{"id":949,"date":"2013-12-06T16:27:13","date_gmt":"2013-12-06T16:27:13","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/?p=949"},"modified":"2013-12-06T16:27:13","modified_gmt":"2013-12-06T16:27:13","slug":"eyvindur-gardar-fridgeirsson-1929-2013","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=949","title":{"rendered":"Eyvindur Gar\u00f0ar Fri\u00f0geirsson 1929-2013"},"content":{"rendered":"<p><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2013\/12\/eyvindur.png\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignleft size-full wp-image-950\" alt=\"Eyvindur\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2013\/12\/eyvindur.png\" width=\"198\" height=\"280\" \/><\/a>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson<\/p>\n<p>Minningaror\u00f0<\/p>\n<p><b>Eyvindur Gar\u00f0ar Fri\u00f0geirsson<\/b><\/p>\n<p>1929-2013<\/p>\n<p>verkama\u00f0ur<\/p>\n<p>Grandavegi 39b, Reykjav\u00edk.<\/p>\n<p>\u00datf\u00f6r fr\u00e1 Neskirkju 6. desember 2013 kl.13.<\/p>\n<p><!--more--><\/p>\n\n<p><strong>Saga<\/strong> &#8211; saga einstaklings, saga \u00fej\u00f3\u00f0ar, saga heims.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 lifum og n\u00e6rumst af s\u00f6gum. \u00cdslendingar vita \u00fea\u00f0 m\u00e6ta vel sem s\u00f6gu\u00fej\u00f3\u00f0. S\u00f6gur heimsins falla flestar inn \u00ed eitt og sama sni\u00f0m\u00e1ti\u00f0. Jafnvel stutt saga e\u00f0a brandari \u00fearf a\u00f0 fylgja \u00feessu sni\u00f0m\u00e1ti til a\u00f0 virka vel. N\u00fa er runninn upp s\u00e1 t\u00edmi sem markar undirb\u00faning j\u00f3la \u00feegar \u201emerkasta saga allra t\u00edma\u201c ver\u00f0ur rifju\u00f0 upp af st\u00f3rum hluta mannskyns, sagan af \u00fev\u00ed er Gu\u00f0 ger\u00f0ist ma\u00f0ur \u00ed Jes\u00fa Kristi. S\u00fa saga markar skil \u00ed s\u00f6gu heimsins. T\u00edmatal okkar er mi\u00f0a\u00f0 vi\u00f0 \u00feann atbur\u00f0.<\/p>\n<p>Bibl\u00edan er merkileg b\u00f3k, \u00ed senn torskilin og au\u00f0skilin en kannski oftar en ekki misskilin. S\u00fa b\u00f3k fellur a\u00f0 sni\u00f0m\u00e1ti hinnar fullkomnu s\u00f6gu eins og vera ber. Sni\u00f0m\u00e1ti\u00f0 er \u00fer\u00ed\u00fe\u00e6tt. Hver g\u00f3\u00f0 saga hefst \u00e1 g\u00f3\u00f0um og bj\u00f6rtum n\u00f3tum, svo tekur vi\u00f0 fl\u00e6kjustig, atbur\u00f0ur sem breytir hinu g\u00f3\u00f0a og loks lokastigi\u00f0 \u00feegar lausnin er fundin. \u00deessi \u00fer\u00edskipting birtist t.a.m. \u00ed fornum riddaras\u00f6gum \u00fear sem hetjan leggur upp \u00ed f\u00f6r \u00ed leitinni a\u00f0 gralinu g\u00f3\u00f0a, svo hefst bardaginn, svikin, prettirnir, m\u00f3tl\u00e6ti\u00f0, blekkingarnar, g\u00e1turnar og \u00ferautirnar og loks kemur svo uppskeran mikla \u00feegar grali\u00f0 finnst og s\u00f6gunni l\u00fdkur