{"id":981,"date":"2013-12-20T19:15:08","date_gmt":"2013-12-20T19:15:08","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/?p=981"},"modified":"2013-12-20T19:15:08","modified_gmt":"2013-12-20T19:15:08","slug":"maria-finnbogadottir-1914-2013","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=981","title":{"rendered":"Mar\u00eda Finnbogad\u00f3ttir 1914-2013"},"content":{"rendered":"<p><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2013\/12\/mariafinnbogadottir.png\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2013\/12\/mariafinnbogadottir.png\" class=\"alignleft size-full wp-image-982\" alt=\"mariafinnbogadottir\" width=\"213\" height=\"265\"><\/a>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson<\/p>\n<p>Minningaror\u00f0<\/p>\n<p><b>Mar\u00eda Finnbogad\u00f3ttir<\/b><\/p>\n<p>1914-2013<\/p>\n<p>h\u00fasm\u00f3\u00f0ir og fv. kaupkona<\/p>\n<p>\u00datf\u00f6r fr\u00e1 Fossvogskapellu<\/p>\n<p>f\u00f6studaginn 20. desember 2013 kl. 15<\/p>\n<p>Jar\u00f0sett \u00ed Fossvogskirkjugar\u00f0i.<\/p>\n<p>R\u00e6\u00f0una getur\u00f0u <strong>hlusta\u00f0<\/strong> \u00e1 og <strong>lesi\u00f0<\/strong> h\u00e9r fyrir ne\u00f0an.<\/p>\n<p><!--more--><\/p>\n<p><a href=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2013\/12\/maria-finnbogadottir.mp3\">https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2013\/12\/maria-finnbogadottir.mp3<\/a><\/p>\n<p><strong>Fri\u00f0ur<\/strong> Gu\u00f0s s\u00e9 me\u00f0 ykkur.<\/p>\n<p>L\u00edfi\u00f0 er vegfer\u00f0 og \u201etilvera okkar er undarlegt fer\u00f0alag\u201c, segir \u00ed \u00feekktu kv\u00e6\u00f0i. \u00c1 fer\u00f0al\u00f6gum eru \u00e1ningarsta\u00f0ir og bi\u00f0st\u00f6\u00f0var \u00fear sem f\u00f3lk safnast saman. \u00dea\u00f0 er s\u00e9rst\u00f6k upplifum a\u00f0 vera \u00e1 bi\u00f0st\u00f6\u00f0 \u00ed \u00fatl\u00f6ndum \u00fear sem f\u00f3lk bi\u00f0ur eftir vagni e\u00f0a lest. F\u00f3lk er hvert me\u00f0 s\u00ednu m\u00f3ti. Sumir fer\u00f0alangar lesa \u00ed b\u00f3k, a\u00f0rir g\u00f3na \u00ed gemsann, einn gengur um og sko\u00f0ar pallinn, annar situr og vir\u00f0ist sofa, einn stendur vi\u00f0 gluggann og horfir \u00fat. Hj\u00e1 sumum m\u00e1 greina gle\u00f0i sem kemur fram \u00ed augnkr\u00f3kum og gluggum s\u00e1lar, a\u00f0rir eru \u00feungb\u00fanir og \u00e1hyggjufullir. Og svo er \u00fea\u00f0 f\u00f3lki\u00f0 sem stundum er me\u00f0 fer\u00f0al\u00f6ngum, f\u00f3lki\u00f0 sem er a\u00f0 kve\u00f0ja. Vi\u00f0 \u00feurfum oft a\u00f0 b\u00ed\u00f0a og n\u00fa erum vi\u00f0 \u00e1 krossg\u00f6tum og erum a\u00f0 kve\u00f0ja. Mar\u00eda er \u00e1 f\u00f6rum til n\u00fdrrar tilveru en vi\u00f0 f\u00f6rum til baka \u00fat \u00ed dimmuna sem j\u00f3lalj\u00f3sin rembast vi\u00f0 a\u00f0 l\u00fdsa upp. En svo kemur a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 vi\u00f0 ver\u00f0um fer\u00f0b\u00fain og f\u00f3lk kemur saman til a\u00f0 kve\u00f0ja \u00feig og mig. L\u00edfi\u00f0 er krossg\u00f6tur, l\u00edfi\u00f0 er bi\u00f0st\u00f6\u00f0.