Örn Bárður Jónsson – and "BARD-art"

The beauty of Life – Social Issues – Justice – Truth // Fegurði lífsins – Þjóðfélagið – Réttlæti – Sannleikur

Greinar og hugvekjur / Articles

Minningarorð / Funeral Speeches

Myndlistin mín / My Art

Svo virðist sem ekkert fái ögrað frásögninni um misskunnarlausa Ísraela og hrjáða Palestínumenn.

Grein frá 26. febrúar 2026 / Jewish News Syndicate eftir Melanie Phillips, blaðamann og rithöfund.

Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands, veifar á sérstökum þingfundi sem haldinn var honum til heiðurs í Knesset, 25. febrúar 2026.

Mynd: Yonatan Sindel/Flash90.

Lygamúrinn, sem reistur var á Vesturlöndum til að rægja, gera lítið úr og eyðileggja Ísrael, er nú að molna niður stein fyrir stein.

Stuðningsmenn Ísraels, telja lygarnar einstakan og illviljaðan málflutning. Þeim er hafnað af andstæðingum Ísraels með ásökunum um að um sé að ræða hlutdrægan Zíonista-áróður.

Talsmenn þessara árása gegn Ísrael virðast ónæmir fyrir staðreyndum, sannleika og sönnunargögnum. Þeir marka sér einnig bás innan siðferðilegra yfirburða, út frá þeirri fáránlegu forsendu, að það sé á sviði samviskufrelsis að dæma eina gyðingaríki veraldar til útrýmingar.

Nú er þessi meingallaða frásögn hins vegar að molna niður innan frá.

Í stríðinu eftir árásir Hamas á Ísrael 7. október 2023, varð Nasser-sjúkrahúsið á Gaza fyrir nokkrum loftárásum af hálfu [IDF] ísraelska varnarliðsins. Ísraelsher hafði bent á fjölmarga staði þar sem hryðjuverkamenn földu sig annað hvort á sjúkrahúsinu eða í nágrenninu.

Þrátt fyrir að Ísrael hafi staðhæft að það hafi aldrei miðað á heilbrigðisstofnanir heldur aðeins á mannvirki hryðjuverkamanna, sem voru innan spítala og í kringum þá, var Ísrael ítrekað sakað um að stofna heilbrigðisstarfsfólki og sjúklingum í hættu af ásettu ráði.

Í febrúar 2024 handtóku ísraelskar sérsveitir hundruð hryðjuverkamanna á Nasser, þar á meðal nokkra, sem sagðir voru dulbúnir sem læknar. Ísraelsher greindi frá því að hafa fundið lyfjapakkningar merktar með nöfnum ísraelskra gísla, sem rænt var 7. október; ísraelska bíla sem stolið var í þeirri innrás; og mikið magn af vopnum, þar á meðal riffla, sprengjur og handsprengjur, innan sjúkrahússvæðisins.

Félagssamtökin Læknar án landamæra – þekkt undir skammstöfuninni MSF vegna franska nafnsins Médecins Sans Frontières (hér eftir LÁL eða bara læknasamtökin) – sem gegndu áberandi hlutverki í læknisþjónustu Nasser-spítalans og sendu ítrekað yfirlýsingar í vestræna fjölmiðla um að Ísraelsher væri að valda blóðbaði á heilbrigðisstöðvum.

Fyrr í þessum mánuði [feb 2026] tilkynntu LÁL hljóðlega, að í janúar hefði þau stöðvað allar ónauðsynlegar aðgerðir á Nasser eftir að starfsfólk greindi frá því að vopnaðir menn, sumir þeirra grímuklæddir, hefðu sést á mismunandi stöðum á sjúkrahúsinu. Þar kom fram að læknateymi þeirra hefðu í nokkra mánuði orðið vitni að grunuðum vopnaflutningum, sem og hótunum og jafnvel handahófskenndum handtökum sjúklinga af hálfu vopnaðra hryðjuverkamanna.

Þetta var í fyrsta skipti sem LÁL viðurkenndu hryðjuverkastarfsemi á sjúkrahúsum á Gaza, sem staðfestir um leið fullyrðingar Ísraels um að þau væru öll miðstöðvar hryðjuverka. Misnotkun heilbrigðisstofnana í hernaðarlegum tilgangi, gerir þær að lögmætum hernaðarlegum skotmörkum, sem er í sjálfu sér stríðsglæpur.

