{"id":8328,"date":"2026-10-14T18:01:12","date_gmt":"2026-10-14T18:01:12","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/2026\/10\/14\/gazalegur-vandi\/"},"modified":"2026-10-14T18:01:12","modified_gmt":"2026-10-14T18:01:12","slug":"gazalegur-vandi","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=8328","title":{"rendered":"Gazalegur vandi"},"content":{"rendered":"\n<p class=\"wp-block-paragraph\">grein eftir \u00d6rn B\u00e1r\u00f0 J\u00f3nsson \u00b7 okt\u00f3ber 2026<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1504\" height=\"852\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2026\/10\/img_1549.jpg?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-8329\" \/><figcaption class=\"wp-element-caption\">Mynd fengin a\u00f0 l\u00e1ni af Vefnum<\/figcaption><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Viltu hlusta \u00e1 h\u00f6fundinn lesa? Smelltu h\u00e9r: <\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-audio\"><audio controls src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2026\/10\/gazalegur-vandi.m4a\"><\/audio><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd or\u00f0r\u00e6\u00f0u \u00e1 samf\u00e9lagsmi\u00f0lum, \u00fear sem tala\u00f0 er \u00ed s\u00edmskeytast\u00edl \u00ed hita leiks, fer \u00fdmislegt forg\u00f6r\u00f0um. Umr\u00e6\u00f0an ver\u00f0ur oft a\u00f0 eint\u00f3mum upphr\u00f3punum og sleggjud\u00f3mum. Sumir hafa b\u00f3kstaflega hrauna\u00f0 yfir mig og \u00e9g \u00ed sumum tilfellum brug\u00f0ist vi\u00f0 \u00feeim yfirgangi. \u00cd hita leiksins geta menn svitna\u00f0 og gl\u00edman or\u00f0i\u00f0 r\u00f6mm. Menn hj\u00f3la oft \u00ed manninn en ekki m\u00e1lefni\u00f0, <em>ad hominem<\/em> en ekki<em> argumentum ad rem <\/em>eins og \u00fea\u00f0 heitir \u00ed fr\u00e6\u00f0unum. R\u00e1\u00f0ist er \u00e1 manninn en ekki textann: &#8220;\u00de\u00fa er prestur . . . &#8221; o.s.frv. \u00ed miklum hneykslunart\u00f3n.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g settist ni\u00f0ur og rita\u00f0i grein sem \u00e9g hef marg lei\u00f0r\u00e9tt, legi\u00f0 yfir og laga\u00f0 og loks unni\u00f0 \u00ed samvinnu vi\u00f0 g\u00f3\u00f0a r\u00e1\u00f0gjafa, \u00fear \u00e1 me\u00f0al gerivigreind, sem hefur skerpt margt af \u00fev\u00ed sem var \u00ed frumtexta m\u00ednum, en lei\u00f0r\u00e9tt anna\u00f0. \u00c9g leyfi m\u00e9r a\u00f0 taka \u00fea\u00f0 fram a\u00f0 m\u00e9r hefur l\u00edka tekist a\u00f0 lei\u00f0r\u00e9tta gervigreindina &#8211; og h\u00fan vi\u00f0urkenndi \u00fea\u00f0! Gervigreindin (GG) rita\u00f0i ekki greinina en \u00e9g f\u00e9kk hana til a\u00f0 lesa textann og gefa r\u00e1\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Mikilv\u00e6gt er a\u00f0 menn sko\u00f0i vel afst\u00f6\u00f0u s\u00edna til alvarlegra m\u00e1la sem eru \u00ed umr\u00e6\u00f0unni og r\u00f6kr\u00e6\u00f0i hana vi\u00f0 \u00fe\u00e1 sem eru tilb\u00fanir til a\u00f0 lei\u00f0r\u00e9tta me\u00f0 &#8220;h\u00f3gv\u00e6\u00f0ar anda&#8221; eins og sagt er \u00ed Hinni helgu b\u00f3k.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00e9r kemur afur\u00f0in:<\/p>\n\n\n\n<!