me\u00f0 sigri. Segja m\u00e1 me\u00f0 nokkurri einf\u00f6ldun a\u00f0 allar kvikmyndir heimsins hvort sem \u00fe\u00e6r eru framleiddar \u00ed Hollywood, Bollywood e\u00f0a \u00f6\u00f0rum kvikmyndaverum heimsins, falli a\u00f0 \u00feessu formi. Taktu eftir n\u00e6stu mynd sem \u00fe\u00fa horfir \u00e1. H\u00fan byrjar \u00e1n efa \u00e1 kyrrl\u00e1tum n\u00f3tum svo gerist eitthva\u00f0 \u00f3v\u00e6nt sem kallar a\u00f0als\u00f6guhetjuna til starfa og svo l\u00fdkur myndinni me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 verkefni\u00f0 vinnst og sigur n\u00e6st. Bibl\u00edan hefur \u00feessa \u00ferj\u00e1 \u00fe\u00e6tti \u00ed s\u00e9r. \u00deeir heita <i>sk\u00f6pun, fall og endurlausn<\/i>. \u00cd b\u00f3k b\u00f3kanna er gengi\u00f0 \u00fat fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 l\u00edfi\u00f0 og heimurinn eigi s\u00e9r h\u00f6fund sem skapa\u00f0 hefur allt og manninn \u00ed sinni mynd. En ma\u00f0urinn v\u00edkur af r\u00e9ttri lei\u00f0 og fl\u00e6kjustigi\u00f0 hefst. J\u00f3lin bo\u00f0a s\u00ed\u00f0an a\u00f0 lausnarinn er sendur og hann leysir g\u00e1tuna og lei\u00f0ir alla fram til sigurs.<\/p>\n<p>\u00c9g f\u00e9kk \u00ed hendur s\u00f6guna hennar Gu\u00f0r\u00fanar Fri\u00f0geirsd\u00f3ttur, Nor\u00f0anst\u00falka, \u00fear sem h\u00fan greinir fr\u00e1 bernsku sinni og br\u00f3\u00f0ur s\u00edns sem vi\u00f0 kve\u00f0jum h\u00e9r \u00ed dag. Sagan er merkileg heimild um l\u00edfsbar\u00e1ttu f\u00f3lks \u00e1 li\u00f0inni \u00f6ld, l\u00edfsbar\u00e1ttu m\u00f3\u00f0ur me\u00f0 b\u00f6rnin s\u00edn tv\u00f6 \u00ed \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lagi mismununar, f\u00e1rra t\u00e6kif\u00e6ra og l\u00edtilla efna. Sagan haf\u00f0i dj\u00fap \u00e1hrif \u00e1 mig. Og \u00feessi saga fellur a\u00f0 sama sni\u00f0m\u00e1ti og fyrr var nefnt, h\u00fan hefst reyndar \u00e1 fl\u00e6kjustiginu, \u00feegar fa\u00f0ir Gu\u00f0r\u00fanar og Eyvindar var fallinn fr\u00e1 og Gu\u00f0r\u00fan ekki nema 4 \u00e1ra og mundi \u00fev\u00ed ekki g\u00f3\u00f0u dagana \u00fear \u00e1 undan. Sagan greinir fr\u00e1 l\u00edfsbar\u00e1ttu l\u00edtillar fj\u00f6lskyldu, \u00feroska ungrar st\u00falku og leitinnni a\u00f0 skilningi \u00e1 g\u00e1tum l\u00edfsins. En s\u00f6gunni l\u00fdkur svo vi\u00f0 r\u00e1sl\u00ednu n\u00fdrra t\u00edma. \u201e\u00c9g haf\u00f0i l\u00edti\u00f0 s\u00e9\u00f0 af Reykjav\u00edk e\u00f0a umhverfi b\u00e6jarins. \u00c9g hugsa\u00f0i ekki um \u00fea\u00f0, n\u00fa var \u00e9g a\u00f0 fara nor\u00f0ur \u00ed Menntask\u00f3lann \u00e1 Akureyri og \u00e9g hlakka\u00f0i til. \u00dear bi\u00f0i m\u00edn allt anna\u00f0 l\u00edf.\u201c (s.152).<\/p>\n<p>F\u00e6\u00f0ing og bernska, gl\u00edman vi\u00f0 l\u00edfi\u00f0 og loks uppskera \u00feroskans.