“Six Tuscan Poets” by the Italian Renaissance painter, architect, and art historian Giorgio Vasari

  • +Ásgerður Hinrikka Annasdóttir

    Örn Bárður Jónsson

    Minningarorð

    +Ásgerður Hinrikka Annasdóttir

    21. des. 1946 – 8. ágúst 2024

    Útför frá Hafnarfjarðarkirkju

    Jarðsett í Hafnarfjarðarkirkjugarði

    Sálmaskráin er neðanmáls með myndum

    Smelltu á tengilinn og þú getur hlustað. Lengd tæpar 16 mínútur.

    (more…)
  • “Tár á himnum” – og heimsálfa á milli!

    Seint á liðinni öld þýddi ég texta Erics Clapton, Tears in Heaven og hann hefur af og til verið notaður við athafnir.

    Svo sendi ég textann til hans Rósa Sigurðssonar, Ísfirðings, sem er ári yngi en ég og spilaði í hljómsveitum heima eftir að ég flutti suður en hann eignaðist Ný-Sjálenska konu og þau fluttu “down under” eins og Ástralir segja um sinn heimshluta.

    Rósi brást vel við og er búinn að hljóðrita lagið með íslenska textanum. Hann syngur textann, leikur á öll hljóðfærin sjálfur og dóttir hans raddar með honum.

    NJÓTIÐ!

    Frumtexti og þýðing eru í reitnum fyrir neðan.

  • Tillaga um afheiðnun

    Nú finnst mér kominn tími á róttæka tiltekt hvað varðar hugtök í landinu. Breyta þarf örnefnum og merkingum út um landið vítt og breitt.

    (more…)
  • Gleymd orð vakin til lífs: piktur og stívarður. Og ný vatnslitamynd!

    Í Morgunblaðinu á dögunum ræddi Elínborg Una Einarsdóttir við Jóhannes B. Sigtryggsson, rannsóknardósent, um íslenkt mál. Sjá meðf. grein.

    Við lestur hennar urðu til vísur þar sem ég tók upp tvö orð sem mér finnst ég geti notað um sjálfan mig, orðin piktur og stívarður en fyrra orði merkir málari en hitt ráðsmaður.

    Ég hef löngum starfað sem þjónn eða ráðsmaður Drottins og minni oft á orð Jesú, sem reyndar notar orðin þræll og þjónn í sömu andrá.

    Og sá er vill fremstur vera meðal ykkar sé allra þræll. Því að Mannssonurinn er ekki kominn til þess að láta þjóna sér heldur til að þjóna og gefa líf sitt til lausnargjalds fyrir alla.

    Hér eru vísurnar:

    Heill þér heimsins lávarður,
    himins sonurinn sæli.
    Þér ég þjóna stívarður,
    þakka skjól og hæli.
    Tíðum munda pentil pent,
    pára á striga myndir.
    Piktur ei mín reiknast mennt,
    en miskunn sýknar syndir.

    Að tjá sig í myndmáli er skemmtileg glíma og sem lítt menntaður á því sviði er glíma mín gjarnan hörð og óvægin og því er það miskunn Guðs að þakka að ég gefst ekki upp.

    Reykjavíkurhöfn – abstrakt

    Hér er svo greinin úr Morgunblaðinu:

    Og hér er samhengi textans þar sem lærisveinarnir ræddu við meistara sinn. Smelltu á tengilinn og þú ferð inn á vef Biblíufélagsins:

    Biblíulestur 7. apríl – Mrk 10:35-45

  • Leyst af á Vestfjörðum – bifreið og hjólhestur til reiðar

    Var beðinn um að hlaupa í skarðið fyrir kollega mína á norðanverðum Vestfjörðum 15.-31. júlí 2024. Þeirri kærkomnu beiðni prófastsins séra Magnúsar Erlingssonar og Biskupsstofu var tekið með gleði og tilhlökkun enda um æskuslóðir mínar að ræða.

    Birti hér nokkrar skissur sem ég hef stytt mér stundir við á milli athafna en um liðna helgi gaf ég saman tvenn hjón og skírði þrjú börn í þremur athöfnum á tveim dögum á Ísafirði og í Bolungavík.

    Fjallið Ernir og Hólskirkja í Bolungavík.
    (more…)
  • Hákarlshjallur

    Hjólatúr út að Gróttu.

    Hákarlshjallur við Gróttu
  • ÚT VIL EK –

    ferðasaga í tíu köflum (I-X) til meginlands Evrópu með skipinu Norrænu sumarið 2024.

    I. LAGT AF STAÐ Í LANGFERÐ

    Út vil ek, sagði Snorri Sturluson í Noregi og vildi fara heim til Íslands. Þessari tilvitnun er hér snúið við og notuð um að fara utan, til útlanda. Stundum talar fólk um að fara erlendis, sem er ógerningur á réttri íslensku, því erlendis er staðaratviksorð og merkir að dvelja erlendis. Að fara til meginlands Evrópu er austurför. Nóg um það!

    Hafin er ferð til meginlandsins, ekið austur til Seyðisfjarðar og þaðan siglt með Norrænu með 2ja tíma viðkomu í Þórshöfn og svo til Hirtshals í Danmörku og loks á malbiki til Póllands og þá til Tékklands og víðar. Í bakaleiðinni staldraði ég við í tæpa þrjá daga í Færeyjum og fór þar um vegi og göng, skoðaði bæi, sveitir og söfn.

    Sagan verður sögð eftir því sem fram vindur og færi gefst til góðrar nettengingar.

    6. maí: Ekið frá Reykjavík um Selfoss þar sem keypt var vindsæng í bílinn og pumpa. Þaðan í rólegheitum í Skál sem er í norðurkanti Skaftárhrauns. Gisti þar í góðu veðri í boði eigenda.

    Undir Eyjafjöllum.
    (more…)
  • +Anna Guðrún Hannesdóttir Scheving

    Minningarorð eftir Örn Bárð Jónsson

    Texti og hljóðupptaka eru hér fyrir neðan og sálmaskráin öll fyrir neðan textann.

    (more…)
  • Að sjóða frosk

    Grein um samtímann

    Örn Bárður Jónsson

    Hér er hljóðskrá ef þú vilt hlusta á upplestur höfundar sem tekur sextán og hálfa mínútu.

    (more…)
  • +Pálmi Ólafur Bjarnason 1948-2024

    Minningarorð sem unnt er að lesa og hlýða á hér fyrir neðan.

    Páldmi Ólafur Bjarnason – Bálför hans fór fram í Bænhúsinu í Fossvogi, miðvikurdaginn 24. apríl 2024
    (more…)