{"id":841,"date":"2013-10-24T14:21:39","date_gmt":"2013-10-24T14:21:39","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/?p=841"},"modified":"2013-10-24T14:21:39","modified_gmt":"2013-10-24T14:21:39","slug":"loftur-loftsson-1923-2013","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=841","title":{"rendered":"Loftur Loftsson 1923-2013"},"content":{"rendered":"<p><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2013\/10\/loftur-loftsson.png\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignleft size-full wp-image-842\" alt=\"Loftur Loftsson\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2013\/10\/loftur-loftsson.png\" width=\"210\" height=\"260\" \/><\/a>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Minningaror\u00f0<\/p>\n<p><b>Loftur Loftsson<\/b><\/p>\n<p>1923-2013<\/p>\n<p>efna- og matv\u00e6laverkfr\u00e6\u00f0ingur<\/p>\n<p>Kleppsvegi 48<\/p>\n<p>\u00datf\u00f6r fr\u00e1 Neskirkju 24. okt\u00f3ber 2013 kl. 13<\/p>\n<p>Jar\u00f0sett \u00ed Gufunesi<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>\u00de\u00fa getur lesi\u00f0 r\u00e6\u00f0una h\u00e9r fyrir ne\u00f0an og einnig hlusta\u00f0 \u00e1 hana.<\/p>\n<p>Ef \u00fe\u00fa s\u00e9r\u00f0 prentvillu\/r, stafav\u00edxl e\u00f0a amb\u00f6gu\/r \u00fe\u00e6tti m\u00e9r v\u00e6nt um a\u00f0 f\u00e1 \u00e1bendingu fr\u00e1 \u00fe\u00e9r \u00ed athugasemd ne\u00f0anm\u00e1ls \u00ed \u00fear til ger\u00f0um d\u00e1lki.<\/p>\n<p><!--more--><\/p>\n\n<p><strong>Fri\u00f0ur<\/strong>\u00a0Gu\u00f0s s\u00e9 me\u00f0 ykkur.<\/p>\n<p>Hver erum vi\u00f0? Hva\u00f0 gerist innra me\u00f0 okkur? Hver eru tengsl l\u00edkama, s\u00e1lar og anda?<\/p>\n<p>Vi\u00f0 erum meira en \u00fea\u00f0 sem heilinn hugsar og gerir. Heilinn er merkilegt l\u00edff\u00e6ri en sagt er a\u00f0 st\u00e6rstur hluti hans fari \u00ed a\u00f0 l\u00e1ta okkur standa uppr\u00e9tt! \u00dea\u00f0 kostar miki\u00f0 a\u00f0 vera <i>homo erectus<\/i>. \u00cd okkur eru \u00f3r\u00e6\u00f0 \u00f6fl, kenndir, hvatir og hneig\u00f0ir. Vi\u00f0 erum \u00f6ll me\u00f0 me\u00f0vitund. Svo er l\u00edka til undirme\u00f0vitund sem svo er k\u00f6llu\u00f0 og \u00fear fer \u00fdmislegt fram sem vi\u00f0 skiljum &#8211; og skiljum ekki. Vi\u00f0 erum ekki alltaf sj\u00e1lfr\u00e1\u00f0. Innra me\u00f0 okkur gerist margt sem st\u00fdrir vi\u00f0br\u00f6g\u00f0um, vi\u00f0horfum og jafnvel l\u00edfsstefnu.<\/p>\n<p>Hver er sinnar g\u00e6fu smi\u00f0ur, segir \u00ed m\u00e1lt\u00e6kinu. En er \u00fea\u00f0 r\u00e9tt? Hverju r\u00e1\u00f0um vi\u00f0 og hverju r\u00e1\u00f0a hin innri \u00f6fl, huldu \u00f6fl \u00ed s\u00e1linni &#8211; og tilverunni?