{"id":8227,"date":"2026-09-17T11:48:19","date_gmt":"2026-09-17T11:48:19","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/?p=8227"},"modified":"2026-09-17T11:48:19","modified_gmt":"2026-09-17T11:48:19","slug":"taktur-ther-stodu","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=8227","title":{"rendered":"Taktu \u00fe\u00e9r st\u00f6\u00f0u!"},"content":{"rendered":"\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Hvorum megin viltu standa \u00ed 3. heimsstyrj\u00f6ldinni?<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Grein eftir \u00d6rn B\u00e1r\u00f0 J\u00f3nsson. <\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1153\" height=\"1725\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2026\/09\/img_1415.jpg?w=684\" alt=\"\" class=\"wp-image-8226\" \/><figcaption class=\"wp-element-caption\">Mynda af b\u00f3kark\u00e1pu fengi a\u00f0 l\u00e1ni \u00e1 Vefnum. <br \/>B\u00f3kin \u00e1 engan \u00fe\u00e1tt \u00ed me\u00f0f. grein, k\u00e1pan er bara skreyting <br \/>sem h\u00e6fir umfj\u00f6llunarefni greinarinnar<\/figcaption><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Viltu lesa og\/e\u00f0a hlusta? Smelltu \u00e1 tengilinn:<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-audio\"><audio controls src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2026\/09\/taktu-ther-stodu.m4a\"><\/audio><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Um nokkurra \u00e1ra skei\u00f0 \u00fej\u00f3na\u00f0i \u00e9g sem prestur \u00ed Noregi. \u00dea\u00f0 var l\u00e6rd\u00f3msr\u00edkur t\u00edmi. Eitt af \u00fev\u00ed sem \u00fear flaut upp\u00e1 yfirbor\u00f0 \u00ed daglegri umr\u00e6\u00f0u, var reynsla Nor\u00f0manna af S\u00ed\u00f0ari heimstyrj\u00f6ldinni, \u00feegar landi\u00f0 var hernumi\u00f0 af \u00fe\u00fdskum nasistum. \u00de\u00e1 ger\u00f0ist \u00fea\u00f0 sem \u00e6t\u00ed\u00f0 gerist \u00feegar \u00e1t\u00f6k \u00ed menningarheimum eiga s\u00e9r sta\u00f0, a\u00f0 menn skipast \u00ed tv\u00e6r fylkingar. Langflestir h\u00f6fnu\u00f0u hugmyndafr\u00e6\u00f0i nasista, en minnihluti lag\u00f0ist \u00e1 sveif me\u00f0 \u00feeim, fundu t\u00e6kif\u00e6ri \u00ed undirl\u00e6gjuh\u00e6tti og ger\u00f0ust r\u00e6\u00f0arar \u00e1 langskipi einnar h\u00e6ttulegustu hugmyndafr\u00e6\u00f0i sem um getur.&nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Nasistar l\u00f6g\u00f0u m.a. \u00fat \u00ed \u00fea\u00f0 a\u00f0 \u00feurrka \u00fat alla gy\u00f0inga \u00ed heiminum og settu upp verksmi\u00f0jur \u00ed \u00fev\u00ed sambandi enda hafa \u00dej\u00f3\u00f0verjar \u00e6t\u00ed\u00f0 veri\u00f0 miklir handverksmenn, i\u00f0nar\u00f0ars\u00e9n\u00ed, verkfr\u00e6\u00f0ingar, v\u00e9lsmi\u00f0ir og i\u00f0nj\u00f6frar. \u00deessir eiginleikar n\u00fdttust \u00feeim \u00ed str\u00ed\u00f0inu, en ur\u00f0u \u00feeim svo til bjargar eftir str\u00ed\u00f0, er \u00feeir bygg\u00f0u landi\u00f0 upp \u00e1 \u00f6rsk\u00f6mmum t\u00edma me\u00f0 hj\u00e1lp sigurvegaranna.<\/p>\n\n\n\n<!--more-->\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Nasistar \u00ed Noregi fengu marga til li\u00f0s vi\u00f0 sig. \u00c9g \u00fej\u00f3na\u00f0i um hr\u00ed\u00f0 \u00ed landb\u00fana\u00f0arh\u00e9ra\u00f0i og \u00fear voru nokkur st\u00f3rb\u00fdli, sem \u00feurftu mikinn mannafla \u00e1 str\u00ed\u00f0s\u00e1runum, enda v\u00e9lv\u00e6\u00f0ing \u00ed landb\u00fana\u00f0i skemur \u00e1 veg komin \u00fe\u00e1 en n\u00fa. Eigendur stj\u00f3rjar\u00f0a voru yfirleitt teknir fyrir af innr\u00e1sarhernum og gefnir tveir kostir, a\u00f0 \u00fe\u00fd\u00f0ast herinn og \u00fej\u00f3na honum e\u00f0a missa j\u00f6r\u00f0ina. Einn \u00feeirra sem var\u00f0 a\u00f0 l\u00fata valdinu var me\u00f0 marga \u00ed vinnu, en skipti verkam\u00f6nnum s\u00ednum \u00ed tvo h\u00f3pa, eftir afst\u00f6\u00f0unni til hersins, svo vinnufri\u00f0ur yr\u00f0i \u00ed hvorum h\u00f3pi fyrir sig.