Hún sem trúir á landið

loanMeðan öskuský frá Eyjafjallajökli breiddist yfir meginland Evrópu 2010 og lamaði nánast allt flug í álfunni blakaði lóan vængjum sínum og barðist gegn vindum og veðrum, ösku og eimyrju til þess eins að komast til Íslands. Í ár kom lóan mun fyrr til landsins en oft áður.

Upp er runninn sumardagurinn fyrsti. Stundum snjóar þennan dag – en sumarið kemur hvernig sem viðrar. Það kemur í hjörtu okkar og trúin horfir á verðandina.

Gleðilegt sumar!

Lóan hefur trú á landinu. Hún hefur árlega flogið í hópum til landsins í gegnum móðu og mistur af því að hún hefur óbilandi trú á landinu – og framtíðinni.

Sumardagurinn fyrsti á Íslandi er ekki trúarlegur dagur sem slíkur en hann er samt eitt mesta trúartákn ársins.

Í hinni miklu trúarbók, Biblíunni, er trúin aðeins skilgreind á einum stað með örfáum orðum. Þar segir:

„Trúin er fullvissa um það sem menn vona, sannfæring um þá hluti sem eigi er auðið að sjá.“ (Heb 11.1)

Inntak sumardagsins fyrsta fellur fullkomlega að þessari trúarskilgreiningu. Trúin er innri vissa um að eitthvað tiltekið verði í fyllingu tímans.

Senn verður kosið til Alþingis Íslendinga. Mun fólk kjósa flokka sem ætla má að skapi meiri trú á landið eða þá sem eiga sér langa sögu mistaka sem leitt hafa mismunun yfir landsmenn, hrun, vonleysi og landflótta?

sjalfsoknarflokkuirnnNýleg kvikmynd ber heitið Ófeigur snýr aftur og er mynd um draug. Mun það gerast í íslenskir pólitík að tveir afturgengnir flokkar, táknmyndir óréttar og sérhagsmuna muni ráða för að kosningum loknum? Ég vona ekki!

Lóan boðar komu sumarsins með vængjaþyt og söng. Brátt mun hlýna með hækkandi sól og allt verður fegurra. En mun sumarið koma í hinu pólitíska umhverfi eða verður áfram þrasgjarnt og þreytandi fólk á Alþingi eða fólk með nýjar lausnir, friðsamari vinnubrögð, meiri virðingu og sátt í garð hvers annars?
Við ráðum því ekki hvernig sumarið verður en við getum valið vetur eða sumar í umhverfi stjórnmálanna.

Kjósum sumarið og trúum á landið eins og lóan.
Gleðilegt sumar!

– – –

Greinin birtist í Fréttablaðinu sumardaginn fyrsta 25. apríl 2013

Ein athugasemd við “Hún sem trúir á landið

Færðu inn athugasemd

Please log in using one of these methods to post your comment:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Breyta )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out /  Breyta )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Breyta )

Tengist við %s

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.