<\/p>\n<p>Vi\u00f0 h\u00f6f\u00f0um ekkert um \u00fea\u00f0 a\u00f0 segja a\u00f0 vi\u00f0 ur\u00f0um til. Engu m\u00e1tti muna a\u00f0 vi\u00f0 hef\u00f0um ekki or\u00f0i\u00f0 til. En vi\u00f0 fengum vinninginn. L\u00edfi\u00f0 er undursamleg gj\u00f6f, verkefni til a\u00f0 vinna \u00far. En hvernig vinnum vi\u00f0 \u00far l\u00edfinu?<\/p>\n<p>Loftur hlaut l\u00edfi\u00f0 a\u00f0 gj\u00f6f. Hann \u00e1tti g\u00f3\u00f0a foreldra og f\u00e6ddist inn \u00ed g\u00f3\u00f0ar f\u00e9lagslegar a\u00f0st\u00e6\u00f0ur.<\/p>\n<p>Hann f\u00e6ddist 2. okt\u00f3ber 1923. \u00de\u00e1 var a\u00f0 baki v\u00e6tusumar ef marka m\u00e1 \u00feessa f\u00e6rslu ve\u00f0urfr\u00e6\u00f0ings fr\u00e1 \u00fev\u00ed \u00ed s\u00ed\u00f0asta m\u00e1nu\u00f0i \u00fear sem hann fjalla\u00f0i um n\u00fdli\u00f0i\u00f0 sumar:<\/p>\n<p>\u201eUm er a\u00f0 r\u00e6\u00f0a eitt allra versta sumar um langt skei\u00f0 og telst \u00fea\u00f0 \u00ed s\u00f6gulegu samhengi vera hi\u00f0 fimmta til sj\u00f6tta versta fr\u00e1 \u00e1rinu 1923.\u201c<\/p>\n<p>En hver man votvi\u00f0ras\u00f6m sumur innan um \u00f6ll hin s\u00f3lr\u00edku?<\/p>\n<p>Loftur f\u00e6ddist \u00ed Fiskh\u00f6llinni \u00ed Reykjav\u00edk og l\u00e9st \u00e1 hj\u00fakrunarheimilinu Eir d. 14. okt\u00f3ber 2013.<\/p>\n<p>Loftur var sonur Lofts Loftssonar, \u00fatger\u00f0armanns f. 15.02.1884 d. 24.11.1960 og Ingveldar \u00d3lafsd\u00f3ttur fr\u00e1 \u00dej\u00f3rs\u00e1rt\u00fani\u00a0 f. 01.09.1901 d. 26.02.1995.<\/p>\n<p>Systkyni Lofts voru \u00d3lafur f. 22.12.1920 d. 03.06.2001,<\/p>\n<p>Loftur f. 30.05.1922 d. 19.04.1923, sem l\u00e9st t\u00e6plega eins \u00e1rs,<\/p>\n<p>Inga Hei\u00f0a (Gigga) f. 13.04.1925 d.1993,<\/p>\n<p>(Valger\u00f0ur) R\u00f3sa f. 13.11.1930, og<\/p>\n<p>J\u00fal\u00edus Huxley (Eyj\u00f3lfur) f. 30.04.1941 d. 16.09.2008.<\/p>\n<p>Loftur \u00e1tti g\u00f3\u00f0a daga sem barn \u00ed Reykjav\u00edk. \u00de\u00e1 var \u00f6ldin \u00f6nnur en n\u00fa er &#8211; og \u00fe\u00f3. Heimskreppan skall \u00e1 1929 og st\u00f3\u00f0 \u00ed nokkur \u00e1r og h\u00e9r var f\u00e1tt um f\u00edna dr\u00e6tti \u00ed atvinnul\u00edfi fyrr en a\u00f0 lokinni Annarri heimsstyrj\u00f6ldinni og \u00fe\u00e1 opnu\u00f0ust m\u00f6rgu f\u00f3lki dyr til mennta \u00ed henni Amer\u00edku. N\u00fa er aftur \u00fer\u00f6ngur efnahagur heimsbygg\u00f0ar og ekki ver\u00f0ur enn s\u00e9\u00f0 fyrir endann \u00e1 \u00fev\u00ed \u00e1standi. En l\u00edfi\u00f0 heldur \u00e1fram.<\/p>\n<p>S\u00f6gur af bernskubrekum fylgdu Lofti enda var hann alla t\u00ed\u00f0 forvitinn og upp\u00e1t\u00e6kjasamur, leitandi v\u00edsindama\u00f0ur.