{"id":8170,"date":"2026-08-24T14:14:03","date_gmt":"2026-08-24T14:14:03","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/2026\/08\/24\/prestur-med-skodun\/"},"modified":"2026-08-24T14:14:03","modified_gmt":"2026-08-24T14:14:03","slug":"prestur-med-skodun","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=8170","title":{"rendered":"Prestur me\u00f0 sko\u00f0un"},"content":{"rendered":"\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hneykslunart\u00f3nninn og fyrirlitningin leynir s\u00e9r ekki: Sj\u00e1lfur presturinn leyfir s\u00e9r a\u00f0 vara vi\u00f0 islam.<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"841\" height=\"1054\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2026\/08\/img_1351.jpg?w=817\" alt=\"\" class=\"wp-image-8169\" \/><figcaption class=\"wp-element-caption\">Mynd til fjr\u00e1lsra afnota fengin \u00e1 Veraldarvefnum<\/figcaption><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Viltu hlusta? Smelltu \u00fe\u00e1 \u00e1 uppt\u00f6kuna:<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-audio\"><audio controls src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2026\/08\/prestur-med-skodun.m4a\"><\/audio><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">J\u00e1, f\u00f3lk hneykslast og \u00fea\u00f0 er ekki \u00ed fyrsta sinn \u00ed s\u00f6gunni sem f\u00f3lk l\u00e6tur sl\u00edkt \u00ed lj\u00f3si. Sj\u00e1lfur Frelsarinn f\u00e9kk hneykslandi f\u00f3lk yfir sig \u00ed st\u00f3rum sk\u00f6mmtum og fylgjendur hans \u00e1 fyrstu \u00f6ldum kristni voru drepnir \u00ed \u00fe\u00fasundatali. Og \u00fea\u00f0 er vissulega enn mj\u00f6g alvarlegt a\u00f0 kristnir menn, karlar og konur, eru drepnir \u00ed \u00fe\u00fasundatali \u00ed hverjum m\u00e1nu\u00f0i \u00ed heiminum &#8211; og a\u00f0allega af m\u00faslimum! Fr\u00e9ttir fj\u00f6lmi\u00f0la vitna um \u00feetta daglega.<\/p>\n\n\n\n<!--more-->\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g hef sinnt m\u00faslimum h\u00e9r \u00e1 landi sem prestur, greitt g\u00f6tu \u00feeirra, hlusta\u00f0 \u00e1 \u00fe\u00e1 og spurt um l\u00edf og l\u00ed\u00f0an. Gefi\u00f0 \u00feeim pl\u00e1ss \u00ed safna\u00f0arheimili kirkjunnar \u00fear sem \u00e9g starfa\u00f0i sem s\u00f3knarprestur, til a\u00f0 eiga fundi og samtal vi\u00f0 kristi\u00f0 f\u00f3lk.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g hef rita\u00f0 al\u00feingi br\u00e9f til a\u00f0 \u00f3ska eftir r\u00edkisborgarar\u00e9tti fyrir mann sem kom hinga\u00f0 sem m\u00faslimi og l\u00e1ti\u00f0 m\u00e9r annt um m\u00faslima sem anna\u00f0 f\u00f3lk, enda er \u00fea\u00f0 grundvallaratri\u00f0i \u00ed kristinni tr\u00fa &#8220;a\u00f0 elska n\u00e1ungann&#8221; en ekki endilega a\u00f0 elska sko\u00f0anir hans e\u00f0a tr\u00fa. Og ekki erum vi\u00f0 hv\u00f6tt til a\u00f0 elska a\u00f0rar gj\u00f6r\u00f0ir f\u00f3lks en \u00fe\u00e6r g\u00f3\u00f0u. Vi\u00f0 \u00feurfum ekki a\u00f0 elska illvirki manna en vi\u00f0 eigum a\u00f0 elska manneskjuna.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g hef \u00edtreka\u00f0 tala\u00f0 og rita\u00f0 um \u00fe\u00e1 k\u00f6llun kristinna a\u00f0 elska n\u00e1ungann en a\u00f0 ekki s\u00e9 nein krafa um a\u00f0 elska sko\u00f0anir annarra. \u00c9g \u00e1 vini sem \u00e9g er \u00f3samm\u00e1la um sumt en elska \u00fe\u00e1 samt. \u00c1 m\u00e1li tr\u00faarinnar \u00e1 ma\u00f0ur a\u00f0 elska syndarana en ekki syndina. En hva\u00f0 er synd?