“Six Tuscan Poets” by the Italian Renaissance painter, architect, and art historian Giorgio Vasari

  • Af vínkærum prestum – Fróðleikur um frænda minn, séra Jón Ásgeirsson á Hrafnseyri, og fleira fólk

    Var að lesa fróðleik um þennan “frænda minn” í bókinni VESTFIRZKAR SAGNIR og hafði ánægju af v.þ.a. margt hef ég heyrt um hann og prestana honum tengdum.

    Setti saman þessa grein með upplýsingum um ætt mína og svo eru hljóðskrár neðst með upplestri mínum úr

    Vestfirzkum sögnum, safnað hefir Helgi Guðmundsson, 1. Bindi, Reykjavík, Bókaverzlun Guðm. Gamalíelssonar 1933-1937

    Hrafnseyri við Arnarfjörð – mynd fengin að láni af vefnum

    Eitt sinn er ég átti samtal við séra Sigurbjörn Einarsson, biskup og velgjörðarmann minn, nefndi ég að ég hefði ekki fundið marga presta í föðurætt minni, en í móðurættinni væru einir þrír ættliðir presta sem hefðu þjónað í Holti í Önundarfirði. Þá glotti biskup og sagði:

    “Jæja, blessaður minn, þeir voru víst dálítið drykkfelldir!”

    Nota Bene:

    Til að lesa alla greinina þarf að smella á fyrstu fyrirsögn og þá kemur framhaldið og svo hjóðupptökurnar!!!

    (more…)
  • Að lesa Biblíuna eins og Njálu

    Þankar eftir Örn Bárð Jónsson sem les.

    Það henti þau Frosta og Finnlaugu,

    að fundu á Netinu dómsaugu,

    og helling þau lásu

    heila Biblíu’ án pásu,

    en hefðu þurft Jesú-glögg gleraugu.

    (more…)
  • +Björgvin Agnar Hreinsson 1964-2025

    Örn Bárður Jónsson

    Minningarorð
    +Björgvin Agnar Hreinsson
    f. 1. febrúar 1964 – d. 23. janúar 2025

    Fyrir neðan myndina er tengill á ræðuna til að lesa og/eða hlusta.

    (more…)
  • Tár á himnum – Tears in Heaven

    Yðar einlægur syngur þýðingu sína við undirleik Rósa Sigurðssonar og bakradda hans og dóttur.

    Mynd af Souncloud
    Tears in Heaven – Tár á himnum

    En hér er sagan á bak við uppátækið! En til að lesa eða hlusta á hana þarftu að smella á fyrirsögn færslunnar efst og skruna svo niður.

    (more…)
  • +Arnar Geir Hinriksson lögfræðingur 1939-2025

    Minningarorð, flutt í Neskirkju í Reykjavík 31. janúar 2025

    eftir Örn Bárð Jónsson

    Minningarorðin er hægt að lesa og hlusta á og einnig eru kveðjur sem fluttar voru neðanmáls en þær eru hvorki í ræðunni sjálfri né á hljóðupptökunni.

    (more…)
  • Sálmurinn Um dauðans óvissan tíma – leiklesinn af Erni Bárði Jónssyni

    Sálmur séra Hallgríms Péturssonar sem flestir þekkja, einkum af fyrsta og seinasta versi, er magnaður kveðskapur, einskonar fræðsluerindi um dauðann, sem allir verða að lúta fyrr eða síðar.

    Hér flytur Örn Bárður Jónsson sálminn utanbókar og þú getur hlustað á upptökuna sem tekur sex og hálfa mínútu í hlustun með innganginum.

    Guð blessi þig!

    Hér geturðu nálgast texta sálmsins í sálmabókinni:

    https://kirkjan.is/salmabok/$Hymn/Detail/?Id=373a

    Og hér er frétt af vef RÚV um flutning minn á sálminum í Neskirkju haustið 2024:

    https://www.ruv.is/frettir/innlent/2024-10-27-besti-texti-sem-er-til-a-islensku-um-daudann-425814

    Takið skal fram að sálmurinn er ekki hluti af Passíusálmum skáldsins, en oft prentaður með því sálmasafni.

    https://kirkjan.is/salmabok/$Hymn/Detail/?Id=373ahttps://www.ruv.is/frettir/innlent/2024-10-27-besti-texti-sem-er-til-a-islensku-um-daudann-425814

  • Af mauraþúfum og marxisma

    Grein rituð og lesin upp af Erni Bárði Jónssyni.

    (more…)
  • Elín S.H. Jónsdóttir 1934-2025

    Bálför frá Garðakirkju, mánudaginn 13. janúar kl. 15

    Viltu lesa og/eða hlusta?

    Örn Bárður Jónsson

    Minningarorð

    Elín Svanhildur Hólmfríður Jónsdóttir

    1934-2025

    (more…)
  • Nýjar myndir – Opnun og Flug

    Opnun

    H 56 x B 38

    Flug

    H 38 x B 56

    Artist Quality vantnlitir á Saunders Waterford 300 gsm pappír.

    Myndirnar sjást hér í sýndarveruleika sem gerir þær stærri en þær eru í raun.

    Raunstærðir eru gefnar upp í sentimetrum og má líkja við

    opnu í íslensku dagblaði.

  • Fjórar nýjar abstaktmyndir á nýju ári

    Með hækkandi sól og stöðugum sýningum himinhvolfsins á litbrigðum lífsins urðu þessar til.

    Árið 2025 verður gott ár enda er það í réttri hönd:

    Í hendi Guðs er hver ein tíð,
    í hendi Guðs er allt vort stríð,
    hið minnsta happ, hið mesta fár,
    hið mikla djúp, hið litla tár.

    Sb 74 – 6. vers eftir hinn magnaða Sr. Matthías Jochumsson

    Von
    B25 x H35 cm
    Helgi
    B27 x H20 cm
    Regla
    B37 x H18 cm
    Lausn
    B20 x H27 cm

    Myndirnar eru allar til sölu en óinnrammaðar.

    Stærð mynda vísar til myndflatar án kartons.

    Þær eru hér birtar í sýndarramma.

    Sendið fyrirspurn á netfangið:

    ornbard@gmail.com