“Six Tuscan Poets” by the Italian Renaissance painter, architect, and art historian Giorgio Vasari

  • Málað í Varsjá 19. júní 2026

    Í dag hjólaði ég í miðborgina í 27 gráðu hita og sól.

    Yndislegt veður og þægilegt.

    Ég stefndi á “Stalíns-tertuna”

    og turnana sem kallast á við þá stóru og miklu byggingu.

    Ég skissaði með blýanti og svo málaði ég fyrsta vask, eins og það er kallað á vatnslitamáli.

    Tók skissuna svo heim og kláraði hana þar.

    Hér eru tvær myndir,

    önnur af fyrsta vaski

    og hin af verkinu loknu.

    Segja má að hér kallist á

    kommúnisminn og kapitalisminn

    með þessum miklu turnum.

    Hér fer fyrsta vask komið á pappírinn
    Og hér er myndin
  • Með trönur í borginni

    Í gær, 17. júní, hjólaði ég að Vistúlu og málaði þar mynd af þjóðarleikvangi Pólverja sem er við ána en margar brýr tengja borgarhluta m.a. ný göngubrú sem er hreint listaverk hvað hönnun varðar. En nú var ég við gamla brú og teiknaði og málaði á staðnum.

    Hina myndina málaði ég fyrir u.þ.b. mánuði í gamla borgarhlutanum.

    Poniatowskiego brúin og þjóðarleikvangurinn,
    PGE Naradowy,
    veitingabátur og ræðarar á báti sem minnir á spjót
    Gamli bærinn þar sem Sigismundur Vasa III
    konungur trónir á súlu
    með kross og brand en hann var sænskur
    og flutti aðsetur sitt frá Krakow til Varsjár 1596.
  • Skissað í Póllandi #13

    Þetta eru skissur, sumar teiknaðar og málaðar mjög hratt, aðrar hægar, sumar þokkalegar og aðrar fá að fljóta með þrátt fyrir byrjendabrag sinn. Þetta er bara dægrastytting sem gaman er að glíma við.

    Takið viljann fyrir verkið!

  • Að reikna barn í konu

    Í Málfarsbanka voru þessi verðmæti lögð þar inn á reikning:

    “Í sögu Davíðs Stefánssonar, Sólon Islandus, kemur fram að Sölvi Helgason var stórlega ýkinn. Þar segir m.a. frá því að hann þóttist hafa keppt við ítalskan reiknimeistara. Ítalinn reiknaði barn í konu en Sölvi reiknaði það úr henni eða eins og segir í sögunni:

    þá tókst þeim ítalska að reikna barn í eina danska. Ég var viðbúinn og reiknaði það strax úr henni;

    Og loks tókst mér að reikna tvíbura í eina afríkanska, og var annað barnið hvítt en hitt svart. . . . “

    Mynd af Netinu
    eftir Michael Cheval

    Vísindaafrek þetta virðist endurtekið hægri/vinsti á síðustu dögum. Konan í reiknisdæmum sérfræðinga heitir Evrópa og sýnist sitt hverjum um fegurð hennar og atgervi.

    Ég hef dvalið í Varsjá í einar 6 vikur nú í maí/júní 2026 og hafði með mér kreditkort til að geta varið eftirlaunum mínum risaháum – eða þannig – í nauðsynjar hér á bæ í Sléttumannalandi en svo var Pólland kallað forðum daga.

    Þetta land er nú í Evrópusambandinu og í reikningum Moggans skv. blaði dagsins 13. júní 2026, þurfa Pólverjar að greiða langtum stærri hlut af sínum launum til kaupa á nauðsynjum en við Íslendingar þegar miðað er við hlutfall af ráðstöfunartekjum eins og það heitir á háskólamáli lélegsvísinda, afsakið félagsvísinda.

    En nú er ég hér með mínar fáu, mánaðarlegu eftirlaunakrónur og allt er hér á hálfvirði og jafnvel kostar ekki nema einn-þriðja-part af því sem það kostar heima.

