“Six Tuscan Poets” by the Italian Renaissance painter, architect, and art historian Giorgio Vasari

  • Gallerí Bard

    Ertu að leita að tækifærisgjöf?

    Ferming? Hjónavígsla? Afmæli? Útskrift? Tímamót?

    Birti hér myndir sem ég hef málað á s.l. misserum.

    Þær eru allar til sölu.

    Flestar eru þær 37×27 cm,

    stærri 74×54

    og þær minnstu 37×18

    Verð mynda er frá IKR 25.000 – 100.000

    Myndirnar eru í sýndarrömmum á þessari síðu og seljast án ramma.

    Sendið mér skilaboð á vefnum ef þið hafið spurningar eða athugasemdir á netfangið:

    ornbard@gmail.com

    Kristólógía og lavender
    Tilbrigði við upphaf kvikmyndar eftir Tarkovsky – Nostalgia
    Þúfan og tankarnir í Örfirisey
    Hvað er bak við ystu sjónarrönd?
    Faðmur
    Tvö í skógi
    Hofsá í Vopnafirði – vor í nánd og laxinn snýr aftur heim!
    Fyrir þig
    Götuhorn á Ítalíu
    Kvöldkyrrð
    Ljósið kemur
    Þúfan
    Ljós
    Tvö
    Saman og ein
    Hús við fjörð
    Hús við flóa
    Ævintýri á gönguför
    Náttúrulaug á Seltjarnarnesi
    Jarðhiti
    Skarpir litir hálendis
    Sól yfir Skeggjastað
    Litagleði á heiðum
    Stormar geysa I og II
    Horft yfir Arnarfjörð
    Björkin græðir
    Fiskurinn úr djúpinu – þankar um lífið
    Frjáls!
    Saman
    Næturbirta
    Kaffið, ó, kaffið
    Læknishúsið á Hesteyri í Jökulfjörðum I
    Læknishúsið á Hesteyri í Jökulfjörðum II
    Ljósið, já, ljósið!
    Sjö fley við Hörpu
    Kvöld á Ítalíu
    [máluð á skírdag 2026]
    Tilbrigði við kvöld í Skutulsfirði 1
    Tilbrigði við kvöld í Skutulsfirði 2
    Sólin skín á Engey
  • Góðspjall 5 – Kyrravika/dymbilbika og páskar

    Örn Bárður spjallar og segir frá reynslu sinni af messuferð þegar skvett var á hann í tvígang!

    Hljóðupptaka sem tekur 14 mín+

    Tilbrigði við upphafsatriði myndarinnar NOSTALGÍA e. Andrei Tarkovsky sem ég fann í bók dr. Gunnlaugs Andreasar Jónssonar, Áhrifasaga Saltarans. Vatnslitamyndina gerði Örn Bárður á Hofi í Vopnafirði árið 2025 eftir lestur bókarinnar

    Teikningar úr messunum hér fyrir neðan:

    (more…)
  • Lennox í Westminster: Að fjarlægja Guð úr stjórnmálum

    skapar siðferðilegt tómarúm

    sem veraldarhyggjan getur ekki fyllt

    Vídindi – Trú

    Úr greininni:

    “Jafnvel Jürgen Habermas viðurkennir, [látinn 14. mars 2026] fremsti heimspekingur gyðleysingja, að vestræn lykilgildi komi úr Biblíunni. Hann skrifar að hugmyndir eins og mannréttindi, frelsi og lýðræði, séu bein arfleifð gyðinglegrar siðfræði um réttlætið og kristinnar siðfræði um kærleikann. Þrátt fyrir veraldlegar fullyrðingar, lifum við enn á siðferðilegri arfleifð kristninnar. Allt annað, sagði Habermas, er bara aumt hjal í anda póstmódernisma.”

    Og hér er greinin öll:

    Grein eftir Dr. JOHN LENNOX, fv. stærðfræðiprófessor við Cambridge háskólann í Bretlandi.

    Að fjarlægja Guð úr stjórnmálum

    skapar siðferðilegt tómarúm

    sem veraldarhyggjan getur ekki fyllt

    Á morgunverðarfundi breska þingsins í Westminster hélt hinn þekkti kristni hugsuður og stærðfræðiprófessor, John Lennox, því fram að það að fjarlægja Guð úr stjórnmálum myndi skapa siðferðilegt tómarúm sem veraldarhyggjan eigi enga möguleika á að fylla upp í. Hér eru orð hans í heild sinni:

    (more…)
  • Þröng staða

    Að taka afstöðu í erfiðum málum.

    Í þröngri stöðu
    – myndin fengi að láni af Veraldarvefnum.

    Viltu hlusta? Tekur 16 mínútur.

    Hvers vegna lögsækir enginn hryðjuverkasamtökin Hamas fyrir gengdarlausa glæpi og illvirki? Hvað hefur Mannréttindadómstóll Evrópu að segja um Hamas?