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Skv. NT er syndin tj\u00e1\u00f0 \u00e1 frumm\u00e1li \u00feess, gr\u00edsku, me\u00f0 or\u00f0inu <em>hamartia<\/em> sem merkir <em>geigun<\/em>. Vi\u00f0 erum eins og bogama\u00f0ur sem setur \u00f6r \u00e1 streng, knattspyrnuma\u00f0ur \u00e1 v\u00edtateig, sem mi\u00f0ar \u00e1 marki\u00f0 en brennir af, geigar, sk\u00fdtur framhj\u00e1. \u00deannig erum vi\u00f0 \u00f6ll. Vi\u00f0 geigum, skj\u00f3tum framhj\u00e1, hittum ekki \u00ed mark \u00ed algildum skilningi um l\u00edfi\u00f0. Vi\u00f0 lifum l\u00edfinu \u00e1n \u00feess a\u00f0 n\u00e1 a\u00f0 gera \u00fea\u00f0 \u00e1 fullkomin h\u00e1tt. Og \u00feannig erum vi\u00f0 \u00f6ll! Vi\u00f0 erum mist\u00e6k, okkur geigar. \u00deetta er hi\u00f0 grunnliggjandi vandam\u00e1l mankyns. Eina lei\u00f0in til a\u00f0 takast \u00e1 vi\u00f0 \u00feessa geigun er a\u00f0 reyna a\u00f0 feta veginn eina sem Kristur kenndi er hann sag\u00f0i:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">1 \u201eHjarta y\u00f0ar skelfist ekki. Tr\u00fai\u00f0 \u00e1 Gu\u00f0 og tr\u00fai\u00f0 \u00e1 mig. 2 \u00cd h\u00fasi f\u00f6\u00f0ur m\u00edns eru margar vistarverur. V\u00e6ri ekki svo hef\u00f0i \u00e9g \u00fe\u00e1 sagt y\u00f0ur a\u00f0 \u00e9g f\u00e6ri burt a\u00f0 b\u00faa y\u00f0ur sta\u00f0? 3 \u00deegar \u00e9g er farinn burt og hef b\u00fai\u00f0 y\u00f0ur sta\u00f0 kem \u00e9g aftur og tek y\u00f0ur til m\u00edn svo a\u00f0 \u00fe\u00e9r s\u00e9u\u00f0 einnig \u00fear sem \u00e9g er. 4 Veginn \u00feanga\u00f0 sem \u00e9g fer \u00feekki\u00f0 \u00fe\u00e9r.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">5 T\u00f3mas segir vi\u00f0 hann: \u201eDrottinn, vi\u00f0 vitum ekki hvert \u00fe\u00fa fer\u00f0, hvernig getum vi\u00f0 \u00fe\u00e1 \u00feekkt veginn?\u201c<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">6 Jes\u00fas segir vi\u00f0 hann: \u201e\u00c9g er vegurinn, sannleikurinn og l\u00edfi\u00f0. Enginn kemur til f\u00f6\u00f0urins nema fyrir mig. 7 Ef \u00fe\u00e9r hafi\u00f0 \u00feekkt mig munu\u00f0 \u00fe\u00e9r og \u00feekkja f\u00f6\u00f0ur minn. H\u00e9\u00f0an af \u00feekki\u00f0 \u00fe\u00e9r hann og hafi\u00f0 s\u00e9\u00f0 hann.\u201c (J\u00f3h. 14.1-7)<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og \u00fea\u00f0 er \u00e1 \u00feessum grundvelli &#8211; a\u00f0 skilja \u00e1 milli syndar og syndara &#8211; a\u00f0 hafna hinu fyrra hugtaki en ekki \u00fev\u00ed s\u00ed\u00f0ara, a\u00f0 \u00e9g hef leyft m\u00e9r a\u00f0 gagnr\u00fdna islam. Um \u00feennan a\u00f0skilna\u00f0 syndar og syndara getur\u00f0u lesi\u00f0 n\u00e1nar h\u00e9r:<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-embed is-type-wp-embed is-provider-rn-b-r-ur-j-nsson-and-quot-bard-art-quot wp-block-embed-rn-b-r-ur-j-nsson-and-quot-bard-art-quot\"><div class=\"wp-block-embed__wrapper\">\nhttp:\/\/localhost:8081\/2026\/08\/21\/slaufun-skautun-skommun\/\n<\/div><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00dea\u00f0 er einkennilegt a\u00f0 f\u00f3lk \u00e1 vinstri v\u00e6ngnum vir\u00f0ist fyrirmuna\u00f0 a\u00f0 skilja \u00e1 milli syndar og syndara og \u00fev\u00ed slaufar \u00fea\u00f0 meir a\u00f0 a\u00f0rir, a\u00f0 m\u00e9r s\u00fdnist, hafnar f\u00f3lki vegna sko\u00f0ana. \u00dea\u00f0 er hreinn hei\u00f0ind\u00f3mur. Ma\u00f0ur \u00e1 a\u00f0 elska n\u00e1ungann en ekki endilega sko\u00f0anir hans e\u00f0a gj\u00f6r\u00f0ir. \u00deess vegna ver\u00f0 \u00e9g a\u00f0 elska t.d. d\u00e6mdan mor\u00f0ingja, elska manninn en ekki mor\u00f0i\u00f0! \u00deetta \u00e6tti n\u00fa ekki a\u00f0 valda f\u00f3lki vandr\u00e6\u00f0um a\u00f0 skilja \u00fearna \u00e1 milli. W\u00f3ki\u00f0 skilur \u00feetta ekki. \u00dea\u00f0 gleypir allt, baunirnar &#8211; og d\u00f3sina l\u00edka!