<\/p>\n<p>Eyvindur Gar\u00f0ar Fri\u00f0geirsson f\u00e6ddist \u00ed Wynyard, Saskatchewan, Kanada, 21. febr\u00faar 1929. Hann anda\u00f0ist \u00e1 heimili s\u00ednu, Grandavegi 39b \u00ed Reykjav\u00edk, 25. n\u00f3vember 2013.<\/p>\n<p>Foreldrar hans voru hj\u00f3nin I\u00f0unn J\u00f3nsd\u00f3ttir verkakona, f. 28. jan\u00faar 1903, d. 7. ma\u00ed 1957, og Fri\u00f0geir Laxdal Fri\u00f0riksson rafvirki og sj\u00f3ma\u00f0ur, f. 1. jan\u00faar 1899, d. 13. september 1934, en \u00feau \u00f3lust b\u00e6\u00f0i upp \u00e1 Sn\u00e6fellsnesi.<\/p>\n<p>Systir Eyvindar er Gu\u00f0r\u00fan, f. 1. j\u00fan\u00ed 1930.<\/p>\n<p>Fleiri systkini \u00e1tti Eyvindur ekki. Hann var einhleypur og barnlaus.<\/p>\n<p>M\u00e1gur Eyvindar er Stef\u00e1n Briem.<\/p>\n<p>B\u00f6rn \u00feeirra eru Axel, v\u00edsindama\u00f0ur, doktor \u00ed l\u00edfefnafr\u00e6\u00f0i, sem sendir kve\u00f0ju s\u00edna til ykkar en hann b\u00fdr \u00ed \u00c1stral\u00edu, Bodil, yfirma\u00f0ur \u00e1 skrifstofu N\u00e1tt\u00farugripasafns r\u00edkisins \u00ed Kaupmannah\u00f6fn, Snorri, t\u00f6lvunarfr\u00e6\u00f0ingur \u00ed Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0 og Kjartan, verkfr\u00e6\u00f0ingur sem b\u00fdr h\u00e9r \u00e1 landi.<\/p>\n<p>\u00c1 fyrsta \u00e1ri fluttist Eyvindur me\u00f0 foreldrum s\u00ednum fr\u00e1 Kanada heim til \u00cdslands. Fimm \u00e1ra gamall missti hann f\u00f6\u00f0ur sinn og \u00f3lst s\u00ed\u00f0an upp hj\u00e1 m\u00f3\u00f0ur sinni einni, en var \u00fe\u00f3 \u00ed f\u00f3stri \u00ed f\u00e1ein \u00e1r a\u00f0 St\u00f3ru-Laugum \u00ed Reykjadal hj\u00e1 g\u00f3\u00f0u f\u00f3lki. \u00de\u00e1 kom hann aftur til m\u00f3\u00f0ur sinnar og systur \u00e1 H\u00fasav\u00edk og gekk \u00fear \u00ed barnask\u00f3la fr\u00e1 10 \u00e1ra aldri.<\/p>\n<p>Fa\u00f0ir hans, Fri\u00f0geir, var g\u00f3\u00f0um g\u00e1fum g\u00e6ddur, h\u00e1vaxinn og hraustur me\u00f0 \u00e1huga \u00e1\u00a0 \u00ed\u00fer\u00f3ttum. En l\u00edfi\u00f0 var\u00f0 honum um megn. Konan var ein eftir me\u00f0 b\u00f6rnin og bar\u00f0ist \u00e1fram me\u00f0 \u00feau en l\u00e9st \u00e1 besta aldri \u00e1ri\u00f0 1957, 54 \u00e1ra.<\/p>\n<p>H\u00fan haf\u00f0i flutt me\u00f0 b\u00f6rnin fr\u00e1 Siglufir\u00f0i til H\u00faasv\u00edkur \u00feegar Fri\u00f0geri f\u00e9ll fr\u00e1 og \u00feau settust a\u00f0 \u00ed h\u00fasinu Hl\u00ed\u00f0skj\u00e1lf. F\u00f3lki\u00f0 sem \u00fear bj\u00f3 var \u00feeim einkar gott, Vilhj\u00e1lmur Gu\u00f0mundsson og \u00d3l\u00f6f barnsm\u00f3\u00f0ir hans, en \u00d3li var sonur \u00feeirra. \u00c1\u00f0ur var Vilhj\u00e1lmur kv\u00e6ntur Helgu tv\u00edburasystur \u00d3lafar og \u00e1tti me\u00f0 hanni Mar\u00edu en Helga l\u00e9st ung.