LÁL hafa nú lýst yfir áfalli yfir notkun hryðjuverkamanna á Nasser-sjúkrahúsinu og lagt áherslu á „ósamrýmanleika slíkra brota við læknisfræðilegt hlutverk LÁL.“

En samt virðast samtökin eiga sér sögu um að hafa látið slík ósamrýmanleg brot viðgangast.

Þegar Fadi al-Wadiya, meðlimur heilbrigðisteymis þeirra, var drepinn í loftárás Ísraelshers árið 2024, lýstu LÁL sig ævareið yfir að hann væri „bara sjúkraþjálfari“. Þegar Ísrael lagði fram sannanir fyrir hryðjuverkastarfsemi al-Wadiya, tvöfölduðu LÁL forherðingu sína.

Samt sem áður hafa ítrekaðar fullyrðingar um að Ísrael hafi drepið saklausa blaðamenn og heilbrigðisstarfsmenn ýtt undir morðæði gegn Gyðingum um allan heim.

Eins og Ísraelsher greindi frá hafði hann þróað og fullkomnað eldflaugakerfi PIJ í 15 ár og gegnt lykilhlutverki í því að efla þekkingu samtakanna á rafeindatækni og efnafræði – hann var því varla „bara sjúkraþjálfari“. [PIJ stendur fyrir Palestinian Islamic Jihad sem merkir yfirtöku islam hvar sem er í heiminum]

Aðrir á PIJ-listanum reyndust leika tveim skjöldum. Alaa Hassan Abdullah Asbihi var aðstoðaryfirmaður framleiðslu hernaðareiningar og starfaði jafnframt sem hjúkrunarfræðingur á evrópska sjúkrahúsinu á Gaza.

Meðal „blaðamanna“ á listanum voru Mahdi Hassan Mohammed al-Mamlouk, aðstoðaryfirmaður miðlægrar samskiptaeiningar PIJ, og Arafat Abdullah Mahmoud Abu Zayed, aðstoðaryfirmaður miðlægrar leyniþjónustueiningar PIJ, sem einnig skrifaði stjórnmálagreiningar fyrir SHMS fréttastofuna og Palestine Today.

En ítrekaðar fullyrðingar, um að Ísrael hafi myrt saklausa blaðamenn og heilbrigðisstarfsmenn, hafa stuðlað að áreitni morðóðra manna gegn Gyðingum um allan heim.

Önnur mannúðarsamtök hafa einnig átt stóran þátt í að kynda undir þessum æsingi. Ein af þeim er Oxfam, en nú hafa samtökin verið flautuð útaf vegna ásakana – og það innanfrá.

Fyrrverandi forstjóri Oxfam í Bretlandi, Dr. Halima Begum, hefur sakað góðgerðarstofnunina um „eitrað gyðingahatur“ vegna „óhóflegrar“ áherslu hennar á Gaza. Begum, sem var kosin út úr Oxfam í desember vegna þess sem hún kallaðin „galdraofsóknir“, sagði í sjónvarpi fyrr í þessum mánuði að þrýstingur væri innan stofnunarinnar um að lýsa stríði Ísraels á Gaza sem „þjóðarmorði“.

Þessi „þjóðarmorðs“-lygi hefur nú verið afhjúpuð sem öfugsnúningur af hálfu sjálfra Hamassamtakanna. Í nýjustu endurskoðun þeirra á fjölda dauðsfalla á Gaza í stríðinu segir að 68.800 hafi látist. Eins og áður, er hvorki getið um fjölda þeirra sem fórust sem bardagamenn hryðjuverkasamtaka, né fjölda þeirra sem létust í misheppnuðum eldflaugaárásum frá Gaza eða aftökum Hamas (sem voru fjölmargar). Fjöldi þeirra sem dóu af náttúrulegum orsökum var hvergi skilgreindur.

Flestir hinna látnu voru karlar á aldrinum 18 til 59 ára. Samkvæmt Gabriel Epstein, rannsakanda, sem greindi tölurnar fyrir Haaretz, sýnir tölfræði Hamas mun hærri hlutdeild fullorðinna karla og eldri unglingsdrengja miðað við hlutdeild þeirra í íbúum og mun lægri hlutdeild kvenna og barna.