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Islam er margslungi\u00f0 fyrirbrig\u00f0i. \u00c9g hef lesi\u00f0 <em>tr\u00faarbrag\u00f0afr\u00e6\u00f0i<\/em> vi\u00f0 h\u00e1sk\u00f3la og teki\u00f0 pr\u00f3f \u00ed \u00feeirri grein sem fjallar um \u00f6ll helstu tr\u00faarbr\u00f6g\u00f0 heims. Fr\u00f3\u00f0leg og skemmtileg var s\u00fa i\u00f0ja og b\u00f3kin mikill do\u00f0rantur sem \u00e9g kl\u00f3ra\u00f0i mig \u00ed gegnum \u00e1 s\u00e6nsku.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Tr\u00faarbr\u00f6g\u00f0 mannkyns er margskonar, allt fr\u00e1 <em>animisma<\/em> &#8211; frumst\u00e6\u00f0ri andatr\u00fa &#8211; tr\u00faar \u00e1 sokka og steina og upp \u00ed s\u00f6guleg tr\u00faarbr\u00f6g\u00f0 eins og gy\u00f0ingd\u00f3m og kristni &#8211; j\u00e1, og islam l\u00edka. En \u00e9g man \u00feegar \u00e9g haf\u00f0i loki\u00f0 lestrinum um islam a\u00f0 mig setti hlj\u00f3\u00f0an. \u00c9g komst a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 islam var \u00f3rei\u00f0ukennd blanda af frumst\u00e6\u00f0um tr\u00faarbr\u00f6g\u00f0um, kryddu\u00f0 me\u00f0 atri\u00f0um \u00far gy\u00f0ingd\u00f3mi me\u00f0 textum \u00far Gamla testamentinu, sumum reyndar brenglu\u00f0um og svo l\u00edka \u00far N\u00fdja testamentinu. Til d\u00e6mis talar M\u00fahamme\u00f0, sem talinn er upphafsma\u00f0ur islam, um Miriam sem er hebreska nafni\u00f0 \u00e1 Mar\u00edu og blandar saman Mar\u00edu m\u00f3\u00f0ur Jes\u00fa og Miriam systur M\u00f3se, en \u00e1 milli \u00feeirra \u00ed \u00e1rum tali\u00f0 voru ekki nema um 1500 \u00e1r. K\u00f3raninn er undarlegt safn af textum sem fr\u00e6\u00f0imenn segja misjafna af g\u00e6\u00f0um, en \u00fear er m.a. a\u00f0 finna fagra texta sem l\u00edkja m\u00e1, hva\u00f0 st\u00edl var\u00f0ar, vi\u00f0 Dav\u00ed\u00f0ss\u00e1lmana \u00ed GT. \u00deessir, &#8220;bestu&#8221; textar K\u00f3ransins eru taldir eiga uppruna sinn \u00ed kristnum h\u00f3pum sem yfirg\u00e1fu kirkjuna \u00e1 3. \u00f6ld e.Kr. vegna \u00feess a\u00f0 \u00feeir vi\u00f0urkenndu ekki gu\u00f0d\u00f3m Krists. \u00cd \u00feeirra augum var hann bara jar\u00f0neskur sp\u00e1ma\u00f0ur, en ekki sonur Gu\u00f0s sem reis upp fr\u00e1 dau\u00f0um. \u00deessir h\u00f3par dreif\u00f0ust um l\u00f6ndin fyrir botni Mi\u00f0jar\u00f0arhafs og lengra inn \u00ed Arab\u00edu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">N\u00fdja testamenti\u00f0 var\u00f0 allt til \u00e1 1. \u00f6ld e.Kr. Elstu kaflar \u00feess eru fyrstu br\u00e9f P\u00e1ls postula sem hann rita\u00f0 \u00e1 bilinu 40-50 e.Kr. en Kristur er talinn hafa veri\u00f0 krossfestur \u00e1ri\u00f0 33 en \u00fe\u00e1 var\u00f0 tunglmyrkvi \u00ed Jer\u00fasalem skv. NT og n\u00fa hefur NASA sta\u00f0fest a\u00f0 fyrirbrig\u00f0i\u00f0 \u00e1tti s\u00e9r sta\u00f0 3. apr\u00edl \u00e1ri\u00f0 33! Elstu br\u00e9f P\u00e1ls voru ritu\u00f0 7-17 \u00e1rum eftir krossfestingu Krists \u00e1 \u00feeim t\u00edmum \u00feegar f\u00f3lk mundi n\u00e1nast allt sem \u00fea\u00f0 heyr\u00f0i og gat endursagt heilu r\u00e6\u00f0urnar og fr\u00e1sagnir. P\u00e1ll var mennta\u00f0ur ma\u00f0ur og ritf\u00e6r og svo voru gu\u00f0spjallamennirnir einnig.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sko\u00f0um a\u00f0eins uppruna islam. M\u00fahamme\u00f0 er talinn hafa f\u00e6\u00f0st \u00e1 6. \u00f6ld e.Kr.