<\/p>\n<p>\u00dar Hl\u00ed\u00f0skj\u00e1lf \u00e1ttu systkinin margar minningar og af f\u00f3lkinu \u00ed b\u00e6num en \u00fear bj\u00f3 einnig f\u00f6\u00f0urbr\u00f3\u00f0ir \u00feeirra, s\u00e9ra Fri\u00f0rik A. Fri\u00f0riksson \u00e1samt fj\u00f6lsyldu sinni sem reyndist \u00feeim vel en hann var alla t\u00ed\u00f0 \u00f6nnum kafinn prestur, k\u00f3rstj\u00f3ri og menningarfr\u00f6mu\u00f0ur, h\u00e6fileikar\u00edkur og vins\u00e6ll ma\u00f0ur.<\/p>\n<p>Hausti\u00f0 1943 f\u00f3r Eyvindur til dvalar hj\u00e1 f\u00f6\u00f0ursystur sinni \u00ed Reykjav\u00edk. H\u00fan vildi sty\u00f0ja hann \u00fear til n\u00e1ms, en illu heilli veiktist hann og tv\u00f6 \u00f6nnur b\u00f6rn \u00e1 heimilinu af berklum \u00feennan vetur. Eftir \u00fea\u00f0 dvaldist Eyvindur \u00e1 berklah\u00e6li \u00e1 V\u00edfilsst\u00f6\u00f0um og s\u00ed\u00f0ar \u00e1 Reykjalundi n\u00e6stu \u00e1rin \u00fear sem hann sinnti \u00fdmsum st\u00f6rfum og stunda\u00f0i n\u00e1m. Hann n\u00e1\u00f0i g\u00f3\u00f0ri heilsu \u00e1 n\u00fd og bj\u00f3 me\u00f0 m\u00f3\u00f0ur sinni \u00ed Reykjav\u00edk en eftir a\u00f0 h\u00fan l\u00e9st bj\u00f3 hann einn. Hann stunda\u00f0i \u00fdmis verkamannast\u00f6rf, lengst af byggingarvinnu, en einnig bifrei\u00f0avi\u00f0ger\u00f0ir. Hann var handlaginn og eftirs\u00f3ttur til vinnu.<\/p>\n<p>Hann var vanda\u00f0ur ma\u00f0ur sem ekki m\u00e1tti vamm sitt vita, hei\u00f0arlegur og \u00e1rei\u00f0anlegur \u00ed \u00f6llu hvar sem hann f\u00f3r. Hann vildi \u00f6llum vel, var gjafmildur og g\u00f3\u00f0vilja\u00f0ur, alltaf tilb\u00fainn a\u00f0 r\u00e9tta fram hj\u00e1lparh\u00f6nd \u00feeim sem hann var samfer\u00f0a og \u00feurftu einhverja a\u00f0sto\u00f0. B\u00f6rnunum \u00ed fj\u00f6lskyldunni var hann s\u00edfellt a\u00f0 gefa gjafir. Hann naut \u00feess a\u00f0 f\u00e6ra \u00feeim eitthva\u00f0 sem hann vissi a\u00f0 myndi gle\u00f0ja \u00feau. Og gjafir hans voru ekki skornar vi\u00f0 n\u00f6gl. Hann var gla\u00f0lyndur og r\u00e6\u00f0inn, vel a\u00f0 s\u00e9r um margt, enda v\u00ed\u00f0lesinn og st\u00e1lminnugur. Hann kunni vel a\u00f0 segja fr\u00e1 atvikum og fr\u00e9ttum. \u00cd veikindum s\u00ednum sem unglingur f\u00f3r hann \u00e1 mis vi\u00f0 margt en aldrei var a\u00f0 heyra neinn kv\u00f6rtunart\u00f3n fr\u00e1 honum, segir systir hans. Hann naut alla t\u00ed\u00f0 \u00fativistar og fer\u00f0alaga og f\u00f3r oft me\u00f0 fj\u00f6lskyldu Gu\u00f0r\u00fanar \u00ed g\u00f6ngufer\u00f0ir e\u00f0a \u00f6kufer\u00f0ir me\u00f0 nesti til fallegra sta\u00f0a. \u00deau systkinin g\u00e1tu endalaust rifja\u00f0 upp l\u00f6ngu li\u00f0na atbur\u00f0i \u00e1 H\u00fasav\u00edk og minni hans \u00ed \u00feeim efnum var \u00f3brig\u00f0ult.