“Six Tuscan Poets” by the Italian Renaissance painter, architect, and art historian Giorgio Vasari

  • +Jón Helgason 1934-2022

    Örn Bárður Jónsson

    Minningarorð

    +Jón Helgason

    1934-2022

    Jón Helgason 1934-2022

    Bálför frá Bænhúsinu Fossvogi

    föstudaginn 18. nóv. 2022 kl. 10

    Ræðuna geturðu lesið og ennfremur hlustað á hana á tenglinum hér fyrir neðan.

    (more…)
  • +Sigríður Þorláksdóttir Ottesen 1926-2022

    Örn Bárður Jónsson

    +Sigríður Þorláksdóttir Ottesen

    Bálför í kyrrþey

    frá Neskirkju

    fimmtudaginn 17. nóvember kl. 15

    Ræðuna er hægt að lesa hér fyrir neðan og hlusta á með því að smella á afspilunartakkann.

    Sálmaskráin er neðanmáls.

    (more…)
  • +Karl Harry Sigurðsson 1944-2022

    Örn Bárður Jónsson

    Minningarorð

    +Karl Harry Sigurðsson

    1944-2022

    fv. útibússtjóri

    hjá Íslandsbanka

    Útför frá Fossvogskirkju

    fimmtudaginn 10. nóvember 2022 kl. 13

    Sálmaskráin er neðanmáls. Og sérstakar kveðjur eru aftast í skjalinu, aftan við ræðuna og voru fluttar á eftir blessunarorðunum.

    Viltu lesa ræðuna og hlusta á hana. Hún er hér fyrir neðan. Smelltu á þríhyrninginn. Ræðuna varð ég að lesa upp aftur að athöfn lokinni þar sem upptakan í kirkjunni mistóks og því heyrist ekki kliðurinn í kirkjunni eða hlátur á vissum stöðum. En njóttu samt!

    (more…)
  • Um föl, fagurbrún og fordóma

    Um föl, fagurbrún og fordóma

    eftir Örn Bárð Jónsson

    Svartur og hítur, hvítur og svartur

    Hér fyrir neðan er greinin og einni hljóðskrá. Ýttu á þríhyrninginn og þá spilast lestur höfundar.

    Hvers vegna eru flest okkar föl?

    Í Kastljósi nýlega var fjallað um fordóma Íslendinga gagnvart fólki sem er af erlendu bergi brotið, einkum lituðu. Á hverju hvíla fordómar?

    Xenófóbía

    Xenofóbía er hugtak sem vísar til ótta og fordóma gagnvart framandi fólki, útlendingum, fólki sem á einhvern hátt telst öðruvísi en meirihluti íbúa. Fordómar hvíla ætíð á grunni fáfræði og/eða ótta.

    Einelti

    Náskylt er eineltið sem allt of mörg börn mega þola í skólum. Sum þeirra eru ofsótt vegna litarafts eða útlits, önnur vegna þess að þau eru kotroskin og með ríka málkennd, tala öðruvísi og eru sum e.t.v. ekki eins félagslynd og hin, lesa kannski meira og hafa þar með stærri orðaforða. Þá verða sumir “aumingjarnir” öfundsjúkir og fara að bögga þau eins og sagt er á ísl-ensku sem er önnur útgáfa á ís-lensku og sínu verri. Og nú virðist ég við fyrstu sýn vera dottinn í fordómapyttinn þegar ég tala um aumingja, en mér til málsbóta er að ég hef orðið innan gæsalappa, vegna þess að mér er það ljóst að ég er að dæma eineltisliðið í skólum eða vandræðagemsana. Gemsar í þessu samhengi er mun eldra en gemsarnir sem við berum flest í vösum okkar eða veskjum. Gemsi merkir upphaflega veturgömul kind en er einnig notað um ómerkilegan mann.

    Hin fölu

    En aftur að xenófóbíunni, hatrinu gegn fólki sem er ekki eins og meirihlutinn. Við erum nefnilega flest bæði föl og fordómafull. En hvers vegna erum við föl?

    Talið er að mannkynið eigi uppruna sinn í Afríku þar sem fólk er flest dökkt á hörund og hefur verið frá upphafi. Þar er sólin hátt og lengi á lofti og fólk hefur því um aldir og árþúsund varist miklu sólskini með því að þróa með sér dökkt hörund. En þegar þetta dökka fólk flutti til annarra svæða heimsins, þar sem minna sólarljóss gætir, urðu erfðabreytingar hjá þeim með tíð og tíma.