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Til a\u00f0 fl\u00fdta fyrir m\u00e9r spur\u00f0i \u00e9g gervigreindina um uppruna hans og f\u00e9kk \u00feetta:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cdslam \u00e1 r\u00e6tur a\u00f0 rekja til Arab\u00eduskagans \u00e1 7. \u00f6ld eftir Krist.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>M\u00fahame\u00f0<\/strong> M\u00fahame\u00f0 f\u00e6ddist \u00ed Mekka um \u00e1ri\u00f0 570. Hann \u00f3lst upp muna\u00f0arlaus og starfa\u00f0i s\u00ed\u00f0ar sem kaupma\u00f0ur. Um fertugt, um \u00e1ri\u00f0 610, segir \u00edsl\u00f6msk hef\u00f0 a\u00f0 engillinn Gabr\u00edel hafi birst honum \u00ed helli vi\u00f0 fjalli\u00f0 Hira og flutt honum fyrstu opinberanir fr\u00e1 Gu\u00f0i (Allah). \u00deessar opinberanir h\u00e9ldu \u00e1fram n\u00e6stu 22 \u00e1rin og voru s\u00ed\u00f0ar teknar saman \u00ed helgirit \u00edslams, K\u00f3raninn.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Bo\u00f0un tr\u00faarinnar<\/strong> M\u00fahame\u00f0 bo\u00f0a\u00f0i stranga eingy\u00f0istr\u00fa \u00ed samf\u00e9lagi sem \u00fe\u00e1 d\u00fdrka\u00f0i marga gu\u00f0i. Hann m\u00e6tti mikilli andst\u00f6\u00f0u \u00ed Mekka, og \u00e1ri\u00f0 622 fl\u00fa\u00f0i hann \u00e1samt fylgjendum s\u00ednum til borgarinnar Med\u00edna. \u00deessi flutningur, kalla\u00f0ur Hijra, markar upphaf islamska t\u00edmatalsins. \u00cd Med\u00ednu bygg\u00f0i hann upp fyrsta m\u00faslimska samf\u00e9lagi\u00f0 og var\u00f0 b\u00e6\u00f0i tr\u00faarlegur og p\u00f3lit\u00edskur lei\u00f0togi. \u00c1ri\u00f0 630 sneri hann aftur til Mekka me\u00f0 her og n\u00e1\u00f0i borginni \u00e1 sitt vald a\u00f0 mestu \u00e1n bl\u00f3\u00f0s\u00fathellinga.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><strong>Tr\u00faarbr\u00f6g\u00f0in sj\u00e1lf<\/strong> \u00cdslam byggir \u00e1 fimm meginsto\u00f0um:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Tr\u00faarj\u00e1tningin (shahada) \u2013 a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 a\u00f0eins einn gu\u00f0 og M\u00fahame\u00f0 s\u00e9 sp\u00e1ma\u00f0ur hans<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">B\u00e6nin fimm sinnum \u00e1 dag (salat)<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00d6lmusugj\u00f6f (zakat)<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Fasta \u00ed Ramadan-m\u00e1nu\u00f0i (sawm)<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">P\u00edlagr\u00edmsfer\u00f0 til Mekka (hajj), a\u00f0 minnsta kosti einu sinni \u00e1 \u00e6vinni ef a\u00f0st\u00e6\u00f0ur leyfa<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">M\u00fahame\u00f0 l\u00e9st \u00e1ri\u00f0 632 \u00ed Med\u00ednu. Eftir andl\u00e1t hans breiddist \u00edslam hratt \u00fat um Arab\u00eduskagann og s\u00ed\u00f0ar langt \u00fat fyrir hann, me\u00f0al annars vegna tr\u00fabo\u00f0s, verslunar og landvinninga.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">M\u00fahamme\u00f0 er talinn hafa veri\u00f0 \u00f3l\u00e6s og \u00f3skrifandi og fyrir liggur a\u00f0 hann var hersh\u00f6f\u00f0ingi sem f\u00f3r um me\u00f0 brug\u00f0num brandi og drap mann og annan. Hann f\u00e9kk t.d. vitrun um a\u00f0 hann og a\u00f0rir m\u00faslimakarlar m\u00e6ttu eiga 4 konur en svo f\u00e9kk hann aukavitrun fyrir sj\u00e1lfan sig og gaf s\u00e9r a\u00f0 hann m\u00e6tti eiga 11 e\u00f0a 13. Heimildum ber ekki saman. En M\u00fahamme\u00f0 kv\u00e6ntist t.d. konu a\u00f0 nafni Aisha sem hann samdi um er h\u00fan var 6 \u00e1ra en vi\u00f0 9 \u00e1ra aldur t\u00f3k hann hana til s\u00edn me\u00f0 \u00f6llu \u00fev\u00ed sem sl\u00edku fylgir.