{"id":8289,"date":"2026-10-01T12:54:09","date_gmt":"2026-10-01T12:54:09","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/2026\/10\/01\/a-hvada-leid-er-heimurinn\/"},"modified":"2026-10-01T12:54:09","modified_gmt":"2026-10-01T12:54:09","slug":"a-hvada-leid-er-heimurinn","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=8289","title":{"rendered":"\u00c1 hva\u00f0a lei\u00f0 er heimurinn?"},"content":{"rendered":"\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>eftir \u00d6rn B\u00e1r\u00f0 J\u00f3nsson<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Merkilegt hefur veri\u00f0 a\u00f0 upplifa vi\u00f0br\u00f6g\u00f0 vi\u00f0 grein sem \u00e9g rita\u00f0i n\u00fdlega og birti \u00ed DV og tel mj\u00f6g uppl\u00fdsandi um \u00e1hrif islam \u00ed heiminum. Greinin ber yfirskriftina <strong>Taktu \u00fe\u00e9r st\u00f6\u00f0u.<\/strong> \u00dear er \u00fev\u00ed m.a. haldi\u00f0 fram a\u00f0 3. heimstyrj\u00f6ldin s\u00e9 \u00feegar hafin og framr\u00e1s islam \u00e1 Vesturl\u00f6ndum sta\u00f0reynd.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vilstu hlusta \u00e1 h\u00f6fundinn lesa textann? Smelltu h\u00e9r:<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-audio\"><audio controls src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2026\/10\/a-hvada-leid-er-heimurinn-1.m4a\"><\/audio><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Fj\u00f6ldi \u00feeirra sem l\u00e9tu s\u00e9r l\u00edka greinina er margfaldur vi\u00f0 \u00fe\u00e1 sem eru \u00e1 \u00f6ndver\u00f0um mei\u00f0i en \u00far s\u00ed\u00f0ari h\u00f3pnum eru \u00f3tr\u00falega margir sem geta ekki hami\u00f0 sig \u00ed samskiptum vi\u00f0 anna\u00f0 f\u00f3lk, kunna hvorki h\u00e1ttv\u00edsi n\u00e9 samr\u00e6\u00f0ulist.<\/p>\n\n\n\n<!--more-->\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Menn lesa inn \u00ed greinina z\u00edonisma og hva\u00f0eina sem \u00feeim hentar og koma \u00feannig upp um eigin leti vi\u00f0 lestur e\u00f0a jafnvel \u00f3l\u00e6si og svo l\u00edka andlega blindu. M\u00e9r eru ger\u00f0ar upp sko\u00f0anir um allt milli himins og jar\u00f0ar sem tengist gy\u00f0ingum og \u00cdsrael. \u00c9g held fast \u00ed \u00fea\u00f0 a\u00f0 \u00cdsrael eigi r\u00e9ttinn til a\u00f0 verjast \u00e1r\u00e1sum og hry\u00f0juverkum og a\u00f0 taka hart \u00e1 hryllings samt\u00f6kum eins og Hamas.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og \u00fea\u00f0 sem er merkilegt er a\u00f0 f\u00f3lk sem \u00e9g veit a\u00f0 er \u00e1 vinstri v\u00e6ng stj\u00f3rnm\u00e1lar\u00f3fsins er mj\u00f6g margt haldi\u00f0 gy\u00f0ingaand\u00fa\u00f0 ef ekki hreinu hatri.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Margir vanstilltir menn, einkum karlar, hafa tj\u00e1\u00f0 sig me\u00f0 g\u00edfuryr\u00f0um og hreinum d\u00f3lgs- og d\u00f3naskap. \u00deetta eru oftar en ekki menn \u00e1n mikilla raka sem \u00f3ska manni \u00f3vildar og tj\u00e1 sig eins og \u00feeir v\u00e6ru andsetnir og hj\u00e1lpar\u00feurfi. \u00dea\u00f0 er j\u00e1kv\u00e6tt a\u00f0 m\u00e9r hafi tekist a\u00f0 sv\u00e6la \u00f3v\u00e6runa fram \u00ed dagslj\u00f3si\u00f0. En l\u00e6kin eru margfalt fleiri og fyrir \u00feau vil \u00e9g \u00feakka.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>\u00cdsraelsmenn<\/strong> eru engin l\u00f6mb a\u00f0 leika s\u00e9r vi\u00f0. \u00dea\u00f0 vita allir. \u00deeir eru umkringdir af arabar\u00edkjum sem \u00f6ll eru \u00edslamstr\u00faar og r\u00e9\u00f0ust a\u00f0 \u00cdsraelsm\u00f6nnum \u00e1 fyrstu degi sj\u00e1lfst\u00e6\u00f0is \u00feeirra \u00e1ri\u00f0 1948. Engin \u00fej\u00f3\u00f0 \u00e1 samb\u00e6rilegt tilkall til lands \u00ed J\u00fadeu og \u00cdsraelsmenn, sem voru \u00fej\u00f3\u00f0 \u00ed landinu fyrir fyrir a.m.k. 4.000 \u00e1rum, stofnu\u00f0u konungsr\u00edki 1.000 f. Kr. R\u00edki \u00feeirra var lagt \u00ed r\u00fast af R\u00f3mverjum \u00e1 1. \u00f6ld. e. Krist og s\u00ed\u00f0an hafa \u00feeir veri\u00f0 \u00ed <em>dreifingunni<\/em>, <em>diasphorunni,<\/em> eins og \u00fea\u00f0 heitir \u00ed fr\u00e6\u00f0unum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>R\u00edki gy\u00f0inga.<\/strong> Gy\u00f0ingar bjuggu um aldir um alla Evr\u00f3pu og h\u00f6f\u00f0u \u00fea\u00f0 gott, voru vel mennta\u00f0ir og efna\u00f0ir og allt \u00fea\u00f0. Ein besta b\u00f3k sem \u00e9g hef lesi\u00f0 heitir <em>Ver\u00f6ld sem var<\/em> eftir Stefan Zweig sem var austurr\u00edski rith\u00f6fundur sem yfirgaf Evr\u00f3pu vegna uppgangs nasismans.