Þetta hrekur algjörlega þá hugmynd að þeir sem Ísrael myrti hafi af „yfirgnæfandi meirihluta“ verið konur og börn. Og auðvitað afhjúpar það fullyrðinguna um þjóðarmorð sem algjörlega fáránlega.

Af hálfu þeirra, sem rægt hafa Ísrael með þessum lygum síðustu 28 mánuði, er engin aðgangur veittur að hræðilegum rangindum sem þeir hafa sjálfir framið, jafnvel þótt sögunum rigni yfir þá allt um kring. Þeir eru langt frá því að viðurkenna að óþekktur fjöldi starfsmanna þeirra hafi tengsl við hryðjuverk. LÁL neita að deila lista yfir palestínskt og alþjóðlegt starfsfólk sitt með ísraelskum yfirvöldum sem er skyldugur hluti af skráningarferlinu til að starfa á Gaza og „Vesturbakkanum“.

Þar að auki var játningin um hryðjuverkamenn á Nasser-sjúkrahúsinu vandlega falin á síðu með sjaldgæfum spurningum á vefsíðu LÁL, þar sem hinn skarpskyggni greinandi Salo Aizenberg sá hana.

Það virðist ekkert vera til um þessa skýrslu LÁL, afhjúpanir um „tvíþætta sjálfsmynd“ PIJ [öfgasamtök um jihad] eða endurskoðaða tölfræðiþvælu Hamas á vefsíðum þeirra sem ganga lengst í að demónisera Ísrael, en það eru BBC og The New York Times.

Hvað varðar Oxfam, þá greinir vefsíða BBC frá máli sem Begum hefur höfðað fyrir dómstóli (industrial tribune) gegn góðgerðasamtökunum, með því að lýsa ítarlega ásökunum um einelti og önnur forystuvandamál, en gleymir þó að nefna þá eldfimu ásökun um að Oxfam stjórnist af „eitruðu gyðingahatri“.

Þetta er heldur ekki í fyrsta skipti sem sjálfskapaðir blettir hafa komið á geislabaug LÁL. Í desember 2023 birti Alain Destexhe, fyrrverandi forstjóri Lækna án landamæra, 47 blaðsíðna skýrslu byggða á tístum og færslum frá starfsfólki LÁL á X-inu og Facebook.

Þetta leiddi í ljós að verulegur hluti starfsmanna LÁL á Gaza studdi Hamas, þar á meðal árásina 7. október. Þeir fordæmdu aldrei glæpi Hamas á X-vefnum þann dag, gíslatökuna eða notkun sjúkrahúsa sem herbúðir eða mannlegan skjöld.

Þótt LÁL hafi hlíft Hamas, skv. skýrslunni, þá sökuðu samtökin Ísrael um „alla glæpina“ með hugtökum eins og „fjöldamorð“, „tortímingu“ og „samþykkta og skipulagða fórn“.

Í skýrslunni er spurt: „Er mögulegt að LÁL og starfsmenn þess hafi ekkert vitað og ekkert séð af brotum Hamas á lögum um mannúð á sjúkrahúsinu?“

Þetta er góð spurning sem hægt væri að endurtaka um aðra. Er mögulegt að vestrænir fjölmiðlar og restin af hinu meinta, frjálslynda valdakerfi veraldar sem djöflast og rægir Ísrael, viti ekkert og sjái ekkert af afskræmingu Hamas á sannleikanum og sönnunargögnum?

Svarið – eins ótrúlegt og hugsast getur – er, já – og nei.

Þeir sem sjá loka augunum. Aðrir leyfa sér alls ekki að horfast í augu við staðreyndir.

Ekkert, þar með taldar uppljóstranir eða endurskoðaðar upplýsingar innan frá, ná að ögra fjálglegum frásögnum Vesturlandabúa, um hjartalausa ísraelska nýlenduherra og vesalings Palestínufólkið á flótta. Þess vegna er allt fjölmiðla-, mannúðar- og mannréttindakerfið, sem hefur eitrað huga Vesturlanda með þessum útrýmingaráróðri, sjálft samsekt í augljósri áætlun um þjóðarmorð.

Posted on

Greinar og hugvekjur / Articles
Minningarorð / Funeral Sermons
Myndlist / Art
Prédikanir / Sermons