<\/p>\n<p>Mar\u00eda f\u00e6ddist&nbsp; \u00ed Reykjav\u00edk 24. apr\u00edl 1914. H\u00fan l\u00e9st \u00e1 Hj\u00fakrunarheimilinu Seljahl\u00ed\u00f0 14. desember 2013.<\/p>\n<p>Foreldrar hennar voru \u00deur\u00ed\u00f0ur Gu\u00f0j\u00f3nsd\u00f3ttir f. 28. j\u00fan\u00ed 1888 d. 15. mars 1988 og Finnbogi Sigur\u00f0sson f. 21. \u00e1g\u00fast 1873 d. 4. mars 1936.<\/p>\n<p>Mar\u00eda var elst 5 systkina og \u00feau eru: Sigur\u00f0ur Kristj\u00e1n Finnbogason f. 1920 d. 1946, Gu\u00f0r\u00fan Finnbogad\u00f3ttir f. 1924,&nbsp; Gu\u00f0j\u00f3n Finnbogason f. 1927,&nbsp; P\u00e1lmi Finnbogason f. 1931.<\/p>\n<p>\u00c1ri\u00f0 1914 var s\u00e9rstakt og meitla\u00f0 \u00ed s\u00f6gu Evr\u00f3pu sem myrkar r\u00fanir v\u00e6ru \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 \u00e1r 28. j\u00fal\u00ed h\u00f3fst heimstyrj\u00f6ldin fyrri. Mar\u00eda vissi n\u00fa l\u00edti\u00f0 um \u00fea\u00f0 enda r\u00e9tt or\u00f0in 3ja m\u00e1na\u00f0a. En \u00fati \u00ed hinum st\u00f3ra heimi b\u00e1rust menn \u00e1 banaspj\u00f3t og h\u00e9ldu \u00fat vi\u00f0 \u00fe\u00e1 vondu i\u00f0ju \u00ed 4 \u00e1r.<\/p>\n<p>\u00c1ri\u00f0 1918 h\u00f3fst ekki me\u00f0 neinum gle\u00f0it\u00ed\u00f0indum \u00e1 \u00cdslandi \u00fev\u00ed frostaveturinn mikli herja\u00f0i \u00e1 f\u00f3lk fyrstu m\u00e1nu\u00f0ina me\u00f0 miklum frosth\u00f6rkum. \u00cd j\u00fal\u00ed barst svo sp\u00e6nska veikin til landsins sem felldi f\u00f3lk unnv\u00f6rpum. Af 15 \u00fe\u00fasund \u00edb\u00faum Reykjav\u00edkur veiktust 10 \u00fe\u00fasund e\u00f0a 2\/3. Einna merkast m\u00e1 telja, a\u00f0 h\u00e9r t\u00f3kst a\u00f0 einangra st\u00f3ran hluta landsins (40% \u00edb\u00faa), en \u00fea\u00f0 er einsd\u00e6mi \u00feegar heil \u00fej\u00f3\u00f0 \u00e1 \u00ed hlut. \u00c1ri\u00f0 1918 var \u00cdsland b\u00e6ndasamf\u00e9lag en n\u00e1l\u00e6gt 60% af 91.633 \u00edb\u00faum landsins bjuggu \u00ed dreifb\u00fdli og hin 40% \u00ed \u00fe\u00e9ttb\u00fdliskj\u00f6rnum. Fyrsta bylgja infl\u00faensunnar barst \u00ed j\u00fal\u00ed 1918, en einkenni veikinnar voru yfirleitt v\u00e6g. \u00d6nnur bylgja infl\u00faensu barst til landsins dagana 19. og 20. okt\u00f3ber me\u00f0 skipverjum \u00e1 Botn\u00edu og Willemoes. Tali\u00f0 er a\u00f0 484 \u00cdslendingar hafi l\u00e1tist af veikinni.