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Kynni\u00f0 ykkur vitnisbur\u00f0 hinnar hugr\u00f6kku Ayan Hirsi Ali sem yfirgaf islam, var gu\u00f0leysingi um t\u00edma en ger\u00f0is svo kristin:<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-embed\"><div class=\"wp-block-embed__wrapper\">\nhttps:\/\/en.wikipedia.org\/wiki\/Ayaan_Hirsi_Ali\n<\/div><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">En \u00feegar betur er a\u00f0 g\u00e1\u00f0 \u00fe\u00e1 er islam ekki bara tr\u00faarbr\u00f6g\u00f0 heldur l\u00edka rammp\u00f3lit\u00edsk hugmyndafr\u00e6\u00f0i, stj\u00f3rnm\u00e1laafl me\u00f0 innbygg\u00f0a \u00fat\u00feenslustefnu. Kristnin hefur reyndar l\u00edka \u00fe\u00e1 stefnu a\u00f0 sigra heiminn en me\u00f0 k\u00e6rleika Krists og Vesturl\u00f6nd eru \u00f3tv\u00edr\u00e6\u00f0ur vitnisbur\u00f0ur um a\u00f0 vel hafi tekist til enda \u00fe\u00f3tt \u00feau s\u00e9u ekki fullkomin enda samansett af syndugu, mist\u00e6ku f\u00f3lki eins og allt mannkyn er \u00ed raun.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd hinum Vestr\u00e6na heimi, sem er \u00ed grunninn kristinn, hefur r\u00edkisvald v\u00ed\u00f0ast hvar skili\u00f0 \u00e1 milli r\u00edkis og kirkju til a\u00f0 tryggja a\u00f0 tr\u00fanni ver\u00f0i s\u00ed\u00f0ur misbeitt. R\u00edki\u00f0 og kirkjan eru \u00fear me\u00f0 ekki \u00ed einni s\u00e6ng, heldur kallast \u00e1, kirkjan talar til l\u00f6ggjafans og l\u00f6ggjafinn til kirkjunnar. Vesturl\u00f6nd eiga allan sinn si\u00f0agrunn a\u00f0 \u00feakka tveimur hugt\u00f6kum, \u00f6\u00f0ru \u00far GT en hinu \u00far NT.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8220;Hinn fr\u00e6gi heimspekingur, J\u00fcrgen Habermas (1929-2026), [\u2026] sag\u00f0i a\u00f0 Vesturl\u00f6nd hef\u00f0u allan sinn si\u00f0agrunn \u00far Bibl\u00edunni. Hann tilt\u00f3k tv\u00f6 hugt\u00f6k. R\u00e9ttl\u00e6tishugsun Gy\u00f0inga \u00far GT og k\u00e6rleikskenningu Krists \u00ed NT. Habermas var yfirl\u00fdstur gu\u00f0leysingi, en hann \u00feekkti r\u00e6tur sinnar menningar og gekkst vi\u00f0 \u00feeim.&#8221;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deegar kemur a\u00f0 islam \u00fe\u00e1 er allt anna\u00f0 uppi en a\u00f0greining tr\u00faar og stj\u00f3rnm\u00e1la e\u00f0a kirkju og r\u00edkis eins og vi\u00f0 segjum \u00e1 Vesturl\u00f6ndum. \u00cd r\u00edkjum islam er enginn a\u00f0skilna\u00f0ur milli tr\u00faar og stj\u00f3rnm\u00e1la. Islam er nefnilega p\u00f3lit\u00edsk hreyfing sem r\u00e6\u00f0ur \u00f6llu \u00ed l\u00edfi m\u00faslima.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deess vegna \u00f3ttast \u00e9g islam, en ver\u00f0 eftir sem \u00e1\u00f0ur a\u00f0 elska m\u00faslima, elska f\u00f3lki\u00f0 en ekki tr\u00fa \u00feess e\u00f0a sko\u00f0anir, hva\u00f0 \u00fe\u00e1 \u00f6fgar \u00feess og yfirgang.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deetta er grundvallaratri\u00f0i sem allt of margi flaska \u00e1 og eins og sag\u00f0i h\u00e9r a\u00f0 framan \u00fe\u00e1 vir\u00f0ist f\u00f3lki \u00e1 vinstri v\u00e6ng stj\u00f3rnm\u00e1lanna eiga erfi\u00f0ara me\u00f0 a\u00f0 skilja \u00fearna \u00e1 milli en flestum \u00f6\u00f0rum sem \u00e9g hlusta \u00e1 \u00ed samt\u00edmanum ef marka m\u00e1 tj\u00e1ningu \u00feess \u00e1 samf\u00e9lagsmi\u00f0lum og hneykslunart\u00f3n.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Margir vir\u00f0ast vilja meinlausa presta \u00e1n sko\u00f0ana. \u00cd lj\u00f3si \u00feess leyfi \u00e9r m\u00e9r a\u00f0 segja:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8211; a\u00f0 fylgja Kristi er dau\u00f0ans alvara.