Örn Bárður Jónsson – and "BARD-art"

The beauty of Life – Social Issues – Justice – Truth // Fegurði lífsins – Þjóðfélagið – Réttlæti – Sannleikur

Greinar og hugvekjur / Articles

Minningarorð / Funeral Speeches

Myndlistin mín / My Art

Að taka afstöðu í erfiðum málum.

Í þröngri stöðu
– myndin fengi að láni af Veraldarvefnum.

Viltu hlusta? Tekur 16 mínútur.

Hvers vegna lögsækir enginn hryðjuverkasamtökin Hamas fyrir gengdarlausa glæpi og illvirki? Hvað hefur Mannréttindadómstóll Evrópu að segja um Hamas?

“Góða fólkið” hér á landi og víðar þegir yfir öllum öðrum átökum í heiminum nema á Gaza, drápum á þúsundum kristinna í Nígeríu og Súdan, kvennakúgun islam og hatri sömu trúar á kristnum sem sagðir eru réttdræpir? Hvers vegna? Er það vegna þess að gyðingahatur virkar ekki sem eldsneyti mótmæla gegn öðrum en Ísrael?

Ísralel hefur löngum verið í þröngri stöðu, í erfiðum aðstæðum, Dire Straits. Lífið er oft þannig að fólk lendir í þröngri stöðu. Gyðingar hafa löngum þurft að komast af í löndum þar sem meirihlutinn er annarrar trúar. Þeir hafa búið í dreifingunni um aldir eins og það heitir, í díasphorunni. Þeir halda fast í sínar hefðir.

Í dag eru flest nágrannaríki Ísraels, óvinveitt gyðingum. Þau lönd sem eiga landamæri að Ísrael og ríkin þar fyrir austan voru eitt sinn kristin, öll með tölu, en eru nú undir harkalegri hugmyndafræði islam.

Ég man þegar ég las trúarbragðafræði til prófs á háskólastigi og pældi í gegnum texta um öll helstu trúarbrögð heims. Námskeiðið var skemmtilegt og fróðlegt en þegar ég las um islam – sem ég vissi fremur fátt um fyrir enda fáir ef nokkrir múslimar þá til á Íslandi – og lauk þeim kafla, setti mig hljóðan. Ég sat lengi hugsi og í gegnum huga minn fór:

„Þetta er nú meiri hærigrauturinn. Slatti af trú gyðinga, smá skvettur úr kristni, en að öðru leyti fáfræði, hatur og dellumakerí.“

Islam kúgar konur. Karlar mega eiga 5 konur skv. vitrun Múhameðs – góð tíðindi fyrir feministana, ekki satt? Múhameð átti 5 en svo fékk hann aukavitrun handa sjálfum sér, þegar hann girntist fleiri. Yngsta „konan“ hans var 9 ára. Enn þanna dag í dag mega múslimar kvænast barnungum stúlkum, já, bara að þær séu orðnar 9 ára. Hvað segja lög okkar um slíkt? Hvað finnst þér?

Svo er hatrið gegndarlaust á kristnum og gyðingum og öllum sem þeir kalla infidels eða trúlausa. Þeir eru allir réttdræpir.

Tilvist Ísraels

Nýlega fannst merkileg leirflaga með áletrun frá því á 8. öld f. Kr. og tilvist hennar skelfir múslima því þeir hafa svo rækilega falsað söguna fyrir botni Miðjarðarhafs. Áletrunin sannar að ríki gyðinga var þá þegar til staðar og að Assýringar höfðu átt í viðskiptum við Ísrael. Þetta þurfa múslimar að heyra því þeir eiga það til að afneita forsögu Ísraels. Sjá nánar hér:

Mikilvægt er að árétta að islam varð ekki til fyrr en mögum öldum eftir Krist. Sagt er að Múhammeð hafi fæðst á síðari hluta 6. aldar e. Krist en hvergi í arabískum textum finnst áletrun með nafni hans frá þeim tíma. Hvergi! Líklega var kóraninn skrifaður 400-900 árum eftir meinta tilvist Múhammeðs þ.e.a.s. á árunum 1000-1500 e. Krist!

Til samanburðar voru elstu textar Nýja testamentisins ritaðir frá því 49 e. Kr. þ.e. 16 árum eftir krossfestingu Jesú Krists árið 33 og guðsjöllin rituð á árunum 60-95 e. Kr. Trú kristinna hvílir á traustum grunni heimilda og sjónarvotta sem sáu og heyrðu boðskap Jesú sjálfs og eru því í raun samtímaheimildir. Lesarinn taki vel eftir því!

Borgin Mekka kemur heldur hvergi fyrir í fornum textum frá meintum tíma Múhammeðs. Kóraninn er því ritaður mörgum öldum eftir meinta tilvist Múhammeðs. Til er fjálgleg lýsing á Mekka og hún sögð blómleg og græn og með tærum vatnslindum. Slíkt stenst engan veginn. Vatnslindirnar í Mekka nútímans eru fylltar með löngum vatnssleiðslum úr fjöllum fjarri borginni, veitukerfi sem nútíma verkfræðingar hönnuðu, en fáfróðir múslimar halda að vatnið komi fyrir kraft Allah beint úr helgum uppsprettum í miðri borginni!