<\/p>\n<p>En 1918 er l\u00edka fagna\u00f0ar\u00e1r \u00ed s\u00f6gu \u00cdslendinga \u00fev\u00ed 1. desember \u00fea\u00f0 \u00e1r \u00f6\u00f0lu\u00f0umst vi\u00f0 fullveldi og svo lauk heimsstyrj\u00f6ldinni.<\/p>\n<p>\u00c9g rek \u00feetta h\u00e9r til a\u00f0 s\u00fdna hvernig heim Mar\u00eda f\u00e6ddist inn \u00ed og \u00f3lst upp \u00ed. Svo kom kreppan \u00e1ri\u00f0 1930 og allt ger\u00f0ist \u00feetta \u00e1 fyrstu \u00e1ratugum \u00e6vi hennar. H\u00fan lifi\u00f0 af \u00ed h\u00f6r\u00f0um heimi og n\u00e1\u00f0i h\u00e1um aldri eins og raun ber vitni. H\u00fan var hraust kona og af sterkum stofnum.<\/p>\n<p>H\u00fan var eins og anna\u00f0 ungt f\u00f3lk, f\u00f3r \u00fat a\u00f0 skemmta s\u00e9r \u00ed borginni og n\u00e1grenni. H\u00fan rifja\u00f0i \u00fea\u00f0 stundum upp me\u00f0 b\u00f6rnum s\u00ednum a\u00f0 fari\u00f0 var f\u00f3tgangandi \u00e1 ball \u00ed Hafnarfir\u00f0i og gengi\u00f0 b\u00e1\u00f0ar lei\u00f0ir og \u00fe\u00f3tt ekkert tilt\u00f6kum\u00e1l. \u00c6tli \u00fea\u00f0 taki ekki svona 3 t\u00edma a\u00f0 ganga hvora lei\u00f0!<\/p>\n<p>Og eins og vera ber vitja\u00f0i \u00e1stin hennar \u00ed l\u00edfinu. Mar\u00eda giftist 28. desember 1940, Sigur\u00f0i Kristj\u00e1ni Sigurbj\u00f6rnssyni f. 12. n\u00f3vember 1903, d. 27. september 1989.<\/p>\n<p>\u00deau voru \u00f3l\u00edk hj\u00f3n en unnu vel saman. Stundum er \u00fea\u00f0 einmitt \u00feannig a\u00f0 \u00f3l\u00edkt f\u00f3lk \u00e1 best saman. \u00deau eignu\u00f0ust 3 b\u00f6rn sem eru:<\/p>\n<p>1) H\u00e1kon Sigur\u00f0sson f. 20.09.1942, kv\u00e6ntur Katr\u00ednu Hl\u00edf Gu\u00f0j\u00f3nsd\u00f3ttur f. 13. j\u00fan\u00ed 1945. D\u00f3ttir \u00feeirra er Margr\u00e9t Sif H\u00e1konard\u00f3ttir f. 9.3.1968, b\u00f6rn hennar og \u00de\u00f3rs \u00d3mars J\u00f3nssonar f. 5. n\u00f3vember 1967, eru, Thelma Hl\u00edf \u00de\u00f3rsd\u00f3ttir f. 28. okt\u00f3ber 1995, og J\u00f3n H\u00e1kon \u00de\u00f3rsson f. 16. okt\u00f3ber 2001.<\/p>\n<p>2) Bj\u00f6rg Sigur\u00f0ard\u00f3ttir 12. desember 1943, eiginma\u00f0ur hennar Huldar Sm\u00e1ri \u00c1smundsson f. 31. mars 1938 d. 9. okt\u00f3ber 1979 langt um aldur fram. B\u00f6rn \u00feeirra eru: Sigvar\u00f0ur Ari Huldarsson f. 16. apr\u00edl 1965,<\/p>\n<p>Hr\u00f3\u00f0n\u00fd Mar\u00eda Huldarsd\u00f3ttir f. 12. j\u00fan\u00ed 1966, eiginma\u00f0ur hennar Sverrir Gu\u00f0mundsson f. 21. jan\u00faar 1967, b\u00f6rn,&nbsp; Arn\u00f3r Sm\u00e1ri Sverrisson f. 5. september 1996, Arna Bj\u00f6rg 20. okt\u00f3ber 2008,&nbsp; og yngst barna Bjargar og Huldars Sm\u00e1ra er<\/p>\n<p>E\u00f0na Hallfr\u00ed\u00f0ur Huldarsd\u00f3ttir f. 1. apr\u00edl 1975.