Rupert Shortt í The Spectator á jóladag 25. desember 2025

Þó að sýnin á jólin sé stöðnuð og gölluð, þá dregur dálkahöfundur The Guardian [einn af leiðandi miðlum til vinstri í Bretlandi], Polly Toynbee, saman röksemdir efahyggjumanna á afhjúpandi hátt. Bókin, sem kom út fyrir þremur árum, er yfirgripsmikil. Þar er tekist á við neikvæða gagnrýni sem komið hefur fram árlega í desembermánuði af hálfu bandamanna efans áratugum saman. „Eins og mér milslíkar flest í kristinni trú, þá er táknmyndin af stjörnu, fjárhúsi, jötu, konungum og hirðum, sem heilsa nýju barni, alheimstákn mennskunnar … En restin finnst mér andstyggileg. Hvers vegna að bera á sér tákn barbarískrar pyntingar? Píslarvætti er andstyggileg dyggð, eins og að leggja á sig ævarandi sektarkennd.”








