{"id":925,"date":"2013-11-26T14:08:22","date_gmt":"2013-11-26T14:08:22","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/?p=925"},"modified":"2013-11-26T14:08:22","modified_gmt":"2013-11-26T14:08:22","slug":"margret-laufey-ingimundardottir-1926-2013","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=925","title":{"rendered":"Margr\u00e9t Laufey Ingimundard\u00f3ttir 1926-2013"},"content":{"rendered":"<p><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2013\/11\/margret-laufey.png\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignleft size-full wp-image-926\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2013\/11\/margret-laufey.png\" alt=\"Margret Laufey\" width=\"180\" height=\"262\" \/><\/a>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson<\/p>\n<p>Minningaror\u00f0<\/p>\n<p><b>Margr\u00e9t Laufey Ingimundard\u00f3ttir<\/b><\/p>\n<p>1926-2013<\/p>\n<p>fv. starfsma\u00f0ur Hreyfils<\/p>\n<p>\u00datf\u00f6r fr\u00e1 Neskirkju \u00feri\u00f0judaginn 26. n\u00f3vember kl. 13.<\/p>\n<p>R\u00e6\u00f0una er h\u00e6gt a\u00f0 hlusta \u00e1 h\u00e9r fyrir ne\u00f0an og lesa.<\/p>\n<p><!--more--><\/p>\n\n<p>L\u00edfi\u00f0 er fer\u00f0alag.<\/p>\n<p>\u00c9g byrja reisu m\u00edn,<br \/>\nJes\u00fas, \u00ed nafni \u00fe\u00edn,<br \/>\nh\u00f6ndin \u00fe\u00edn helg mig lei\u00f0i,<br \/>\n\u00far h\u00e6ttu allri grei\u00f0i.<br \/>\nJes\u00fas m\u00e9r fylgi \u00ed fri\u00f0i<br \/>\nme\u00f0 f\u00f6gru engla li\u00f0i.<br \/>\n(Sb 493)<\/p>\n<p>S\u00e9ra Hallgr\u00edmur orti margt \u00e1 l\u00edfslei\u00f0inni og \u00fear me\u00f0 \u00feessa fer\u00f0ab\u00e6n.<\/p>\n<p>L\u00edfi\u00f0 er vegfer\u00f0 fr\u00e1 v\u00f6ggu til grafar. Vi\u00f0 r\u00e1\u00f0um sumu \u00e1 \u00feeirri fer\u00f0 en anna\u00f0 er h\u00e1\u00f0 tilviljunum og atvikum sem vi\u00f0 h\u00f6fum l\u00edti\u00f0 um a\u00f0 segja.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 kve\u00f0jum h\u00e9r \u00ed dag konu sem loki\u00f0 hefur f\u00f6r sinni um l\u00edfsins veg.<\/p>\n<p>Margr\u00e9t Laufey f\u00e6ddist \u00ed H\u00f3lakoti \u00e1 Stafnesi 23. n\u00f3vember 1926 sem er \u00e1 Rosmhvalanesi milli Sanger\u00f0is og Hafna. H\u00fan anda\u00f0ist \u00e1 Dvalaheimilinu H\u00f6f\u00f0a Akranesi 18. n\u00f3vember s\u00ed\u00f0astli\u00f0in.<\/p>\n<p>\u00c1 17. og 18. \u00f6ld var Stafnes fj\u00f6lmennasta verst\u00f6\u00f0 \u00e1 Su\u00f0urnesjum.