
Þakka fagra útför séra Vigfúsar Þórs Árnasonar, kollega míns, sem ég fylgdist með á Netinu héðan á Hofi í Vopnafirði þar sem ég þjóna um þessar mundir.
Presti og biskupi mæltist vel, athöfnin öll fögur og tónlist til fyrirmyndar.
Fjöldi fólks fylgdi honum og kvaddi í fögrum helgidómi sem hann var ætíð afar stoltur af.
Góður drengur séra Vigfús Þór, einstaklega jákvæður og fús til verka, leiðtogi sem fékk fólk til liðs við góð málefni á lífsveginum.
Samúðar- og blessunaróskir til eiginkonu hans, Elínar Pálsdóttur, barna, tengdabarna, afkomenda, ættingja, vina og samstarfsfólks.
Blessuð sé minning séra Vigfúsar Þórs Árnasonar.
You must be logged in to post a comment.