    Erfðafræðingar með fornminjar af mannfólki í fórum sínum telja að Evrópubúar séu blanda af a.m.k. þremur fornum þjóðflokkum: veiðimönnum, söfnurum og bændum, flokkum fólks sem fluttust aðskildir til Evrópu á s.l. 8000 árum. Nýlegar uppgötvanir af fornleifum frá Spáni, Lúxemborg og Ungverjalandi, gefa til kynna að þetta fólk hafi verið dökkt á hörund. Þetta fólk skorti tvennskonar erfðaefni SLC24A5 og SLC45A2 og sá skortur er valdur að því að Evrópubúar fengu flestir ljósari húð, urðu fölari á vegi tímans. Fleiri þættir spila hér stórt hlutverk í þróun manneskjunnar sem ekki verður fjallað um hér í þessum stutta pistli.

    (https://www.science.org/content/article/how-europeans-evolved-white-skin)

    Við sem erum hvít erum þar með upplitað blökkufólk eða það sem ég kalla, fölvar.

    Til er kínversk skýringarsögn um mannkynið. Guð vildi baka manneskju og sló í deig, setti yfir eld og bakaði. En bráðlæti varð til þess að baksturinn varð fölur og hálfhrár. Í næstu tilraun ætlaði Guð að gæta sín betur og baka lengur og hann beið þolinmóður en sú bið varð reyndar ögn of löng og deigið brenndist og varð allt of dökkt. Í þriðju tilraun náði Guð þessum fína árangri og baksturinn varð ljósbrúnn og fagur eins og rétt bakað brauð.

    Þessi saga er skemmtileg en í henni er vísir að xenofóbíu því sagan upphefur lit Austurlandabúa á kostnað hinna fölu frá Evrópu og þeirra svörtu frá Afríku. Sagan er auðvitað kínversk gamansaga. Já, það er erfitt að komast hjá fordómum hvort sem beitt er alvöru eða gríni.

    Fordómar

    Fordómar eru eins og arfi í garði. Þeir hverfa aldrei alveg úr hugarbeði þínu eða mínu. En ef við erum dugleg við að reita arfann er unnt að halda honum í skefjum og arfi er ætíð betri heftur en skefjalaus.

    Við, Íslendingar, erum fölir á hörund en orðið föl getur komið af tveim orðstofnum í okkar máli, fölur og falur. Við erum föl á hörund en við erum allt of mörg einnig föl í merkingunni að vera auðkeypt og auðblekkt.

    Undarleg tík

    Sú skrítna tík sem kennd er við orðið pólis (borg á grísku) og kallast pólitík og er ætlað að gæta hags borgaranna skv. frummerkingu orðsins, hefur allt of lengi afhjúpað þann plagsið innan íslenskrar stjórnsýslu að þar er mörg manneskjan, föl eða til sölu. Sum taka sérhyggju fram fyrir almannahag og tryggja þar með hag hinna fáu og ríku á kostnað hinna mörgu sem hafa minna á milli handanna.

    Hin fölu og fölu

    Svo má líka minna á samskipti hvítra og svartra í nýlegri viðskiptasögu okkar og þar vísa ég til framgöngu upplitaðra útgerðarmanna að norðan, gagnvart fagurbrúnu fólki í sunnanverðri Afríku, sem Kveikur hefur lýst upp, en þar urðu hin brúnu föl í vafasömum viðskiptum á milli hinna fölu og hinna fölu þar sem hinir fölu báru fé á hin ófölu sem reyndust þar með vera föl – eða þannig!

    Margt er skrítið í kýrhausnum, sagði kerling – eða verð ég að segja karl – til að fá ekki á mig fordómastimpil eða fæ ég hann hvort sem ég nota orðið karl eða kerling? Verð ég dissaður í báðum tilfellum? Ég vona ekki.

    Góðar stundir!

  • +Anna Theodóra Rögnvaldsdóttir 1953-2022

    Örn Bárður Jónsson

    Minningarorð

    +Anna Theodóra Rögnvaldsdóttir

    1953-2022

    Bálför frá Neskirkju

    7. október 2022 kl. 15

    Ritningarlestrar:

    Um kærleikann:

    1. Korintubréf 13. kafli.

    Matt. 5.5.1-12

    Ræðan – þú getur lesið og hlustað á tenglinu hér fyrir neðan. Sálmaskráin er allra neðst.