Líklegt er að höfundur þessarar lýsingar á Mekka hafi verið að lýsa Islamabad sem er í tæplega 5.000 km fjarlægð í Rawalpindi í Pakistan! Milli Mekka og Rawalpindi er 5-6 tíma flug með nútímaþotu svona eins og fyrir okkur Íslendinga til New York!

Og lýsingin er rituð mörgu öldum eftir meinta tilvist Múhammeðs sem var, hafi hann verið til, bæði ólæs og óskrifandi. Höfundur/höfundar Kóransins rituðu margar staðreyndavillur í ritið, bæði sögulega, landfæðilega og menningarlega. Bestu hlutar Kóransins eru sagðir vera textar kristinnar manna sem afneituðu guðdómi Krists á 4. öld og enduðu með því að yfirgefa kirkjuna. Þeir áttu sína lofsöngva og sálma sem þykja í dag fegurstu textar Kóransins.

Landið helga

Ekkert fólk á meira tilkall til lanssins fyrir botni Miðjarðarhafs en Gyðingar. Þeim var veitt leyfi, af Sameinuðuþjóðunum, til að stofna ríki árið 1948. Þeir höfðu búið þar um aldir og árþúsund. Margir halda að ríkið hafi bara verið stofnað af gyðingum úr dreifingunni, þ.e. þeim sem lifðu af Helförina og öðrum sem voru tvístraðir um allar jarðir. Að vísu fluttu margir til Ísraels úr dreitingunni en kjarninn kom úr landinu sjálfu því þar höfðu gyðingar búið um aldir.

Gyðingunum sem búið höfðu í landinu um aldir og þeim sem fluttu þangað eftir Síðar heimsstyrjöldina tókst að stofna Ísraelsríki og voru þá og eru enn í þröngri stöðu vegna óvildar og öfundar nágrannaríkjanna sem séð haf gyðingana þróa alvöru lýðræðisríki sem blómstrar. Allir vissu að þeir yrðu að komast af og þrífast í þröngri stöðu. Á þá var ráðist af mörgum ríkjum Araba, fyrstu dagana eftir stofnun ríkisins. Og allar götur síðan hafa þeir þurft að efla varnir sínar og tryggja tilvist landsmanna.

Sérhver manneskja má verja sig og sitt fólk. Líka þú. Slíkt telst til mannréttinda. Nú er Íransmálið í hámæli en það ríki hefur undirbúið sig og gert miklar áætlanir um að þurrka Ísrael út, tortíma því algerlega og leggja stein í götu annarra vestrænna ríkja sem islam þolir ekki. Engin lýðræðisríki geta uppfyllt þær kröfur og þá dellu sem einkennir kenningar islam.

Hvers vegna hatar fólk Ísrael og fer stöðugt gegn þeim? Hvað ræður för? Ég leyfi mér að fullyrða að margt fólk sem hatar Ísrael viti lítið um söguna og eðli málsins. Hvað veit fólk um islam sem safnast saman á Austurvelli með Hamas-sjöl á herðum sér og undir fána hryðjuverkasamtaka sem eru sturluð af hatri og lifa í brálaðri hugmyndafræði og illvilja gangvart öllum heiminum og Íslandi jafnframt? Hamas notaði sitt eigið fólk sem skjöld og byssufóður. Þeim er alveg sama um þetta fólk. Hamas byggir sína hugmyndafræði á staðleysum og villutrú, öfgum sem stýrast af illvilja og vígahug með rætur í islam og að sumu leyti með vondri, vestrænni pólitík, sem íblöndunarefni. Og Íslendingar styðja þessi islömsku öfgasamtök og hugmyndafræði þeirra! Wókið er veikt og vitlaust þegar kemur að því að skilja heiminn og ástand hans. Wókið er illa upplýst.

Hvað á ég að styðja sem kristinn maður? Á ég bara að horfa á þetta og bíða átekta? Á ég að standa með islam? Eða á ég að standa með eina lýðræðisríki heimshlutans sem skarar framúr á öllum sviðum menningar, hugvits og mannréttinda?

Mín staða er ekki þröng, því ég hef svigrúm til að skoða málið úr fjarlægð, skoða það sögulega og menningarlega og jafnframt með hliðsjón af lýðræði og réttarfari.

Ég styð Ísrael, ég styð tilvist ríkisins, en skrifa þó ekki undir hvað sem Ísraelar gera sér til varnar. Í hernaði og átökum geta landamerkin milli hins siðlega og hins ósiðlega auðveldlega riðlast. Það á við um allt stjórnarfar, allar ríkisstjórnir, öll lönd, allar þjóðir og alla einstaklinga. Við sem Íslendingar tókum þátt í Síðari heimsstyrjöldinni. Við studdum árásir og manndráp til að knésetja nazismann. Við gáfum hersveitum bandamanna hinna vestrænu ríkja leyfi til að vígbúast í okkar eigin landi, hafa hér bækistöðvar, herfylki og fleira. Við erum öll breyskar manneskjur og skulum því dæma varlega og ef við gerum það skulum við leitast við að byggja dóm okkar á rökum réttlætis og þeim gildum sem við teljum best. Stundum þarf gott fólk að velja vonda kosti í þröngri stöðu.