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Svona var Noregur og eldra f\u00f3lk var enn me\u00f0 minningar fr\u00e1 str\u00ed\u00f0s\u00e1runum \u00feegar \u00e9g \u00fej\u00f3na\u00f0i \u00fear 60 \u00e1rum eftir str\u00ed\u00f0 2014-2019. Fleiri atvik g\u00e6ti \u00e9g nefnt um \u00e1hrif str\u00ed\u00f0sins sem enn eru \u00ed minni f\u00f3lks og s\u00f6gu einstaklinga.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En hvers vegna rifja \u00e9g \u00feetta upp \u00ed dag?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">J\u00fa, vegna \u00feess a\u00f0 \u00ed heimi samt\u00edmans er \u00e1l\u00edka \u00f3gn og nasisminn for\u00f0um. Hreyfing f\u00f3lks er \u00e1 fer\u00f0 um allan heim, sem er me\u00f0 \u00e1\u00feekka hugmyndafr\u00e6\u00f0i og nasistarnir. Hatur \u00e1 gy\u00f0ingum einkennir b\u00e1\u00f0ar hreyfingar. \u00deessi hugmyndarfr\u00e6\u00f0i skiptir f\u00f3lki \u00ed tv\u00e6r fylkingar, hina tr\u00fau\u00f0u og hina vantr\u00fau\u00f0u. H\u00e9r er \u00e9g a\u00f0 tala um <em>islam<\/em> sem tr\u00faarkerfi, sem l\u00edtur \u00e1 alla a\u00f0ra &#8211; og \u00fear me\u00f0 allt kristi\u00f0 f\u00f3lk &#8211; sem vantr\u00faa\u00f0a. A\u00f0 vantr\u00fau\u00f0um m\u00e1 t.d. lj\u00faga skv. K\u00f3raninum og svo m\u00e1 l\u00edka drepa \u00fe\u00e1, ef \u00feeir reynast \u00f3\u00fe\u00e6gir lj\u00e1ir \u00ed \u00fe\u00fafu. Allt samkv\u00e6mt tr\u00faarb\u00f3kinni! Segja m\u00e1 a\u00f0 islam s\u00e9 \u00ed grunninn p\u00f3l\u00edt\u00edsk hugmyndafr\u00e6\u00f0i \u00ed tr\u00faarlegum kl\u00e6\u00f0um.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">F\u00f3lk me\u00f0 \u00feessa s\u00f6mu hugmyndafr\u00e6\u00f0i sem kalla sig Palest\u00ednumenn hafa sumir hverjir eitt markmi\u00f0: a\u00f0 drepa alla gy\u00f0inga undir merkjum Hamas. Palest\u00ednumenn voru ekki til sem sl\u00edkir, \u00f6ldum saman. \u00deeir eru \u00ed grunninn arabar, sem bjugg \u00e1 e\u00f0a settust a\u00f0 \u00e1 sv\u00e6\u00f0i, sem R\u00f3mverjar uppnefndu Palest\u00ednu \u00e1 s\u00ednum t\u00edma, er \u00feeir l\u00f6g\u00f0u \u00cdsralesr\u00edki \u00ed r\u00fast \u00e1 1. og 2. \u00f6ld e.Kr.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Segja m\u00e1 a\u00f0 Jasser Arafat hafi b\u00fai\u00f0 til hina palest\u00ednsku \u00fej\u00f3\u00f0 \u00e1 20. \u00f6ld. En hin meinta \u00fej\u00f3\u00f0 \u00e1 s\u00e9r engin hef\u00f0bundin \u00fej\u00f3\u00f0areinkenni, svo sem s\u00e9rstaka tungu, menningu, b\u00f3kmenntir, hva\u00f0 \u00fe\u00e1 land. Arafat var ekkert lamb a\u00f0 leiks s\u00e9r vi\u00f0. Hann er l\u00edklega eini ma\u00f0ur \u00ed s\u00f6gunni sem tala\u00f0 hefur \u00far r\u00e6\u00f0ust\u00f3li Allsherjar\u00feings Sameinu\u00f0u \u00fej\u00f3\u00f0anna me\u00f0 hla\u00f0na skambyssu \u00ed belti.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1 li\u00f0inni \u00f6ld f\u00f3ru vestr\u00e6nir stj\u00f3rnm\u00e1lamenn a\u00f0 lj\u00e1 m\u00e1ls \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 Palest\u00edna fengi st\u00f6\u00f0u lands og r\u00edkis. Menn f\u00f3ru a\u00f0 tala um \u00fej\u00f3\u00f0 og kosningar \u00e1 Gaza. Bandar\u00edkjamenn f\u00f3ru framarlega \u00ed \u00feessu tafli og kr\u00f6f\u00f0ust \u00feess a\u00f0 Hamas-samt\u00f6kin fengju a\u00f0 vera me\u00f0 \u00ed &#8220;l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0islegu&#8221; ferli. Bill Clinton fv. forseti BNA hefur n\u00fa vi\u00f0urkennt a\u00f0 hafa l\u00e1ti\u00f0 blekkjast af fagurgala arabanna \u00fev\u00ed \u00feeir vildu aldrei stofna l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0isr\u00edki. \u00deeirra verkefni var eitt og hugsj\u00f3nin ein: a\u00f0 drepa alla gy\u00f0inga \u00e1 