    (more…)
  • +Reynald Þráinn Jónsson 1938-2022

    Örn Bárður Jónsson

    Minningarorð

    +Reynald Þráinn Jónsson

    1938-2022

    Bálför í kyrrþey frá Fossvogskirkju

    miðvikudaginn 5. október 2022 kl. 13

    Sálmaskráin er neðanmáls.

    Ræðuna er hægt að lesa og/eða hlusta með því að smella á tengilinn.

    (more…)
  • Um skjálífi og skjána

    Með síðustu grein minni í Kjarnanum, sem ber yfirskriftina – Incurvatus in se – sem merkir að vera kengboginn inn í sjálfan sig, lofaði ég að rita aðra um þau sem eru kengbogin inn í skjáinn.

    Þú getur hlustað á upplestur greinarinna á tenglinum hér fyrir neðan:

    (more…)
  • Incurvatus in se

    Incurvatus in se

    Þú getur líka hlustað á greinina með því að smella á þennan tengil:

    (more…)
  • Fimmtándi sunnudagur eftir þrenningarhátíð og tvöfalt vígsluafmæli

    Við Ægisíðu

    Þann messudag bar að þessu sinni uppá 25. september. Dagurinn er mér kær enda merkisdagur í lífi mínu.

    Til þess að halda upp á daginn fór ég í messu í morgun í Neskirkju. Þar messaði dr. Skúli Sigurður Ólafsson og Bjarni Jónatansson var organisti í forföllum Steingríms Þórhallssonar sem var veðurtepptur úti á landi, Rúnar Reynisson var kirkjuvörður.

    Skúla mæltist vel að vanda og messaði falleg, sálmaval var gott og söngur og orgelleikur fagur. Kaffi og kex á Torginu eftir messu og gott spjall við safnaðarfólk.

    Sjá meiri texta og svo vatnslitamyndir eftir þessi skil.

    (more…)
  • Skissu-uppskera s.l. daga – Reaping sketches for a few days in Reykjavik, Iceland

    Andlit á vegg í Vesturbænum þar sem heitir Seljavegur – A face on a wall in the western part of Reykjavik
    Messa í Neskirju og sólin baðaði vegginn með Ljósinu eina – During a mass in Neskirkja where the sun casts it’s eternal Light on the altar wall.
    Karlar á gedduveiðum í Svíþjóð – Men fishing pike in Sweden.
    Rökræður um fordóma í sænsku sjónvarpi – Discussing predjudism in Swedish television.
    Tvær á trúnó á Jómfrúnni – Women meeting at Jómfrúin, The Virgin restaurant in Reykjavík.
    Iðnaðarmaður bíður eftir fundi – A tradesman waiting for a meeting.
    Nauthólsvíkin þar sem fólk syndir í sjónum og baðar sig í heitum laugum og spjallar saman – Nautholsvik, Reykjavik where people swim in the ocean and bathe in hot tubs and chat, solving all the problems of the world. Tourists standing and checking out the premises before getting ready for a dive in the ocean.
    Lambóll við Ægissíðu – A house called Lambhóll (Lamb hill) at Ægisíða-shore, Reykjavík.
    Lambhóll. Taka tvö. Nei ég var ekki á neinum lyfjum! – Lamb hill. Take two, No, I was not taking any drugs!
    Gróttuviti og melgresið mærir birtu sumars – The Grotta Lighthouse and the Alfa alfa straws praise summer.
    Grótta – Taka tvö – Grotta: Take Two!
    Við Reykjavíkurtjörn – Reykjavik Lake.
    Við Reykjavíkurtjörn: Taka tvö! – Reykjavik Lake: Take two!
    Gamall fiskibátur í Reykjavík – A classical fishing boat in Reykjavik.
    Horfði á The Gladiator og þar voru þessir vinir, keisarinn Markús Árelíus og Maximus – Whatching The Gladiator where these two friends discussed life, emperor Marcus Aurelius and Maximus.
    Gróttuviti, hákarlaskúri og Snæfellsjökull – The Grotta Lighthouse, a shark hut and the Snæfellsjokull Glacier seen from a 100 km distance or 60 miles.