Fólk kafar í Gamla testamentið og finnur þar einhvern ljótleika og heimfærir uppá nútímann. Fólk reynir stundum að rökræða við mig um heimsmálin með tilvitnunum í GT. En ég gleypi GT ekki með húð og hári. Ég vel úr því það sem styður réttlætið, sannleikann og kærleikann, það sem styður kærleiksboðskap Krists.

Það að gleypa GT án greiningar, er álíka gáfulegt og að gera okkur sem nú byggjum Ísland, ábyrg fyrir ákvæðum Íslendingasagna um hefndir og mannvíg þess tíma. Við lesum sagnaarfinn okkar til fróðleiks og skemmtunar og þar er margt fagurt en líka ótalmargt ljótt og ógeðslegt. Gamla testamentið, sem að hluta til tjáir sögu gyðinga, er líka fagurt, en þar er líka að finna ljót dæmi úr tilvistarsögu fólks á þeim tímum þegar lýðræði var ekkert og nútíma lýðræðisstofnanir ekki komnar á teikniborðið, ekki hægt að hringja í 112 eða hjálparsveitina í Mýrdalnum. En í Gamla testamentinu er samt að finna lög um mannleg samskipti sem enn sér stað í lögum allra vestrænna lýðræðisríkja. Öll mannréttindi okkar Vesturlandabúa hvíla nefnilega á tveimur hugtökum, réttlæti og kærleika. Hið fyrra höfum við úr hugmyndaheimi Gamla testamentisins, hið síðara frá túlkun Jesú Krists á kærleikanum. Þessi tvö hugtök mynda kross og saman eru þau grundvöllur allra mannréttinda, jafnréttis, manngildis og heilbrigðra samskipta manna í millum. Heimurinn á enga aðra hugsun sem stendur þessari á sporði.

Að taka afstöðu

Góða fólkið hefur ekki safnast á Austuvelli undanfarnar vikur til að sýna kristna fólkinu samstöðu sem myrt er í hundruðþúsundatali af islam í Súdan og Nígeríu. Hvað veldur? Er ástæðan sú að gyðingar eiga ekki hlut í þessum manndrápum og því ekki hægt að nota gyðingahatrið í mótmælunum? Spyr sá er ekki veit.

Og hvað með innrás Bandaríkjanna og Ísraels í Íran? Hér eru rökin sem dálkahöfundurinn Melanie Phillips ritar. Í lauslegri þýðingu segir hún að margir Bandaríkjamenn spyrji sig hvers vegna þeir eigi að vera að skipta sér af þessu múslimaríki. Á sama tíma hafa þúsundir Bandaríkjamanna verið drepnir af hryðjuverkamönnum eða vígasveitum sem Íran styður og hefur stutt í næstum hálfa öld. Stjórnin í Teheran hefur komið sér upp kjarnorkuvopnum og skotflaugum sem gætu náð til Evrópu og líka Bandaríkjanna; og óbilandi markmið stjórnvalda í Íran er að eyðileggja skuli Bandaríkin eða „Stóra Satan“ sem og Ísrael sem þeir kalla „Litla Satan“.

Lýðræðisríkiði Ísreal á undir högg að sækja vegna hatursfullra nágranna sem hafa engin rök gegn þeim nema trúarlegar bábyljur, hégiljur, hindurvitni, bull. Islam sem hugmyndakerfi er heimsplága en múslimar eru margir hverjir yndælis fólk meðan svo fremi þeir láti ekki heilaþvo sig með brjálæðinu í islam.

Viljum við styðja slíkt sem upplýst fólk?

Hvað mundir þú gera í þröngri stöðu til að verja fólkið þitt undir árasum hruyðjuverkamanna með skammhlaup í heila og hjartað svart sem djöfladíki í stjórnlausu brjálæði og tryllingi sem við þekkjum bara í svæsnustu ævintýrum og glæpasögum?

Hvað mundir þú gera?

Mundir þú slást í hópinn með þeim og skrílnum víða um heim?

Hvað segir þú?

Hvað segir RÚV?

Þetta er ekkert gamanmál. Þetta er dauðans alvara!

Hver er afstaða þín í baráttunni gegn þessari brengluðu hugmyndafræði, sem dafnar í Mið-Austurlöndum og líka á Austurvelli?

Auðvitað finnur allt óbrjálað fólk til með börnum og fjölskyldum sem særast eða falla í hernaðarátökum. Að sjálfsögðu!

En brjótum málin til mergjar og tökum ekki afstöðu í tilfinningarússi og taugaveiklun, heldur skoðum málið af yfirvegun og spyrjum hvað valdi og hvaða hugmyndafræði standi að baki aðilum beggja vegna víglínunnar.

Sjálfur er ég ekki í neinum vafa í þeim efnum.

Posted on

Greinar og hugvekjur / Articles
Minningarorð / Funeral Sermons
Myndlist / Art
Prédikanir / Sermons