<\/p>\n<p>Eyvindur var r\u00e6\u00f0inn og mi\u00f0la\u00f0i af fr\u00f3\u00f0leik s\u00ednum vi\u00f0 vini og vandamenn en ekki ver\u00f0ur sagt a\u00f0 hann hafi hleypt f\u00f3lki mj\u00f6g n\u00e1l\u00e6gt s\u00e9r.<\/p>\n<p>Hann var s\u00f6ngelskur, haf\u00f0i g\u00f3\u00f0a r\u00f6dd. \u00c1 a\u00f0fangadag s\u00f6ng hann gjarnan me\u00f0 fj\u00f6lskyldunni og dansa\u00f0i kringum j\u00f3latr\u00e9\u00f0.<\/p>\n<p>\u00cd \u00edslensku m\u00e1lt\u00e6ki segir: Hver er sinnar g\u00e6fu smi\u00f0ur en \u00ed or\u00f0um bandar\u00edsks mets\u00f6luh\u00f6funar segir a\u00f0 enginn s\u00e9 \u201eself made\u201c &#8211; enginn eigin smi\u00f0ur. \u00dea\u00f0 er a\u00f0 v\u00edsu munur \u00e1 \u00feessum tveim fulluyr\u00f0ingum en b\u00e1\u00f0ar hafa l\u00edklega nokku\u00f0 til s\u00edns m\u00e1ls. Hvert og eitt okkar r\u00e6\u00f0ur miklu um vegfer\u00f0ina hverju sinni en svo er \u00fea\u00f0 hitt a\u00f0 \u00e1 vegi okkar ver\u00f0ur f\u00f3lk og atbur\u00f0ir sem l\u00edfi\u00f0 leggur fyrir okkur eins og spurningar \u00e1 pr\u00f3fi og svar okkar r\u00e6\u00f0ur hva\u00f0 ver\u00f0ur. Ma\u00f0ur hittir mann, karl og kona m\u00e6tast e\u00f0a m\u00e6tast ekki og l\u00edfi\u00f0 tekur n\u00fdja stefnu. \u00deess vegna er enginn eigin smi\u00f0ur a\u00f0 \u00f6llu leyti \u00fev\u00ed enginn er eyland.<\/p>\n<p>Gu\u00f0r\u00fan veltir \u00fev\u00ed l\u00edklega fyrir s\u00e9r hvers vegna hennar l\u00edf var\u00f0 eins og \u00fea\u00f0 er og l\u00edf Eyvindar var\u00f0 me\u00f0 \u00f6\u00f0ru m\u00f3ti. \u00dea\u00f0 er l\u00edklega vegna \u00feessa a\u00f0 breyturnar voru \u00f3l\u00edkar og \u00farvinnslan l\u00edka, sv\u00f6rin \u00e1 pr\u00f3funum me\u00f0 \u00fdmsu m\u00f3ti og engin lei\u00f0 til a\u00f0 skera \u00far um einkunnir vegna \u00feess a\u00f0 vi\u00f0 hverri spurningu eru svarm\u00f6guleikar fleiri en einn og fleiri en tveir.<\/p>\n<p>Eyvindur vildi \u00e6t\u00ed\u00f0 fara s\u00ednar eigin lei\u00f0ir, bjarga s\u00e9r sj\u00e1lfur og hafa hlutina eftir s\u00ednu h\u00f6f\u00f0i. Hann \u00e1tti s\u00edna \u00edb\u00fa\u00f0 og reyndar a\u00f0ra \u00ed n\u00e6stu blokk sem hann leig\u00f0i \u00fat en gjarnan \u00e1 allt of l\u00e1gu ver\u00f0i svo a\u00f0 ekki var\u00f0 hann au\u00f0ugur af \u00feeim vi\u00f0skiptum en lag\u00f0i \u00feannig \u00f6\u00f0rum li\u00f0. Hann l\u00e1na\u00f0i f\u00f3lki oft f\u00e9, studdi f\u00e1t\u00e6ka, hj\u00e1lpa\u00f0i systur sinni og m\u00e1gi a\u00f0 byggja og lag\u00f0i \u00fea\u00f0 ekki \u00ed vana sinn a\u00f0 leggja illt or\u00f0 til annarra. Hann lif\u00f0i fyrir daginn og m\u00e6tti hverju verki \u00e6\u00f0rulaus og ef hann gat ekki gert eitthva\u00f0 \u00ed dag \u00fe\u00e1 m\u00e1tti sko\u00f0a \u00fea\u00f0 seinna. Hann var vel m\u00e1li farinn og haf\u00f0i gott vald \u00e1 \u00edslensku.