--more-->\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Fri\u00f0arsinni e\u00f0a pasifisti?<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Fri\u00f0arsinni vill fri\u00f0 og vinnur gegn str\u00ed\u00f0i, en getur sam\u00feykkt hervarnir sem ney\u00f0ar\u00farr\u00e6\u00f0i. Pasifisti hafnar ofbeldi af grundvallar\u00e1st\u00e6\u00f0um, l\u00edka \u00ed sj\u00e1lfsv\u00f6rn. Allir pasifistar eru \u00fev\u00ed fri\u00f0arsinnar, en ekki eru allir fri\u00f0arsinnar pasifistar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd daglegu m\u00e1li rennur \u00feetta saman, en munurinn skiptir m\u00e1li h\u00e9r. Gandhi er oft nefndur sem pasifisti, \u00fe\u00f3tt hann hafi frekar a\u00f0hyllst ofbeldislausa andspyrnu fremur en a\u00f0ger\u00f0aleysi. Spurningin sem \u00feessi grein gl\u00edmir vi\u00f0 er: hven\u00e6r, ef nokkurn t\u00edma, er r\u00e9ttm\u00e6tt a\u00f0 beita valdi til a\u00f0 verja l\u00edf og frelsi?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>\u00cdslendingar \u00ed skj\u00f3li annarra<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cdsland sem \u00fej\u00f3\u00f0 var hvorki pasifisti n\u00e9 \u00fe\u00e1tttakandi \u00ed s\u00ed\u00f0ari heimsstyrj\u00f6linnid: \u00fea\u00f0 var hlutlaust a\u00f0 nafni til en \u00ed reynd hernumi\u00f0. Landi\u00f0 l\u00fdsti yfir \u00e6varandi hlutleysi vi\u00f0 fullveldi\u00f0 1918 og \u00e1tti engan her. Bretar hern\u00e1mu \u00fea\u00f0 10. ma\u00ed 1940 og \u00edslensk stj\u00f3rnv\u00f6ld m\u00f3tm\u00e6ltu \u00fev\u00ed sem broti \u00e1 hlutleysinu. Bandar\u00edkin t\u00f3ku vi\u00f0 v\u00f6rnum landsins sumari\u00f0 1941 samkv\u00e6mt samkomulagi vi\u00f0 \u00edslensk stj\u00f3rnv\u00f6ld.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cdsland sag\u00f0i ekki \u00de\u00fdskalandi og Japan str\u00ed\u00f0 \u00e1 hendur fyrr en 21. febr\u00faar 1945, til a\u00f0 tryggja s\u00edna a\u00f0ild a\u00f0 Sameinu\u00f0u \u00fej\u00f3\u00f0unum. \u00cdslenskir sj\u00f3menn f\u00f3rust \u00ed \u00e1r\u00e1sum kafb\u00e1ta og flugv\u00e9la. Efnahagurinn t\u00f3k stakkaskiptum \u00feegar atvinnuleysi hvarf. Meirihluti \u00fej\u00f3\u00f0arinnar hafna\u00f0i nasisma, en gagnr\u00fdnt hefur veri\u00f0 hversu treg stj\u00f3rnv\u00f6ld voru til a\u00f0 veita gy\u00f0ingafl\u00f3ttam\u00f6nnum h\u00e6li fyrir str\u00ed\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Bandamenn unnu str\u00ed\u00f0i\u00f0, ekki vi\u00f0. Vi\u00f0 vorum eins og b\u00f6rn \u00ed skj\u00f3li fullor\u00f0inna. \u00dea\u00f0 \u00e6tti a\u00f0 gera okkur au\u00f0mj\u00fak \u00feegar vi\u00f0 d\u00e6mum \u00fe\u00e1 sem \u00feurfa a\u00f0 verja sig me\u00f0 vopnum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Hamas<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hamas eru \u00edsl\u00f6msk \u00f6fgasamt\u00f6k sem Bandar\u00edkin, Evr\u00f3pusambandi\u00f0 og fleiri r\u00edki flokka sem hry\u00f0juverkasamt\u00f6k. \u00deau unnu \u00feingkosningar 2006, t\u00f3ku v\u00f6ldin \u00e1 Gasa 2007 eftir \u00e1t\u00f6k vi\u00f0 Fatah og hafa ekki l\u00e1ti\u00f0 kj\u00f3sa s\u00ed\u00f0an. \u00cdsrael haf\u00f0i dregi\u00f0 herli\u00f0 og landnemabygg\u00f0ir fr\u00e1 Gasa 2005.