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Zweig &#8220;f\u00f3r fr\u00e1 Austurr\u00edki \u00e1ri\u00f0 1934, eftir a\u00f0 austurr\u00edska l\u00f6greglan ger\u00f0i h\u00fasleit heima hj\u00e1 honum \u00ed Salzburg, og settist fyrst a\u00f0 \u00ed London. \u00dear ger\u00f0ist hann breskur r\u00edkisborgari \u00e1ri\u00f0 1940.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deegar seinni heimsstyrj\u00f6ldin geisa\u00f0i fluttu Zweig og seinni kona hans, Lotte Altmann, til Bandar\u00edkjanna og s\u00ed\u00f0an til Brasil\u00edu \u00e1ri\u00f0 1941. \u00deau bjuggu \u00ed Petr\u00f3polis, fjallab\u00e6 n\u00e1l\u00e6gt Rio de Janeiro.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00dear t\u00f3ku \u00feau b\u00e6\u00f0i eigi\u00f0 l\u00edf \u00ed febr\u00faar 1942. \u00cd kve\u00f0jubr\u00e9fi s\u00ednu skrifa\u00f0i hann a\u00f0 hann hef\u00f0i ekki \u00ferek til a\u00f0 byrja upp \u00e1 n\u00fdtt eftir a\u00f0 heimurinn, sem hann \u00feekkti, hef\u00f0i hruni\u00f0. Hann var \u00fe\u00e1 sextugur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Fr\u00e6gasta verk hans fr\u00e1 \u00feessum t\u00edma er sj\u00e1lfs\u00e6visagan <em>Ver\u00f6ld sem var<\/em> (<em>Die Welt von Gestern<\/em>), sem l\u00fdsir menningarheimi Evr\u00f3pu fyrir fyrri heimsstyrj\u00f6ld og hvernig hann hvarf. Sk\u00e1ldsagan <em>Manntafl<\/em> (<em>Schachnovelle<\/em>) kom \u00fat a\u00f0 honum l\u00e1tnum.&#8221; (Claude)<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Zweig l\u00fdsir velmegun gy\u00f0inga \u00ed Evr\u00f3pu og undrast a\u00f0 \u00e1 sama t\u00edma var Theodor Hertzl \u00e1 fyrirlestrarfer\u00f0 um alla \u00e1lfuna til a\u00f0 r\u00e6\u00f0a um stofnun r\u00edkis \u00ed J\u00fadeu, en af \u00fev\u00ed nafni er heiti\u00f0 j\u00fa\u00f0i komi\u00f0 um gy\u00f0inga. Vi\u00f0 sem f\u00e6dd erum eftir 2. heimstyrj\u00f6ldina eigum erfitt me\u00f0 a\u00f0 setja okku \u00ed spor Evr\u00f3pub\u00faa \u00e1 \u00feeim \u00e1rum &#8211; og hva\u00f0 \u00fe\u00e1 gy\u00f0inga.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Lesendur mega ekki gleyma hvernig f\u00f3r fyrir gy\u00f0ingum \u00ed Evr\u00f3pu \u00e1 d\u00f6gum \u00deri\u00f0ja r\u00edkisins undir alr\u00e6\u00f0i Hitlers og hans n\u00f3ta. Nazistar dr\u00e1pu um 6 millj\u00f3nir gy\u00f0ingar \u00ed gasklefum. \u00deeir bygg\u00f0u b\u00f3kstaflega verksmi\u00f0jur til a\u00f0 gj\u00f6rey\u00f0a gy\u00f0ingum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vissulega m\u00e1 f\u00e6ra r\u00f6k fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 gy\u00f0ingar f\u00e1i a\u00f0 b\u00faa \u00ed fri\u00f0i \u00ed J\u00fadeu, en megin forsenda fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 sl\u00edkt gangi upp er a\u00f0 skilja tr\u00fa og p\u00f3lit\u00edk a\u00f0, eins og vi\u00f0 h\u00f6fum vanist \u00e1 Vesturl\u00f6ndum. Vi\u00f0 t\u00f6lum um a\u00f0 vi\u00f0 \u00cdslendingar s\u00e9um kristin \u00fej\u00f3\u00f0 og vissulega stenst \u00fea\u00f0 ef vi\u00f0 t\u00f6lum um a\u00f0 meirihluti landsmanna fylgi \u00ed grunninn \u00feeim gildum sem kristni bo\u00f0ar. Hins vegar er kirkjan ekki hluti af valdakerfinu, h\u00fan er bara tr\u00faf\u00e9lag me\u00f0 s\u00edna fylgjendur og sama \u00e1 vi\u00f0 um \u00f6nnur tr\u00faarbr\u00f6g\u00f0 \u00ed landinu. Vestr\u00e6n \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9l\u00f6g a\u00f0greina flest r\u00edki og kirkju e\u00f0a r\u00edki og tr\u00fa. Sj\u00e1lfur tala\u00f0i \u00e9g fyrir \u00fev\u00ed \u00ed dr\u00f6gum stj\u00f3rnlagar\u00e1\u00f0s a\u00f0 n\u00fdrri stj\u00f3rnarskr\u00e1, a\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0kirkjan v\u00e6ri skrifu\u00f0 \u00fat \u00far hinni n\u00fdju stj\u00f3rnarskr\u00e1. Teki\u00f0 skal fram a\u00f0 \u00cdsrael b\u00fdr vi\u00f0 l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0i og \u00feingbundi\u00f0 stj\u00f3rnarfar og \u00fear eru tr\u00fa og stj\u00f3rnm\u00e1l a\u00f0skilin.