sv\u00e6\u00f0inu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">R\u00edki\u00f0 var stofna\u00f0 \u00e1 s\u00ednum t\u00edma og kosningar haldnar \u00e1 Gaza og Hamas vann \u00fe\u00e6r \u00e1ri\u00f0 2006. &#8220;Samt\u00f6kin sigru\u00f0u keppinautinn Fatah me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 lofa hei\u00f0arlegri stj\u00f3rns\u00fdslu og andspyrnu gegn hern\u00e1mi. Hamas \u00e1tti \u00ed \u00e1t\u00f6kum vi\u00f0 Fatah \u00ed j\u00fan\u00ed 2007 \u00ed stuttri bar\u00e1ttu sem k\u00f6llu\u00f0 er orrustan um Gaza. Hamas vann \u00e1t\u00f6kin og n\u00e1\u00f0i fullum yfirr\u00e1\u00f0um yfir Gaza, \u00e1 me\u00f0an Fatah h\u00e9lt v\u00f6ldum \u00e1 Vesturbakkanum.&#8221; (Wikipedia)<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Palest\u00ednuf\u00f3lki\u00f0 kaus yfir sig Hamas og s\u00fdpur n\u00fa sey\u00f0i\u00f0 af \u00feeirri herlei\u00f0ingu fr\u00e1 frelsi til helsis. Daginn eftir kosningar byrju\u00f0u Hamas-menn a\u00f0 hreinsa til \u00ed eigin ranni, dr\u00e1pu fj\u00f6lda manns \u00far s\u00ednum ranni, sem ekki voru samvinnu\u00fe\u00fd\u00f0ir. \u00de\u00e1 h\u00f3fu \u00feeir a\u00f0 grenja \u00fat f\u00e9 fr\u00e1 Vesturl\u00f6ndum. Og \u00feeim var\u00f0 vel \u00e1gengt og fengu milljar\u00f0a dollara, sem eru svo st\u00f3rar upph\u00e6\u00f0ir \u00ed \u00edslenskum kr\u00f3num, a\u00f0 ekkert okkar skilur sl\u00edkar st\u00e6r\u00f0ir. Og \u00cdslendingar d\u00f6nsu\u00f0um me\u00f0. Karlar og kellingar dillu\u00f0u s\u00e9r og \u00f6skru\u00f0u v\u00ed\u00f0a um heim me\u00f0 Hamas-sj\u00f6l \u00e1 her\u00f0um, l\u00edka h\u00e9r \u00e1 Austurvelli. Konur prj\u00f3nu\u00f0u f\u00f6t og karlar f\u00f6ndru\u00f0 kannki eitthva\u00f0 l\u00edka, en allt \u00feetta f\u00f3lk gaf jafnframt beinhar\u00f0a peninga til \u00feessa vonlausa verkefnis. \u00deessir \u00cdslendingar fj\u00e1rfestu me\u00f0 vasapeningum og \u00f6\u00f0rum g\u00f3\u00f0gj\u00f6r\u00f0um \u00ed herna\u00f0armannvirkjum Hamas, ne\u00f0anjar\u00f0ar \u00e1 Gaza, \u00fear sem Hamas-menn unnu vo\u00f0averk s\u00edn \u00e1 \u00edsraelskum g\u00edslum, saklausum og fri\u00f0s\u00f6mum borgurum, sem bjuggu n\u00e6rri landam\u00e6runum og \u00e1ttu margir \u00ed g\u00f3\u00f0u vinasambandi vi\u00f0 \u00edb\u00faa \u00e1 Gaza. Palest\u00ednumenn eru nefnilega af \u00fdmsu tagi, sumir hi\u00f0 besta f\u00f3lk en a\u00f0rir \u00ed \u00e1l\u00f6gum islamskra \u00f6fga.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deann 7. okt\u00f3ber 2023 r\u00e9\u00f0ust Hamas-li\u00f0ar inn \u00ed \u00cdsrael og t\u00f3ku fj\u00f6lda g\u00edsla. \u00deeir f\u00f3ru hr\u00e6\u00f0ilega me\u00f0 \u00feetta f\u00f3lk. \u00deeir nau\u00f0gu\u00f0u ungum konum sem voru \u00ed haldi, myrtu \u00fe\u00e6r og limlestu og vanhelgu\u00f0u l\u00edkin. \u00deeir pyntu\u00f0u einnig karlmenn, ni\u00f0url\u00e6g\u00f0u \u00fe\u00e1 og dr\u00e1pu a\u00f0 lokum. \u00deau sem lif\u00f0u af og var sleppt hafa sagt s\u00edna s\u00f6gu. \u00dea\u00f0 er \u00e1takanlegur vitnisbur\u00f0ur um brj\u00e1l\u00e6\u00f0i Hamas. \u00deetta er trylltur skr\u00edll og hugmyndafr\u00e6\u00f0in a\u00f0 baki \u00feessu \u00f6llu er islam. Tr\u00faarfasismi b\u00fdr nefnilega \u00ed sj\u00e1lfum \u00e1tr\u00fana\u00f0inum &#8211; og \u00fear liggur hundurinn grafinn &#8211; Nota Bene!