<\/p>\n<p>Ein sagan er um a\u00f0 Loftur var a\u00f0 reyna sannf\u00e6ra \u00d3la st\u00f3ra br\u00f3\u00f0ur sinn um a\u00f0 kettir g\u00e6tu anda\u00f0 \u00ed kafi. \u00deeir voru \u00e1 sveitab\u00e6 r\u00e9tt hj\u00e1 \u00dej\u00f3rs\u00e1rt\u00fani. Loftur d\u00fdf\u00f0i heimilskettinum \u00ed drykkjarvatn sta\u00f0arins en l\u00e6tin \u00ed kisa n\u00e1\u00f0u eyrum heimamanna sem bj\u00f6rgu\u00f0u honum. Hin sagan var um annan k\u00f6tt sem Loftur setti \u00e1 heimatilb\u00fana fallhl\u00edf og henti \u00fat um gluggann \u00e1 Vesturg\u00f6tunni. Tilraunin t\u00f3kst \u00feokkalega nema a\u00f0 \u00fev\u00ed leyti a\u00f0 framhj\u00e1 gekk ma\u00f0ur sem s\u00ed\u00f0ar st\u00f3\u00f0 vi\u00f0 \u00fatidirnar me\u00f0 k\u00f6ttinn og fallhl\u00edfina \u00e1 h\u00f6f\u00f0i s\u00e9r.<\/p>\n<p>Loftur naut almennrar sk\u00f3lag\u00f6ngu \u00ed Reykjav\u00edk, var\u00f0 st\u00fadent fr\u00e1 MR 1945. Hann lauk B. Eng. \u00ed efnaverkfr\u00e6\u00f0i fr\u00e1 McGill h\u00e1sk\u00f3lanum \u00ed Kanada 1952 og MS-pr\u00f3fi \u00ed matv\u00e6laverkfr\u00e6\u00f0i fr\u00e1 MIT \u00ed Cambridge \u00ed Massachusets 1954. \u00c1ri\u00f0 1955 h\u00f3f hann st\u00f6rf hj\u00e1 I\u00f0na\u00f0arm\u00e1lastofnun \u00cdslands og vann \u00fear n\u00e6stu 6 \u00e1rin en \u00fe\u00e1 var\u00f0 hann forst\u00f6\u00f0uma\u00f0ur t\u00e6knideildar Sambands \u00edsl. fiskframlei\u00f0enda (S\u00cdF 1961-1993) \u00fear sem hann starfa\u00f0i \u00ed yfir 30 \u00e1r. Hann lag\u00f0i miki\u00f0 a\u00f0 m\u00f6rkum vi\u00f0 \u00fer\u00f3un fiskverkunar, hanna\u00f0i fiskverkunarh\u00fas og vinnuferla, breytti fiskverkun \u00ed landinu og j\u00f3k ver\u00f0m\u00e6ti aflans sem s\u00edfellt st\u00e6kkandi og \u00fer\u00f3a\u00f0ri b\u00e1tafloti bar a\u00f0 landi.<\/p>\n<p>Sk\u00f6mmu eftir heimkomuna fr\u00e1 Amer\u00edku, 1958, kv\u00e6ntist hann Rannveigu G. \u00c1g\u00fastsd\u00f3ttur fr\u00e1 \u00cdsafir\u00f0i f. 22.04.1925 d. 02.08.1996, b\u00f3kmenntafr\u00e6\u00f0ingi og framkv\u00e6mdastj\u00f3ra Rith\u00f6fundasambands \u00cdslands.<\/p>\n<p>D\u00f3ttir hennar og Gunnars G. Schram og\u00a0 stj\u00fapd\u00f3ttir Lofts er Valger\u00f0ur Gunnarsd\u00f3ttir, sj\u00fakra\u00fej\u00e1lfari og l\u00fd\u00f0heilsufr\u00e6\u00f0ingur f. 26.10.1950 gift Bjarna Dan\u00edelssyni\u00a0 f. 27.02.1949 menntuna-og stj\u00f3rns\u00fdslufr\u00e6\u00f0ingi. B\u00f6rn \u00feeirra eru<\/p>\n<p>D\u00fdrleif D\u00f6gg heimspekingur f. 1970,<\/p>\n<p>Finnur s\u00f6ngvari f. 1973,<\/p>\n<p>Dan\u00edel t\u00f3nsk\u00e1ld og stj\u00f3rnandi f. 1979.