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Islam er \u00ed raun p\u00f3lit\u00edsk hreyfing og \u00fev\u00ed er \u00fea\u00f0 v\u00ed\u00f0a svo \u00ed l\u00f6ndum islam a\u00f0 \u00e6\u00f0sti imam og r\u00edkisstj\u00f3rn hafi v\u00f6ldin saman. \u00cd \u00e1hugaver\u00f0um fyrirlestri Magn\u00fasar \u00deorkels Bernhar\u00f0ssonar sem hann flutti \u00ed Neskirkju, n\u00fa \u00ed haust 2026, r\u00e6ddi hann \u00cdran sem var \u00e1 s\u00ednum t\u00edma byggt af meirihluta af m\u00faslimum. \u00cdran haf\u00f0i veri\u00f0 keisaraveldi \u00ed 2500 \u00e1r \u00feegar Khomeini sneri heim \u00far \u00fatleg\u00f0 \u00ed Par\u00eds. Rheza Palavi missti v\u00f6ldin, en \u00e1 hans t\u00ed\u00f0 var skili\u00f0 \u00e1 milli tr\u00faar og stj\u00f3rnm\u00e1la. En svo kom Khomeini og br\u00e6ddi r\u00edki og tr\u00fa saman \u00ed eitt og vi\u00f0 \u00feekkjum hvernig tr\u00faarofst\u00e6ki\u00f0 t\u00f3k \u00fear yfir og r\u00edkir enn \u00ed \u00f6llu tilliti \u00fear \u00e1 b\u00e6.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>\u00d6fgafullt Islam<\/strong> bo\u00f0ar hatur \u00e1 gy\u00f0ingum og kristnum og \u00f6llum sem ekki eru m\u00faslimar og kallar \u00fe\u00e1 <em>infidels<\/em> e\u00f0a <em>vantr\u00faa\u00f0a<\/em>. Vi\u00f0 sem j\u00e1tum tr\u00fa \u00e1 Krist, erum r\u00e9ttdr\u00e6p. Islam hefur enga sam\u00fa\u00f0 me\u00f0 okkar gildum. Svo fyrirl\u00edta \u00feeir okkur \u00e1 Vesturl\u00f6ndum fyrir gj\u00e1l\u00edfi og taumleysi \u00e1 m\u00f6rgum svi\u00f0um. \u00deetta segir islam, en mikilv\u00e6gt er a\u00f0 gera greinarmun \u00e1 islam og m\u00faslimum, tr\u00faarkerfinu og f\u00f3lkinu sem fylgir \u00fev\u00ed. \u00dev\u00ed m\u00faslimar eru manneskjur eins og vi\u00f0 \u00f6ll. Margir \u00feeirra eru hi\u00f0 besta f\u00f3lk a.m.k. \u00feanga\u00f0 til kreddurnar n\u00e1 heljart\u00f6kum \u00e1 heila \u00feeirra og hjarta. \u00deeir b\u00faa v\u00ed\u00f0a og um 2 millj\u00f3nir m\u00faslima \u00ed \u00cdsrael \u00ed vels\u00e6ld. \u00cd Jer\u00fasalem eru um 395 \u00fe\u00fasund m\u00faslimar sem er \u00e1l\u00edka fj\u00f6ldi og b\u00fdr \u00e1 \u00cdslandi. Og l\u00edfi\u00f0 gengur sinn vanagang.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Gervigreindin Claude segir:<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8220;Sumir r\u00e9tttr\u00faa\u00f0ir gy\u00f0ingar eru andv\u00edgir z\u00edonisma, en a\u00f0rir eru me\u00f0al \u00e1kafra stu\u00f0ningsmanna hans.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Andsta\u00f0an kemur einkum fr\u00e1 sumum h\u00f3pum strangtr\u00faa\u00f0ra (haredim). Satmar-has\u00eddar og Neturei Karta eru \u00feekktust, en \u00feau telja a\u00f0 endurreisn \u00cdsraels eigi a\u00f0 b\u00ed\u00f0a komu Mess\u00edasar og a\u00f0 z\u00edonisminn s\u00e9 veraldleg uppreisn gegn Gu\u00f0i. \u00deau v\u00edsa gjarnan \u00ed svokalla\u00f0a <em>\u00ferj\u00e1 ei\u00f0a<\/em> \u00far Talm\u00fad. \u00deessir h\u00f3par eru f\u00e1mennir en \u00e1berandi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">A\u00f0rir strangtr\u00faa\u00f0ir, til d\u00e6mis flokkarnir Shas og Sameina\u00f0 Torah-gy\u00f0ingd\u00f3mur \u00e1 \u00edsraelska \u00feinginu, eru oftast kalla\u00f0ir \u201e\u00f3-z\u00edon\u00edskir\u201c. \u00deeir taka \u00fe\u00e1tt \u00ed \u00edsraelskum stj\u00f3rnm\u00e1lum og \u00feiggja stu\u00f0ning r\u00edkisins en sty\u00f0ja ekki z\u00edonismann sem hugmyndafr\u00e6\u00f0i. Tr\u00faarlegur z\u00edonismi (Mizrachi og hreyfing sem kennd er vi\u00f0 rabb\u00ednann Kook) l\u00edtur hins vegar \u00e1 stofnun \u00cdsraels sem tr\u00faarlega mikilv\u00e6gan atbur\u00f0. N\u00fat\u00edma r\u00e9tttr\u00fana\u00f0ur \u00ed Bandar\u00edkjunum sty\u00f0ur \u00cdsrael l\u00edka yfirleitt eindregi\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Flest \u00ed \u00feessari deilu sn\u00fdst \u00fev\u00ed um tr\u00faarlegar forsendur en ekki bara um afst\u00f6\u00f0u til stj\u00f3rnm\u00e1la, og innan r\u00e9tttr\u00fana\u00f0ar eru margar \u00f3l\u00edkar raddir.&#8221;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Af \u00feessu s\u00e9st a\u00f0 gy\u00f0ingur og gy\u00f0ingur er ekki alltaf \u00fea\u00f0 sama, ekki samheiti um eina sko\u00f0un, s\u00f6mu p\u00f3lit\u00edk e\u00f0a hugmyndafr\u00e6\u00f0i.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>\u00c1 Gaza er Hamas vi\u00f0 v\u00f6ld.