\u00a0N\u00e6rri Stafnesi er Hvalsnes \u00fear sem s\u00e9ra Hallgr\u00edmur \u00fej\u00f3na\u00f0i sinni fyrstu s\u00f3kn \u00e1 prests\u00e6vi sinni. \u00dear orti hann margt b\u00e6\u00f0i veraldlegt og andlegt \u00e1\u00f0ur en hann f\u00e9kk veitingu fyrir Saurb\u00e6 \u00e1 Hvalfjar\u00f0arstr\u00f6nd \u00fear sem hann \u00fej\u00f3na\u00f0i til \u00e6viloka.<\/p>\n<p>Foreldrar hennar voru J\u00f3n\u00edna Benedikta Eyleifsd\u00f3ttir f. \u00ed Glaumb\u00e6 \u00ed Mi\u00f0neshreppi 22. j\u00fan\u00ed 1897, d. 24. mars 1993 og Ingimundur Bernhar\u00f0sson f. \u00e1 Stokkseyri 23. j\u00fal\u00ed 1893 d. 1. desember 1968.<\/p>\n<p>Systkini Margr\u00e9tar samm\u00e6\u00f0ra voru<\/p>\n<p>Henning Kristinn Kjartansson, f. 3 desember 1919, d\u00e1inn 8.apr\u00edl 2010 og<\/p>\n<p>Hulda Reynhl\u00ed\u00f0 J\u00f6rundsd\u00f3ttir f\u00e6dd 1. n\u00f3vember 1921 d\u00e1inn 1. n\u00f3vember 2007.<\/p>\n<p>Alsystkini Margr\u00e9tar eru<\/p>\n<p>J\u00f3runn Ingimundard\u00f3ttir f. 9. okt\u00f3ber 1923 d. 12. jan\u00faar 2007,<\/p>\n<p>Sesselja Ingimundard\u00f3ttir f. 9 .\u00e1g\u00fast 1932, og<\/p>\n<p>Bernhar\u00f0 Ingimundarson f. 30 okt\u00f3ber 1935.<\/p>\n<p>Tv\u00f6 s\u00ed\u00f0astnefndu lifa hana.<\/p>\n<p>\u00c1ri\u00f0 1952 giftist Margr\u00e9t Einari B\u00e6rings \u00d3lafssyni rafv\u00e9lavirkja f. 6. okt\u00f3ber 1930 d. 17. j\u00fan\u00ed 1965. Foreldrar hans voru \u00d3lafur Matth\u00edas Sam\u00faelsson fr\u00e1 Skjaldarbjarnarv\u00edk \u00e1 Str\u00f6ndum f. 21. ma\u00ed 1890, d. 17. \u00e1g\u00fast 1960 og Gu\u00f0mund\u00edna Einarsd\u00f3ttir fr\u00e1 Dynjanda \u00ed Grunnav\u00edkurhreppi f. 15. desember 1901, d. 2. \u00e1g\u00fast 1987.<\/p>\n<p>Barn Einars og Margr\u00e9tar er Sigur\u00f0ur Hergeir f. 8. \u00e1g\u00fast 1957. Hann var giftur Ingu Sigur\u00f0ard\u00f3ttur f. 30. j\u00fan\u00ed 1957. B\u00f6rn \u00feeirra eru \u00c6var \u00de\u00f3r f. 28. okt\u00f3ber 1986 og Salka Margr\u00e9t f.3. september 1992. Samb\u00fdliskona Sigur\u00f0ar er Hrafnhildur Stella Sigur\u00f0ard\u00f3ttir f. 18. desember 1956.<\/p>\n<p>Margr\u00e9t \u00f3lst upp \u00ed Vestmannaeyjum til 16 \u00e1ra aldurs. H\u00fan stunda\u00f0i \u00fdmis st\u00f6rf, var \u00ed r\u00e1\u00f0smennsku \u00e1 Kirkjub\u00e6jarklaustri og \u00e1 Bessast\u00f6\u00f0um \u00ed t\u00ed\u00f0 Sveins Bj\u00f6rnssonar.<\/p>\n<p>\u00c1ri\u00f0 1947 veiktist h\u00fan af berklum. N\u00e6stu \u00e1rin dvaldi h\u00fan \u00e1 V\u00edfilsst\u00f6\u00f0um og Reykjalundi. \u00c1 V\u00edfilst\u00f6\u00f0um kyntist h\u00fan eiginmanni s\u00ednum Einari B\u00e6rings. \u00deegar h\u00fan n\u00e1\u00f0i heilsu um 1952 h\u00f3f h\u00fan st\u00f6rf \u00e1 s\u00edmanum hj\u00e1 Hreyfli og starfa\u00f0i \u00fear til \u00e1rsins 1987 er h\u00fan r\u00e9\u00f0i sig til starfa hj\u00e1 Hitaveitu Reykjav\u00edkur og vann \u00fear \u00feanga\u00f0 til h\u00fan l\u00e9t af st\u00f6rfum 1993, \u00fe\u00e1 67 \u00e1ra g\u00f6mul.