“Six Tuscan Poets” by the Italian Renaissance painter, architect, and art historian Giorgio Vasari

  • Ljósið sigrar!

    Í dag, 21. desember 2025 eru vetrarsólstöður.

    Nú fer daginn að lengja!

    Það eru gleðitíðindi.

    Hér er ein lítil vatnslitamynd máluð í Varsjá þar sem ég ver jólunum í ár með þrem barnabörnum af tveim stofnum!

    Ljósið – rýfur – mörkin – flæðir – og – sigrar – að – lokum!

    Njótið aðventunnar og Guð gefi ykkur gleðileg jól!

  • Til dóttur 15. desember 2025

    Svala Björk sem býr á meginlandi Evrópu er fimmtug í dag, 15. desember, dóttir okkar Bjarnfríðar Jóhannsdóttur.

    Þegar hún fæddist á Fæðingarheimili Reykjavíkur var Borgin á kafi í snjó um morguninn, veður stillt og allt eins og mynd á jólakorti.

    Borgarbúar risu á fætur og fóru á stjá, mörkuðu fótspor í snjóinn og bifreiðar skáru hjólför sín í fegurðina.

    Veröldin eins og ævintýraheimur og gjöf lífsins einstök.

    Í tilefni af stórafmælinu varð þessi bragur til:

    Er þú fæddist fönnin skær,
    fegurð glæddi heim,
    hrein var borg og sérhver bær,
    blessun streymd'um geim.

    Góð sem engill, ætíð kær,
    elsku Svala mín.
    Bliki áfram blíð og skær,
    bláu augun þín.

    Ætíð gleðin eflist þér,
    ávallt ljúf og góð
    Guði þökk er gaf þig mér,
    gaf mér þetta ljóð.

    Til hamingju, elsku Svala mín!
  • Viðtal á Eyjunni

    Ólafur Arnarson ræðir við Örn Bárð Jónsson í des 2025

    Smelltu á auða svæðið fyrir neðan þennan texta!

    https://podcasts.apple.com/is/podcast/eyjan/id1576340932?i=1000741011598

    Uppruni og mótun, lífshlaup og störf,

    hvernig trúin blómstraði og breytti lífi mínu

  • Séra Bragi – ævisaga

    Út er komi glæsileg bók um einstaskan mann, kirkjuleiðtoga og frumkvöðul á mörgum sviðum.

    Bókin er rituð af Hrannari Braga Eyjólfssyni, sonarsyni hans.

    Eftir að hafa lesið bókina, settist ég niður og spjallaði um hana og tók upp á myndband sem unnt er að horfa og hlusta á hér fyrir neðan.

    NB!!! Smelltu á auða svæðið til að kveikja á upptökunni:

    https://youtube.com/watch?v=wE8uLhWdRmo&feature=shared

  • Óvild í garð gyðinga ræður víða för

    Ákvörðun RÚV um að sniðganga Júróvisjón var auðvitað fyrirsjáanleg. Hún var tekin 11. desember 2025.

    Þankar eftir Örn Bárð Jónsson sem les.

    Viltu lesa og/eða hlusta. Tekur 2 mínútur plús.

    Mynd af vefnum

    Á RÚV er hamast alla daga og pólitískum áróðri dreift gegndarlaust af starfsfólki, sumu með pólitískar agendur, sem hallað hefur réttu máli í hverjum fréttatímanum á fætur öðrum undanfarin misseri.

    (more…)
  • SEM ÞUNGT HAMARSHÖGG

    Um ástandið á Gaza

    DOULAS 𝐌𝐔𝐑𝐑𝐀𝐘 LÉT ORÐ FALLA SEM ALLIR VERÐA AÐ HEYRA

    Murray er breskur fræðimaður sem gjörþekkir sögu Mið-Austurlanda.

    Hér er tjáning hans um stöðuna á Gaza og í Ísreal.

    Textann þýddi Örn Bárður Jónsson úr ensku og les:

    Douglas Murray mismælti sig ekki — og hann hefur rétt fyrir sér.

    Hann sagði það sem „alþjóðasamfélagið“

    heldur áfram að loka augunum fyrir:

    Tveggja-ríkja-lausnin er ekki lengur inni í myndinni.

    Ekki eftir það sem gerðist. Ekki eftir það sem gefið var eftir — og hvernig farið var með það.