<\/strong> Palest\u00ednumenn kusu \u00fe\u00e1 yfir sig og \u00feeir hafa heldur betur dotti\u00f0 \u00ed ford\u00f3ma-g\u00edrinn og brj\u00e1l\u00e6\u00f0i\u00f0 sem fylgir islamistum. \u00cdsraelsmenn eru saka\u00f0ir um a\u00f0 stunda \u00fej\u00f3\u00f0armor\u00f0 \u00e1 Gaza. T\u00f6lur \u00feeirra sj\u00e1lfra bera \u00fev\u00ed vott a\u00f0 Palest\u00ednum\u00f6nnum hefur fj\u00f6lga\u00f0 g\u00edfurlega \u00e1 li\u00f0num \u00e1rum. \u00c1ri\u00f0 2007 \u00feegar Hamas t\u00f3k v\u00f6ld bjuggu \u00fear um 1,4 millj\u00f3nir manna en \u00e1ri\u00f0 2023 \u00feegar \u00e1t\u00f6kin h\u00f3fust voru \u00feeir or\u00f0nir 2,1-2,2 millj\u00f3nir. Au\u00f0vita\u00f0 hefur mannfall or\u00f0i\u00f0 verulegt vegna \u00e1takanna. En herna\u00f0ur \u00cdsraels beinist einkum a\u00f0 vopnab\u00farum \u00ed ne\u00f0anjar\u00f0arg\u00f6ngum sem Hamas bygg\u00f0i me\u00f0 nyts\u00f6mum sakleysingjum Vesturlanda \u00fear sem margir \u00cdslendingar hafa lagt h\u00f6nd \u00e1 pl\u00f3ginn. Hef\u00f0u \u00feeir stutt hina and gy\u00f0inglegu nazista \u00e1 s\u00ednum t\u00edma \u00e1 sama h\u00e1tt og \u00feeir vir\u00f0ast sty\u00f0ja Hamas?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Hva\u00f0 er Islam eiginlega? <\/strong>Segja m\u00e1 a\u00f0 islam s\u00e9 \u00e1 margan h\u00e1tt van\u00fer\u00f3u\u00f0 tr\u00fa og ef vi\u00f0 berum hana saman vi\u00f0 kristni og gy\u00f0ingd\u00f3m sem m\u00f3ta\u00f0 hafa \u00f6ll Vesturl\u00f6nd og lagt \u00fear grunn a\u00f0 velfer\u00f0 og mann\u00fa\u00f0, samhj\u00e1lp og samst\u00f6\u00f0u allra, \u00fe\u00e1 er afar \u00f3l\u00edku saman a\u00f0 jafna, svo ekki s\u00e9 n\u00fa d\u00fdpra \u00ed \u00e1rinni teki\u00f0. \u00c9g hef marg \u00edtreka\u00f0 or\u00f0 heimspekingsins Juergen Habermas, sem var yfirl\u00fdstur gu\u00f0leysingi og l\u00e9st vori\u00f0 2026. Hann sag\u00f0i a\u00f0 Vesturl\u00f6nd bygg\u00f0u alla sinn si\u00f0agrunn \u00e1 tveim hugt\u00f6kum sem \u00feau hef\u00f0u \u00feegi\u00f0 \u00far Bibl\u00edunni. Hugt\u00f6kin eru r\u00e9ttl\u00e6ti \u00far tr\u00faarb\u00f3k Gy\u00f0inga, Gamla testamentinu og k\u00e6rleikur \u00far N\u00fdja testamentinu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g hef veri\u00f0 a\u00f0 lesa <strong>M\u00f3seb\u00e6kurnar<\/strong> \u00e1 li\u00f0num misserum og tilraun Gy\u00f0inga til a\u00f0 skilgreina r\u00e9ttl\u00e6ti \u00ed samskiptum f\u00f3lks er a\u00f0d\u00e1unarver\u00f0. Til d\u00e6mis las \u00e9g um \u00fea\u00f0 ef ma\u00f0ur finnur lausaf\u00e9, \u00fe.e. villur\u00e1fandi sau\u00f0i, \u00fe\u00e1 skal hann f\u00f3\u00f0ra f\u00e9\u00f0 \u00fear til hann finnur eigandann og ekki rukka fyrir f\u00f3\u00f0runina. En finni hann ekki eiganda fj\u00e1rins \u00fe\u00e1 ver\u00f0ur \u00fea\u00f0 hans. Einnig er a\u00f0 finna texta um r\u00e9ttindi \u00fer\u00e6la. J\u00e1, \u00fer\u00e6ld\u00f3mur var \u00fatbreiddur um allan heim for\u00f0um daga og \u00e1 mi\u00f0\u00f6ldum var hann sv\u00e6snastur me\u00f0al m\u00faslima. \u00deekkir\u00f0u hinar s\u00f6gulegu sta\u00f0reyndir um Tyrkjar\u00e1ni\u00f0? \u00dear voru m\u00faslimar \u00e1 fer\u00f0. Afkomendur \u00fer\u00e6la \u00e1 Vesturl\u00f6ndum eru enn vi\u00f0 l\u00fd\u00f0i en \u00fer\u00e6lar m\u00faslimanna eru t\u00fdndir. Hva\u00f0 kom fyrir \u00fe\u00e1? J\u00fa, m\u00faslimar geldu alla karlana til \u00feess a\u00f0 \u00feeir g\u00e6tu ekki fj\u00f6lga\u00f0 s\u00e9r. Margfalt fleiri \u00fer\u00e6lar voru fluttir til landa islam en annarra landa. Afkomendur \u00fer\u00e6lanna \u00far hinu islamska barbar\u00edi er ekki til \u00fev\u00ed m\u00faslimar geltu alla karl \u00fer\u00e6lana og ger\u00f0ur konurnar a\u00f0 hj\u00e1konum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Versi\u00f0 \u00far Gamla testamentinu um <strong>auga fyrir auga og t\u00f6nn fyrir t\u00f6nn<\/strong> er oft nota\u00f0 af f\u00f3lki sem \u00feekkir takmarka\u00f0 til Bibl\u00edunnar og sagt vera d\u00e6mi um hefnigirni Gy\u00f0inga. \u00de\u00e1 s\u00e9st lesendum yfir tilgang \u00feessarar l\u00f6gm\u00e1ls greinar sem er \u00e6tla\u00f0 a\u00f0 takmarka hefnd svo a\u00f0 h\u00fan ver\u00f0i ekki taumlaus og f\u00f3rnarlambi\u00f0 sleppi s\u00e9r algerlega lausu \u00ed hefnd og taki h\u00f6fu\u00f0 fyrir eitt auga og annan f\u00f3tinn fyrir eina t\u00f6nn. \u00deessi grein l\u00f6gm\u00e1lsins sn\u00fdst \u00fev\u00ed um skilgreiningu \u00e1 r\u00e9ttl\u00e6ti og takm\u00f6rkun hefndar, a\u00f0 borga \u00ed s\u00f6mu mynt en ekki ganga lengra.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Lj\u00f3tleiki \u00ed Bibl\u00edunni.