Örn Bárður Jónsson – and "BARD-art"

The beauty of Life – Social Issues – Justice – Truth // Fegurði lífsins – Þjóðfélagið – Réttlæti – Sannleikur

Greinar og hugvekjur / Articles

Minningarorð / Funeral Speeches

Myndlistin mín / My Art

Um fólin Goðfreð og Gíslínu

Hann dauður, hún lifandi á bak við lás og slá
Svikabönd

Fjölmiðlar víða um heim fjalla um þau illfyglin,

Jeoffrey Epstein, sem er dauður og

Ghislaine Maxwell, sem situr í varðhaldi,

og hafa margt á samvisku sinni.

Nöfnin þeirra eru til í íslenskri útgáfu sem

Goðfreð og Gíslína

Hér koma tvær vísur um djöfla tvo:

Goðfreð og Gíslína voru þar,

góð og væn hvort öðru,

tældu og táldrógu stúlkurnar

til fylgdar Edens-nöðru.*

Brölluðu Goðfreð og Gíslína sátt

göbbuðu ótal fola.

Dómstólar dæsa og vita nú fátt,

djöfuls um gerðarþola.

Skýringar:

*Orðin „Edens-nöðru“ vísa til syndarinnar, til táldráttar djöfulsins.

Orðið „gerðarþola“ – vísar til þeirra skötuhjúa og ennfremur til karlanna sem þáðu boðin þar sem þeir gátu misnotað saklausar stúlkur.

Þau og þeir eru öll saksótt eða liggja undir ámælum og grun um vafasamt framferði.

Orðabók: lögfræði – gerðarþoli er sá eða sú sem stefnt er í einkamáli í héraði eða er til varnar í einkamáli fyrir Hæstarétti ef málinu er áfrýjað.

Posted on

Greinar og hugvekjur / Articles
Minningarorð / Funeral Sermons
Myndlist / Art
Prédikanir / Sermons