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hinn 7. okt\u00f3ber 2023 r\u00e9\u00f0ust Hamas-li\u00f0ar inn \u00ed \u00cdsrael, dr\u00e1pu um 1.200 manns, a\u00f0 st\u00e6rstum hluta \u00f3breytta borgara, og t\u00f3ku um 250 \u00ed g\u00edslingu. \u00deetta var hry\u00f0juverk, hvernig sem \u00e1 \u00fea\u00f0 er liti\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hamas er vopna\u00f0ur \u00edslamskur h\u00f3pur, en ekki eru allir Palest\u00ednumenn e\u00f0a allir m\u00faslimar Hamas-li\u00f0ar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hamas samt\u00f6kin hafa byggt v\u00ed\u00f0t\u00e6k g\u00f6ng undir Gasa og eru s\u00f6ku\u00f0 um a\u00f0 geyma vopn og stj\u00f3rnst\u00f6\u00f0var \u00ed og n\u00e1l\u00e6gt almennum byggingum, \u00fear \u00e1 me\u00f0al sk\u00f3lum og sj\u00fakrah\u00fasum. Skjalfest er a\u00f0 hluti hj\u00e1lparfj\u00e1r og efnis hefur runni\u00f0 til herna\u00f0aruppbyggingar og a\u00f0 lei\u00f0togar samtakanna hafa lifa\u00f0 vi\u00f0 g\u00f3\u00f0 kj\u00f6r erlendis, me\u00f0al annars \u00ed Katar. Um umfang \u00feessa er deilt, og engin g\u00f6gn s\u00fdna \u00fe\u00f3 a\u00f0 allt f\u00e9 hafi horfi\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deetta eru r\u00f6k gegn Hamas, ekki gegn Palest\u00ednuf\u00f3lki e\u00f0a m\u00faslimum. \u00cdb\u00faar Gasa eru fyrst og fremst f\u00f3rnarl\u00f6mb, b\u00e6\u00f0i str\u00ed\u00f0sins og stj\u00f3rnar Hamas, og m\u00f3tm\u00e6li gegn samt\u00f6kunum hafa komi\u00f0 upp \u00fear, \u00fe\u00f3tt \u00feau hafi veri\u00f0 b\u00e6ld ni\u00f0ur. M\u00faslimar eru yfir milljar\u00f0ur manna \u00ed \u00f3l\u00edkum l\u00f6ndum og margir \u00feeirra hafa sj\u00e1lfir or\u00f0i\u00f0 fyrir bar\u00f0inu \u00e1 s\u00f6mu \u00f6fgah\u00f3pum. Bar\u00e1ttan gegn Hamas beinist gegn tilteknum vopnu\u00f0um samt\u00f6kum og hugmyndafr\u00e6\u00f0i \u00feeirra.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>\u00cdsrael og r\u00e6tur gy\u00f0inga \u00e1 sv\u00e6\u00f0inu<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Tengsl gy\u00f0inga vi\u00f0 landi\u00f0 eru \u00ferj\u00fa \u00fe\u00fasund \u00e1ra g\u00f6mul. Merneptah-steinn Egypta fr\u00e1 um 1208 f.Kr. nefnir \u00cdsrael og er elsta \u00feekkta heimildin utan Bibl\u00edunnar um \u00fej\u00f3\u00f0 me\u00f0 \u00fev\u00ed nafni \u00ed Kanaan. Fornleifar s\u00fdna fj\u00f6lda sm\u00e1\u00feorpa \u00ed h\u00e1lendinu um 1200\u20131000 f.Kr., og r\u00edki\u00f0 J\u00fada me\u00f0 Jer\u00fasalem a\u00f0 h\u00f6fu\u00f0borg ver\u00f0ur \u00e1berandi \u00e1 10.\u20139. \u00f6ld f.Kr. Fr\u00e6\u00f0imenn deila um hversu st\u00f3rt r\u00edki Dav\u00ed\u00f0s og Sal\u00f3mons var. Nafni\u00f0 J\u00fadea var s\u00ed\u00f0ar nota\u00f0 um h\u00e9ra\u00f0i\u00f0 \u00e1 persneskum, hellen\u00edskum og r\u00f3mverskum t\u00edma.