<\/strong> Menn rifja stundum upp \u00ed m\u00edn eyru a\u00f0 margt s\u00e9 n\u00fa lj\u00f3tt \u00ed Gamla testamentinu. J\u00e1, v\u00edst er \u00fea\u00f0, enda er \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 finna fr\u00e1sagnir af deilum f\u00f3lks og \u00e1t\u00f6kum um aldir og \u00e1r\u00fe\u00fasund, en l\u00edka \u00e1st og vin\u00e1ttu. Gamla testamenti\u00f0 er a\u00f0 hluta til alveg eins og fr\u00e9ttirnar \u00ed fj\u00f6lmi\u00f0lum samt\u00edmans. Gamla testamentinu m\u00e1 \u00e1 margan h\u00e1tt l\u00edkja vi\u00f0 b\u00f3kmenntaarf okkar, \u00cdslendingas\u00f6gurnar, sem geyma margt hr\u00e6\u00f0ilegt en l\u00edka fegur\u00f0 og reisn. T\u00f6kum t.d. G\u00edsla s\u00f6gu S\u00farssonar. \u00dear vantar n\u00fa ekki mor\u00f0in og gl\u00e6pina skv. vitund n\u00fat\u00edmamanna. Eigum vi\u00f0 \u00fe\u00e1 a\u00f0 hafna b\u00e6\u00f0i GT og l\u00edfi fornmanna \u00e1 \u00cdslandi? Nei, en vi\u00f0 getum \u00fe\u00f3 l\u00e6rt \u00fdmislegt af illskunni, en hvernig? J\u00fa me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 for\u00f0ast hana! H\u00fan er ekki pr\u00e9diku\u00f0 sem fyrirmynd, hvorki \u00ed GT gy\u00f0inga, n\u00e9 \u00ed ritum forfe\u00f0ra okkar og m\u00e6\u00f0ra, heldur til a\u00f0 for\u00f0ast hana. En hi\u00f0 g\u00f3\u00f0a \u00ed tr\u00fa gy\u00f0inga og \u00ed tr\u00fa fornmanna \u00e1 \u00cdslandi \u00e1 au\u00f0vita\u00f0 a\u00f0 lifa me\u00f0 okkur sem speki aldanna. J\u00e1, hi\u00f0 <strong>g\u00f3\u00f0a<\/strong> en ekki hi\u00f0 <strong>illa<\/strong>.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Stofnandi Hj\u00e1lpr\u00e6\u00f0ishersins, William Booth, sag\u00f0ist lesa Bibl\u00eduna me\u00f0 s\u00f6mu a\u00f0fer\u00f0 og hann g\u00e6ddi s\u00e9r \u00e1 fiski. Hann sag\u00f0ist taka beinin \u00fat \u00far s\u00e9r og leggja \u00feau \u00e1 disk barminn en kyngja \u00fev\u00ed sem v\u00e6ri meltanlegt. \u00deannig les \u00e9g Gamla testamenti\u00f0, sem s\u00f6gu \u00fej\u00f3\u00f0ar, er um aldir \u00e1tti \u00ed bar\u00e1ttunni vi\u00f0 l\u00edfi\u00f0 og har\u00f0a n\u00e1tt\u00faru \u00ed fjandsamlegum heimi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Alkunna er a\u00f0 gy\u00f0ingar skiptast \u00ed marga h\u00f3pa.<\/strong> Sumir gy\u00f0inga eru har\u00f0l\u00ednumenn og \u00fe\u00e1 m\u00e6tti suma kalla ofsatr\u00faarmenn. Svo eru a\u00f0rir \u00e1 mi\u00f0junni, \u00e1 \u00f6ndver\u00f0um mei\u00f0i vi\u00f0 ofsatr\u00faarmenn og m\u00e6ttu \u00fev\u00ed skilgreinast sem h\u00f3fsamir. \u00deeir eru eins og anna\u00f0 f\u00f3lk. En \u00feeir eru fylgnir s\u00e9r og duglegir. \u00de\u00f3tt gy\u00f0ingar \u00feeir telji inann vi\u00f0 2% mannkyns eru \u00feeir handahafa 20% allra N\u00f3belsver\u00f0launa!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g hef heims\u00f3tt \u00cdsrael og \u00fear b\u00fdr f\u00f3lk me\u00f0 \u00f3l\u00edkan uppruna. \u00c9g minni \u00e1 mannfj\u00f6ldat\u00f6lur h\u00e9r a\u00f0 framan. F\u00f3lk af \u00f3l\u00edkum tr\u00faarbr\u00f6g\u00f0um b\u00fdr \u00ed \u00cdsrael og n\u00fdtur \u00fear almennra mannr\u00e9ttinda. M\u00faslimar sitja \u00e1 \u00feingi, eru \u00ed hernum og sama m\u00e1 segja um f\u00f3lk \u00far \u00f6\u00f0rum tr\u00faarh\u00f3pum. (Uppl\u00fdsingar af Veraldarvefnum).<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Z\u00edonismi snerist einkum um \u00fea\u00f0 a\u00f0 stofan r\u00edki gy\u00f0inga og \u00fea\u00f0 t\u00f3kst. Hva\u00f0 segir Claude um z\u00edonismann?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8220;\u00cd stuttu m\u00e1li er z\u00edonismi hreyfing og hugmyndafr\u00e6\u00f0i sem \u00e1 r\u00e6tur \u00ed Evr\u00f3pu seint \u00e1 19. \u00f6ld og mi\u00f0ar a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 gy\u00f0ingar eigi s\u00e9r \u00fej\u00f3\u00f0arheimili \u00ed Palest\u00ednu (\u00cdsrael). Theodor Herzl er oftast talinn stofnandi stj\u00f3rnm\u00e1lalegs z\u00edonisma, og fyrsta z\u00edonista\u00feingi\u00f0 var haldi\u00f0 \u00ed Basel 1897. Eftir stofnun \u00cdsraelsr\u00edkis 1948 hefur or\u00f0i\u00f0 oft v\u00edsa\u00f0 til stu\u00f0nings vi\u00f0 tilvist og sj\u00e1lfs\u00e1kv\u00f6r\u00f0unarr\u00e9tt gy\u00f0inga \u00ed r\u00edkinu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">F\u00f3lk leggur \u00fe\u00f3 \u00f3l\u00edkan skilning \u00ed or\u00f0i\u00f0, og \u00fear liggur mikill hluti \u00e1greiningsins:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Stu\u00f0ningsmenn<\/strong> l\u00edta yfirleitt \u00e1 z\u00edonisma sem \u00fej\u00f3\u00f0frelsishreyfingu gy\u00f0inga, sem svar vi\u00f0 aldalangri \u00fatleg\u00f0 og ofs\u00f3knum, ekki s\u00edst helf\u00f6rinni.