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og n\u00f3gir eru peningarnir sem Qatar og \u00f6nnur ol\u00edur\u00edki nota til a\u00f0 veikja Vesturl\u00f6nd en Qatar sty\u00f0ur t.a.m. lykilh\u00e1sk\u00f3la \u00ed Bandar\u00edkjunum me\u00f0 billj\u00f3num dollara \u00e1 \u00e1ri. Og hva\u00f0 f\u00e1 \u00feeir \u00ed sta\u00f0inn? Me\u00f0al annars \u00fea\u00f0, a\u00f0 dregi\u00f0 s\u00e9 \u00far a\u00f0 tala miki\u00f0 um vestr\u00e6n gildi \u00ed meintum menntastofnunum, en \u00feeim mum meir um hi\u00f0 snarvitlausa W\u00f3k, sem er vinstra f\u00f3lki hjarta n\u00e6r, en s\u00fa hugmyndafr\u00e6\u00f0i stefnir a\u00f0 ni\u00f0urbroti allra vestr\u00e6nna gilda, sem eru a\u00f0 stofni til gy\u00f0ing\/kristin. \u00c9g minni enn og aftur \u00e1 or\u00f0 Jurgen Habermas, heimspekingsins, sem er n\u00fdl\u00e1tinn og var gu\u00f0leysingi: Vesturl\u00f6nd s\u00e6kja allan sinn gildagrunn \u00ed Bibl\u00eduna \u00ed tv\u00f6 hugt\u00f6k: r\u00e9ttl\u00e6ti\u00f0 \u00far Gamla testamenti gy\u00f0inga og k\u00e6rleika Krists \u00far \u00fev\u00ed n\u00fdja.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g veit a\u00f0 \u00feau sem sty\u00f0ja Palest\u00ednuf\u00f3lki\u00f0 koma me\u00f0 m\u00f3tb\u00e1rur og telja upp meint illvirki \u00cdsrealsmanna undir merki hers \u00feeirra IDF &#8211; Israel Defence Forces. R\u00e9tt er a\u00f0 geta \u00feess a\u00f0 enginn her \u00ed heiminum er talin hafa nokkru sinni fari\u00f0 eins varlega \u00ed sakirnar og \u00cdsraelsher sem hefur meira a\u00f0 segja tilkynnt fyrirfram, um skot\u00e1r\u00e1sir s\u00ednar \u00e1 vopnab\u00far og herna\u00f0arlega mikilv\u00e6ga sta\u00f0i \u00e1 Gaza, svo a\u00f0 almenningur g\u00e6ti for\u00f0a\u00f0 s\u00e9r. Vandi \u00cdsraelshers er m.a. f\u00f3lginn \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 vopnab\u00far Hamas eru gjarnan \u00e1 sp\u00edt\u00f6lum, barnaheimilum og st\u00f6\u00f0um \u00fear sem f\u00f3lk er fyrir. Og Hamas menn vita \u00feetta en for\u00f0a f\u00f3lkinu yfirleitt ekki fr\u00e1 skotm\u00f6rkum. Hva\u00f0 segir \u00fea\u00f0?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">A\u00f0ilar \u00ed herna\u00f0i n\u00fdta s\u00e9r fj\u00f6lmi\u00f0la og beita a\u00f0fer\u00f0um til a\u00f0 koma m\u00e1lsta\u00f0 s\u00ednum \u00e1 framf\u00e6ri. \u00cd vestr\u00e6num fj\u00f6lmi\u00f0lum hefur reynst vera mikil slags\u00ed\u00f0a \u00e1 li\u00f0num misserum um m\u00e1lefni Palest\u00ednu. Fr\u00e9ttastofa BBC f\u00e9ll \u00ed \u00fe\u00e1 gryfju a\u00f0 vera \u00e1 bandi Hamas en var tekin \u00e1 teppi\u00f0, fr\u00e9ttastj\u00f3ranum sagt upp, og \u00f6llum starfsm\u00f6nnum gert a\u00f0 sitja n\u00e1mskei\u00f0 um gy\u00f0ingahatur! GAZA-R\u00daV! &#8211; \u00fe\u00fa veist hva\u00f0 \u00e9g meina!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1r\u00f3\u00f0ur Hamas, um a\u00f0 \u00cdsraelsher svelti f\u00f3lki\u00f0 me\u00f0vita\u00f0 \u00e1 Gaza hefur veri\u00f0 hrakinn. \u00cdsrael s\u00e1 til \u00feess a\u00f0 a.m.k. 3000 kalor\u00edur \u00e1 mann v\u00e6ru fluttar inn \u00e1 Gaza daglega, en sl\u00edkur skammtur dugar fullor\u00f0num manni \u00ed erfi\u00f0isvinnu og gott betur! \u00deessa matarflutninga hafa Sameinu\u00f0u\u00fej\u00f3\u00f0irnar sta\u00f0fest. \u00c9g geri m\u00e9r au\u00f0vita\u00f0 fulla grein fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00ed str\u00ed\u00f0i eiga s\u00e9r sta\u00f0 mist\u00f6k og jafnvel illvirki af beggja h\u00e1lfu. Hamas trufla\u00f0i t.d. mj\u00f6g \u00feessa flutninga.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Aftur a\u00f0 islam. \u00c6t\u00ed\u00f0 \u00fearf a\u00f0 greina \u00e1 milli tr\u00faarkenninga og f\u00f3lksins sem fylgir tiltekinni tr\u00fa. Islam og m\u00faslimar eru ekki eitt og hi\u00f0 saman. M\u00faslimar eru f\u00f3lk eins og vi\u00f0 \u00f6ll, misjafnlega vel ger\u00f0ir, margir fri\u00f0samir og duglegir eins og gengur og gerist \u00ed \u00f6llum samf\u00e9l\u00f6gum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En Islam er hins vegar tr\u00faarkerfi sem byggir \u00e1 afar einkennilegum og vafas\u00f6mum grunni. Tr\u00faarbrag\u00f0afr\u00e6\u00f0i er h\u00e1sk\u00f3lagrein sem fjallar um \u00f6ll tr\u00faarbr\u00f6g\u00f0 \u00ed heiminum \u00ed gegnum aldirnar og sko\u00f0ar innvi\u00f0i hverrar tr\u00faar, hugmyndafr\u00e6\u00f0i, hindurvitni og heg\u00f0un, tilbei\u00f0slu og helgihald og svo framvegis. Islam f\u00e6r ekki g\u00f3\u00f0a einkunn \u00feegar vel er a\u00f0 g\u00e1\u00f0 \u00e1 fr\u00e6\u00f0ilegum, s\u00f6gulegum forsendum. \u00c9g hef teki\u00f0 pr\u00f3f \u00ed tr\u00faarbrag\u00f0afr\u00e6\u00f0i \u00e1 h\u00e1sk\u00f3lastigi og lesi\u00f0 um allskonar tr\u00faarbr\u00f6g\u00f0 \u00e1rum saman.