    (more…)
  • Nokkrar skissur í mars 2026

    Teiknað með penna og vatnsheldu bleki, litað með vatnslitum.

    Prófaðu að þysja myndirnar út svo þær stækki á skjánum!

    Esjan alltaf klassísk
    Minni-Vatnsleysa
    Bókahilla heima
    Messa á Grund – tónlistarfólk og klerkur
    Stud. teol. Matthías Guðmundsson prédikar,
    málverk Jóhanns Briem í bakgrunni
  • Ríki gyðinga

    Nýlegur fornleifafundur sannar tilvist Ísraelsríkis fyrir um 2.700 árum

    Assýríska innsiglið er það eina sem fundist hefur
    frá tímum fyrsta musterisins.
    Mynd: Yoli Schwartz hjá Ísraelsku fornleifastofnuninni.
    (more…)
  • Kærleikurinn mestur

    13. mars 2026

    I Korintubréf 13.1-13

    Upplestur 3 mínútur

    Stærsta gjöfin

    Þótt ég talaði tungum manna og engla
    en hefði ekki kærleika
    væri ég hljómandi málmur eða hvellandi bjalla. 
    2Og þótt ég hefði spádómsgáfu 
    og vissi alla leyndardóma og ætti alla þekking
    og þótt ég hefði svo takmarkalausa trú að færa mætti fjöll úr stað 
    en hefði ekki kærleika, 
    væri ég ekki neitt. 
    3Og þótt ég deildi út öllum eigum mínum 
    og þótt ég framseldi líkama minn til þess að verða brenndur 
    en hefði ekki kærleika, 
    væri ég engu bættari. 
    4Kærleikurinn er langlyndur, hann er góðviljaður. Kærleikurinn öfundar ekki. 
    Kærleikurinn er ekki raupsamur, hreykir sér ekki upp. 
    5Hann hegðar sér ekki ósæmilega, leitar ekki síns eigin, 
    hann reiðist ekki, er ekki langrækinn.
    6Hann gleðst ekki yfir óréttvísinni en samgleðst sannleikanum. 
    7Hann breiðir yfir allt, trúir öllu, vonar allt, umber allt.
    8Kærleikurinn fellur aldrei úr gildi. 
    En spádómsgáfur, þær munu líða undir lok, 
    og tungur, þær munu þagna, og þekking, hún mun líða undir lok. 
    9Því að þekking vor er í molum og spádómur vor er í molum. 
    10En þegar hið fullkomna kemur líður það undir lok sem er í molum.
    11Þegar ég var barn talaði ég eins og barn, 
    hugsaði eins og barn og ályktaði eins og barn. 
    En þegar ég var orðinn fulltíða lagði ég niður barnaskapinn. 
    12Nú sjáum vér svo sem í skuggsjá, í ráðgátu, 
    en þá munum vér sjá augliti til auglitis. 
    Nú er þekking mín í molum 
    en þá mun ég gjörþekkja eins og ég er sjálfur gjörþekktur orðinn. 
    13En nú varir trú, von og kærleikur, þetta þrennt, 
    en þeirra er kærleikurinn mestur.

  • Öll veröldin er leiksvið

    Viltu hlusta í 5 mínútur? Smelltu!

    Mögnuð upplifun var að fá að njóta dagskrár í Norðurljósasal Hörpu, 11. mars 2026, þar sem flutt var leikhústónlist eftir tónskáldið Hjálmar H. Ragnarsson.

    Verkin hans bera vott um stórar víddir, hæð og dýpt. Ég velti því fyrir mér hvernig tónskáldið hafi náð því að skrifa niður öll hin flóknu tilbrigði verkanna og fyrirmæli handa flytjendum? Eitt er að skapa verk í huga sér, annað er að koma því á blað og tryggja því líf og framtíð í höndum listamanna.

    Og til að sjá allan textann skaltu smella á fyrirsögnina efst!

    (more…)
  • Um gyðingaandúð og kristna trú

    Séra Gunnar Jóhannesson svarar grein Sigurgísla Skúlasonar sálfræðings.

    Upplestur annaðist Örn Bárður Jónsson og birti hér með leyfi höfundar.

    Hljóðupptaka hér!

    Ég sendi séra Gunnari þessi viðbrögð:

    Frábært svar hjá þér. Þú færist hvergi undan enda er staða okkar sú að við eru Simul justus et peccator.


    Varðandi þá sem tóku Jesú af lífi og aðkomu Gyðinga að því þá finnst mér mikilvægt að segja:

    hvað varðar hinn róttæka kærleiksboðskap Jesú og gagnrýni hans á valdið, þá hefði engu skipt hverjir voru við völd.

    Ekkert vald hefði þolað gagnrýni hans og hnífskarpan kærleiksboðskap sem sá í gengum allan yfirdrepskap og spillingu.

    Lýðræði samtíma okkar hefði líklega fallið á sama prófi.