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Gagnr\u00fdnendur<\/strong> telja hann landn\u00e1msstefnu sem hafi leitt til brottn\u00e1ms og undirokunar Palest\u00ednumanna, og sumir telja hann \u00ed e\u00f0li s\u00ednu mismuna f\u00f3lki eftir \u00fej\u00f3\u00f0erni e\u00f0a tr\u00fa.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Margir gy\u00f0ingar<\/strong> skilgreina sig sem z\u00edonista \u00ed menningarlegum e\u00f0a tr\u00faarlegum skilningi, en a\u00f0rir hafna hugtakinu, eins og \u00e9g nefndi um sumar r\u00e9tttr\u00fana\u00f0argr\u00fappur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Innan z\u00edonismans eru einnig \u00f3l\u00edkar stefnur: verkal\u00fd\u00f0s-z\u00edonismi, endursko\u00f0unarsinnu\u00f0 stefna (Jabotinsky), tr\u00faarlegur z\u00edonismi og menningarlegur z\u00edonismi. \u00de\u00e6r eru \u00f3samm\u00e1la um landam\u00e6ri, e\u00f0li r\u00edkisins og afst\u00f6\u00f0u til Palest\u00ednumanna.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Claude tekur ekki afst\u00f6\u00f0u til \u00feess hvort z\u00edonismi s\u00e9 r\u00e9ttm\u00e6tur e\u00f0a ekki, enda er \u00fea\u00f0 umdeilt p\u00f3lit\u00edskt m\u00e1l.&#8221;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>F\u00e1fr\u00e6\u00f0in um \u00cdsrael er algeng og gy\u00f0ingahatur \u00f3tr\u00falega \u00fatbreitt.<\/strong> Ford\u00f3mar r\u00edkja \u00ed hj\u00f6rtum alltof margra um m\u00e1lefni Mi\u00f0-Austurlanda. Arabar s\u00e6kja allssta\u00f0ar fram og \u00fear sem \u00feeir n\u00e1 meirihluta ey\u00f0a \u00feeir annarri menningu. Konur missa almenn &#8220;vestr\u00e6n&#8221; r\u00e9ttindi og \u00feeim eru settar skor\u00f0ur \u00e1 margan h\u00e1tt. Enda \u00fe\u00f3tt arabar noti fars\u00edma, horfi \u00e1 sj\u00f3nvarp og hlusti \u00e1 \u00fatvarp, \u00fe\u00e1 eru \u00feeir a\u00f0 vissu leyti \u00ed h\u00e1ttum og heg\u00f0un eins og f\u00f3lk var \u00e1 myrkustu t\u00edmum mi\u00f0alda.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deeir r\u00e9\u00f0ust inn \u00ed Evr\u00f3pu og r\u00e9\u00f0u t.d. yfir Sp\u00e1ni um aldir og telja sig enn eiga \u00fea\u00f0 land og b\u00ed\u00f0a \u00feess a\u00f0 n\u00e1 \u00fev\u00ed aftur. \u00deegar \u00feeir s\u00e1tu um V\u00ednarborg \u00e1 17. \u00f6ld t\u00f3kst heimam\u00f6nnum me\u00f0 hj\u00e1lp ka\u00fe\u00f3lskra herja fr\u00e1 P\u00f3llandi og Lith\u00e1en undir stj\u00f3rn konungs Habsborgara a\u00f0 f\u00e6la \u00f3v\u00e6runa burt. \u00de\u00e1 f\u00f6gnu\u00f0u V\u00ednarb\u00faar me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 baka h\u00e1lfm\u00e1na, tr\u00faart\u00e1kn m\u00faslima, og eta me\u00f0 kaffinu. \u00dea\u00f0 brau\u00f0 heitir <em>croissant<\/em>! N\u00e6st \u00feegar \u00fe\u00fa f\u00e6r\u00f0 \u00fe\u00e9r kaffi og croissant skaltu hugsa um \u00fe\u00e1 sta\u00f0reynd a\u00f0 \u00f6fgam\u00faslima \u00e6tla s\u00e9r Evr\u00f3pu alla og vilja koma \u00fear \u00e1 sharial\u00f6gum. Vestr\u00e6nar konur! \u00deeir eru byrja\u00f0ir a\u00f0 sauma b\u00farkurnar \u00e1 ykkur!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">M\u00faslimar hafa s\u00f3tt a\u00f0 Vesturl\u00f6ndum um aldir. Og \u00feeir eru enn me\u00f0 \u00e1\u00e6tlanir um a\u00f0 ey\u00f0a menningu okkar. Gleymum ekki \u00feegar \u00feeir flugur \u00e1 Tv\u00edburaturnana \u00ed New York. Og n\u00fa 25 \u00e1rum s\u00ed\u00f0ar st\u00fdrir m\u00faslimi NY! Sama \u00e1 vi\u00f0 um Lund\u00fani og tylft annarra borga Bretlands.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">M\u00faslimar eru margir hi\u00f0 besta f\u00f3lk og sama m\u00e1 segja um f\u00f3lk af \u00f6llum tr\u00faarbr\u00f6g\u00f0um, en hins vegar er tr\u00faarkerfi \u00feeirra og hugmyndafr\u00e6\u00f0i K\u00f3ransins og seinni t\u00edma t\u00falkun \u00e1 \u00fev\u00ed \u00f6llu, a\u00f0 m\u00f6rgu leyti algj\u00f6r steypa, eins og stundum er a\u00f0 or\u00f0i komist.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Samkv\u00e6mt ni\u00f0urst\u00f6\u00f0u fr\u00e6\u00f0imannsins dr. Jay Smith, er vert er a\u00f0 gera s\u00e9r grein fyrir \u00fev\u00ed, a\u00f0 islam s\u00e6kir<strong> ekki<\/strong> bara fram \u00e1 tr\u00faarlegum forsendum, ekki a\u00f0eins me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 pr\u00e9dika e\u00f0a r\u00f6kr\u00e6\u00f0a gu\u00f0fr\u00e6\u00f0i, heldur a\u00f0allega \u00ed gegnum <strong>p\u00f3lit\u00edk<\/strong>. Og \u00feeir stefna \u00e6t\u00ed\u00f0 a\u00f0 \u00fev\u00ed sama: A\u00f0 n\u00e1 t\u00f6kum \u00e1 4 sto\u00f0um hvers \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lags.