    Hér er það sem enginn fjölmiðill vill segja upphátt:

    -Árið 2005 dró Ísrael alla Gyðinga út úr Gaza. Hús og heimili voru tæmd. Fyrirtæki yfirgefin. Samkunduhús gyðinga tæmd og þeim lokað. Gaza var afhent — algerlega. Allt var endurræst. Allt var aftur sett á byrjunarreit.

    Þau höfðu 18 ár.

    Átján. Líftími barns sem verður fullorðið.

    Og hvað gerðist?

    – Eldflaugar

    – Stríð

    – Spilling

    – Stolin aðstoð

    – Fleiri eldflaugar

    – 7. október — hryllilegasta hryðjuverkaárás í manna minnum.

    Þetta voru ekki “mistök” eða „ágreiningur um stefnu“. Þetta var tilraun til að stjórna með tortímingu.

    Orð Murray’s eru sem þungt hamarshögg:

    -Gefa þeim „annað tækifæri“?

    -Endurtaka sömu tilraun?

    -Segja má, að það að neita að draga lærdóm af 18 ára reynslu beri ekki vott um samúð heldur vísvitandi fáfræði.

    Og hér er hinn óþægilegi sannleikur:

    -H-m-s „eyðilagði“ ekki friðsæla framtíð.

    -Samtökin afhjúpuðu veruleika sem allir voru of huglausir til að viðurkenna.

    -Friður næst ekki með aðferðum dauðakölts.

    -Enginn semur um friðsama sambúð við fólk sem í hroka sínum tjáir vilja sinn um að andstæðingarnir verði afmáðir af landakortinu.

    Murray hefur rétt fyrir sér.

    Ævintýrinu lauk 7. október 2023

    Það sem uppúr stendur er kristalsstært

    – og heimurinn stendur loksins frammi fyrir afleiðingum þess að hafa hunsað veruleikann í tvo áratugi.

    —

    Douglas Murray hefur gagnrýnt innflytjendastefnu Evrópu og Islam. Hann hefur ítrekað látið um sig muna í uræðunni um Ísrael eftir hryðjuverkaárásina 7. október 2023.

    Hér er tengill á viðtalið við Douglas Murray (smelltu á eyðuna, forritið sýnir ekki tengilinn):

    https://x.com/MichaelARothman/status/1998618476244861014/video/1

  • Gildagrunnur Vesturlanda

    Trump og Pútín,

    BBC og Gaza-Rúv

    Gyðingahatur og fleira

    Þankar eftir Örn Bárð Jónsson sem les.

    Nú eru þeir að makka, Pútín og Trump. Þeir vilja ráða för í Evrópu og leysa deiluna milli Rússa og Úkraínumanna án afskipta Evrópusambandsins.

    Hvers vegna? Skoðum aðeins hugmyndasöguna.

    (more…)
  • Viljum við stríð í Evrópu?

    Pistill eftir Örn Bárð Jónsson sem les.


    Baráttunni við Harmagedón er lýst í
    Opinberunarbók Jóhannesar 16.16
    en þar mun Guð að lokum sigra hið illa

    “Af hverju koma stríð …? spyr höfundur Jakobsbréfsins í Nýja testamentinu.

    Af hverju koma stíð?

    (more…)
  • Vetrarsyrpa

    Smelltu á nafn færslunnar til að sjá allar myndirnar.

    5 mínútna skissur liðinna vikna,

    teiknaðar með blekpenna

    og með vatnsheldu bleki

    svo engu er unnt að breyta!

    Litað með vatnslitum.

    Engu er líkara en jökullinn sigli inn Sundin við Gróttu
    þegar birtan og náttúruöflin gera daginn að undri
    og færa fjöllin til og lyfta þeim
    Horft frá Gróttu.
    Akranesbær svífur sem í tíbrá með snæviþakin nesin tvö að baki
    kennd við Snæfell og Kjöl
    Þúfan og Esjan eru fallegt par
    (more…)
  • +Sæþór Mildinberg Þórðarson 1942-2025

    Viltu lesa ræðuna og/eða hlusta? Hluti ræðunnar var fluttur af munni fram og hluti skv. meðf. texta.

    Örn Bárður Jónsson

    Minningarorð

    Sæþór Mildinberg Þórðarson

    1942-2025

    Útför frá Keflavíkurkirkju

    fimmtudaginn 27. nóvember 2025 kl. 13

    Jarðsett í Ytri-Njarðvíkurkirkjugarði eftir bálför.

    (more…)