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g fylgist vel me\u00f0 fj\u00f6lmi\u00f0lum v\u00ed\u00f0a um heim og \u00e9g \u00f3ttast \u00e1hrif islam \u00ed Evr\u00f3pu og \u00e1 Vesturl\u00f6ndum. Zohran Mamdami, n\u00fdkj\u00f6rinn borgarstj\u00f3ri New York, er m\u00faslimi. Hann setti n\u00fdlega \u00e1 f\u00f3t nefnd til a\u00f0 r\u00e6\u00f0a l\u00f6gfr\u00e6\u00f0ileg m\u00e1l borgarinnar. Nefndin er skipu\u00f0 18 l\u00f6gfr\u00e6\u00f0ingum, en enginn gy\u00f0ingur er \u00fear \u00ed h\u00f3pi, enda \u00fe\u00f3tt helmingur allra l\u00f6gfr\u00e6\u00f0inga \u00ed borginn s\u00e9u gy\u00f0ingar! Gy\u00f0ingahatur er \u00fatbreitt vandam\u00e1l og hefur veri\u00f0 um aldir. Gy\u00f0ingahatur er \u00f3tr\u00falega \u00fatbreitt \u00e1 \u00cdslandi, en ef menn hnj\u00f3\u00f0a \u00ed islam, \u00fe\u00e1 setja menn upp krippu og kv\u00e6sa sem argir kettir, en stein\u00feegja um gy\u00f0ingahatri\u00f0!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Islam hefur s\u00f3tt a\u00f0 Evr\u00f3pu um aldir. \u00deeir t\u00f3ku Sp\u00e1n og r\u00e9\u00f0u \u00fear r\u00edkjum lengi vel. \u00deeir s\u00e1tu um V\u00ednarborg undir lok 15. aldar, en ums\u00e1trinu var hrundi\u00f0 me\u00f0 her undir stj\u00f3rn Jans III Sobieski fr\u00e1 P\u00f3llandi. \u00de\u00e1 f\u00f6gnu\u00f0u V\u00ednarb\u00faar og b\u00f6ku\u00f0u brau\u00f0 og fengu s\u00e9r kaffi. Brau\u00f0i var \u00ed formi h\u00e1lfm\u00e1na og heitir <em>croissant<\/em> \u00e1 fr\u00f6nsku. \u00deau \u00e1tu b\u00f3kstaflega tr\u00faart\u00e1kn m\u00faslima!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deegar m\u00faslimar t\u00f3ku Konstant\u00edn\u00f3pel og \u00fear me\u00f0 Kirkju hinnar heil\u00f6gu visku &#8211; Hagia Sophia &#8211; \u00fe\u00e1 dr\u00e1pur \u00feeir munka og presta og nunnur l\u00edka. Kirkjunni var breytt \u00ed mosku og s\u00ed\u00f0ar \u00ed safn og svo aftur \u00ed mosku \u00e1 okkar t\u00edmum, n\u00e1nar tilteki\u00f0 \u00e1 valdat\u00edma Erdogans sem enn r\u00edkir \u00ed Tyrklandi og hefur s\u00f3st eftir \u00fev\u00ed a\u00f0 komast me\u00f0 s\u00edna \u00fej\u00f3\u00f0, sem telur 69 millj\u00f3nir inn \u00ed Evr\u00f3pusambandi\u00f0. Ef \u00fea\u00f0 gerist \u00fe\u00e1 ver\u00f0ur Evr\u00f3pa ekki til \u00ed n\u00faverandi mynd eftir stutta veru Tyrkja \u00fear \u00e1 b\u00e6. Og gleymum ekki Tyrkjar\u00e1ninu sem reyndar var frami\u00f0 af Als\u00edrb\u00faum, en \u00fear voru m\u00faslimar \u00e1 fer\u00f0. \u00der\u00e6lahald var vi\u00f0 l\u00fd\u00f0i um allan heim \u00e1 \u00feeim t\u00edma. Vesturl\u00f6nd keyptu s\u00e9r \u00fer\u00e6la \u00ed Afr\u00edku \u00fear sem \u00feeirra eigi\u00f0 f\u00f3lk seldi \u00fea\u00f0 fyrir f\u00e9. Sama ger\u00f0u m\u00faslimsku l\u00f6ndin. \u00deau keyptu fleiri \u00fer\u00e6la en Vesturl\u00f6nd og yfir mun lengri t\u00edma og me\u00f0al \u00fer\u00e6la \u00fear \u00ed heimi voru konur \u00ed meirihluta. \u00der\u00e6lar sem voru drengir voru geldir \u00e1 unga aldri, \u00feannig a\u00f0 afkomendur \u00fer\u00e6la \u00ed heimi m\u00faslima finnast ekki lengur. Afkomendur \u00fer\u00e6la \u00ed Bandar\u00edkjunumm og \u00e1 Vesturl\u00f6ndum skipta millj\u00f3num. \u00deetta eru mikilv\u00e6gar sta\u00f0reyndir.