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">1. P\u00f3lit\u00edk &#8211; a\u00f0 n\u00e1 undirt\u00f6kunum \u00ed stj\u00f3rnm\u00e1laheiminum og n\u00e1 v\u00f6ldum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">2. D\u00f3mskerfi\u00f0 &#8211; taka \u00fea\u00f0 yfir og koma \u00e1 <em>sharia<\/em> l\u00f6gum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">3. Herinn &#8211; n\u00e1 t\u00f6kum \u00e1 \u00f6llum vopnf\u00e6rum m\u00f6nnum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">4. Sk\u00f3lar og menntastofnanir &#8211; heila\u00fevo allan ungd\u00f3minn me\u00f0 textum K\u00f3ransins og sharialaga.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Islam er \u00ed grunninn p\u00f3lit\u00edk me\u00f0 tr\u00faarlegu \u00edvafi en ekki \u00f6fugt. Innan islam er engin a\u00f0skilna\u00f0ur \u00e1 milli tr\u00faar og stj\u00f3rnm\u00e1la eins og \u00ed flestum kristnum l\u00f6ndum \u00fear sem a\u00f0skilna\u00f0ur kirkju og r\u00edkis er bundi\u00f0 \u00ed l\u00f6gum. Tr\u00fain f\u00e6r a\u00f0 starfa \u00e1 Vesturl\u00f6ndum en starfi\u00f0 ver\u00f0ur \u00fe\u00e1 a\u00f0 fara fram innan heimilda laga. \u00cd islam er \u00feessu \u00f6llu blanda\u00f0 saman.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Kristnin segir okkur a\u00f0 elska n\u00e1ungann, en \u00fear me\u00f0 \u00feurfum vi\u00f0 hvorki a\u00f0 elska l\u00edfssko\u00f0anir hans, tr\u00fa e\u00f0a heg\u00f0un.<\/strong> Vi\u00f0 eigum a\u00f0 elska m\u00faslima en ekki islam, ekki tr\u00faarkerfi\u00f0, sem er fornt og tyrfi\u00f0, kvenfjandsamlegt og me\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00ed s\u00ednu tr\u00faarriti a\u00f0 m\u00faslimar geti \u00fej\u00f3na\u00f0 Gu\u00f0i s\u00e9rstaklega me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 drepa gy\u00f0inga og kristna sem \u00feeir kalla <em>infidels<\/em> e\u00f0a <em>vantr\u00faa\u00f0a<\/em>! Islam er hugmyndaheimur ofbeldis og \u00f6fga en au\u00f0vita\u00f0 er til \u00ed \u00feeirra hef\u00f0 \u00fdmislegt fagurt og gott, vegna \u00feess a\u00f0 mannskepnan hefur g\u00f3\u00f0a eiginleika, en illskan og myrkri\u00f0 leynir s\u00e9r ekki innan islam \u00fe.e. \u00ed tr\u00faarkerfinu. \u00c9g l\u00e6t \u00feess og geti\u00f0 a\u00f0 vestr\u00e6n samf\u00e9l\u00f6g eru alls ekki fullkomin. \u00dear \u00fer\u00edfast l\u00edka illindi og \u00f3r\u00e9ttur. Gamla kristna tuggan er nefnilega s\u00f6nn: mannskepnan er syndug &#8211; sem merkir a\u00f0 h\u00fan geigar, missir marks, h\u00e6ttir til a\u00f0 r\u00e1sa \u00fat af hinum r\u00e9tta vegi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Vinstri\u00f0 og islam.<\/strong> \u00c9g er mj\u00f6g hugsi yfir vinstrinu \u00ed heiminum. Hvers vegna liggur vinsstri\u00f0 marflatt fyrir framr\u00e1s islam \u00e1 Vesturl\u00f6ndum? Hvers vegna sj\u00e1 \u00feeir ekki \u00ed gegn um hugmyndafr\u00e6\u00f0i islam? Hvers konar k\u00e6rleikur er \u00fea\u00f0 sem l\u00e6tur binda fyrir augu s\u00e9r kl\u00fat sem byrgir s\u00fdn \u00e1 sannleikann? Er \u00fea\u00f0 vegna \u00feess a\u00f0 \u00feeir f\u00e1 fj\u00f6lda atkv\u00e6\u00f0a fr\u00e1 innflytjendum sem eru m\u00faslimar?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Eric Kaufmann er \u00feekktur stj\u00f3rnm\u00e1lafr\u00e6\u00f0ingur, pr\u00f3fessor og rith\u00f6fundur, kunnur fyrir umfangsmiklar ranns\u00f3knir s\u00ednar \u00e1 \u00fej\u00f3\u00f0ernishyggju, l\u00fd\u00f0fr\u00e6\u00f0i tengdri stj\u00f3rnm\u00e1lum og tr\u00faarbr\u00f6g\u00f0um, og menningarstj\u00f3rnm\u00e1lum. Hann segir vinsti\u00f0 og islam \u00e1 lei\u00f0 \u00ed eina s\u00e6ng me\u00f0 einfeldningslegri t\u00falkun \u00e1 \u00fer\u00f3un heimsm\u00e1la. \u00dear er megin tuggan s\u00fa a\u00f0 Vesturl\u00f6nd hafi mergsogi\u00f0 a\u00f0ra heimshluta. Kannast lesandinn vi\u00f0 \u00feessa t\u00falkun? Grein hans ber yfirskriftina: Venstrefl\u00f8jen og muslimerne deler verdenssyn.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Eftirtaldir -ismar, vir\u00f0ast allir hafa s\u00f6mu r\u00e6tur?