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>B\u00f6rn Lofts og Rannveigar eru:<\/p>\n<p>1) Gu\u00f0r\u00ed\u00f0ur bo\u00f0beri og h\u00fasm\u00f3\u00f0ir f. 16.08.1959, gift Matth\u00edasi Boga Hj\u00e1lmt\u00fdssyni, h\u00fasasm\u00ed\u00f0ameistara\u00a0 f. 25.05.1959, b\u00f6rn \u00feeirra eru<\/p>\n<p>a) Loftur Gu\u00f0ni, bifv\u00e9lavirkjameistari\u00a0 f.\u00a0 1980,<\/p>\n<p>b) Margr\u00e9t, h\u00e1rsnyrtir f. 1984 og<\/p>\n<p>c) Rannveig S\u00f3l f. 1997, nemi.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>2) Inga R\u00f3sa myndlistarma\u00f0ur og MA \u00ed menningar- og menntastj\u00f3rnun f. 19.03.1962\u00a0 og<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>3) Loftur, kerfisfr\u00e6\u00f0ingur f.13.02.1965, kv\u00e6ntur Gu\u00f0r\u00fanu Bjarnad\u00f3ttur, t\u00e6kniteiknara. B\u00f6rn \u00feeirra eru.<\/p>\n<p>Linda Huld f. 1988, s\u00e1lfr\u00e6\u00f0ingur og<\/p>\n<p>Loftur f. 1994, nemi og<\/p>\n<p>Le\u00f3 f. 1996, nemi.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>B\u00f6rn Lofts segja f\u00f6\u00f0ur sinn hafa veri\u00f0 h\u00e6gl\u00e1tan mann og h\u00f3gv\u00e6ran. Hann f\u00f3r s\u00e9r aldrei \u00f3\u00f0slega en var gamansamur, \u00f6gn str\u00ed\u00f0inn og ekki fyrir a\u00f0 l\u00e1ta \u00e1 s\u00e9r bera \u00ed margmenni e\u00f0a miki\u00f0 \u00fat \u00e1 vi\u00f0. Rannveig s\u00e1 meir um \u00fe\u00e1 hli\u00f0 samskipta vi\u00f0 umheiminn enda s\u00f3pa\u00f0i a\u00f0 henni alla t\u00ed\u00f0. Hann undir s\u00e9r aftur \u00e1 m\u00f3ti vel me\u00f0 sj\u00e1lfum s\u00e9r og s\u00ednum hug\u00f0arefnum, var d\u00e1l\u00edtill dellukall og miki\u00f0 fyrir gr\u00e6jur, t\u00f3l og t\u00e6ki.<\/p>\n<p>\u00deegar hann var\u00f0 fertugur segja b\u00f6rnin a\u00f0 hann hafi slegi\u00f0 upp einskonar B\u00edtlaballi heima og sett upp appels\u00ednugult tjald \u00ed stofunni. \u00c1 \u00feeim \u00e1rum voru bo\u00f0 fullor\u00f0inna me\u00f0 \u00f6\u00f0rum bl\u00e6 en n\u00fa. \u00de\u00e1 var gjarnan bo\u00f0i\u00f0 upp \u00e1 long-drinks og s\u00edgarettur en ekkert matarkyns og engar \u00edd\u00fdfur en f\u00f3lk dansa\u00f0i heima og naut l\u00edfsins.<\/p>\n<p>Loftur var g\u00e6fur og g\u00f3\u00f0ur ma\u00f0ur, h\u00e6verskur og h\u00f3fsamur. Hann l\u00e6r\u00f0i ungur \u00ed Amer\u00edku og var\u00f0 fyrir margv\u00edslegum \u00e1hrifum af dv\u00f6linni \u00fear. Hann var alla t\u00ed\u00f0 t\u00e6knisinna\u00f0ur og f\u00e9kk s\u00e9r snemma t\u00f6lvu og var alla t\u00ed\u00f0 \u00f3hr\u00e6ddur vi\u00f0 n\u00fdjunga. \u00deegar \u00e6ttfr\u00e6\u00f0i var\u00f0 a\u00f0gengileg \u00ed t\u00f6lvum og \u00e1 netinu s\u00f6kkti hann s\u00e9r ni\u00f0ur \u00ed hana svo d\u00e6mi s\u00e9 teki\u00f0.