<\/p>\n<p>V\u00edfilssta\u00f0ir voru krossg\u00f6tur \u00ed l\u00edfi hennar og margra annarra. Sp\u00edtalinn stendur \u00e1 f\u00f6grum sta\u00f0 milli gr\u00f3inna h\u00e6\u00f0a \u00ed Gar\u00f0ab\u00e6 vi\u00f0 samnefnt vatn en sta\u00f0urinn er kenndur vi\u00f0 V\u00edfil sem var annar af tveimur nafngreindum \u00fer\u00e6lum Ing\u00f3lfs Arnarsonar landn\u00e1msmanns. A\u00f0 s\u00f6gn Landn\u00e1mab\u00f3kar fundu \u00fer\u00e6larnir Karli og V\u00edfill \u00f6ndvegiss\u00falur Ing\u00f3lfs vi\u00f0 Arnarhvol \u00ed Reykjav\u00edk. Samkv\u00e6mt Landn\u00e1mu hlaut V\u00edfill s\u00ed\u00f0ar frelsi og setti ni\u00f0ur b\u00fa sitt a\u00f0 V\u00edfilsst\u00f6\u00f0um.<\/p>\n<p>V\u00edfissta\u00f0ir voru opna\u00f0ir \u00e1 n\u00fd n\u00fa um helgina til a\u00f0 hj\u00fakra \u00f6ldru\u00f0um en sta\u00f0urinn hefur veri\u00f0 \u00f6rlagavaldur \u00ed l\u00edfi margra \u00cdslendinga um \u00e1ratuga skei\u00f0. Berklar voru mikil \u00f3gn \u00e1 s\u00ednum t\u00edma og l\u00f6g\u00f0u marga manneskjuna \u00ed valinn. Sumir n\u00e1\u00f0u \u00fe\u00f3 heilsu fyrir hj\u00e1lp l\u00e6kna og hj\u00fakrunar og fyrir l\u00e6kningarm\u00e1tt eigin l\u00edkama og s\u00e1lar.<\/p>\n<p>\u00c1 V\u00edfisst\u00f6\u00f0um hitti Margr\u00e9t Einar B\u00e6rings \u00d3lafsson. Hann var f\u00e6ddur \u00ed Furufir\u00f0i \u00e1 Str\u00f6ndum en \u00f3lst upp \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i eftir a\u00f0 foreldrar hans brug\u00f0u b\u00fai og settust \u00fear a\u00f0 eins og margt f\u00f3lk af Str\u00f6ndum ger\u00f0i \u00feegar t\u00e6kif\u00e6ri til vinnu jukust \u00e1 \u00fe\u00e9ttb\u00fdlli st\u00f6\u00f0um. \u00c9g man vel eftir systur Einars, Krist\u00ednu, lj\u00f3sm\u00f3\u00f0ur \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i, myndarlegri konu sem gusta\u00f0i af, Kristmundi manni hennar og b\u00f6rnum \u00feeirra.<\/p>\n<p>Margr\u00e9t og Einar gengu \u00ed hj\u00f3naband 5. j\u00fal\u00ed 1952. Einar var l\u00e6r\u00f0ur rafv\u00e9lavirki en vann sem bifrei\u00f0asmi\u00f0ur, var verklaginn og vandvirkur fagma\u00f0ur. Hann vann um t\u00edma vi\u00f0 Andak\u00edls\u00e1rvirkjun [Sj\u00e1 lei\u00f0r\u00e9ttingu ne\u00f0anm\u00e1ls]. Hann l\u00e9st \u00far hjarta\u00e1falli 17. j\u00fan\u00ed 1965, \u00e1 35. aldurs\u00e1ri, \u00f6llum harmdau\u00f0i.