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Bretar eru n\u00fa farnir a\u00f0 s\u00fapa sey\u00f0i\u00f0 af linri afst\u00f6\u00f0u til islam. \u00dear \u00ed landi eru heilu borgirnar n\u00e1nast \u00e1 valdi islam. Sharia l\u00f6g sem leyfa m.a. k\u00fagun kvenna, s\u00e6mdardr\u00e1p \u00e1 konum ef \u00fe\u00e6r ver\u00f0a skotnar \u00ed orginal bretum og koma \u00fear me\u00f0 \u00f3or\u00f0i \u00e1 \u00e6tt s\u00edna &#8211; og svo m\u00e6tti lengi telja. Ungir m\u00faslimar nau\u00f0ga st\u00falkum \u00ed \u00fe\u00fasundatali \u00ed Bretlandi. Einn ungur m\u00faslimi, n\u00fdkominn til landsins fr\u00e1 Pakistan a\u00f0 mig minnir, var leiddur fyrir r\u00e9tt \u00fear \u00ed landi vegna nau\u00f0gunar n\u00fdlega og sag\u00f0i vi\u00f0 d\u00f3marann a\u00f0 hann hef\u00f0i ekki hafa haft hugmynd um a\u00f0 hann m\u00e6tti ekki nau\u00f0ga konum \u00ed Bretlandi!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Undir Fr\u00f6kkum er fari\u00f0 a\u00f0 hitna. Danir finan fyrir \u00e1hrifum islam og vandr\u00e6\u00f0um sem fylgja m\u00faslimum og svo m\u00e6tti lengi telja. \u00c1 F\u00e9sb\u00f3kinni f\u00e9kk \u00e9g \u00feessi skilabo\u00f0:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">&#8221; [&#8230;] \u00fer\u00f3unin \u00ed Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0 er engu a\u00f0 s\u00ed\u00f0ur athyglisver\u00f0. Um \u00e1ri\u00f0 2000 voru m\u00faslimar \u00fear taldir um 250\u2013300 \u00fe\u00fasund, e\u00f0a 3\u20134% \u00fej\u00f3\u00f0arinnar. \u00c1ri\u00f0 2010 voru \u00feeir um 451 \u00fe\u00fasund, 4,9%, og \u00e1ri\u00f0 2020 var hlutfalli\u00f0 komi\u00f0 \u00ed um 8%.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00dea\u00f0 sem vekur ekki s\u00ed\u00f0ur athygli er framhaldi\u00f0. M\u00faslimar \u00ed Evr\u00f3pu eru a\u00f0 me\u00f0altali mun yngri en a\u00f0rir \u00edb\u00faar og hafa veri\u00f0 me\u00f0 h\u00e6rri f\u00e6\u00f0ingart\u00ed\u00f0ni. Pew hefur \u00fev\u00ed \u00e1\u00e6tla\u00f0 a\u00f0 jafnvel \u00fe\u00f3tt frekari innflytjendur m\u00faslima til Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0ar st\u00f6\u00f0vu\u00f0ust alveg g\u00e6ti hlutfalli\u00f0 samt fari\u00f0 \u00ed um 11% \u00e1ri\u00f0 2050 vegna n\u00e1tt\u00farulegrar fj\u00f6lgunar einnar saman.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deetta er \u00fev\u00ed ekki bara umr\u00e6\u00f0a um innflytjendur heldur l\u00edka l\u00fd\u00f0fr\u00e6\u00f0ilega \u00fer\u00f3un til lengri t\u00edma.&#8221;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Islam \u00e1 varla neitt erindi \u00ed kristnu samf\u00e9lagi og \u00fev\u00ed er \u00fea\u00f0 \u00f3skiljanlegt a\u00f0 fv. borgarstj\u00f3ri, Dagur B. Eggertsson, og meirihlutinn sem hann st\u00fdr\u00f0i, hafi veitt m\u00faslimum \u00f3keypis l\u00f3\u00f0 \u00ed sj\u00e1lfu borgarhli\u00f0i Reykjav\u00edkur, \u00fear sem stofnbrautirnar tv\u00e6r, Reykjanesbraut og Vesturlandsvegur m\u00e6tast vi\u00f0 Elli\u00f0a\u00e1rnar. Eina bestu l\u00f3\u00f0 borgarinnar! J\u00e1, \u00ed sj\u00e1lfu borgarhli\u00f0i Reykjav\u00edkur stendur til a\u00f0 reisa mosku \u00ed bo\u00f0i Borgarstj\u00f3rnar!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c1 sama t\u00edma f\u00e9kk Hj\u00e1lpr\u00e6\u00f0isherinn l\u00f3\u00f0 \u00e1 sama sv\u00e6\u00f0i, kristin hreyfing sem h\u00f3f starf sitt h\u00e9r \u00e1 landi \u00e1ri\u00f0 1895 &#8211; fyrir 131 \u00e1ri!!! &#8211; og hefur \u00e1n efa vari\u00f0 jafngildi millj\u00f6r\u00f0um kr\u00f3na til l\u00edknarm\u00e1la me\u00f0 \u00f3eigingj\u00f6rnu starfi s\u00ednu. Herinn aflar tekna sinn me\u00f0 frj\u00e1lsum framl\u00f6gum og hefur \u00e1 a\u00f0 skipa mannafla sem l\u00edklega hefur l\u00edtil laun. Herinn var\u00f0 a\u00f0 borga fullt ver\u00f0 fyrir l\u00f3\u00f0ina en