<\/p>\n<p>Stefin \u00ferj\u00fa \u00ed hinni helgu b\u00f3k eru <i>sk\u00f6pun, fall og endurlausn<\/i>. Saga okkar er s\u00fa sama. Vi\u00f0 f\u00e6ddumst og lif\u00f0um sakleysi bernskunnar. \u00de\u00e1 t\u00f3k vi\u00f0 fl\u00e6kjustigi\u00f0 me\u00f0 \u00f6llum s\u00ednum breytum og svarm\u00f6guleikum. En hva\u00f0 \u00fe\u00e1 me\u00f0 lokastigi\u00f0? N\u00e1um vi\u00f0 sigrinum sem einkennir s\u00e9rhverja g\u00f3\u00f0a s\u00f6gu? Nei, reyndar ekki. Vi\u00f0 n\u00e1um \u00fev\u00ed ekki \u00ed eigin m\u00e6tti. Til \u00feess er m\u00e1tturinn of l\u00edtill, getan of takm\u00f6rku\u00f0, mennskan od breysk, brotal\u00f6min of dj\u00fapst\u00e6\u00f0. En eins og hj\u00e1 P\u00e1li postula \u00fe\u00e1 fullkomast m\u00e1tturinn \u00ed veikleika. (2. Kor 12.9) \u00dea\u00f0 merkir a\u00f0 vi\u00f0 f\u00e1um styrk \u00ed veikleika okkar og s\u00e1 styrkur kemur fr\u00e1 honum sem d\u00f3 \u00e1 krossi og gekk \u00fej\u00e1ningarlei\u00f0ina alveg til enda, inn \u00ed d\u00fdpstu myrkur og kv\u00f6l. Hann var reistur upp til sigurs og merki\u00f0 hans blasir h\u00e9r vi\u00f0 og var sett \u00e1 enni og brj\u00f3st \u00feess sem vi\u00f0 h\u00e9r kve\u00f0jum er hann var sk\u00edr\u00f0ur 2. j\u00fan\u00ed 1929 \u00ed Humbolt, Saskatchewan \u00ed Kanada af f\u00f6\u00f0urbr\u00f3\u00f0ur s\u00ednum s\u00e9ra Fri\u00f0rik A. Fri\u00f0rikssyni sem \u00fe\u00e1 \u00fej\u00f3na\u00f0 \u00fear vestra. Sk\u00edrnarvottor\u00f0i\u00f0 geymdi hann \u00e6t\u00ed\u00f0 en \u00fea\u00f0 er skrautrita\u00f0 af fr\u00e6nda hans sem var margt til lista lagt. Sigur Krists er lag\u00f0ur \u00ed hug og hjarta hvers hv\u00edtvo\u00f0ungs sem sk\u00edr\u00f0ur er og s\u00e1 sigur fylgir s\u00e9rhverjum kristnum manni allar g\u00f6tur s\u00ed\u00f0an og allt til enda, innsigli sigursins. Lokasigurinn var gefinn okkur flestum \u00ed frumbernsku og hann fylgir okkur til hinsta dags. \u00deannig r\u00e6tist gangur s\u00f6gunnar g\u00f3\u00f0u fr\u00e1 f\u00e6\u00f0ingu, \u00ed gegnum l\u00edfi\u00f0 og \u00ed upprisu hins efsta dags. <i>Sk\u00f6pun, fall og endurlausn<\/i>. F\u00e6\u00f0ing, l\u00edfsgl\u00edma og upprisa.<\/p>\n<p>Hvernig h\u00f6fum vi\u00f0 lifa\u00f0? \u00deurfum vi\u00f0 a\u00f0 lifa eftir einhverri st\u00edfri forskrift til a\u00f0 \u00f6\u00f0last sigurinn? Nei, vi\u00f0 \u00feurfum a\u00f0eins a\u00f0 leggja traust okkar \u00e1 sigurvegarann, vera \u00ed sigurli\u00f0i hans sem for\u00f0um lag\u00f0i dau\u00f0ann a\u00f0 velli \u00e1 Golgata. Pr\u00f3fgr\u00e1\u00f0ur, g\u00f3\u00f0verk, \u00ed\u00fer\u00f3ttasigrar, frami e\u00f0a velgengni af hva\u00f0a tagi sem er skiptir \u00fear engu m\u00e1li \u00fev\u00ed \u00ed \u00feessum efnum er ekkert vildarpunktakerfi \u00ed gangi heldur a\u00f0eins miskunn og n\u00e1\u00f0 hans sem \u00f6llu r\u00e6\u00f0ur. Vi\u00f0 nj\u00f3tum sigra hans og elsku. \u00deess vegna er svo undursamlegt a\u00f0 lifa og nj\u00f3ta daganna \u00fev\u00ed sigurinn er \u00feegar unninn, l\u00edka \u00feegar allt vir\u00f0ist dimmt og d\u00f6kkt.