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">N\u00fat\u00edma-s\u00edonisminn var\u00f0 til \u00e1 19. \u00f6ld. Theodor Herzl, sem starfa\u00f0i fr\u00e1 um 1890 og l\u00e9st 1904, gaf \u00fat Der Judenstaat, R\u00edki gy\u00f0inga, \u00e1ri\u00f0 1896 og kalla\u00f0i saman fyrsta s\u00edonista\u00feingi\u00f0 \u00ed Basel 1897. Gy\u00f0ingurinn, Stefan Zweig, h\u00f6fundur b\u00f3karinnar <em>Ver\u00f6ld sem var<\/em>, var ekki fylgjandi hugmyndum hans, og margir gy\u00f0ingar studdu \u00fe\u00e6r ekki heldur. Eftir helf\u00f6rina, \u00fear sem um sex millj\u00f3num gy\u00f0inga var \u00fatr\u00fdmt skipulega, fj\u00f6lga\u00f0i \u00feeim sem t\u00f6ldu eigi\u00f0 r\u00edki nau\u00f0synlegt til a\u00f0 tryggja \u00f6ruggt skj\u00f3l.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cdsrael var stofna\u00f0 1948. R\u00e9ttur \u00feess til tilveru og sj\u00e1lfsvarnar er \u00ed m\u00ednum huga hafinn yfir allan vafa. Sagan hefur \u00fe\u00f3 \u00e1 s\u00e9r fleiri hli\u00f0ar: arabar\u00edkin h\u00f6fnu\u00f0u skiptingar\u00e1\u00e6tlun Sameinu\u00f0u \u00fej\u00f3\u00f0anna, og \u00ed str\u00ed\u00f0inu 1948 fl\u00fa\u00f0u e\u00f0a voru hraktir \u00e1 brott fj\u00f6ldi Palest\u00ednumanna. Ekki m\u00e1 gleyma \u00fev\u00ed a\u00f0 n\u00e1grannar\u00edkin Egyptaland, S\u00edrland og L\u00edb\u00eda r\u00e9\u00f0ust inn \u00ed \u00cdsrael \u00e1 stofndegi \u00feess. \u00deegar arabar r\u00e9\u00f0ust \u00e1 \u00cdsrael sama \u00e1r og r\u00edki\u00f0 var stofna\u00f0 1948, sendu \u00feeir bo\u00f0 til m\u00faslima \u00ed landinu, um a\u00f0 yfirgefa heimili s\u00edn og skilja h\u00fasin eftir t\u00f3m handa herm\u00f6nnum innr\u00e1sarli\u00f0s araba. \u00deeim var lofa\u00f0 a\u00f0 sn\u00faa s\u00ed\u00f0an aftur til s\u00edns heima. M\u00faslimarnir hl\u00fdddu en t\u00f6pu\u00f0u \u00feessari rimmu og sneru svo flutningi m\u00faslimanna upp \u00ed \u00fea\u00f0 a\u00f0 \u00feeir hef\u00f0u fl\u00fai\u00f0 \u00cdsrael af v\u00f6ldum ofs\u00f3kna gy\u00f0inga.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Er til m\u00e1lsta\u00f0ur til a\u00f0 deyja fyrir?<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Lennon s\u00f6ng \u00ed lj\u00f3\u00f0inu <em>Imagine<\/em> um heim \u00e1n landam\u00e6ra og tr\u00faarbrag\u00f0a, \u00fear sem ekkert v\u00e6ri til <em>a\u00f0 drepa fyrir e\u00f0a deyja fyrir<\/em>. \u00deetta er f\u00f6gur hugmynd vi\u00f0 fyrstu s\u00fdn og Lennon var \u00e1n efa einl\u00e6gur fri\u00f0arsinni. \u00dev\u00ed er \u00fea\u00f0 \u00feyngra en t\u00e1rum taki a\u00f0 hann skyldi falla fyrir byssuskoti brengla\u00f0s manns. En s\u00fdnin svarar ekki spurningunni: hva\u00f0 gerum vi\u00f0 \u00feegar a\u00f0rir vilja drepa okkur? A\u00f0 sumra mati talar Lennon h\u00e9r eins og \u00f3rauns\u00e6r draum\u00f3rama\u00f0ur sem skortir jar\u00f0tengingu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">S\u00ed\u00f0ari heimsstyrj\u00f6ldin er sk\u00fdrasta d\u00e6mi\u00f0. Bandamenn sprengdu \u00fe\u00fdskar borgir \u00ed r\u00fast, saklausir borgarar f\u00f3rust. Flestir telja a\u00f0 ekki hafi veri\u00f0 h\u00e6gt a\u00f0 horfa a\u00f0ger\u00f0alaus \u00e1 nasismann \u00fatr\u00fdma gy\u00f0ingum. \u00dear liggur kjarni kenningarinnar um r\u00e9ttl\u00e1tt str\u00ed\u00f0: m\u00e1lsta\u00f0urinn \u00fearf a\u00f0 vera r\u00e9ttur, valdbeiting s\u00ed\u00f0asta \u00farr\u00e6\u00f0i, og a\u00f0fer\u00f0irnar \u00ed r\u00e9ttu hlutfalli vi\u00f0 markmi\u00f0i\u00f0 og greina \u00e1 milli hermanna og \u00f3breyttra borgara.