“Six Tuscan Poets” by the Italian Renaissance painter, architect, and art historian Giorgio Vasari

  • +Pétur Geir Helgason 1932-2021

    Minningarorð

    +Pétur Geir Helgason

    1932-2021

    fv. skipstjóri og útgerðarmaður

    frá Ísafirði

    Ég horfi út á Sundin blá úti fyrir höfuðborginni úr gluggunum heima. Sjór hefur verið sléttur og kyrr síðustu daga en fyrir helgina hvítnaði í báru og sægrænir litaflákar skreyttu yfirborðið. Fiskibátar og seglskútur sigldu út eins og sjómenn hafa gert um aldir hér á landi. “Föðurland vort hálft er hafið” segir í fögrum sjómannasálmi, helmingur föðurldands okkar liggur í sædjúpinu.

    „Legg þú út á djúpið og leggið net ykkar til fiskjar”, sagði Jesús við Símon Pétur. Og hann fór eftir orðum hans og fyllti bátinn.

    (more…)
  • +Guðlaugur Björgvinsson 1946-2021

    Minningarorð

    +Guðlaugur Björgvinsson

    1946-2021

    fv. forstjóri Mjólkursamsölunnar

    Útför/bálför frá Hallgrímskirkju

    föstudaginn 14. maí 2021 kl. 13

    “Allt er í heiminum hverfult”, kvað þjóðskáldið Jónas Hallgrímsson um landið sitt, menningu og forna frægð.

    (more…)
  • Handritin og hálendið

    Áður en þessi dagur, 21. apríl 2021, hverfur í tímans haf, þegar við höfum fagnað því sem þjóð að við fengum handritin afhent fyrir 50 árum, langar mig að rifja upp grein er ég skrifaði fyrir tæpum 19 árum og birtist í Morgunblaðinu 22. október 2002 undir yfirskriftinni: “Handritin og hálendið”.

    Þar velti ég fyrir mér verðmætum þeim sem fólgin eru í því sem þessi tvö hugtök vísa til. Þau orð eiga enn erindi við okkur þegar landið er boðið til sölu á einn eða annan hátt. Myndum við selja handritin hæstbjóðanda?

    Greinina er hægt að lesa á bak við þennan tengil:

    https://www.mbl.is/greinasafn/grein/694353/

  • +Inga Kristjana Halldórsdóttir

    Örn Bárður Jónsson

    Minningarorð

    +Inga Kristjana Halldórsdóttir

    1939-2021

    Bálför frá Fossvogskirkju mánudaginn 19. apríl 2021 kl.

    “Grasið visnar, blómin fölna
    en orð Guðs vors varir að eilífu.” (Jesaja 40:8)

    Þessi orð Jesaja spámanns voru rituð fyrir 2500 árum eða svo og tjá sígildan sannleika. Séra Hallgrímur Pétursson, kallast á við þessa speki í 1. versi sálms síns Um dauðans óvissan tíma, sem hefst á orðunum: “Allt eins og blómstrið eina”.

    (more…)
  • Um flutning talaðs máls í fjölmiðlum

    Ég hef glímt við það að flytja ræður í 40 ár og komist að því að tungan er tónlist, málið er músík.

    Í fjölmiðlum er eins og tónlistin í tungunni sé að riðlast. Hún er orðin fölsk. “Söngurinn” rangur, nóturnar falskar, hrinjandin röng.

    (more…)
  • +Birna Sigurðardóttir 1923-2021

    Örn Bárður Jónsson

    Minningarorð

    +Birna Sigurðardóttir

    1923-2021

    hjúkrunarkona

    Bálför í kyrrþey frá Garðakirkju

    þriðjudaginn 9. mars 2021 kl. 13

    Jarðsett á Ísafirði

    Upptaka hér:

    (more…)
  • Jón Ólafur Skarphéðinsson 1956-2021

    Minningarorð eftir Örn Bárð Jónsson

    + Jón Ólafur Skarphéðinsson

    1956-2021

    Útför/bálför frá Fossvogskirkju

    þriðjudaginn 23. febrúar 2021 kl. 13

    Jarðsett verður í Fossvogskirkjugarði

    Tengill á útsendingu/Link to the service: https://youtu.be/HLyU_OL2sBk

    “Dreymi þig ljósið.”

    Ljósið!

    Ljósið er upphaf alls lífs á jörðu. Vísindamenn á sviði líffræði og fleiri fræðigreina hafa sagt að lífið hafi kviknað á hafsbotni við eldsumbrot. Eldurinn í iðrum jarðar er ljós af ljósi sólar sem er ljós af “sólnanna sól”. Lífið á jörðu og lífið í hafinu er allt af einu og sama ljósinu.