<\/p>\n<p>Hann var alinn upp \u00e1 efnaheimili \u00e1 Fj\u00f6lnisvegi 16 en fa\u00f0ir hans var umsvifamikill \u00fatger\u00f0arma\u00f0ur \u00e1 s\u00ednum t\u00edma, fyrst \u00e1 Akranesi, svo \u00ed Reykjav\u00edk og Keflav\u00edk. Foreldrar hans fluttu til Amer\u00edku \u00e1 fullor\u00f0ins\u00e1rum og bjuggu \u00fear me\u00f0 Huxley syni s\u00ednum en Loftur eldri kom til baka og l\u00e9st h\u00e9r 1960 \u00fe\u00e1 76 \u00e1ra en Ingveldur bj\u00f3 \u00e1fram ytra en h\u00fan var 17 \u00e1rum yngri en hann og l\u00e9st \u00ed Amer\u00edku 1995 \u00e1 94. aldurs\u00e1ri.<\/p>\n<p>Loftur var alla t\u00ed\u00f0 \u00feakkl\u00e1tur fyrir t\u00e6kif\u00e6rin sem hann hlaut \u00ed l\u00edfinu og ekki s\u00edst fyrir n\u00e1mi\u00f0 \u00ed Amer\u00edku og fannst hann \u00e6t\u00ed\u00f0 vera \u00ed \u00feakkarskuld vi\u00f0 l\u00edfi\u00f0 hva\u00f0 \u00fea\u00f0 var\u00f0a\u00f0i. Honum fannst hann \u00feurfa a\u00f0 borga fyrri kynsl\u00f3\u00f0um til baka \u00fea\u00f0 sem \u00fe\u00e6r g\u00e1fu honum. J\u00e1, hvernig v\u00e6ri a\u00f0 menntamenn n\u00fat\u00edmans hugsu\u00f0u eftir s\u00f6mu n\u00f3tum og borgu\u00f0u \u00cdslandi til baka \u00fea\u00f0 sem landi\u00f0 og \u00fej\u00f3\u00f0in g\u00e1fu \u00feeim? \u00c9g leyfi m\u00e9r a\u00f0 bi\u00f0ja l\u00e6knana erlendis a\u00f0 hugsa \u00f6gn um \u00feetta \u00ed kreppunni og l\u00e6knaskortinum h\u00e9r \u00e1 Fr\u00f3ni! Peningar eru ekki allt, hei\u00f0ur og s\u00e6md skipta l\u00edka miklu.<\/p>\n<p>\u00cd seinustu fer\u00f0 sinni til Amer\u00edku veiktist hann og \u00feurfti a\u00f0 fara \u00e1 sp\u00edtala. \u00dear f\u00e9kk hann g\u00f3\u00f0a \u00fej\u00f3nustu og d\u00e1\u00f0ist sj\u00e1lfur a\u00f0 \u00f6llum t\u00e6kjunum sem hann haf\u00f0i \u00e1 sj\u00fakrastofunni en l\u00edklega hlaut hann \u00feessa f\u00ednu \u00fej\u00f3nustu vegna \u00feess a\u00f0 hann var me\u00f0 gott kreditkort \u00ed veskinu s\u00ednu! Svon er n\u00fa g\u00e6\u00f0unum skipt \u00fear \u00ed landi en ver\u00f0ur vonandi aldrei h\u00e9r me\u00f0 sama h\u00e6tti. \u00c9g held a\u00f0 Loftur hef\u00f0i veri\u00f0 m\u00e9r samm\u00e1la um \u00fea\u00f0 enda \u00fe\u00f3tt hann hafi veri\u00f0 Sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0isma\u00f0ur alla t\u00ed\u00f0 en hann kaus \u00fe\u00f3 \u00fdmsa flokka \u00e1 l\u00edfslei\u00f0inni, hugsa\u00f0i sj\u00e1lfst\u00e6tt og l\u00e9t harta\u00f0 r\u00e1\u00f0a.