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">L\u00edkingin vi\u00f0 Gasa \u00e1 vi\u00f0 a\u00f0 \u00fev\u00ed marki a\u00f0 til eru andst\u00e6\u00f0ingar sem semja ekki: sumir lei\u00f0togar Hamas hafa sagt opinberlega a\u00f0 \u00feeir vilji endurtaka \u00e1r\u00e1sina 7. okt\u00f3ber 2023. Hamas er ekki r\u00edki me\u00f0 her \u00e1 bor\u00f0 vi\u00f0 \u00de\u00fdskaland nasismans, en samt eru \u00feeir \u00feungvopna\u00f0ir og eiga t\u00e6kniv\u00e6ddar dr\u00e1psv\u00e9lar og str\u00ed\u00f0i\u00f0 er h\u00e1\u00f0 \u00e1 \u00fe\u00e9ttb\u00fdlu sv\u00e6\u00f0i, \u00fear sem \u00f3breyttir borgarar eiga s\u00e9r f\u00e1ar \u00fatg\u00f6ngulei\u00f0ir.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Munurinn \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 Hamas f\u00f3rni s\u00e9r fyrir eigin tr\u00fa og f\u00f3rnum vestr\u00e6nna hermanna liggur ekki \u00ed \u00fev\u00ed, a\u00f0 deyja, heldur \u00ed \u00fev\u00ed hver \u00e1kve\u00f0ur \u00fea\u00f0. Herma\u00f0ur sem fer \u00ed str\u00ed\u00f0 fyrir frelsi velur \u00e1h\u00e6ttuna sj\u00e1lfur. \u00deegar vopn og stj\u00f3rnst\u00f6\u00f0var eru \u00ed \u00edb\u00fa\u00f0arhverfum eru \u00f3breyttir borgarar settir \u00ed h\u00e6ttu \u00e1n \u00feess a\u00f0 hafa nokkurt val.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Sterkustu m\u00f3tr\u00f6kin<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Flestir gagnr\u00fdnendur \u00cdsraelsr\u00edkis andm\u00e6la ekki r\u00e9tti \u00feess til a\u00f0 verjast, heldur \u00fev\u00ed hvernig \u00fea\u00f0 er gert. Grein sem tekur ekki \u00e1 \u00fev\u00ed er \u00f3fulln\u00e6gjandi. Helstu \u00e1litam\u00e1lin eru \u00feessi:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Mannfall.<\/strong> Heilbrig\u00f0isyfirv\u00f6ld \u00e1 Gasa, sem l\u00fata Hamas, telja tugi \u00fe\u00fasunda l\u00e1tna, \u00fear \u00e1 me\u00f0al m\u00f6rg b\u00f6rn. T\u00f6lurnar eru umdeildar, en sumar \u00f3h\u00e1\u00f0ar ranns\u00f3knir telja \u00fe\u00e6r \u00ed meginatri\u00f0um tr\u00faver\u00f0ugar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Hlutfallsh\u00f3f.<\/strong> Er mannfall og ey\u00f0ilegging \u00ed r\u00e9ttu hlutfalli vi\u00f0 herna\u00f0arlegan \u00e1vinning? Al\u00fej\u00f3\u00f0legi sakam\u00e1lad\u00f3mst\u00f3llinn gaf \u00fat handt\u00f6kuskipanir \u00e1 hendur b\u00e6\u00f0i \u00edsraelskum r\u00e1\u00f0am\u00f6nnum og lei\u00f0toga Hamas, og m\u00e1l er reki\u00f0 fyrir Al\u00fej\u00f3\u00f0ad\u00f3mst\u00f3lnum. \u00cdsrael hafnar \u00e1s\u00f6kununum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Vi\u00f0varanir.<\/strong> \u00cdsraelsher hefur oft vara\u00f0 \u00edb\u00faa vi\u00f0 \u00e1r\u00e1sum, sem er sjaldg\u00e6ft \u00ed herna\u00f0i. En margir hafa hvergi \u00f6ruggan sta\u00f0 a\u00f0 fl\u00fdja til, og ekki er alltaf vara\u00f0 vi\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Hj\u00e1lparg\u00f6gn.