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Margir m\u00faslimar hata gy\u00f0inga og \u00fea\u00f0 sama hatur er \u00fatbreytt m.a. \u00e1 \u00cdslandi og \u00fev\u00ed m\u00e1 finna sta\u00f0 innan vissra h\u00f3pa. Greina m\u00e1 sko\u00f0anir einstaklinga sem hata gy\u00f0inga og sta\u00f0setja \u00fe\u00e1 \u00e1 r\u00f3fi stj\u00f3rmm\u00e1laflokka, einkum til vinstri.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Gy\u00f0ingahatur er andstyggilegt fyrirbrig\u00f0i og \u00ed raun er \u00fea\u00f0 lj\u00f3tt a\u00f0 hata anna\u00f0 f\u00f3lk, hver sem tr\u00fa \u00feeirra er. Hva\u00f0 m\u00faslima var\u00f0ar ber okkur sem erum kristin, a\u00f0 elska n\u00e1ungann, elska m\u00faslimann &#8211; en ekki islam &#8211; Nota Bene! Vi\u00f0 eigum a\u00f0 hafna tr\u00faarkerfinu, dellunni og f\u00e1r\u00e1nleika \u00feeirrar hugmyndafr\u00e6\u00f0i allrar, en elska manneskjuna, elska Palest\u00ednumenn, en ekki illvirki \u00feeirra e\u00f0a stu\u00f0ning annarra vi\u00f0 vond verk \u00feeirra. \u00deetta er grunvallaratri\u00f0i \u00ed kristinni si\u00f0fr\u00e6\u00f0i sem slaufunarf\u00f3lki\u00f0 vir\u00f0ist ekki \u00feekkja og slaufar \u00fev\u00ed fj\u00f6lda f\u00f3lks eins og \u00fea\u00f0 vinni \u00ed akkor\u00f0i. Gy\u00f0ingahatur og slaufunar\u00e1r\u00e1tta vir\u00f0ast dafna best \u00ed vinstrinu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Islam er h\u00e6ttulegasta hreyfing veraldar um \u00feessar mundir og s\u00fa einkunn sem \u00e9g gef \u00feeim \u00e1 einnig vi\u00f0 um islam fyrr \u00e1 \u00f6ldum. Sj\u00e1 n\u00e1nar h\u00e9r \u00ed annarri grein eftir mig:<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-embed is-type-wp-embed is-provider-rn-b-r-ur-j-nsson-and-quot-bard-art-quot wp-block-embed-rn-b-r-ur-j-nsson-and-quot-bard-art-quot\"><div class=\"wp-block-embed__wrapper\">\nhttp:\/\/localhost:8081\/2026\/08\/24\/prestur-med-skodun\/\n<\/div><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hvernig ur\u00f0u l\u00f6ndin \u00ed Nor\u00f0ur-Afr\u00edku, islam a\u00f0 br\u00e1\u00f0 og hvers vegna l\u00f6ndin fyrir botni Mi\u00f0jar\u00f0arahafs? \u00d6ll \u00feessi l\u00f6nd voru kristin fyrr \u00e1 \u00f6ldum, en m\u00faslimar fluttu inn \u00ed \u00feessi l\u00f6nd, einn og einn og settust \u00fear a\u00f0 og heg\u00f0u\u00f0u s\u00e9r eins og ger \u00ed hveiti sem s\u00fdr\u00f0i a\u00f0 lokum allt deigi\u00f0. Jes\u00fas kenndi \u00feessa a\u00f0fer\u00f0 m.a. \u00ed Matt. 13.33 en hans kenning \u00e1 vi\u00f0 um a\u00f0 himnar\u00edki komi, en ekki shar\u00edal\u00f6g, eins og innan islam, kvenfyrirlitning og aft\u00f6kur \u00e1 f\u00f3lki ef \u00fea\u00f0 hl\u00fd\u00f0ir ekki ruglinu \u00ed tr\u00faarb\u00f3k islam. Austurvallar-gengi\u00f0 \u00feyrfti a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0 sj\u00e1 d\u00e6mt eftir sharia l\u00f6gum \u00ed Mi\u00f0borginni og bl\u00f3\u00f0i\u00f0 streyma um V\u00f6llinn \u00far st\u00fdf\u00f0um handleggjum, f\u00f3tum og jafnvel h\u00e1lsi. \u00de\u00e1 rynnu e.t.v. \u00e1 \u00feau tv\u00e6r gr\u00edmur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd islam sem tr\u00faarbr\u00f6g\u00f0um er a\u00f0 finna beinl\u00ednis ill og fjandsamleg fyrirbrig\u00f0i og au\u00f0velt er fyrir \u00f6fgafulla <em>imama &#8211; <\/em>en svo heita forst\u00f6\u00f0umenn \u00ed moskum &#8211; a\u00f0 pr\u00e9dika \u00feessar \u00f6fgar og kveikja \u00feannig \u00ed fri\u00f0s\u00f6mum m\u00faslimum \u00e1 stuttum t\u00edma, \u00fev\u00ed kennivald \u00feeirra er sterkt og getur tendra\u00f0 b\u00e1l \u00ed tundri saklausra tr\u00faarhjartna. Og svo eiga moskan og immamarnir s\u00e9r bakland \u00ed l\u00f6greglu og her \u00ed m\u00f6rgum l\u00f6ndum sem einnig \u00f3gnar. \u00deess vegna \u00feorir f\u00f3lk ekki a\u00f0 fara \u00e1 m\u00f3ti \u00fev\u00ed sem kennt er \u00ed moskunum, \u00fev\u00ed \u00fe\u00e1 b\u00ed\u00f0ur h\u00f6ggstokkurinn, h\u00f6ndin af e\u00f0a f\u00f3tur og \u00ed versta tilfelli f\u00fdkur h\u00f6fu\u00f0i\u00f0!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">N\u00fa kem \u00e9g aftur a\u00f0 Noregi \u00ed S\u00ed\u00f0ari heimsstyrj\u00f6ldinni. F\u00f3lk skiptist \u00ed flokka eftir \u00fev\u00ed hvort \u00fea\u00f0 fylgdi nasismanum e\u00f0a ekki. N\u00fa erum vi\u00f0 Vesturlandab\u00faar \u00ed miklum vanda. Vi\u00f0 \u00feurfum a\u00f0 velja hvort vi\u00f0 st\u00f6ndum me\u00f0 fylgjendum islam sem hneppa konur \u00ed fj\u00f6tra, myr\u00f0a mann og annan af eigin \u00fej\u00f3\u00f0 fyrir yfirsj\u00f3nir sem islam skilgreinir og l\u00edta \u00e1 Vesturl\u00f6nd sem andlag landvinninga. \u00deeir \u00feola ekki frelsi\u00f0 sem f\u00f3lk \u00e1 Vesturl\u00f6ndum b\u00fdr vi\u00f0. M\u00faslimskir karlar sem flytja til Vesturlanda geta vart hami\u00f0 sig innan um allar \u00feessar frj\u00e1lslyndu, f\u00f6gru og f\u00e1kl\u00e6ddu, vestr\u00e6nu konur. Og hva\u00f0 gerist? D\u00e6mi eru um a\u00f0 ungir m\u00faslimar fari um \u00ed h\u00f3pum og nau\u00f0gi hinum f\u00f6ngulegu st\u00falkum \u00ed vestri. Ungur Pakistani, n\u00fdfluttur til Bretlands, var handtekinn fyrir nau\u00f0gun, en vissi ekki a\u00f0 \u00fea\u00f0 v\u00e6ri gl\u00e6pur!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Verjandi hans h\u00e9lt \u00fev\u00ed fram a\u00f0 Rashid byggi yfir vissu \u201ekynfer\u00f0islegu sakleysi\u201c og hef\u00f0i litla reynslu af samskiptum vi\u00f0 konur eftir a\u00f0 hafa s\u00f3tt \u00edslamskan sk\u00f3la \u00ed Bretlandi. Rashid sag\u00f0i s\u00e1lfr\u00e6\u00f0ingi a\u00f0 hann hef\u00f0i ekki vita\u00f0 a\u00f0 ath\u00e6fi sitt bryti gegn breskum l\u00f6gum fyrr en fj\u00f6lskyldume\u00f0limur benti honum \u00e1 \u00fea\u00f0. (Af Vefnum)<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">M\u00faslimar \u00ed Bretlandi eru or\u00f0nir svo fj\u00f6lmennir og \u00e1hrifar\u00edkir a\u00f0 \u00feeir eru v\u00ed\u00f0a til vandr\u00e6\u00f0a. Borgarstj\u00f3ri Lund\u00fana er m\u00faslimi og fleiri borgir \u00fear \u00ed landi l\u00fata forystu m\u00faslima. Borgarstj\u00f3rinn \u00ed New York er m\u00faslimi. Segja m\u00e1 a\u00f0 ma\u00f0ur me\u00f0 s\u00f6mu tr\u00fa og p\u00f3lit\u00edska hugmyndafr\u00e6\u00f0i og \u00feeir sem flugu \u00ed trylltu brj\u00e1l\u00e6\u00f0i og hatri, \u00e1 Tv\u00edburaturnana \u00e1ri\u00f0 2001, sitji n\u00fa \u00ed \u00e6\u00f0sta emb\u00e6tti borgarinnar. \u00c1 hry\u00f0juverkam\u00f6nnum og honum er bara stigsmunur. Sama hryllilega hugmyndafr\u00e6\u00f0in er grunnur beggja.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og svo er New York Times m.a. sta\u00f0i\u00f0 a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 skrifar hr\u00e6\u00f0ilega um Gy\u00f0inga. Hatri\u00f0 \u00e1 gy\u00f0ingum fylgir islam eins og nasistum \u00fe\u00e1 og n\u00fa. Um \u00fea\u00f0 allt er m.a. fjalla\u00f0 \u00ed \u00feessari grein Melanie Phillips sem \u00e9g \u00fe\u00fdddi:<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-embed is-type-wp-embed is-provider-rn-b-r-ur-j-nsson-and-quot-bard-art-quot wp-block-embed-rn-b-r-ur-j-nsson-and-quot-bard-art-quot\"><div