<\/p>\n<p>Margr\u00e9t bj\u00f3 alla t\u00ed\u00f0 ein eftir a\u00f0 hafa misst Einar og starfa\u00f0i lengst af \u00e1 s\u00edmanum hj\u00e1 Hreyfli uns h\u00fan t\u00f3k s\u00e9r hv\u00edld fr\u00e1 vaktavinnu og h\u00f3f st\u00f6rf hj\u00e1 Hitaveitu Reykjav\u00edkur.<\/p>\n<p>Sigur\u00f0ur minnist foreldra sinna af hl\u00fdju og \u00fe\u00f6kk. Hann var \u00e1 8 \u00e1ra er fa\u00f0ir hans l\u00e9st en mamma var honum allt upp fr\u00e1 \u00fev\u00ed og reyndist honum \u00e6t\u00ed\u00f0 g\u00f3\u00f0 m\u00f3\u00f0ir og fr\u00e1b\u00e6r fyrirmynd, heil og s\u00f6nn kona.<\/p>\n<p>Eftir a\u00f0 Einar f\u00e9ll fr\u00e1 keypti h\u00fan s\u00e9r \u00edb\u00fa\u00f0i \u00ed Fellsm\u00fala \u00ed Hreyfilsblokkinni svonefndu. H\u00fan flutti sig s\u00ed\u00f0ar um set og keypti \u00edb\u00fa\u00f0 \u00ed lyftuh\u00fasi a\u00f0 Ei\u00f0ism\u00fdri 30 en \u00fe\u00e1 voru stigarnir \u00ed Fellsm\u00falanum farnir a\u00f0 reyna \u00e1 \u00fereki\u00f0. S\u00ed\u00f0ustu 4 \u00e1r dvaldi h\u00fan \u00e1 Hj\u00fakrunarheimilinu H\u00f6f\u00f0a \u00e1 Akranesi en \u00fear \u00ed b\u00e6 bj\u00f3 Sigur\u00f0ur sonur hennar til skamms t\u00edma en b\u00fdr n\u00fa \u00ed Hafnarfir\u00f0i. \u00c1 H\u00f6f\u00f0a naut h\u00fan g\u00f3\u00f0rar umhyggju starfsf\u00f3lks sem \u00feakka\u00f0 er fyrir og s\u00e9rstaklega ber a\u00f0 \u00feakka Mundu fr\u00e6nku Einars heitins sem \u00fear starfar.<\/p>\n<p>Margr\u00e9t Laufey var \u00f3breytt al\u00fe\u00fd\u00f0ukona eins og sonurinn or\u00f0a\u00f0i \u00fea\u00f0 \u00ed m\u00edn eyru, var gla\u00f0lynd og g\u00f3\u00f0 manneskja, sem var vinur vina sinna og hugsa\u00f0i einkar vel um son sinn alla t\u00ed\u00f0. Vinkonur hennar er n\u00fa fallnar fr\u00e1 og s\u00ed\u00f0ust \u00feeirra var Fj\u00f3la Sigur\u00f0ard\u00f3ttir, \u00e6skuvinkona hennar \u00far Eyjum, sem l\u00e9st 10 d\u00f6gum \u00e1 undan Margr\u00e9ti. Gu\u00f0laugi, eftirlifandi eigimanni Fj\u00f3lu, er h\u00e9r me\u00f0 \u00feakka\u00f0ur stu\u00f0ningur og hj\u00e1lpsemi vi\u00f0 Margr\u00e9ti \u00ed gegnum \u00e1rin. Stella systir Margr\u00e9tar var henni n\u00e1in en h\u00fan er n\u00fdb\u00fain a\u00f0 missa mann sinn, Gu\u00f0mund og er \u00feeim einnig \u00feakka\u00f0 allt gott \u00ed gegnum t\u00ed\u00f0ina.<\/p>\n<p>Kve\u00f0jur hafa borist fr\u00e1 Ingu J\u00f3nu og S\u00e6vari sem st\u00f6dd eru erlendis og Ingu Benn\u00fd sem b\u00fdr \u00ed Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0 \u00e1samt samb\u00fdlismanni.