
Writer – Painter – Theologian
Rithöfundur – Málari – Guðfræðingur
“Six Tuscan Poets” by the Italian Renaissance painter, architect, and art historian Giorgio Vasari
Kristinn Traustason
fv. bílamálari og hestamaður
Vallarási 4
Reykjavík
1936-2013
Ræðuna er hægt að lesa og hlusta á hér fyrir neðan með því að smella á þríhyrninginn.
Þann 1. maí, síðdegis, fór ég á hjólinu um Vesturbæinn, Þingholtin og Skuggahverfið. Á bakaleiðinni eftir heimsókn á gjörgæslu LHS við Hringbraut kom ég við á gatnamótunum við Hljómskálann og teiknaði mynd af Hljómskálanum og styttunni sem er í Hallargarðinum handan við gatnamótin. Sólin hafði lækkað mjög á lofti enda síðdegi og hitastigið undir frostmarki en litirnir voru tærir, himinninn blár og skær. Bjarkirnar eru enn króknaðar og fölar en þær munu vakna við vorsins yl. (more…)

Teiknað í eldhúsinu heima.
Drawn in the kitchen at my home in Reykjavik Iceland.
Fuglum fjölgar ört á Fróni þessa dagana og þeir eru önnum kafnir við hreiðurgerð og sumir þegar búnir að verpa.
Birtan er skær og undurfögur en veðrið enn svalt.
Dýrlegt kemur sumar með sól og blóm,
senn fer allt að vakna með lofsöngsróm,
vængjaþytur heyrist í himingeim,
hýrnar yfir landi’ af þeim fuglasveim
Svo orti séra Friðrik Friðriksson og sálminn allan er hægt að skoða hér.
Ég byrjaði að vatanslita í fyrra og gerði þá t.d. þessa teikningu með sjálfblekungi og litaði með vatnslitum. Myndefnið sjáflt, skúrarnir við Ægisíðu, eru listaverk en ég hef notið þess að horfa á þá daglega undanfarin ár. Svo hef ég reynt að festa þá á pappír með ýmsu móti.
Sá um daginn síðu á vefnum þar sem teiknarar birta myndir og stutta texta, einskonar myndblogg. Mun reyna að birta af og til MYNDBLOGG á þessum vettvangi.
Njótum sumarsins!
– – –
Urban Sketch info: Fishing huts at Aegisida, Reykjavik, Iceland. Outside the window where I live in Reykjavik.
Meðan öskuský frá Eyjafjallajökli breiddist yfir meginland Evrópu 2010 og lamaði nánast allt flug í álfunni blakaði lóan vængjum sínum og barðist gegn vindum og veðrum, ösku og eimyrju til þess eins að komast til Íslands. Í ár kom lóan mun fyrr til landsins en oft áður. (more…)
Undarlegt er að upplifa hvernig kaupin gerast á eyrinni í aðdraganda kosninga. Annars vegar eru flokkarnir sem setið hafa á Alþingi með tæpa 400 milljónir frá almenningi í sjóðum sínum til að reka áróður fyrir starfi sínu allt árið. Hins vegar eru nýju framboðin auralaus á byrjunareit. (more…)
Smelltu á slóðirnar hér fyrir neðan.
Það tekur ekki nema rúma eina mínútu að hlusta á allar upptökurnar þar sem ég tjái mig um stefnu Lýðræðisvaktarinnar:
1. http://www.youtube.com/watch?v=Ef4yPghYAgA
2. http://www.youtube.com/watch?v=zyMf_dZkl14
3. http://www.youtube.com/watch?v=f5929IwCChg