<\/strong> Skortur \u00e1 mat og l\u00e6knishj\u00e1lp \u00e1 Gasa hefur veri\u00f0 alvarlegur, og deilt er um hvort s\u00f6kin liggi hj\u00e1 \u00cdsrael, Hamas e\u00f0a b\u00e1\u00f0um.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Vesturbakkinn.<\/strong> Landn\u00e1m og ofbeldi sumra landnema \u00fear, tengjast ekki Hamas og veikja m\u00e1lsta\u00f0 \u00cdsraels \u00ed augum margra.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Svari\u00f0 er ekki a\u00f0 skella allri skuldinni \u00e1 annan a\u00f0ilann. Hamas ber \u00e1byrg\u00f0 \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 hafa hafi\u00f0 str\u00ed\u00f0i\u00f0, teki\u00f0 g\u00edsla og teflt \u00f3breyttum borgurum \u00ed h\u00e6ttu. En \u00fea\u00f0 leysir \u00cdsrael ekki undan skyldum al\u00fej\u00f3\u00f0alaga: s\u00e1 sem verst me\u00f0 r\u00e9ttu ver\u00f0ur l\u00edka a\u00f0 verjast r\u00e9tt.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sumir sem m\u00f3tm\u00e6la \u00e1 Vesturl\u00f6ndum gera \u00fea\u00f0 vegna mannfallsins, af mann\u00fa\u00f0, og eiga au\u00f0vita\u00f0 \u00ed strangasta skilningi a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0 gera \u00fea\u00f0, \u00e1n \u00feess a\u00f0 vera kalla\u00f0ir stu\u00f0ningsmenn Hamas. \u00cd sumum tilfellum er stu\u00f0ningurinn vi\u00f0 Hamas\/Palest\u00ednuf\u00f3lk \u00fe\u00f3 lita\u00f0ur af klass\u00edsku gy\u00f0ingahatri. \u00dear sem hr\u00f3pa\u00f0 er til stu\u00f0nings Hamas e\u00f0a ofbeldi\u00f0 gegn gy\u00f0ingum er upphafi\u00f0, er \u00e1st\u00e6\u00f0a til a\u00f0 andm\u00e6la. Gy\u00f0ingahatur \u00e1 s\u00e9r langa s\u00f6gu \u00ed Evr\u00f3pu og vaknar \u00fev\u00ed mi\u00f0ur aftur \u00feegar deilur magnast.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Lokaor\u00f0<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Str\u00ed\u00f0 og \u00e1t\u00f6k eru eins og krabbamein \u00ed bl\u00f3\u00f0i heimsins og vi\u00f0 \u00fer\u00e1um \u00f6ll a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0 lifa \u00ed fri\u00f0i. En fri\u00f0ur f\u00e6st ekki alltaf me\u00f0 \u00fev\u00ed einu a\u00f0 vilja hann. Spurningin er ekki hvort ofbeldi s\u00e9 illt, heldur hven\u00e6r og hvernig megi verjast \u00fev\u00ed.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Fyrir \u00feremur \u00e1rum heims\u00f3tti \u00e9g Jer\u00fasalem. \u00c9g var vi\u00f0staddur vi\u00f0 helgihald \u00ed s\u00fdnag\u00f3gu \u00e1 f\u00f6studagskv\u00f6ldi, hl\u00fdddi \u00e1 m\u00faslimskan fr\u00e6\u00f0imann \u00fatsk\u00fdra K\u00f3raninn \u00ed r\u00faman klukkut\u00edma vi\u00f0 anna\u00f0 t\u00e6kif\u00e6ri og messa\u00f0i s\u00ed\u00f0ar vi\u00f0 Gal\u00edleuvatn, \u00fear sem fiskimennirnir r\u00e9ru til fiskjar sem s\u00ed\u00f0ar stofnu\u00f0u kirkjuna. \u00dea\u00f0 var heil\u00f6g stund. \u00c9g f\u00f3r v\u00ed\u00f0a um Jer\u00faasalem, f\u00f3r einnig yfir \u00e1 Vesturbakkann \u00fear sem Palest\u00ednumenn r\u00e1\u00f0a. \u00de\u00e1 heims\u00f3tti \u00e9g Dau\u00f0a hafi\u00f0 og l\u00e9t mig flj\u00f3ta \u00fear \u00ed s\u00f6ltum sj\u00f3 og svo upp\u00e1 Massada fjalli\u00f0 \u00ed kl\u00e1fferju \u00fear sem gy\u00f0ingar endu\u00f0u s\u00edna dv\u00f6l \u00ed virkinu me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 taka eigi\u00f0 l\u00edf \u00e1\u00f0ur en R\u00f3mverjar komust upp \u00ed virki\u00f0 \u00e1ri\u00f0 73. e.Kr.