<\/p>\n<p>Eyvindur var tr\u00faa\u00f0ur ma\u00f0ur eins og fa\u00f0ir hans. Sigurinn \u00ed l\u00edfi Eyvindar &#8211; en nafn hans merkir kappi &#8211; var unninn af Kristi l\u00f6ngu \u00e1\u00f0ur en hann var\u00f0 til e\u00f0a vi\u00f0. \u00deetta er samhengi\u00f0 sem vi\u00f0 lifum \u00ed, samhengi sigurs og upprisu. Upprisan er \u00e6t\u00ed\u00f0 a\u00f0 verki \u00ed l\u00edfi okkar. H\u00fan birtist l\u00edklega sk\u00fdrast \u00ed voninni sem hj\u00e1lpar okkur a\u00f0 horfa fram \u00e1 veginn \u00ed tr\u00fa og vissu um a\u00f0 allt muni fara vel. \u00deannig er hin \u00fer\u00edskipta saga ritu\u00f0 \u00ed hj\u00f6rtu okkar, sagan sem byrjar vel, lei\u00f0ir okkur um \u00feroskastigu l\u00edfsins og endar me\u00f0 sigri. Til hamingju me\u00f0 l\u00edfi\u00f0!<\/p>\n<p>Til hamingju me\u00f0 a\u00f0 hafa \u00e1tt \u00feennan g\u00f3\u00f0a mann a\u00f0 sem Eyvindur Gar\u00f0ar Fri\u00f0geirsson var. Gu\u00f0 blessi minningu hans og Gu\u00f0 blessi okkur sem enn erum \u00e1 l\u00edfsveginum, erum enn\u00a0 \u00ed mi\u00f0kaflanum \u00e1 svi\u00f0i s\u00f6gunnar g\u00f3\u00f0u. Sigurinn er \u00ed h\u00f6fn!<\/p>\n<p>D\u00fdr\u00f0 s\u00e9 Gu\u00f0i, f\u00f6\u00f0ur og syni og heil\u00f6gum anda. Svo sem var \u00ed upphafi er og ver\u00f0ur um aldir alda.<\/p>\n<p>Amen.<\/p>\n<p>\u00c9g flyt ykkur s\u00e9rstakar kve\u00f0jur fr\u00e1 Svanhildi Gu\u00f0mundsd\u00f3ttur, gamalli vinkonu Eyvindar og Gunnhildi Vigd\u00edsi d\u00f3ttur hennar og fj\u00f6lskyldu.<\/p>\n<p>Tilkynningar:<\/p>\n<p>Jar\u00f0sett \u00ed Fossvogi<\/p>\n<p>Erfidrykkja<\/p>\n<p>Birting r\u00e6\u00f0unnar<\/p>\n<p><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2013\/12\/salmaskra-eyvindur.pdf\">Salmaskra Eyvindur<\/a><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson Minningaror\u00f0 Eyvindur Gar\u00f0ar Fri\u00f0geirsson 1929-2013 verkama\u00f0ur Grandavegi 39b, Reykjav\u00edk. \u00datf\u00f6r fr\u00e1 Neskirkju 6. desember 2013 kl.13.<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[4],"tags":[],"class_list":["post-949","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-greinar-og-hugvekjur-articles"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/949","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=949"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/949\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=949"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=949"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=949"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}