class=\"wp-block-embed__wrapper\">\nhttp:\/\/localhost:8081\/2026\/05\/20\/martradarkenndur-hatursdraumur-the-new-york-times-gegn-gydingum\/\n<\/div><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00de\u00e1 er mikilv\u00e6gt a\u00f0 draga fram \u00fe\u00e6r endalausu blekkingar og \u00fe\u00e1 undirhyggju sem einkennir m\u00e1lflutning um &#8220;m\u00e1lsta\u00f0&#8221; arabanna sem fyrst t\u00f3ku a\u00f0 kenna sig vi\u00f0 Palest\u00ednu eftir stofnun \u00cdsraelsr\u00edkis &#8211; drifnir \u00e1fram af gy\u00f0ingahatri. \u00cd nefndum m\u00e1lflutningi ganga einkum s\u00f3s\u00edalistar af \u00fdmsum toga, erinda islam og veita Hamas li\u00f0sinni b\u00e6\u00f0i beint og \u00f3beint.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">A\u00f0 standa me\u00f0 islam \u00ed dag, me\u00f0 svok\u00f6llu\u00f0u Palest\u00ednuf\u00f3lki &#8211; sem eru bara arabar og m\u00faslimar a\u00f0 stofni til, og \u00e6tla s\u00e9r heimsyfirr\u00e1\u00f0 og stefna a\u00f0 \u00fatr\u00fdmingu allra gy\u00f0inga og einnig kristni \u00ed heiminum &#8211; er dau\u00f0ans alv\u00f6rum\u00e1l. A\u00f0 standa me\u00f0 islam, jafngildir \u00fev\u00ed, a\u00f0 breyttu breytanda, a\u00f0 standa me\u00f0 nazistum \u00e1 t\u00edmum Seinni heimstyrjaldarinnar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cdsraelsmenn eru \u00e1 var\u00f0bergi gagnvart \u00f6llum \u00f6flum, sem eru s\u00f6mu \u00e6ttar og \u00feeir sem sm\u00f6lu\u00f0u gy\u00f0ingum \u00ed gasklefa \u00ed Evr\u00f3pu fyrir t\u00e6pri \u00f6ld, \u00ed okkar eigin \u00e1lfu!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Veljum vandlega hvar vi\u00f0 st\u00f6ndum \u00ed bar\u00e1ttunni fyrir fri\u00f0i og framt\u00ed\u00f0 barna okkar og afkomenda \u00feeirra.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">M\u00f3tm\u00e6lendur \u00e1 Austuvelli sem \u00e1 seinustu misserum hafa safnast saman me\u00f0 Hamas-sl\u00e6\u00f0ur \u00e1 her\u00f0um s\u00e9r og Palest\u00ednuf\u00e1na \u00e1 prikum, \u00e6ttu a\u00f0 athuga sinn gang \u00ed lj\u00f3si \u00feeirra sta\u00f0reynda sem h\u00e9r hafa veri\u00f0 raktar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">V\u00f6rumst fasismann \u00ed \u00f6llum myndum, hvort sem hann birtist \u00ed f\u00ednum b\u00faningum nasista e\u00f0a kuflum og t\u00farb\u00f6num viti firrtra araba undir merki h\u00e1lfm\u00e1na islam. Gleymum ekki hva\u00f0 nasistar k\u00f6llu\u00f0u eigin flokk: Nationalsozialistische Deutsche Arbeiterpartei. Taktu eftir \u00fev\u00ed hvernig or\u00f0in er sett saman &#8211; \u00fej\u00f3\u00f0ernis-s\u00f3s\u00edalist\u00edskur-verkamannaflokkur!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ef vi\u00f0 spornum ekki \u00e1 m\u00f3t \u00feeirri innr\u00e1s islam \u00ed Vesturl\u00f6nd sem sta\u00f0i\u00f0 hefur yfir um \u00e1ratuga skei\u00f0, \u00fe\u00e1 endum vi\u00f0 me\u00f0 <em>sharial\u00f6g<\/em> yfir \u00f6llum Vesturl\u00f6ndum. \u00cd fyrirs\u00f6gn \u00feessa greinarkorns er tala\u00f0 um 3. heimstyrj\u00f6ldina. \u00deau or\u00f0 hr\u00e6\u00f0a en sta\u00f0reyndin er a\u00f0 3. heimsstyrj\u00f6ldin er \u00feegar hafin, en allt of margir skynja \u00fea\u00f0 hvorki n\u00e9 tr\u00faa, \u00fev\u00ed andleg blinda er systir f\u00e1fr\u00e6\u00f0innar og veikleikans sem fylgir \u00fev\u00ed a\u00f0 ver\u00f0a vondum \u00e1r\u00f3\u00f0ri a\u00f0 br\u00e1\u00f0. Nafni\u00f0 yfir \u00fea\u00f0 allt er HEILA\u00deVOTTUR.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og hver vill f\u00e1 helf\u00f6r islam og sharia l\u00f6g yfir l\u00f6nd og \u00e1lfur &#8211; og yfir sig og sitt f\u00f3lk?