
Mögnuð upplifun var að fá að njóta dagskrár í Norðurljósasal Hörpu, 11. mars 2026, þar sem flutt var leikhústónlist eftir tónskáldið Hjálmar H. Ragnarsson.
Verkin hans bera vott um stórar víddir, hæð og dýpt. Ég velti því fyrir mér hvernig tónskáldið hafi náð því að skrifa niður öll hin flóknu tilbrigði verkanna og fyrirmæli handa flytjendum? Eitt er að skapa verk í huga sér, annað er að koma því á blað og tryggja því líf og framtíð í höndum listamanna.
Og til að sjá allan textann skaltu smella á fyrirsögnina efst!
Flytjendur fóru á kostum, enda valinn maður í hverju rúmi. Nöfn þeirra eru í auglýsingunni neðst.
Yfirskrift viðburðarins er tekin úr fleygum orðum stórskáldsins Shakespear. Þau tjá það í örfáum orðum að lífið sé leiksvið þar sem allir sem lifa gegni hlutverkum sínum, meðvitað eða ómeðvitað.
Skakespear fæddist 1564 og lést árið 1616. Til að setja hann í samhengi tíma og rúms, og tengja við sögu okkar, kemur mér í hug stórskáldið, séra Hallgrímur Pétursson, sem var 2ja ára þegar hinn fyrrnefndi lést. Þeir voru því á svipuðu róli í aldanna rás. Listamenn orðins, báðir tveir.
Þeir glímdu við þá list að túlka lífið og kenna fólki að fóta sig á sviði lífsins í glímunni við tilvist sína, í meðbyr og mótbyr, ást og hatri, friði og ófriði, lífi og dauða.
Sú tónlist Hjálmars sem flutt var í gær, er í senn innblástur fyrir samtíðina og komandi kynslóðir. Hún veitir okkur kraft í glímunni við lífið. Þetta kvöld fengum við aðeins að heyra brot af verkum hans. Fjölbreytnin er mikil og greinilegt að skáldið á ótal strengi í hörpu sinni.
Hjartans þakkir, sveitungi sæll.
Hjálmar Helgi hefur með list sinni glatt samtíð sína og tendrað í hjörtum hennar trú á lífið og fegurðina.
Og að lokum er rétt að minna á að „lífið er stutt en listin löng“ *)
*) Orðin vitna í tvær fyrstu línur „Orðtaka“ hins forna, gríska læknis, Hippókratesar: :
„Ὁ βίος βραχύς, ἡ δὲ τέχνη μακρή“
[Ho bíos brakhús, hē dè tékhnē makrḗ]
Orðtakakið er þekkt á latínu:
ars longa, vita brevis
þar er orðaröðinni breytt frá upphaflegum texta sem tjáir sömu hugsun að ætla má.
RÚSSÍBANARNIR léku þar á als oddi ásamt fleirum. Hér er tengill:
You must be logged in to post a comment.