<\/p>\n<p>3) Sigr\u00ed\u00f0ur Sigur\u00f0ard\u00f3ttir 30. mars 1950, d. 26. jan\u00faar 2012. Eiginma\u00f0ur hennar Haukur Vigg\u00f3sson f. 14. j\u00fan\u00ed 1951, lifir hana og er kv\u00e6ntur \u00e1 n\u00fd. B\u00f6rn \u00feeirra eru:<\/p>\n<p>Finnbogi M\u00e1r Hauksson f. 11. ma\u00ed 1971, d\u00f3ttir hans Mar\u00eda Finnbogad\u00f3ttir f. 7. j\u00fal\u00ed 2000,<\/p>\n<p>J\u00f3hann Steinar Hauksson f. 3. n\u00f3vember 1974 og<\/p>\n<p>Una Ragnhei\u00f0ur Hauksd\u00f3ttir f. 7. mars 1979,&nbsp; barn hennar er Haukur Vigg\u00f3 Unuson f. 2. apr\u00edl 2013.<\/p>\n<p>Haukur, Finnbogi, Mar\u00eda Finnbogad\u00f3ttir, yngri, Una Ragnhei\u00f0ur og Haukur Vigg\u00f3, sem eru \u00ed Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0, senda ykkur \u00f6llum s\u00ednar bestu kve\u00f0jur me\u00f0 \u00feessum or\u00f0um: &nbsp;\u201eHv\u00edldu \u00ed fri\u00f0i elsku tengdamamma, amma og langamma.\u201c<\/p>\n<p>Mar\u00eda f\u00e6ddist \u00e1 Vesturg\u00f6tunni \u00ed Reykjav\u00edk en f\u00f3lki\u00f0 hennar flutti \u00e1 Bjargarst\u00edg \u00feegar h\u00fan var 2ja \u00e1ra. Fa\u00f0ir hennar vann vi\u00f0 Kolakranann sem var miki\u00f0 og merkt t\u00e6ki \u00ed atvinnus\u00f6gu borgarinnar en vinna var stopul svo \u00feau fluttu upp \u00e1 Akranes \u00feegar Mar\u00eda var 12 \u00e1ra. H\u00fan fermdist \u00fear og gekk \u00ed sk\u00f3la en 16 \u00e1ra var h\u00fan komin aftur til Reykjav\u00edkur. H\u00fan haf\u00f0i veri\u00f0 \u00ed vist um t\u00edma sem var algegnt starf ungra kvenna \u00e1 \u00feeim \u00e1rum en svo starfa\u00f0i h\u00fan \u00e1 saumastofu sem reyndist \u00feessari vandvirku og h\u00f6gu konu g\u00f3\u00f0ur sk\u00f3li.<\/p>\n<p>Henni l\u00edka\u00f0i aldrei vel \u00e1 Skaganum, fannst samf\u00e9lagi\u00f0 \u00fear \u00fer\u00f6ngt og skr\u00fdti\u00f0 \u00e1 k\u00f6flum sem kom m.a. fram \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fear h\u00f6f\u00f0u flestir vi\u00f0urnefni og voru jafnvel einnig uppnefndir.<\/p>\n<p>[H\u00e9r er alls ekki veri\u00f0 a\u00f0 halla \u00e1 Akurnesinga heldur var \u00feetta upplifun unglingsst\u00falku sem kunni ekki vi\u00f0 sig \u00fear. Skagmenn eru besta f\u00f3lk!]<\/p>\n<p>Mar\u00eda vann vi\u00f0 veitingarekstur fyrstu hj\u00faskapar\u00e1rin me\u00f0 eiginmanni s\u00ednum. \u00deau r\u00e1ku mats\u00f6lu \u00e1 Rau\u00f0ar\u00e1rst\u00edg \u00e1 str\u00ed\u00f0s\u00e1runum og \u00fear komu margir til a\u00f0 n\u00e6ra sig. Fr\u00e1 1955 r\u00e1ku \u00feau Bi\u00f0sk\u00fdli\u00f0 vi\u00f0 K\u00f3pavogsbraut 115, sem n\u00fa er ein af sj\u00e1lfsafgrei\u00f0slust\u00f6\u00f0vum Atlantsol\u00edu.