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">A\u00f0 lokum fylgja h\u00e9r or\u00f0 \u00far 5. kafla br\u00e9fs P\u00e1ls postula til Efesusmanna. Efesus heyrir n\u00fa undir Tyrkland. Efesus var kristin borg um aldir. N\u00fa er \u00feetta landsv\u00e6\u00f0i allt \u00e1 valdi m\u00faslima og Erdogan vill komast inn \u00ed Evr\u00f3pusambandi\u00f0 me\u00f0 s\u00edna \u00fej\u00f3\u00f0 sem telur 89 millj\u00f3nir manna. A\u00f0fer\u00f0 hans er n\u00e1kv\u00e6mlega s\u00fa sama og a\u00f0fer\u00f0 muslima hinga\u00f0 til. \u00deeir \u00e6tla s\u00e9r Evr\u00f3pu og \u00f6ll Vesturl\u00f6nd. Og svo vita \u00feeir a\u00f0 vestr\u00e6nar konur eru tregar til barneigna.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deeir vilja Imperialisma Islam &#8211; alr\u00e6\u00f0i islam \u00e1 heimsv\u00edsu &#8211; og treysta \u00e1 a\u00f0sto\u00f0 \u00far villta vinstrinu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sharil\u00f6gin munu r\u00edkja \u00ed fleiri l\u00f6ndum og \u00e1lfum, ef vi\u00f0 spyrnum ekki vi\u00f0 f\u00f3tum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En h\u00e9r koma or\u00f0 P\u00e1ls til Efesusmanna:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">11 Eigi\u00f0 engan hlut \u00ed verkum myrkursins, sem ekkert gott hl\u00fdst af, heldur fletti\u00f0 miklu fremur ofan af \u00feeim. 12 \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 sem sl\u00edkir menn fremja \u00ed leyndum er jafnvel sv\u00edvir\u00f0ilegt um a\u00f0 tala. 13 En allt \u00fea\u00f0 sem lj\u00f3si\u00f0 afhj\u00fapar ver\u00f0ur auglj\u00f3st. 14 \u00dev\u00ed a\u00f0 allt sem er auglj\u00f3st er \u00ed lj\u00f3si.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00dev\u00ed segir svo:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vakna \u00fe\u00fa sem sefur<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">og r\u00eds upp fr\u00e1 dau\u00f0um<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">og \u00fe\u00e1 mun Kristur l\u00fdsa \u00fe\u00e9r.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hvorum megin stendur \u00fe\u00fa \u00ed 3. heimsstyrj\u00f6ldinni sem er \u00feegar hafin? Taktu \u00fe\u00e9r st\u00f6\u00f0u!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8212;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00f6fundur er Cand Theol fr\u00e1 H\u00cd,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">fv. s\u00f3knarprestur h\u00e9r \u00e1 landi og \u00ed Noregi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Doktor \u00ed safna\u00f0arfr\u00e6\u00f0um fr\u00e1<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">The Fuller Theological Seminary,<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Pasadena, BNA.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Hvorum megin viltu standa \u00ed 3. heimsstyrj\u00f6ldinni? Grein eftir \u00d6rn B\u00e1r\u00f0 J\u00f3nsson. Viltu lesa og\/e\u00f0a hlusta? Smelltu \u00e1 tengilinn: Um nokkurra \u00e1ra skei\u00f0 \u00fej\u00f3na\u00f0i \u00e9g sem prestur \u00ed Noregi. \u00dea\u00f0 var l\u00e6rd\u00f3msr\u00edkur t\u00edmi. Eitt af \u00fev\u00ed sem \u00fear flaut upp\u00e1 yfirbor\u00f0 \u00ed daglegri umr\u00e6\u00f0u, var reynsla Nor\u00f0manna af S\u00ed\u00f0ari heimstyrj\u00f6ldinni, \u00feegar landi\u00f0 var hernumi\u00f0 af [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[4],"tags":[29,251,256,326,451,441,485,495,647,692],"class_list":["post-8227","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-greinar-og-hugvekjur-articles","tag-arabar","tag-gydinghatur","tag-hamas","tag-islam","tag-mid-austurlond","tag-muslimar","tag-nordur-afrika","tag-palestina","tag-tyrkland","tag-vesturlond"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/8227","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=8227"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/8227\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=8227"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=8227"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=8227"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}