“Six Tuscan Poets” by the Italian Renaissance painter, architect, and art historian Giorgio Vasari

  • Ertu Guðfinna?

    Hugvekja um trú og samfélag flutt í Ísafjarðarkirkju sunnudaginn 20. ágúst 2023: Ertu Guðfinna? Um hana Guðfinnu og fleira fólk.

    Ábyrgðarmaður þessarar síðu vitjaði bernskuslóðanna og hitti þar fermingarsyskini sín sem héldu upp á 60 ára fermingarafmæli í Ísafjarðarkirkju 20. ágúst 2023 í messu í samvinnu við sóknarprestinn, séra Magnús Erlingsson.

    Hugvekjan var flutt af munni fram en ekki sem rituð ræða.

    Rætt var m.a. um fræ barnatrúar sem geta blómstrað, um Hugsanafljótið mikla, um gildagrunn Vesturlanda, um tvær helstefnur á liðinni öld, um trú og menningu, um forsjón, tíma og eilífð.

    “Í faðmi fjalla blárra” –
    Ísafjarðarkirkja vígð 1995,
    teiknuð af Hróbjarti Hróbjartssyni, arkitekti (1938-2021)
    Myndina málaði klerkur sumarið 2023

  • +Þröstur Marzellíusson 1937-2023

    Unnt er að lesa og hlusta á ræðuna hér fyrir neðan:

    (more…)
  • +Jón Snævarr Guðnason 1947-2023

    Minningarorðin geturðu lesið og hlustað á hér fyrir neðan:

    (more…)
  • +Judy Ásthildur Wesley 1949-2023

    Örn Bárður Jónsson

    Minningarorð

    +Judy Ásthildur Wesley1949-2023

    Ræðuna er hægt að lesa hér fyrir neðan og líka hlusta á hljóðupptöku:

    (more…)
  • +Guðjón Kristján Benediktsson 1937-2023

    Minningarorðin, texti og hljóðupptaka eru hér fyrir neðan:

    (more…)
  • +Íslaug Aðalsteinsdóttir

    1926-2023

    Minningarorðin, texti og hljóðupptaka, er hér aðeins neðar.

    Örn Bárður Jónsson

    Minningarorð

    +Íslaug Aðalsteinsdóttir

    1926-2023

    Útför frá Vídalínskirkju

    fimmtudaginn 20. júlí 2023 kl. 13

    Jarðsett í Hafnarfjarðarkirkjugarði

    (more…)
  • +Helgi Júlíusson 1945-2023

    Örn Bárður Jónsson

    Minningarorð

    +Helgi Júlíusson

    1945-2023

    frá Ísafirði

    Útför frá Fossvogskapellu

    miðvikudaginn 12. júlí 2023

    Minningarorðin geturðu hlustað á og lesið hér fyrir neðan.

    Smelltu á hljóðskrána til að hlusta.

    (more…)
  • +Maríanna Elísa Franzdóttir 1927-2023

    Hljóðupptka og texti ræðunnar er hér fyrir neðan.
    (more…)
  • Litblinda í sorpmálum?

    Litir, litagleði, litblinda

    Nú standa yfir breytingar á sorphirðu í höfuðborginni, tunnum er dreift í ýmsum stærðum og nú skal flokka og auglýsingarnar dynja á okkur borgarbúum í öllum fjölmiðlum.

    Og ég spyr: Hvers vegna á plast að fara í græna tunnu en pappír í bláa?

    Allir sem ég hef spurt um málið finnst þetta eigi að vera öfugt.

    Ætti græna tunnan ekki að vera blá?

    Plast er í hugum flestra bláleitt, alla vega glært plast, það hefur á sér bláan lit og ef ég ætlaði t.d. að vatnslita manneskju með glæran plastpoka í höndum mundi ég velja fölbláan lit á plastið. Þess vegna finnst mér að plast ætti að fara í bláa tunnu enda þótt plast fyrirfinnist í öllum regnbogans litum. Regnboginn hefur himininn að bakgrunni og hann er blár. Sástu þáttinn Endurvinnslumýtan á RÚV 7. júní sl? Hann er algjör hrollvekja um það brjálæði sem plastframleiðslan í heiminum er.

    Ætti bláa tunnan ekki að vera græn?

    Svo kemur allur pappírinn. Pappír er í flestum tilfellum framleiddur úr jurtatrefjum, venjulega úr trjáviði og flest tré bera grænt lauf.

    Pappír er umhverfisvænni en plast og á sínar rætur í grænum lit. Þess vegna ætti pappír að fara í græna tunnu að mínu mati og plastið í bláa.

    Og því spyr ég:

    Hvaðan kemur þessi litblinda í sorpmálum?

    Sjá nánar hér: https://reykjavik.is/sorphirda

  • Hvítasunnudagur í Neskirkju 28. maí 2023

    Skissaði 3 myndir í messunni sem var góð og gefandi á hvítasunnudag en þá fagnar kirkjan um allan heim úthellingu heilags anda sem enn starfar og gefur kraft og líf. Þetta er dagur lita og gleði. Messuskrúðinn er rauður sem vísar í eldinn sem minnir á eldtungurnar sem settust á hvert og eitt þeirra sem fylltust andanum á hvítaasunnudag forðum og töluðu tungum. Tungutal er dásamleg gjöf. Þegar beðið er í tungum, biður hjartað klökkt af gleði.

    Dr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir messaði.
    Steingrímur þandi orgelið með mögnuðu eftirspili og stýrði kórnum í stólversi.

    Prestur og meðhjálpari útdeildu, dr. Steinunn Arnþrúður og Þórdís Ívarsdóttir, form. sóknarnefndar.