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Marx-ismi<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Komm\u00fan-ismi<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">S\u00f3sial-ismi<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Femin-ismi<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">W\u00f3ke-ismi<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ef vi\u00f0 g\u00e6tum sett \u00feessa -isma inn \u00ed \u00cdslendingab\u00f3k \u00fe\u00e1 v\u00e6ri k\u00f3mm\u00fanisminn sonur marxismans, s\u00f3s\u00edalisminn barnabarn, feminisminn 3. \u00e6ttli\u00f0ur og W\u00f3ki\u00f0 4. li\u00f0ur. Allt s\u00f6mu \u00e6ttar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hvers vegna er gy\u00f0ingahatur svo algengt, sem raun ber vitni innan \u00feessara stefna? Og h\u00e9r m\u00e6tti b\u00e6ta inn islam-isma sem hatar alla gy\u00f0inga og kristna l\u00edka? Hvers vegna vilja \u00feessir -ismar losna vi\u00f0 vestr\u00e6n gildi, losna vi\u00f0 kristnina og hennar \u00e1hrif? Allir \u00feessir -ismar stefna \u00ed raun a\u00f0 veraldlegu og \u00fear me\u00f0 gu\u00f0lausu \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lagi<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deessir 5 ismar eru allir eins og<strong> tyggj\u00f3, en me\u00f0 mismunandi brag\u00f0i.<\/strong> \u00cd grunninum er ein og sama gu\u00f0lausa tuggan.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g vitna\u00f0i \u00ed heimspekinginn Habermas fyrr \u00ed \u00feessu greinarkorni og hann segir Bibl\u00eduna hafa lagt grunninn a\u00f0 \u00f6llum Vestr\u00e6num samf\u00e9l\u00f6gum. Hvers vegna vill f\u00f3lki\u00f0 sem fylgir \u00feessum -ismum henda \u00fev\u00ed sem mestu skiptir og kasta \u00fev\u00ed \u00e1 gl\u00e6? \u00deessir -ismar eru hreinlega a\u00f0 taka negluna \u00far b\u00e1tnum sem veldur \u00fev\u00ed a\u00f0 sj\u00f3rinn mun fl\u00e6\u00f0a inn og skektan s\u00f6kkva a\u00f0 lokum \u00ed hafdj\u00fapi\u00f0 myrka.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vitur vinur sendi m\u00e9r \u00feessi skilabo\u00f0:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8220;\u00cd raun og veru veltur allt sem var\u00f0ar \u00cdsraelsr\u00edki samt\u00edmans \u00e1 einni spurningu. H\u00fan er \u00feessi: \u00c1 \u00cdsraelsr\u00edki r\u00e9tt \u00e1 s\u00e9r? Geti f\u00f3lk ekki svara\u00f0 \u00feeirri spurningu j\u00e1tandi \u00fe\u00e1 er samtal vi\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00fe\u00fd\u00f0ingarlaust.&#8221;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En kraftaverk geta gerst og oftar en ekki raungerast \u00feau sem svar vi\u00f0 b\u00e6n.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">P\u00e1ll postuli rita\u00f0i for\u00f0um daga til Efesusmanna og sag\u00f0i (Ef 5.14b):<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Vakna \u00fe\u00fa sem sefur<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>og r\u00eds upp fr\u00e1 dau\u00f0um<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>og \u00fe\u00e1 mun Kristur l\u00fdsa \u00fe\u00e9r.<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>&#8212;<\/strong><\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"2000\" height=\"920\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2026\/10\/5ba6fdd7-668c-4504-8094-1d6966d187ba-17256-00000acbccf207d0_file.jpg?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-8288\" \/><figcaption class=\"wp-element-caption\">Mynd af skipi \u00fear sem \u00e6tla m\u00e1 a\u00f0 &#8220;neglan&#8221; \u00fe.e. botnlokinn hafi brosti\u00f0<\/figcaption><\/figure>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>eftir \u00d6rn B\u00e1r\u00f0 J\u00f3nsson Merkilegt hefur veri\u00f0 a\u00f0 upplifa vi\u00f0br\u00f6g\u00f0 vi\u00f0 grein sem \u00e9g rita\u00f0i n\u00fdlega og birti \u00ed DV og tel mj\u00f6g uppl\u00fdsandi um \u00e1hrif islam \u00ed heiminum. Greinin ber yfirskriftina Taktu \u00fe\u00e9r st\u00f6\u00f0u. \u00dear er \u00fev\u00ed m.a. haldi\u00f0 fram a\u00f0 3. heimstyrj\u00f6ldin s\u00e9 \u00feegar hafin og framr\u00e1s islam \u00e1 Vesturl\u00f6ndum sta\u00f0reynd. Vilstu hlusta [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[4,5],"tags":[],"class_list":["post-8289","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-greinar-og-hugvekjur-articles","category-heimsmalin-stjornmal-stid-og-atok"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/8289","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=8289"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/8289\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=8289"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=8289"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=8289"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}