<\/p>\n<p>Mar\u00eda var fremur feimin og \u00f3mannblendin me\u00f0an Sigur\u00f0ur gat tala\u00f0 vi\u00f0 alla og spjalla\u00f0. H\u00fan trana\u00f0i s\u00e9r ekki fram en vann s\u00edn verk af tr\u00famennsku. H\u00fan haf\u00f0i jafnan s\u00edna sko\u00f0un \u00e1 hlutunum og l\u00e9t hana \u00ed lj\u00f3si vi\u00f0 eiginmann og b\u00f6rn. H\u00fan studdi b\u00f6rnin s\u00edn \u00ed \u00f6llu g\u00f3\u00f0u, var umbur\u00f0arlynd og k\u00e6rleiksr\u00edk m\u00f3\u00f0ir. \u00deegar barnab\u00f6rnin komu eitt af \u00f6\u00f0ru fengu \u00feau hvert fyrir sig \u00f3skipta athygli \u00f6mmu sinnar sem alltaf var til \u00ed a\u00f0 tala vi\u00f0 \u00feau um allt milli himins og jar\u00f0ar, hvort sem \u00fea\u00f0 var um m\u00f3torhj\u00f3l e\u00f0a matrei\u00f0slu. Finnbogi M\u00e1r var miki\u00f0 hj\u00e1 henni sem drengur. H\u00fan lif\u00f0i fyrir fj\u00f6lskylduna og var s\u00edvinnandi.<\/p>\n<p>\u00deau Sigur\u00f0ur bygg\u00f0u s\u00e9r h\u00fas \u00ed Bl\u00f6nduhl\u00ed\u00f0inni. Hann var sj\u00f3ma\u00f0ur fyrstu starfs\u00e1rin en f\u00f3tbrotna\u00f0i illa \u00e1 sj\u00f3. Broti\u00f0 greri ekki r\u00e9tt saman og \u00fea\u00f0 var\u00f0 honum fj\u00f6tur um f\u00f3t allar g\u00f6tur s\u00ed\u00f0an. En hann l\u00e9t \u00fea\u00f0 ekki st\u00f6\u00f0va sig. Hann var alltaf a\u00f0 framkv\u00e6ma eitthva\u00f0. Me\u00f0an h\u00fasi\u00f0 \u00ed Bl\u00f6nduhl\u00ed\u00f0inni reis voru \u00feau eitt sumar \u00ed b\u00fasta\u00f0 \u00ed \u00c1rb\u00e6num en bjuggu svo \u00ed b\u00edlsk\u00far \u00ed n\u00e6sta h\u00fasi vi\u00f0 \u00fea\u00f0 sem \u00feau voru a\u00f0 byggja. Sigur\u00f0ur bygg\u00f0i 11 h\u00fas um \u00e6vina. Svo koma a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feau fengu rekstrarleyfi fyrir bi\u00f0sk\u00fdlinu \u00ed K\u00f3pavogi en \u00fev\u00ed fylgdu \u00fe\u00e6r kva\u00f0ir a\u00f0 \u00fear v\u00e6ri kaffi- og salernisa\u00f0sta\u00f0a handa b\u00edlst\u00f3rum Str\u00e6tisvagna K\u00f3pavogs. \u00deau bygg\u00f0u sk\u00fdli\u00f0 \u00e1ri\u00f0 1955 og r\u00e1ku \u00fea\u00f0 til 1973. \u00deau bjuggu \u00ed Melger\u00f0i 13, K\u00f3pavogsbraut 106 og 113 en sjoppan, eins og gjarnan var tala\u00f0 um reksturinn, var \u00e1 n\u00famer 115.<\/p>\n<p>Sigur\u00f0ur s\u00e1 um reksturinn og h\u00fan afgreiddi \u00e1samt honum og \u00f6\u00f0rum. \u00deau seldu reksturinn 1973 og leig\u00f0u h\u00fasn\u00e6\u00f0i\u00f0.<\/p>\n<p>Hennar hugur var \u00e6t\u00ed\u00f0 hj\u00e1 b\u00f6rnunum. Hagur \u00feeirra var fyrir \u00f6llu. Umhyggjan var henni bl\u00f3\u00f0 borin. H\u00fan \u00feekkti f\u00e1tt anna\u00f0 en a\u00f0 vinna og fr\u00eddagar voru ekki margir hj\u00e1 \u00feeim hj\u00f3num. Venjan var a\u00f0 loka sjoppunni \u00ed 4 daga \u00e1 \u00e1ri og einu sinni er \u00feau f\u00f3ru til Par\u00edsar \u00ed heims\u00f3kn til Bjargar og Huldars s\u00e1 Konni um sjoppuna um hr\u00ed\u00f0 svo \u00feau g\u00e6tu veri\u00f0 \u00fati \u00f6gn lengur og noti\u00f0 l\u00edfsins.