<\/p>\n<p>Loftur og Rannveig bjuggu allan sinn b\u00faskap \u00e1 Kleppsvegi 48 en hann var ekki miki\u00f0 fyrir breytingar og lif\u00f0i lengst af fyrir l\u00ed\u00f0andi stund, safna\u00f0i ekki sj\u00f3\u00f0um heldur miklu fremur g\u00f3\u00f0um minningum og skemmtilegum d\u00f6gum. Hann f\u00f3r oft til Amer\u00edku eftir a\u00f0 Rannveig d\u00f3 og hitti Huxley en \u00feau h\u00f6f\u00f0u fari\u00f0 einu sinni saman \u00feanga\u00f0. Loftur naut \u00feess a\u00f0 spila golf \u00fear en hann var um sextugt er hann h\u00f3f a\u00f0 leika \u00fe\u00e1 \u00ed\u00fer\u00f3tt. Hann eigna\u00f0ist g\u00f3\u00f0a kunningja \u00ed golfinu og f\u00f3r reglulega upp \u00e1 v\u00f6llinn vi\u00f0 Korpu og l\u00e9k \u00fear me\u00f0 \u00f6\u00f0rum \u00f6ldungum, m.a. tengdaf\u00f6\u00f0ur m\u00ednum, J\u00f3hanni Hjartarsyni, sem enn er a\u00f0 \u00e1 93ja aldurs\u00e1ri og fer hringinn enn \u00e1 tveimur jafnflj\u00f3tum.<\/p>\n<p>Eftir a\u00f0 Loftur missti Rannveigu tr\u00falofa\u00f0ist hann Vernu Oktav\u00edu J\u00f3nsd\u00f3ttur og \u00e1ttu \u00feau saman g\u00f3\u00f0a daga \u00fear til h\u00fan l\u00e9st 2011.<\/p>\n<p>Loftur var \u00e1hugasamur um \u00fea\u00f0 sem b\u00f6rnin voru a\u00f0 f\u00e1st vi\u00f0 hverju sinni og var \u00feeim g\u00f3\u00f0ur f\u00e9lagi og vinur. Hann var barnakall, segja \u00feau, og n\u00e1\u00f0i einkar vel til ungbarna. \u00deau kunnu vel vi\u00f0 sig \u00ed fangi afa, s\u00f3ttu \u00ed brosi\u00f0 \u00ed augum hans, skeggi\u00f0, glettinn svipinn og g\u00e6lurnar. B\u00f6rnin muna fer\u00f0inar upp \u00ed sumarb\u00fasta\u00f0inn vi\u00f0 H\u00f3lms\u00e1 vi\u00f0 Gunnarsh\u00f3lma en \u00fear haf\u00f0i hann mj\u00f6g gaman af a\u00f0 hanna hitt og \u00feetta, sm\u00ed\u00f0a og gr\u00f3\u00f0ursetja. Oft f\u00f3ru \u00feau Loftur og Rannveig \u00ed tjald\u00fatilegur me\u00f0 b\u00f6rnin og sko\u00f0u\u00f0u landi\u00f0 me\u00f0 \u00feeim.<\/p>\n<p>\u00deeir fe\u00f0gar og nafnar dundu\u00f0u s\u00e9r lengi vel vi\u00f0 a\u00f0 sm\u00ed\u00f0a og flj\u00faga flugm\u00f3delum um loftin bl\u00e1. Flugflotinn \u00feeirra var\u00f0 stundum fyrir skakkaf\u00f6llum og \u00fe\u00e1 \u00feurfti a\u00f0 laga og l\u00edma l\u00f6ngum stundum. Flug\u00e1huginn fylgdi kannski nafninu en<\/p>\n<p>\u201eNafni\u00f0 kemur fyrir \u00ed Landn\u00e1mu og \u00cdslendinga s\u00f6gum. \u00dea\u00f0 kemur einnig fyrir \u00ed Sturlungu og \u00ed fornbr\u00e9fum \u00e1 15. \u00f6ld. [. . . ] Notkun nafnsins vir\u00f0ist vera bundin vi\u00f0 \u00cdsland.<\/p>\n<p>Uppruni nafnsins er \u00f3viss. \u00dea\u00f0 er ef til vill tengt loft og hefur \u00fe\u00e1 upphaflega merkt \u201ehinn fleygi e\u00f0a upphafni\u201c. Loki Laufeyjarson var kalla\u00f0ur Loftur og hafa \u00fe\u00e1 v\u00e6ntanlega veri\u00f0 haf\u00f0ar \u00ed huga flugfer\u00f0ir hans.