Man Dokkuna frá barnæsku en nú er hún horfin.

Writer – Painter – Theologian
Rithöfundur – Málari – Guðfræðingur
“Six Tuscan Poets” by the Italian Renaissance painter, architect, and art historian Giorgio Vasari
Man Dokkuna frá barnæsku en nú er hún horfin.

Sótt messu í Neskirkju í dag, jóladag. Þar var valinn maður í hverju rúmi, tveir prestar, dr. Skúli Ólafsson sem prédikaði og gerði það að vanda mjög vel og séra Helga Kolbeinsdóttir sem stýrði altarisgöngu. Fjölmenni var í kirkjunni.
Þá var hinn fimi og frábæri tónlistarmaður, Steingrímur Þórhallsson, við orgelið og stjórnaði söng síns góða kórs Neskirkju sem fyllti kirkjuna lofgjörð og fegurð og til viðbótar söng Drengjakór Reykjavíkur undir stjórn Þorsteins Freys Sigurðssonar ásamt undirleikara sem ég hef ekki nafnið á.
Allt var þetta uppbyggilegt og hátíðlegt.
Sólin varpaði krosstáknum úr gluggapóstum suðurgluggans á vegginn og færðist svo smátt og smátt út og hvarf svo alveg í ljósasýningu almættisins.
Ég hjólaði til messu og þaðan upp í Hliðar í heimsókn til bróður og lokst heim á malbiki og klaka til skiptis.
En svo las ég guðspjall jóladags sem er annað en það sem lesið er á aðfangadag og allir kunna. Hér kemur jólaguðspjall Jóhannesar postula þar sem hann segir frá nafna sínum skírara og hinum eilífa Kristi. Hér er upptakan:


Húsið sem ég fæddist og ólst upp í stendur við Sólgötu númer 8 á Ísafirði og á horninu við Fjarðarstræti sem liggur meðfram sjónum á norðanverðri Eyrinni eins og hinn forna prestssetursjörð heitir.
Ég ólst því upp við sjóinn þar sem heitir Prestabugt.
Hornið á húsinu er sneytt til að auðvelda umferðu inn og út úr Sólgötunni.
Ég bjó á efri hæðinni og þegar ég var farinn að sofa í einn, svaf ég í Sneyðinni sem var borðstofa fjölskyldunnar.
Flutti svo í minna herbergi, miðgluggann á efri hæð Fjarðarstrætismegin, þegar stóri bróðir flutti að heiman.


Ljósbrot: Grótta að kvöldi – Myndin túlkar kvöldbirtu og ljósið er leyst upp í depla sem gerir þann part þar með abstrakt en að öðru leyti er myndin hlutbundin. Gróttuviti er skemmtilegt mótíf og margrætt eftir því hvaðan horft er. Litirnir í ljósinu eru m.a. tilvísun í norðurljósin sem eru vinsælt fyrirbrigði, ekki síst meðal ferðamanna.
Stærð B53 x H36 cm + Karton


Pusar yfir grjótgarðinn – Grótta í desemberbirtu II -Stærð myndar B34 x H25 cm + karton
HERÖRIN – Nýjar Smásögur eftir Ólaf Gunnarsson – en þó engar smá sögur! Ólafur er einn af okkar bestu höfundum og í Herörinni tekst hann á við tilvistarlega glímu okkar mannfólksins á sinn næma hátt. Af hverju erum við eins og við erum? Hvað drífur okkur áfram? Hvað stjórnar hegðun okkar?
Ólafur kafar djúpt og með málfari sem vekur upp álíka kennd og þegar maður gengur inn í hönnunarbúð með vandaðan varning og sér fegurðina blasa við, hvert sem litið er, mjúkar línur harðviðar, litríkan vefnað og fegurð í hverju smáatriði. Sögurnar hreyfa við manni, skapa ugg og undrun, gleði, fögnuð og fagrar minningar vakna. Meistaratök!
Smásögur henta nútímanum. Maður les bókina í smáskömmtum og nýtur hennar eins og eðal konfekts.
Skrifa mætti langan ritdóm um bókina, HERÖRIN, en í ys aðventunnar læt ég þetta duga, af virðingu við upptekið fólk – en munið að ná ykkur í eintak!




Bálför frá Neskirkju föstudaginn 1. des. 2023
Örn Bárður Jónsson
Minningarorð
+Jón Þorgeir Hallgrímsson
Yfirlæknir, lektor og dósent við læknadeild HÍ og kennari við Ljósmæðraskóla Íslands. Gegndi margvíslegum trúnaðarstörfum.

f. 20. ágúst 1931
d. 21. nóvember 2023
Hægt er að hlusta og lesa hér fyrir neðan. Sálmaskráin er aftast í færslunni.
(more…)Bálför frá Neskirkju, föstudaginn 24. nóv. kl. 13
Unnt er að lesa minningarorðin og hlusta á athöfnina alla á hljóðupptökunni. Ræðan hefst á mínútu 29:50

Yfir 50 myndir sem ég hef málað á liðnum misserum og árum.
Til sölu handa þér – eða til tækifærisgjafa – við afmæli, útskriftir eða af hvaða tilefni sem er? Bókin mín – Íslensk fjallasala og fleiri sögur – fylgir hverri mynd í kaupbæti!!
Nánari upplýsingar aftast í færslunni.
Prófaðu að þysja myndina og þá fyllir hún skjáinn.
My Watercolor Paintings: Mountains and volcanos, houses and nature in Iceland, Winter solstice and more.
(more…)