<\/p>\n<p>Bj\u00f6rg segir m\u00f6mmu hafa veri\u00f0 besta fer\u00f0af\u00e9laga \u00ed \u00fatl\u00f6ndum sem h\u00fan \u00feekkti.<\/p>\n<p>\u00deau systkinin skorti aldrei neitt og bjuggu vi\u00f0 \u00f6ryggi g\u00f3\u00f0ra foreldra. Mar\u00eda var gla\u00f0lynd og \u00e1n\u00e6g\u00f0 me\u00f0 sitt hlutskipti. H\u00fan var flink \u00ed h\u00f6ndunum, sauma\u00f0i allt \u00e1 b\u00f6rnin me\u00f0an \u00feau voru ung. Konni man hva\u00f0 honum leiddist a\u00f0 m\u00e1ta f\u00f6tin sem mamma var a\u00f0 sauma en h\u00fan l\u00e9t hann standa upp \u00e1 st\u00f3l me\u00f0an h\u00fan m\u00e1ta\u00f0i \u00e1 hann, klippti til og kringdi um h\u00e1lsm\u00e1li\u00f0 en \u00fe\u00e1 strukust k\u00f6ld sk\u00e6rin vi\u00f0 h\u00e1lsinn \u00e1 str\u00e1ksa og \u00fea\u00f0 fannst honum ekki gott. H\u00fan sauma\u00f0i margt \u00e1 sj\u00e1lfa sig. Keypti stundum f\u00f6t sem p\u00f6ssu\u00f0u ekki alveg hennar vaxtarlagi en t\u00f3k \u00feau upp eins og \u00fea\u00f0 heitir og ger\u00f0i \u00feau \u00far gar\u00f0i eins og \u00feau v\u00e6ru kl\u00e6\u00f0skerasaumu\u00f0 \u00e1 hana. \u00deannig haf\u00f0i h\u00fan l\u00e6rt a\u00f0 bjarga s\u00e9r alla t\u00ed\u00f0.<\/p>\n<p>D\u00f3tturd\u00f3ttir hennar skrifa\u00f0i upp eftir henni einkunnaror\u00f0 sem Mar\u00eda heitin geymdi \u00e1 mi\u00f0a \u00ed n\u00e1ttbor\u00f0i s\u00ednu:<\/p>\n<p>A\u00f0 endingu standa sig<\/p>\n<p>\u00feeir einir sem vanda sig.<\/p>\n<p>Fr\u00e1 upphafi \u00ed \u00fev\u00ed<\/p>\n<p>sem er innan handar<\/p>\n<p>a\u00f0 standa sig.<\/p>\n<p>\u00deau Mar\u00eda og Sigur\u00f0ur f\u00f3ru a\u00f0 hafa \u00fea\u00f0 gott me\u00f0 \u00e1runum \u00feegar veltan j\u00f3kst \u00ed sjoppunni en eftir a\u00f0 \u00feau seldu var Sigur\u00f0ur oft \u00ed kringum Konna sem rak verslun um t\u00edma \u00ed Hafnarfir\u00f0i. Sigur\u00f0ur vann miki\u00f0 fyrir b\u00f6rnin s\u00edn \u00f6ll, sm\u00ed\u00f0a\u00f0i fyrir \u00feau og var s\u00edfellt a\u00f0 dytta a\u00f0 einhverju. En \u00fer\u00e1tt fyrir betri kj\u00f6r \u00feeirra hj\u00f3na vann Mar\u00eda \u00e6t\u00ed\u00f0 eins og h\u00fan hef\u00f0i hin fyrri kj\u00f6r. \u00deannig var n\u00fa varf\u00e6rni hennar og viska. L\u00edklega v\u00e6ri betur komi\u00f0 fyrir okkur sem \u00fej\u00f3\u00f0 ef vi\u00f0 hef\u00f0um tileinka\u00f0 okkur hagfr\u00e6\u00f0i hennar.