægt og að rétturinn til mótmæla væri það jafnframt. Málfrelsi telst til mannréttinda.

    Rektor tjáði sig fimlega um hinn gagnkvæma rétt til tjáningar en skautaði framhjá því sem mestu skiptir í þessu tilviki.

    Eitt er rétturinn til að tjá sig – og hann er heilagur bæði hvað varðar prófessorinn og mótmælendur – hitt er hvort mótmælafólkið hafi rétt til að hindra tjáningu hins aðilans. Það gerðist í þessu tilfelli og þar með snerist rétturinn til að mótmæla upp í órétt og ofbeldi.

    Þú mátt andmæla Alþingi en ekki hindra störf þess. Þú kannt að vera á móti kristinni trú og kirkju, en mátt ekki hindra helgihald eða hleypa upp messu eða útför. Slíkt varðar við lög.

    Mótmælin snerust upp í ofbeldi.

    Þetta sáu hvorki stjórnandi Silfursins, né rektor HÍ eða skautuðu vísvitandi fram hjá alaðatriði málsins.

    HÍ og Rúv þurfa að lesa betur heima fyrir prófin og gæta sín á að falla ekki aftur.

    Hér er hægt að hlusta og horfa með því að smella á auðasvæðið innan svigans!

    (https://www.ruv.is/frettir/innlent/2025-09-01-rektor-hi-segir-skyran-rett-til-baedi-motmaela-og-fyrirlestrahalds-452386)

    Svo birtist þetta og ég bæt inn tengli:-skrifar-retturinn-til-fundafridar/

    Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Rétturinn til fundafriðar

  • Skissur, vikuskammtur 17. – 24. ágúst 2025

    Teiknað með blekpenna og vatnsheldu bleki, enginn blýantur, ekkert strokleður, bara látið vaða! Vatnslitað heima.

    Sunnudagsmessa
    Í stíl Modiglianis
    (more…)
  • Átökin á Gaza II

    Seinni hluti

    Viltu hlusta? Tekur 19 mínútur.

    Gyðingurinn Jesús Kristur

    Eiga prestar að vera saklaus góðmenni og jafnvel skoðanalausir aumingjar? Flutti Jesús eintómar, sykraðar hugvekjur? Gat hann verið hvassyrtur? Í Fjallræðunni er margt sem fólk þekkir. Hvað segirðu um þessi orð Jesú:

    (more…)
  • Átökin á Gaza I

    Fyrri hluti

    Þankar um ástand og ábyrgð

    eftir Örn Bárð Jónsson

    Viltu hlusta? Tekur 15 mínútur.

    Árið 2023 fór ég í hópferð til Ísraels. Sú ferð var afar fróðleg og mögnuð á margan hátt. Ég fræddist um margt og upplifði einnig spennuna sem m.a. kom fram í því að vopnaðir hermenn voru víða með alvæpni. Við þekkjum það öll að pólistískar deilur hafa átt sér stað í Ísrael og þróast yfir í átökin á Gaza sem við þekkjum af fjölmiðlum sem flytja urmul frétta þaðan, bæði sannar og lognar.

    Mynd frá BBC
    (more…)
  • Skissur 10.-15. ágúst 2025

    Hraðskissur úr ýmsum áttum – tilraunir með ólíka penna

    Félagsstarf
    Breiðholtskirkja
    (more…)
  • Hugrakkur Palestínumaður tjáir sig

    Mér var bent á viðtal við Jamil Abdul-Nabi sem ég þýddi úr norskur með hliðsjón af enskri þýðingu.

    Hér er upplestur á textanum ef þú vilt hlusta. Tekur 3 mínútur.

    (more…)
  • Skissur 5.-9. ágúst 2025

    Þúfan
    Málsverður, tvö egg, fitulaust ketóbeikon og tómatsósa
    (more…)
  • Þegar Háskólinn féll á eigin prófi

    Aðför að akademísku frelsi

    Viltu lesa og/eða hlusta í 5 mínútur?

    Illa fór nú á dögunum þegar Háskóli Íslands féll á prófi sem allir nemendur hafa þurft að þreyta þar og í öðrum akademískum skólum um aldir.

    Aðför var gerð að prófessor Gil S. Epstein prófessor í hagfræði við háskólann Bar Ilan í Tel Aviv í Ísrael.

    Nú er Háskóli Ísland alvarlega löskuð stofnun.

    Og hvað skal gera?

    Þarf Ingólfur Gíslason, lektor ekki að taka pokann sinn? Hann er lektor við skólann og hafði sig víst mjög í frammi ásamt æstum hópi “atvinnumótmælenda” undir fána Palestínu.

    Allt þetta fólk sem stóð að aðförinni að að hinu akademíska frelsi er fallið með 4,9 eða lægri einkunn.

    Verður ekki að að gera þá kröfu að kennarar við HÍ standist mál?

    Geri þeir það ekki er sjálfgefið að þeir verði að víkja.

    Háskóli Íslands getur ekki haft einhverja titti að störfum sem standast ekki akademískar kröfur eða mál. Slíkt smælki á að fara í ruslflokk með öðru trosi.

    Og nú er það spurningin:

    Mun Silja Bára standast prófið sem ræðari hennar féll á?

    Myndin af mótmælum af öðru tilefni í annarri borg

    Annar leiðara Morgunblaðsins föstudaginn
    8. ágúst 2025
  • Spjallþáttur Verzlunarmannahelgina 2025

    Örn Bárður Jónsson spjallar um lífið og tilveruna, um lífsveginn, um víddirnar þrjár sem öllu máli skipta.

    Viltu hlusta/horfa? Það tekur 13 mínútur. Smelltu á tengilinn hér fyrir neðan:

    Lífið og víddir þess!