    (more…)
  • +Richard Hannesson 1932-2021

    Minningaroð eftir Örn Bárð Jónsson

    + Richard Hannesson

    1932-2021

    Útför frá Bústaðakirkju

    fimmtudaginn 11. janúar 2021 kl. 13

    Jarðsett í Gufuneskirkjugarði

    Ef við íhugum lífið og tilveruna þá verður okkur fljótt ljóst að í heiminum er regla og skipulag enda þótt lífið virðist stundum ruglingslegt. Ég var að horfa á þátt í Sjónvarpinu um líkamann og hvernig hann bregst við sársauka, ótta, kvíða og árásum baktería og vírusa. Ótrúlegt gangverk sem líkaminn er.

    (more…)
  • Má hefta tjáningarfrelsi, var rétt að loka á Trump?

    Endurskoðuð grein að hluta til sem áður birtist í Kjarnanum 16. janúar 2021.

    Tjáningarfresli ætti að vera öllum heilagt sem búa í lýðræðislegu þjóðfélagi og reyndar hvar sem er. Tjáningarfrelsið er einn af hornsteinum lýðræðisins og farsæls lífs á jörðinni.

    En eru einhver mörk á því hvað fólk getur sagt á opinberum vettvangi?

    Vissulega er það mjög umdeilanlegt að samfélagsmiðlarnir Twitter og Facebook hafi sett hömlur á tjáningu Trumps forseta. Sumir hafa fagnað þeirri ákvörðun meðan aðrir harma hana.

    Tjáningarfrelsi felur það í sér að mér er heimilt að tjá mig um hvað sem er og með þeim hætti sem ég kýs, en ég verð jafnframt að standa og falla með því sem ég segi hverju sinni. Að hefta mann sem er í senn vinsæll og líka afar óvinsæll, kosinn nýlega af 70 milljónum Bandaríkjamanna, þó ekki nægði til sigurs, er mjög alvarleg gjörð. Nú er ég enginn aðdáandi Trumps, finnst hann fyrirlitlegur á margan hátt, en hann á þó sinn rétt til tjáningar eins og ég og þú. Tilfinningar mínar eru eitt en skoðanir og rökhusun mega þó ekki lúta valdi þeirra. Hvað munu þær milljónir manna gera á næstu vikum og mánuðum sem telja að kosningunum hafi verið stolið af Trump?

    Fengi að láni af Vefnum

    Hver hefur vald til að þagga niður í öðrum? Enginn hefur í raun það vald, en samt er því valdi beitt.

    (more…)
  • HINN “RÓTTÆKI” JESÚS

    HINN “RÓTTÆKI” JESÚS

    “Af sjónarhóli hinna vinnandi stétta horfir það svo við að Kristur hafi tekið sér bólfestu hjá kirkjunni og hinum borgaralegu öflum.”

    Sá Jesús sem birtist í guðspjöllunum var hvorki íhaldssamur miðstéttarmaður né pólitískur róttæklingur. Han slóst hvorki í för með Saddúkeum né Selótum. Jesús ruddi braut fyrir annan skapandi valmöguleika. Hann gerði Guðs ríki að kjarna alls er hann gerði, og hafnaði þeim mannasetningum sem setja fram guðhræðslu, sem ekki frelsar fólk frá synd, vonleysi og félagslegri útskúfun. Eitt er algjörlega á hreinu: Jesús tilheyrir ekki kirkjunni fyrst og síðast, heldur heiminum, og vissulega ekki þeim sem hafa allt, heldur þeim sem hungrar og þyrstir eftir réttlætinu.”

    TIL ÍHUGUNAR:

    Jesús tilheyrir ekki hinni stofananlegu trúrækni, heldur þeim sem leita hans vegna þess að þeir þarfnast hans.

    Hinn “róttæki” Jesús
    Mynd af Vefnum

    Úr bókinni:

    Charles Ringma

    Grip dagen med Dietrich Bonhoeffer

    Verbum 1992

    Bæn 12. janúar

    I Korintubréf 1,26-28

    26 Minnist þess, systkin, hvernig þið voruð þegar Guð kallaði ykkur: Mörg ykkar voru ekki vitur að manna dómi, ekki voldug eða ættstór. 27 En Guð hefur útvalið það sem heimurinn telur heimsku til að gera hinum vitru kinnroða og hið veika í heiminum til þess að gera hinu volduga kinnroða. 28 Og hið lítilmótlega í heiminum, það sem heimurinn telur einskis virði, hefur Guð útvalið til þess að gera að engu það sem er í metum.

    Úr Biblíu 21. aldar (2007)

    Dietrich Bonhoeffer var þýskur guðfræðingur sem Nazistar tóku af lífi rétt fyrir stríðslok. “Glæpur” hans var að mótmæla og taka þátt í undirbúningi að tilræði við Hitler.

    Upphafsorðin eru eftir Bonhoeffer, hugvekjan eftir Ringma

    Þýðandi: Örn Bárður Jónsson 12. janúar 2021