<\/p>\n<p>H\u00fan haf\u00f0i yndi af a\u00f0 fer\u00f0ast og f\u00f3r t.a.m. ein til Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0ar \u00e1 s\u00ednum t\u00edma til Sigr\u00ed\u00f0ar og kl\u00e1ra\u00f0i sig vel \u00ed \u00fev\u00ed fer\u00f0alagi \u00f6llu. S\u00ed\u00f0ustu fer\u00f0ina \u00feanga\u00f0 f\u00f3r h\u00fan 95 \u00e1ra til a\u00f0 sty\u00f0ja Siggu \u00ed veikindum hennar. Alltaf var h\u00fan a\u00f0 \u00fej\u00f3na, sty\u00f0ja og styrkja sitt f\u00f3lk. \u00deegar h\u00fan var ung missti h\u00fan f\u00f6\u00f0ur sinn. \u00de\u00e1 voru kj\u00f6rin b\u00e1g, mamma vann \u00ed fiski upp \u00e1 Skaga 6 daga vikunnar og Mar\u00eda f\u00f3r reglulega uppeftir til a\u00f0 heims\u00e6kja hana og vera henni til huggunar og a\u00f0sto\u00f0ar.<\/p>\n<p>Li\u00f0in \u00f6ld var merkileg fyrir margra hluta sakir. Mar\u00eda lif\u00f0i miklar \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lagsbreytingar og t\u00e6knibyltingar. Umhverfi\u00f0 breytist en mannf\u00f3lki\u00f0 ekki. S\u00e1larl\u00edfi\u00f0 er eins og \u00fea\u00f0 hefur veri\u00f0 \u00ed \u00fe\u00fasund \u00e1r og miklu lengur. Vi\u00f0 gle\u00f0jumst og elskum, finnum til, s\u00f6knum og syrgjum eins og f\u00f3lk hefur \u00e6t\u00ed\u00f0 gert.<\/p>\n<p>L\u00edfi\u00f0 er verkefni. Vi\u00f0 h\u00f6f\u00f0um ekkert um \u00fea\u00f0 a\u00f0 segja a\u00f0 vi\u00f0 ur\u00f0um til. Vi\u00f0 eigum \u00feetta l\u00edf a\u00f0eins einu sinni og ver\u00f0um a\u00f0 komast af og kl\u00e1ra okkur me\u00f0an dagur er. Til a\u00f0 skilja \u00feetta l\u00edf og hi\u00f0 st\u00f3ra samhengi ver\u00f0um vi\u00f0 a\u00f0 gefa okkur t\u00edma til a\u00f0 r\u00fdna \u00ed r\u00fanir l\u00edfsins og leyndard\u00f3ma \u00feess. Tr\u00fain \u00e1 Gu\u00f0 er m\u00f6rgum mikilv\u00e6gur \u00fe\u00e1ttur \u00ed \u00feeim efnum. Mar\u00eda \u00e1tti s\u00edna tr\u00fa og h\u00fan f\u00f3r oft \u00ed kirkju. H\u00fan s\u00f3tti t.a.m. Grens\u00e1skirkju \u00e1 \u00e1runum sem \u00feau bjuggu \u00ed Hvassaleitinu. \u00de\u00e1 starfa\u00f0i \u00e9g sem dj\u00e1kni \u00ed \u00feeim s\u00f6fnu\u00f0i. Seinna seldi \u00e9g Konna v\u00f6rur sem heildsali en kynntist honum svo s\u00ed\u00f0ar \u00ed Golfkl\u00fabbi K\u00f3pavogs og Gar\u00f0b\u00e6jar. \u00cd \u00f6rf\u00e1 skipti kom \u00e9g \u00ed bi\u00f0sk\u00fdli\u00f0 fremst \u00e1 K\u00e1rsnesinu til a\u00f0 taka bens\u00edn og kaupa nammi en vissi ekkert um a\u00f0 \u00e9g \u00e6tti eftir a\u00f0 tengjast \u00feessu f\u00f3lki s\u00ed\u00f0ar. Svona er n\u00fa l\u00edfi\u00f0 \u00ed bi\u00f0sk\u00fdlinu J\u00f6r\u00f0. \u00dear er margt f\u00f3lk \u00e1 fer\u00f0. Einn \u00e6tlar \u00feanga\u00f0 en annar stefnir \u00e1 allt annan sta\u00f0. Vi\u00f0 erum fer\u00f0alangar og spurningin er hvort vi\u00f0 r\u00f6tum hinn r\u00e9tta veg?