“Six Tuscan Poets” by the Italian Renaissance painter, architect, and art historian Giorgio Vasari

  • Vinstra eða hægra?

    Hvort heilahvelanna er ráðandi í hugsun þinni?

    eftir Örn Bárð Jónsson

    Viltu lesa eða hlusta? Tekur 7 mínútur.

    Mynd fengin að láni af Vefnum

    Breski fræðimaðurinn Iain McGilchrist (f. 1953) hefur vakið mikla athygli víða um heim og flytur fyrirlestra og mætir í mörg viðtöl við aðra fræðimenn og þáttastjórnendur sem m.a. er unnt að nálgast á YouTube.

    (more…)
  • …og skissu-syrpan heldur áfram

    Besta skissubók sem ég hef fundið og þá vísa ég í pappírinn sem er með nákvæmlega réttar tennur eins og það heitir á vatnslitamáli. Á ensku er talað um “tooth” pappírsins og það vísar í hrjúfleika og hvernig hann mætir pensilstrokunni.

    Ég, sem sagt, beit á jaxlinn og kláraði bókina. Sæki mér svo nýjar skissubækur af sömu gerð eftir verzlunarmannahelgina.

    Hér koma skissurnar sem auðvitað eru líka skyssukenndar eins og gengur þegar teiknað er fjálslega! Njóttu!

    Horft út um gluggann heima. Esjan og Sundin blá gleðja stöðugt. Skýjað hefur verið undanfarnar vikur og litir því í þeim dúr.
    Sá kvikmyndina GENIUS sem er um bandaríska rithöfundinn Thomas Wolfe 1900-1938 sem skáldið Ólafur Gunnarsson kynnti mig fyrir á sínum tíma. Myndin er með dimmri lýsingu. Tökur fagrar með mildum blæ. Leikur góður.

    Smelltu á yfirskrift færslunnar ef næstu myndir sjást ekki!

    Fulltrúi útfgáfunnar sem lét skáldið strika út hálfar og heilu síðurnar. Myndin snýst að miklu leyti um samskipti þeirra og eiginkonur beggja. Hann var allaf með hattinn. Líklega svaf hann með hann!
    Skip mætast í hafnarkjaftinum í Reykjavík.
    Gítaristi á skjánum á YouTube
    Hús á skjánum
    Kaffi og croissant
    Verk eftir Sigurð Guðmundsson og fleiri munir af annarra höndum
    Mannequin og skál með stiga eftir finnskan listamann sem ég keypti. Á einnig forláta krossmen eftir hann sem ég hef notað við athafnir um árabil.
    Lokasíða skissubókarinnar með rétt-tenta pappírnum!
    Vinstri hönd höfundar og fingrafar hægri þumals.
  • Ný syrpa af skissum

    Ég kynntist félagsskapnum Urban Sketchers árið 2013 og tengdist honum á Netinu. Hann heldur utan um fólk sem hefur gaman af að skissa, einkum úti. Pappír, blýantur, penni og önnur einföld verkfæri eru notuð. Sumir lita og nota þá vatnsliti eða aðra miðla. Málið er að teikna á staðnum.

    Ég nota blekpenna með vatnsheldu bleki og teikna beint og þar með er ekki unnt að stroka neitt út. Teikningin verður að takast og maður venst því að mistök geti jafnvel gætt verkið einhverju skemmtilegu sem annars hefði ekki gerst.

    Ég hef fyllt meir en tug bóka með skissum. Þetta er afar skemmtileg dægradvöl

    Nóg um það.

    Hef verið nokkuð iðinn síðustu dagana og hér eru nokkrar sem urðu til við ýmsar aðstæður.

    Þúfan fagra gleður mig gjarnan þar sem hún kallast á við olíutankana í Örfirisey.
    Kominn heim og þarf að hafa hægt um mig eftir aðgerð.
    Horft á sjónvarp og út um gluggann þar sem þessir tveir hlutir standa og bera við himin.

    Ef framhaldið birtist ekki, skaltu smella á FYRIRSÖGN færslunnar efst!

    (more…)
  • Að brjóta niður eða byggja upp?

    Þankar um ferli breytinga á textum helgihalds í Handbók kirkjunnar

    Örn Bárður Jónsson – júlí 2025

    Mynd af Veraldarvefnum
    (Royalty Free Vector Image)
    (more…)
  • Sigling og Upp á við!

    Tvær nýjar vatnslitamyndir

    Stærð myndflatar 25×34 cm

    Þú getur þysjað myndina og skoðað hana í stærra sniði!

    Sigling
    Upp á við
  • Skissur um miðjan júlí 2025

    Gellur er góður matur.
    Fiskurinn, á grísku IXÞYS
    er eitt af elstu táknum kristninnar,
    en stafirnir mynda játninguna:
    Jeús Kristur Guðs Sonur Frelsari
    Á gellan kannski best við sem tákn íslensku kirkjunnar nú um þessar mundir sem reynir að ná athygli fólks m.a. með sprikli og glamúr?
    (more…)
  • Palestína – hin hliðin – ég skora á þig að hlusta!

    Láttu ekki mata þig á einhliða áróðri.

    Hér eru tenglar á orðræðu fólks sem sér hina hliðina á deilunni.

    Notið tenglana. Smelltu á svæðin með línum og þá opnast myndband.

    Gefðu þér tíma til að horfa og hlusta!!!

    Hér er viðtal við konu, fv. ritstjóra í Bretlandi:

    https://youtu.be/Ua9rkluaXRQ

    Og hér eru upplýsingar um hana:

    https://en.wikipedia.org/wiki/Melanie_Phillips

    Hér er tengill með ræðu manns sem er sonur eins af stofnendum Hamas en hefur snúið baki við þeim og starfar nú fyrir ísraelsku leyniþjónustuna:

    https://youtu.be/pjOEJumoABgbe/

    Hér er tengill, ekki beint um Palestínu en upplýsandi um ástandið í Mið-Austurlöndum:

    https://www.facebook.com/share/v/1CveEa4xzt/?mibextid=wwXIfr

    Og annar hér um vanda sumar olíuríkjanna sem skekkja allt á svæðinu:

    https://www.facebook.com/share/v/14GwqGBjbEM/?mibextid=wwXIfr

    Vesturlönd eru heilaþvegin af Hamas. 

    Þeir fela sig í “civil” klæðum og koma aldrei fram sem hermenn nema í meintum árásum á sitt eigið fólk sem þeim er algjörlega sama um.

    Þeir nota fólkið sem skjöld og fórnar þeim á altari lyginnar.

    Þegar Hamas hafði drepið 2000 manns 7. okt. 2023 og dregið lík nauðgaðra og svívirtra kvenna, um götur og torg þá trylltist Palestínu-fólkið í frigðarfullri gleði yfir hroðanum! 

  • Málþing um Níekujátninguna – 1700 ár liðin frá samþykkt hennar 325 e. Kr.

    Liðin eru 1700 ár og tími kominn á málþing um Níekujátninguna. Dr. Lange flutti erindi og heimamenn brugðust við.

    Við, séra Jón Ragnarsson lögðum land undir fót og ókum í Skálholt. Þar urðu þessar skissur til.

    Hughrif sögu og samtíðar
    Andlit á sviði
  • Skissur frá Lúx og glænýjar úr Reykjavík

    Kvöldflug frá Varsjá til Lúxemborgar

    Smelltu á fyrirsögnina efst til að sjá allar myndirnar!

    (more…)
  • Skissað frá Varsjá til Vínar

    Miriam Anna Arnardóttir í Varsjá
    eins árs 6.7.25
    (more…)