\u201c (N\u00f6fn \u00cdslendinga)<\/p>\n<p>Loftur var svol\u00edti\u00f0 hallur undir Loka og \u00fdmislegt \u00ed \u00e1satr\u00fanni en var \u00fe\u00f3 kristinn og \u00ed \u00dej\u00f3\u00f0kirkjunni \u00e1n \u00feess a\u00f0 skilgreina \u00fe\u00e1 afst\u00f6\u00f0u s\u00edna s\u00e9rstaklega. Ef til vill er hinn h\u00e1fleygi og upphafni Kristur hinn eini sanni Loftur tilverunnar.<\/p>\n<p>\u00deegar \u00feessum loft\u00e6fingum fe\u00f0ganna lauk datt hann \u00ed anna\u00f0 \u00e1hugam\u00e1l, golfi\u00f0, og stunda\u00f0i \u00fea\u00f0 af \u00e1str\u00ed\u00f0u me\u00f0an heilsan leyf\u00f0i. Golf \u201eer skv. gu\u00f0fr\u00e6\u00f0i sem \u00e9g hef \u00fer\u00f3a\u00f0 og sett fram, kristilegasta \u00ed\u00fer\u00f3tt, sem til er og helgast af \u00fev\u00ed a\u00f0 kylfingar leika eftir \u00ferauthugsu\u00f0u kerfi sem fyrirgefur klaufaskap. Kerfi\u00f0 er kalla\u00f0 forgj\u00f6f en \u00e6tti au\u00f0vita\u00f0 a\u00f0 heita fyrigefning. Og \u00fev\u00ed spyr \u00e9g kylfinga sem kunna a\u00f0 vera h\u00e9r \u00ed dag: Hva\u00f0 ert \u00fe\u00fa me\u00f0 \u00ed fyrigefningu?\u201c<\/p>\n<p>Fyrirgefning. Sekt og skuld, r\u00e9tt og rangt.<\/p>\n<p>Fyrst vi\u00f0 h\u00f6fum \u00f6ll vitund um r\u00e9tt og rangt, h\u00f6fum samvisku &#8211; og hjarta sem finnur til &#8211; \u00fe\u00e1 er r\u00f6kr\u00e9tt a\u00f0 spyrja: Hva\u00f0an koma \u00fe\u00e6r kenndir, s\u00fa vitund? Ef vi\u00f0 h\u00f6fum l\u00edkama, s\u00e1l og anda \u00fear sem me\u00f0vitund og undirme\u00f0vitund eru st\u00f6\u00f0ugt a\u00f0 verki liggur beint vi\u00f0 a\u00f0 spyrja hvort ekki s\u00e9 til vitund \u00e6\u00f0ri allri mannlegri vitund, YFIRVITUND sem er grunnur allrar tilverunnar, hi\u00f0 innsta, \u00e6\u00f0sta og d\u00fdpsta alls sem er? Tr\u00faarbr\u00f6g\u00f0in kalla \u00feessa \u00e6\u00f0stu vitund, Gu\u00f0. \u00c1 li\u00f0inni \u00f6ld var sagt a\u00f0 tr\u00faarbr\u00f6g\u00f0in v\u00e6ru \u00f3\u00fe\u00f6rf og Lennon s\u00f6ng Imagine en n\u00fa \u00e1 21. \u00f6ld er tala\u00f0 um a\u00f0 vi\u00f0 lifum \u00f6ld tr\u00faarbrag\u00f0anna. \u00deau eru \u00ed \u00fea\u00f0 minnsta sprelllifandi og tr\u00fain v\u00edkur ekki fyrir v\u00edsindum e\u00f0a \u00feekkingu \u00fev\u00ed hvorugt \u00f3gnar heilbrig\u00f0ri tr\u00fa \u00e1 hi\u00f0 st\u00f3ra samhengi. V\u00edsindin eru a\u00f0 st\u00e6rstum hluta afsprengi hinnar kristnu menningar en \u00e9g hef ekki t\u00edma til a\u00f0 fara n\u00e1nar \u00fat \u00ed \u00fe\u00e1 s\u00e1lma h\u00e9r.