<\/p>\n<p>Senn koma j\u00f3l \u00feegar vi\u00f0 f\u00f6gnum merkustu pers\u00f3nu mannkynss\u00f6gunnar, barninu sem f\u00e6ddist \u00ed Betlehem, \u00f3x upp og dafna\u00f0i \u00ed Nasaret og breytti ver\u00f6ldinni me\u00f0 inns\u00e6i s\u00ednu og dj\u00fapri visku. Kristur hefur marka\u00f0 spor \u00ed s\u00f6gu \u00feessa heims me\u00f0 afgerandi h\u00e6tti. \u00deau sem tr\u00faa \u00e1 hann eru st\u00e6rsti h\u00f3pur tiltekinnar tr\u00faar \u00ed heiminum. Kristnin telst fj\u00f6lmennust allra tr\u00faarbrag\u00f0a og hin kristnu l\u00f6nd eru \u00feau sem allur heimur vill innst inni l\u00edkjast \u00fev\u00ed \u00fear eru mannr\u00e9ttindi best trygg\u00f0, l\u00edfskj\u00f6rin best og hugsunin opnust. Hyggjum a\u00f0 \u00fev\u00ed \u00feegar vi\u00f0 h\u00f6ldum j\u00f3l. Vi\u00f0 getum teki\u00f0 okkur far hinga\u00f0 og \u00feanga\u00f0 og a\u00f0hyllst allskonar hugmyndafr\u00e6\u00f0i en s\u00fa sem Kristur bo\u00f0a\u00f0i og kirkjan heldur \u00e1 lofti er \u00ed innsta kjarna tr\u00fa \u00e1 k\u00e6rleiksr\u00edkan Gu\u00f0, miskunn hans, fyrirgefningu og fri\u00f0 \u00ed samskiptum manna. Jes\u00fas sag\u00f0ist vera vegurinn, sannleikurinn og l\u00edfi\u00f0. \u00cd bi\u00f0sk\u00fdli l\u00edfsins \u00fear sem vi\u00f0 horfum \u00e1 lei\u00f0arkorti\u00f0 er v\u00edst a\u00f0 me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 velja veginn hans stefnum vi\u00f0 \u00ed g\u00f3\u00f0a \u00e1tt.<\/p>\n<p>Gu\u00f0 blessi minningu Mar\u00edu Finnbogad\u00f3ttur og blessi \u00feig og okkur \u00f6ll \u00e1 krossg\u00f6tum l\u00edfsins n\u00fa og s\u00ed\u00f0ar.<\/p>\n<p>Gle\u00f0ileg j\u00f3l og megi n\u00fdtt \u00e1r f\u00e6ra okkur gle\u00f0i og fri\u00f0 og h\u00e6filega velmegun.<\/p>\n<p>Amen.<\/p>\n<p>Tilkynningar:<\/p>\n<p>Jar\u00f0setning . . .<\/p>\n<p>Erfi . . .<\/p>\n<p>R\u00e6\u00f0an birt . . .<\/p>\n<p>Postulleg kve\u00f0ja: Gu\u00f0 vonarinnar . . .<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson Minningaror\u00f0 Mar\u00eda Finnbogad\u00f3ttir 1914-2013 h\u00fasm\u00f3\u00f0ir og fv. kaupkona \u00datf\u00f6r fr\u00e1 Fossvogskapellu f\u00f6studaginn 20. desember 2013 kl. 15 Jar\u00f0sett \u00ed Fossvogskirkjugar\u00f0i. R\u00e6\u00f0una getur\u00f0u hlusta\u00f0 \u00e1 og lesi\u00f0 h\u00e9r fyrir ne\u00f0an.<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[4],"tags":[],"class_list":["post-981","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-greinar-og-hugvekjur-articles"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/981","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=981"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/981\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=981"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=981"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=981"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}