<\/p>\n<p>Margr\u00e9t var reglus\u00f6m kona sem kenndi syni s\u00ednum g\u00f3\u00f0a si\u00f0i. Hann minnist \u00feess a\u00f0 hafa fari\u00f0 \u00ed KFUM sem drengur og l\u00e6rt b\u00e6nir og vers heima.<\/p>\n<p>H\u00fan haf\u00f0i yndi af a\u00f0 fer\u00f0ast og naut \u00feess a\u00f0 taka sn\u00faning \u00e1 dansg\u00f3lfi \u00feegar t\u00e6kif\u00e6ri gafst. H\u00fan f\u00f3r v\u00ed\u00f0a innanlands og margar fer\u00f0ir til Sp\u00e1nar \u00ed s\u00f3lina.<\/p>\n<p>H\u00fan f\u00f3r \u00ed leikh\u00fas me\u00f0 Sigur\u00f0 \u00feegar hann var drengur og kynnti honum listir og menningu.<\/p>\n<p>H\u00fan tr\u00fa\u00f0i \u00e1 l\u00edf eftir dau\u00f0ann og treysti \u00fev\u00ed a\u00f0 h\u00fan og \u00e1stvinir hennar v\u00e6ru \u00ed hendi alm\u00e1ttugs Gu\u00f0s.<\/p>\n<p>H\u00fan er kv\u00f6dd h\u00e9r \u00ed Nesirkju me\u00f0 \u00fe\u00f6kk fyrir allt hi\u00f0 g\u00f3\u00f0a sem \u00ed henni bj\u00f3.<\/p>\n<p>Sem s\u00edmakona \u00e1 Hreyfli trygg\u00f0i h\u00fan f\u00f3lki fer\u00f0ir \u00e1 milli sta\u00f0a. L\u00edfi\u00f0 er fer\u00f0alag og \u00ed einum s\u00f6ngtexta eftir \u00deorvald heitinn \u00deorsteinsson, sem er n\u00fdul\u00e1tinn, langt um aldur fram, vi\u00f0 lag Megasar, segir \u00ed versi um foreldrabasl:<\/p>\n<p>\u00de\u00e1 manstu a\u00f0 l\u00edfi\u00f0 er leigub\u00edll.<\/p>\n<p>Sk\u00e1ldi\u00f0 T\u00f3mas Gu\u00f0mundsson orti:<\/p>\n<p>Tilvera okkar er undarlegt fer\u00f0alag.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 erum gestir og h\u00f3tel okkar er j\u00f6r\u00f0in.<\/p>\n<p>Sk\u00e1ldin or\u00f0a tilvist okkar \u00e1 margv\u00edslegan h\u00e1tt og \u00fea\u00f0 er n\u00e6rt\u00e6k mynd a\u00f0 l\u00edkja l\u00edfinu vi\u00f0 fer\u00f0alag.<\/p>\n<p>\u00cd fr\u00e6gum, d\u00f6nskum j\u00f3las\u00e1lmi, \u00ed \u00fe\u00fd\u00f0ingu Matth\u00edasar Jochumssonar, segir:<\/p>\n<p>F\u00f6gur er foldin,<br \/>\nhei\u00f0ur er Gu\u00f0s himinn,<br \/>\nind\u00e6l p\u00edlagr\u00edms \u00e6vig\u00f6ng.<\/p>\n<p>\u00dearna er enn ein myndin af fer\u00f0alagi um l\u00edfsins veg. Sk\u00e1ldi\u00f0 heldur \u00e1fram me\u00f0 myndl\u00edkingu s\u00edna og segir:<\/p>\n<p>Kynsl\u00f3\u00f0ir koma,<br \/>\nkynsl\u00f3\u00f0ir fara,<br \/>\nallar s\u00f6mu \u00e6vig\u00f6ng.<br \/>\nGleymist \u00fe\u00f3 aldrei<br \/>\neil\u00edfa lagi\u00f0<br \/>\nvi\u00f0 p\u00edlagr\u00edmsins gle\u00f0is\u00f6ng.<\/p>\n<p>\u00cd lokaversinu er horft til j\u00f3la:<\/p>\n<p>Fj\u00e1rhir\u00f0um fluttu<br \/>\nfyrst \u00feann s\u00f6ng Gu\u00f0s englar,<br \/>\nuna\u00f0ss\u00f6ng, er aldrei \u00fever:<br \/>\nFri\u00f0ur \u00e1 foldu,<br \/>\nfagna \u00fe\u00fa, ma\u00f0ur,<br \/>\nfrelsari heimsins f\u00e6ddur er.