<\/p>\n<p>L\u00edfi\u00f0 er gj\u00f6f. L\u00edfi\u00f0 er d\u00e1samlegt og vi\u00f0 erum eina kynsl\u00f3\u00f0 mannkynss\u00f6gunnar sem ekki hefur d\u00e1i\u00f0, svo vitna s\u00e9 \u00ed sk\u00e1ldi\u00f0 T\u00f3mas Gu\u00f0mundsson. \u00deess vegna skulum vi\u00f0 nj\u00f3ta dagsins og vera gl\u00f6\u00f0 mitt \u00ed s\u00f6knu\u00f0i og sorg, gl\u00f6\u00f0 yfir \u00fev\u00ed a\u00f0 l\u00edfi\u00f0 f\u00e6r\u00f0i okkur g\u00f3\u00f0an og m\u00e6tan samfer\u00f0amann.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 kve\u00f0jum Loft Loftsson me\u00f0 vir\u00f0ingu og \u00fe\u00f6kk. Gu\u00f0 geymi hann og geymi hann einnig okkur \u00e1 l\u00edfsveginum, um alla t\u00ed\u00f0 og t\u00edma.<\/p>\n<p>Amen.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Kve\u00f0jur:<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>fr\u00e1 sonum Lofts yngra, Lofti og Le\u00f3 sem b\u00faa \u00e1 eynni Jersey \u00ed Ermasundi;<\/p>\n<p>fr\u00e1 b\u00f6rnum Valger\u00f0ar og Bjarna, D\u00fdrleifu sem b\u00fdr \u00ed BNA og Finni sem b\u00fdr \u00ed Englandi og<\/p>\n<p>fr\u00e1 Olgu \u00c1g\u00fastsd\u00f3ttur m\u00e1gkonu Lofts og Krisj\u00e1ni manni hennar sem b\u00faa \u00ed Kaupangi \u00ed Eyjarfir\u00f0i.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Jar\u00f0sett ver\u00f0ur \u00ed Gufunesi.<\/p>\n<p>Erfi\u00a0 \u00ed safna\u00f0arheimilinu og l\u00edkfyld a\u00f0 \u00fev\u00ed loknu.<\/p>\n<p>R\u00e6\u00f0an birt.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson &nbsp; Minningaror\u00f0 Loftur Loftsson 1923-2013 efna- og matv\u00e6laverkfr\u00e6\u00f0ingur Kleppsvegi 48 \u00datf\u00f6r fr\u00e1 Neskirkju 24. okt\u00f3ber 2013 kl. 13 Jar\u00f0sett \u00ed Gufunesi &nbsp; \u00de\u00fa getur lesi\u00f0 r\u00e6\u00f0una h\u00e9r fyrir ne\u00f0an og einnig hlusta\u00f0 \u00e1 hana. Ef \u00fe\u00fa s\u00e9r\u00f0 prentvillu\/r, stafav\u00edxl e\u00f0a amb\u00f6gu\/r \u00fe\u00e6tti m\u00e9r v\u00e6nt um a\u00f0 f\u00e1 \u00e1bendingu fr\u00e1 \u00fe\u00e9r \u00ed athugasemd [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[4],"tags":[],"class_list":["post-841","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-greinar-og-hugvekjur-articles"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/841","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=841"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/841\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=841"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=841"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=841"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}