Örn Bárður Jónsson – and "BARD-art"

The beauty of Life – Social Issues – Justice – Truth // Fegurði lífsins – Þjóðfélagið – Réttlæti – Sannleikur

Greinar og hugvekjur / Articles

Minningarorð / Funeral Speeches

Myndlistin mín / My Art

Erfitt reynist mér að þegja undir rándýrum áróðri kvótaþega í fjölmiðlum þessa dagana með nytsama sakleysingja, sem aðalleikara, auðsveipa undirmenn.

Að nota fjármuni á þann hátt sem þið gerið um þessar mundir, er í raun að beita „auðbeldi“. Ég sendi þetta nýyrði hér með til Árnastofnunar.

Við, almenningur þessa lands, og ekki síður þau sem þið hafið tekið lífsviðurværið frá í mörgum bæjum og þorpum landsins, búum ekki yfir auði til að svara ykkur. Við höfum ekkert nema orð og atkvæði okkar, auk vonar og trúar, en við vitum um leið að orð eru máttug og að trúin flytur fjöll.

Guggan gula

Leik ykkar má líkja við að senda skriðdrekadeild til að skjóta á hóp auðnutittlinga, en orðið auðna merkir m.a. það þegar jörðin hristir af sér snjó og vetur. Það auðnar í náttúrunni um þessar mundir.

Við setjum von okkar á sumar og réttlæti. Við biðjum um réttlæti í þessu landi.

Auður er valtastur vina, segir í gömlu máltæki. Eins og allt vald spillir, þá gjörspillir alvald. Auður spillir líka og mikill auður fíflar frekt.

Komið er að skuldadögum

Að greiða fyrir greiðann. Þið eruð í stórri þakkarskuld við þjóð ykkar og fenguð grunninn að auði ykkar á silfurfati og á vafasömum forsendum. Illa upplýstir þingmenn veittu ykkur auðveldið, sem þið hafið í höndum og eflt með braski í skjóli spilltra stjórnmálamanna, sem þið hafið keypt í sumum tilfellum, til þess að berjast fyrir ykkar málstað og halda á lofti ósanngjörnum kröfum um eignarhald á því sem þjóðin á.

Kerfið sem stjórnvöld hafa leyft að þróast í sjávarútvegi er gjörspillt og fársjúkt og ennfremur fjársjúkt. Ég veit hvað SFS merkir en freistandi er að leysa nafnið upp í SamtökFjárSjúkra. Auður sýkir, auður spillir, auður getur gengisfellt bæði siðvit og sóma.

„Ekki þurfa heilbrigðir læknis við heldur þeir sem sjúkir eru. Ég er ekki kominn til að kalla réttláta heldur syndara“ sagði Kristur. Hann sagði líka söguna af eyri ekkjunnar, en hún gaf af skorti sínum og gaf því mest. Margt gott býr í kristnum siðagrunni þjóðar okkar.

Eitt af stórbrotnum málverkum af sjómönnum eftir Gunnlaug Scheving

Og nú bið ég ykkur að hætta árásum ykkar á almenning og spara þessar auglýsingar og láta peningana heldur renna í góðgerðarmál. Af nógu er að taka í þeim efnum.

Hristið af ykkur slyðruorðið og forðist auðbeldið sem þið nú stundið.

Viðsnúningur ykkar og væntanleg vöknun

gæti um leið verið sumargjöf

handa þeim sem leggja meir upp úr:

fegurð lífs en fjármunum,

samhjálp en sérhyggju,

ást en auði,

sannri vináttu en keyptri.

Vonandi auðnar brátt á landi og ennfremur í heimi auðs og valda.

Gleðilegt sumar!

Posted on

Greinar og hugvekjur / Articles
Minningarorð / Funeral Sermons
Myndlist / Art
Prédikanir / Sermons