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">M\u00e9r finnst \u00cdsrael samt\u00edmans \u00ed raun kraftaverki l\u00edkast.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd 13. kafla Mark\u00fasargu\u00f0spjalls segir Jes\u00fas fyrir um fall musterisins og varar vi\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 l\u00e1ta lei\u00f0a sig \u00ed villu. Jer\u00fasalem var eytt \u00e1ri\u00f0 70 e.Kr., 37 \u00e1rum eftir krossfestingu hans. Musteri\u00f0 var rifi\u00f0. A\u00f0eins grunnm\u00farinn stendur eftir, Gr\u00e1tm\u00farinn. \u00c9g les or\u00f0 Jes\u00fa sem tr\u00fama\u00f0ur, sem sp\u00e1d\u00f3m. Flestir sagnfr\u00e6\u00f0ingar telja a\u00f0 gu\u00f0spjalli\u00f0 hafi veri\u00f0 skrifa\u00f0 um 65-70 e.Kr. Mark\u00fas vitnar \u00ed Jes\u00fa sem sag\u00f0i \u00feetta fyrir krossfestingu s\u00edna \u00e1ri\u00f0 33 \u00feannig a\u00f0 Jes\u00fas sp\u00e1ir \u00fear me\u00f0 fyrir falli Jer\u00fasalem. Hafi Mark\u00fas rita\u00f0 textann \u00e1ri\u00f0 70 e\u00f0a s\u00ed\u00f0ar, \u00fe\u00e1 s\u00e9r hann \u00ed raun s\u00f6nnun e\u00f0a uppfyllingu sp\u00e1d\u00f3ms Jes\u00fa.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Or\u00f0 Jes\u00fa eiga enn erindi vi\u00f0 okkur: \u201e\u00deegar \u00fe\u00e9r spyrji\u00f0 herna\u00f0 og \u00f3fri\u00f0art\u00ed\u00f0indi \u00fe\u00e1 skelfist ekki [&#8230;] \u00dea\u00f0 sem \u00e9g segi y\u00f0ur, \u00fea\u00f0 segi \u00e9g \u00f6llum: Vaki\u00f0!\u201c<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">A\u00f0 vaka merkir h\u00e9r a\u00f0 sj\u00e1 hlutina eins og \u00feeir eru, greina \u00e1 milli varnar og hefndar, og sofna ekki gagnvart \u00feeim sem bo\u00f0a tort\u00edmingu.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>grein eftir \u00d6rn B\u00e1r\u00f0 J\u00f3nsson \u00b7 okt\u00f3ber 2026 Viltu hlusta \u00e1 h\u00f6fundinn lesa? Smelltu h\u00e9r: \u00cd or\u00f0r\u00e6\u00f0u \u00e1 samf\u00e9lagsmi\u00f0lum, \u00fear sem tala\u00f0 er \u00ed s\u00edmskeytast\u00edl \u00ed hita leiks, fer \u00fdmislegt forg\u00f6r\u00f0um. Umr\u00e6\u00f0an ver\u00f0ur oft a\u00f0 eint\u00f3mum upphr\u00f3punum og sleggjud\u00f3mum. Sumir hafa b\u00f3kstaflega hrauna\u00f0 yfir mig og \u00e9g \u00ed sumum tilfellum brug\u00f0ist vi\u00f0 \u00feeim yfirgangi. \u00cd [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[4],"tags":[],"class_list":["post-8328","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-greinar-og-hugvekjur-articles"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/8328","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=8328"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/8328\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=8328"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=8328"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=8328"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}