<\/p>\n<p>Gott er a\u00f0 horfa til frelsarans \u00feegar \u00e1stvinur er kvaddur sem treysti forsj\u00f3n hans og fylgd um l\u00edfsins veg.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 kve\u00f0jum g\u00f3\u00f0a manneskju og felum hana honum sem f\u00e6ddist \u00e1 j\u00f3lum og lifir a\u00f0 eil\u00edfu.<\/p>\n<p>\u00c9g byrja reisu m\u00edn,<br \/>\nJes\u00fas, \u00ed nafni \u00fe\u00edn,<br \/>\nh\u00f6ndin \u00fe\u00edn helg mig lei\u00f0i,<br \/>\n\u00far h\u00e6ttu allri grei\u00f0i.<br \/>\nJes\u00fas m\u00e9r fylgi \u00ed fri\u00f0i<br \/>\nme\u00f0 f\u00f6gru engla li\u00f0i.<br \/>\n(Sb 493)<\/p>\n<p>Blessu\u00f0 s\u00e9 minning Margr\u00e9tar Laufeyjar Ingimundard\u00f3ttur og Gu\u00f0 blessi \u00feig. Amen.<\/p>\n<p>&#8211; &#8211; &#8211;<\/p>\n<p><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2013\/11\/salmaskra-margrc3a9t-laufey.pdf\">Salmaskra Margr\u00e9t Laufey<\/a><\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Einar B\u00e6rings var sk\u00edr\u00f0ur \u00feessu nafni me\u00f0 essi \u00ed lok s\u00ed\u00f0ara nafns en \u00feannig er hann ekki skr\u00e1\u00f0ur \u00ed legsta\u00f0askr\u00e1 og \u00fev\u00ed las prestur ekki essi\u00f0 me\u00f0 \u00ed r\u00e6\u00f0unni en \u00fev\u00ed hefur n\u00fa veri\u00f0 b\u00e6tt vi\u00f0 nafn hans \u00fear sem hans er geti\u00f0 \u00ed r\u00e6\u00f0unni.<\/p>\n<p>Einnig skal \u00fea\u00f0 lei\u00f0r\u00e9tt a\u00f0 hann starfa\u00f0i \u00ed Adak\u00edls\u00e1rvirkjun en ekki Mj\u00f3lk\u00e1rvirkjun eins og upp var gefi\u00f0.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson Minningaror\u00f0 Margr\u00e9t Laufey Ingimundard\u00f3ttir 1926-2013 fv. starfsma\u00f0ur Hreyfils \u00datf\u00f6r fr\u00e1 Neskirkju \u00feri\u00f0judaginn 26. n\u00f3vember kl. 13. R\u00e6\u00f0una er h\u00e6gt a\u00f0 hlusta \u00e1 h\u00e9r fyrir ne\u00f0an og lesa.<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[4],"tags":[],"class_list":["post-925","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-greinar-og-hugvekjur-articles"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/925","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=925"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/925\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=925"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=925"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=925"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}