    Nú er ég mjög efins um að við eigum að ganga í EU, en er nema von að mér finnist snillingarnir heima hafi reiknað eins og Sölvi Helgason sagði að unnt væri að gera, barn í konu og úr henni aftur?

    Ég bar spyr.

  • Skissað í Póllandi #12

    Ég keypti skissubók með 100 gr/m2 sem er alltof þunnur fyrir vatnsliti svo ég er að reyna að fylla hana út og klára.

    Svona er nú nytjahyggjan sem ég lærði á lífsleiðinni, sparsemi og allt það.

    Miriam Anna í stuði
    Miriam þekkti sjálfa sig!
    Knúsudúkka sem afi keypti um jólin
    Þvottagrind
    Sápukúluvél sem pabbi keypti handa Miriam
    eftir að hún heillaðist af sápukúlum
    Hér horfir Miriam Anna undrandi í linsuna í gegnum sápukúlu frá afa
    Brennd Síenna er undurfagur litur
    Þessi er a-l-v-e-g að meika það –
    a-l-v-e-g – eða þannig!
    Á kaffihúsi við götuna þar sem ég bý
    Tilbrigði við ljósmynd Nönnu Sjafnar frá Bíldudal
  • Skissað í Póllandi #11

    9. júní – færslur

  • Skissað í Póllandi #10

    2. júní 2026

    Inngangur í hús í gömlu Varsjá
    og sigursúla Sigismundar III Vasa
    með brand og kross!
    Á torginu
    “Búrfellið” er kröftugt farartæki
    Hjólaði 38 KM á einum degi um Varsjá
    þvera og endilanga
  • Skissað í Póllandi #9

    Helgarskissur 30.-31. maí ‘26

    Við Össi hjóluðum til messu í Boboli-kirkju með Miriam Önnu 2ja ára
    í kerru sem dregin er af hjóli pabba og afi eltir á sínu litla rafhjóli
    Rafhjólið skrítna en skilvirka sem ég hef þeyst á um alla borg
    Fr. Marek messaði
    Ræddi við hann að messu lokinni
    en hann er menntaður organisti og tók próf í Róm
    áður en hann fór í guðfræði og gerðist prestur
    í reglu Ágústínusar
    Mikill Bach-aðdáandi
    Gaman að ræða við hann
    Hjóluðum í átt til næstu kirkju sem helguð er Heil. Theresu.
    Áðum á bekk við Vistúlu og nutum útsýnis yfir ána og túristastasjónir.
    Héldum svo áfram til kirkju en þar eru messur á ensku
    sem pólskur prestur stýrir af kunnáttu og krafti
    Full kirkja af fólki frá fjölda landa
    Dásamleg stund
    Við Vislu sem kallast Wisla á pólsku en Vistula á ensku
    Skriftarstóll og tvær “stasjónir” í kirkju Heil. Theresu
    Kropbeður bæði á stjórn- og bakborða
    Undir messu varpaði ljósið hinni stóru róðu á vegg kirkjuskips
    og grænn gróður var líka málaður
    til að kallast á við pálmagreinar
    sem minna á innreið Jesú í Jerúsalem
    sem markaði upphaf píslargöngu hans
  • Skissað í Póllandi #8

    Minnismerki um hetjur

    Minnismerki í Varsjá
    um hetjudáðir hermanna
    sem aftengdu jarðsprengjur í tveimur heimsstyrjöldum liðinnar aldar
    Teiknað í Varsjá 29.5.26

    Það horfir ekki friðvænlega í heiminum um þessar mundir. Hef dvalið mánuð í Póllandi. Saga landsmanna er mörkuð styrjöldum og átökum í rás sögunnar.

    (more…)
  • Skissað í Póllandi #7

    Maí 2026

    Strákur selur jarðarber við himinshlið
    og kona á næsta leiti

    Smelltu á fyrirsögnina og þá birtast fleiri!

    (more…)