tr\u00faf\u00e9l\u00f6g eru undan\u00feegin sl\u00edkum l\u00f3\u00f0agj\u00f6ldum skv. l\u00f6gum. \u00c9g veit a\u00f0 Herinn er ekki skr\u00e1\u00f0 tr\u00faf\u00e9lag, en sagan vitnar um a\u00f0 hann hefur starfa\u00f0 h\u00e9r sem \u00edgildi kristins safna\u00f0ar og lagt \u00f3m\u00e6lt k\u00e6rleiksstarf a\u00f0 m\u00f6rkum fyrir samf\u00e9lag okkar. Au\u00f0vita\u00f0 \u00e1tti Hj\u00e1lpr\u00e6\u00f0isherinn a\u00f0 f\u00e1 \u00f3keypis l\u00f3\u00f0! \u00deetta er hneisa og sk\u00f6mm og \u00e9g kalla \u00e1 sitjandi Borgarstj\u00f3rn a\u00f0 endurkalla \u00feetta leyfi enda hafa m\u00faslimar ekki enn leyst l\u00f3\u00f0ina til s\u00edn. For\u00f0i\u00f0 \u00fev\u00ed \u00ed lengstu l\u00f6g a\u00f0 moska ver\u00f0i \u00fea\u00f0 sem m\u00e6tir \u00f6llum sem aka inn \u00ed h\u00f6fu\u00f0borg \u00cdslands, \u00ed kristnu r\u00edki sem sta\u00f0i\u00f0 hefur \u00ed yfir \u00fe\u00fasund \u00e1r!!!<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g endurtek a\u00f0 \u00e9g vir\u00f0i m\u00faslima sem manneskjur, en hef ekki s\u00f6mu afst\u00f6\u00f0u til tr\u00faar \u00feeirra e\u00f0a kennisetninga. Og \u00fear stendur hn\u00edfurinn \u00ed k\u00fanni milli m\u00edn og \u00feeirra sem eiga erfitt me\u00f0 a\u00f0 skilja \u00e1 milli manna og sko\u00f0ana, syndara og syndar, tr\u00faa\u00f0ra af hva\u00f0a tr\u00fa sem er og tr\u00faarkerfisins, sem \u00e1 vi\u00f0 \u00ed hverju tilfelli.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">L\u00e6rum \u00feessa l\u00edfsreglu og h\u00f6fum hana \u00ed hei\u00f0ri \u00ed daglegu l\u00edfi.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">S\u00fa lei\u00f0, getur af s\u00e9r minni slaufun, minni skautun, minni sk\u00f6mmun.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">A\u00f0 endingu er h\u00e9r texti \u00far Fyrra Korintubr\u00e9fi P\u00e1ls postula 1. kafla:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Kristur, kraftur Gu\u00f0s og speki<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">18 \u00dev\u00ed a\u00f0 or\u00f0 krossins er heimska \u00feeim er stefna \u00ed gl\u00f6tun en okkur sem h\u00f3lpin ver\u00f0um er \u00fea\u00f0 kraftur Gu\u00f0s. 19 Rita\u00f0 er:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00c9g mun ey\u00f0a speki spekinganna<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">og hyggindi hyggindamannanna mun \u00e9g a\u00f0 engu gera.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><br \/>20 Hvar er vitringur? Hvar fr\u00e6\u00f0ima\u00f0ur, or\u00f0kappi \u00feessa heims? Er ekki \u00fea\u00f0 sem heimurinn telur speki heimska \u00ed augum Gu\u00f0s?<br \/>21 Enda \u00fe\u00f3tt speki Gu\u00f0s s\u00e9 \u00ed heiminum g\u00e1tu mennirnir ekki \u00feekkt Gu\u00f0 me\u00f0 sinni speki. \u00deess vegna \u00e1kva\u00f0 Gu\u00f0 a\u00f0 bo\u00f0a \u00fea\u00f0 sem er heimska \u00ed augum manna og frelsa \u00fe\u00e1 sem tr\u00faa. 22 Gy\u00f0ingar heimta t\u00e1kn og Grikkir leita a\u00f0 speki 23 en vi\u00f0 pr\u00e9dikum Krist krossfestan, Gy\u00f0ingum hneyksli og hei\u00f0ingjum heimsku 24 en okkur sem Gu\u00f0 hefur kalla\u00f0, b\u00e6\u00f0i Gy\u00f0ingum og Grikkjum, Krist, kraft Gu\u00f0s og speki Gu\u00f0s. 25 \u00dev\u00ed a\u00f0 heimska Gu\u00f0s er m\u00f6nnum vitrari og veikleiki Gu\u00f0s m\u00f6nnum sterkari.<br \/>26 Minnist \u00feess, systkin,[ hvernig \u00fei\u00f0 voru\u00f0 \u00feegar Gu\u00f0 kalla\u00f0i ykkur: M\u00f6rg ykkar voru ekki vitur a\u00f0 manna d\u00f3mi, ekki voldug e\u00f0a \u00e6ttst\u00f3r. 27 En Gu\u00f0 hefur \u00fatvali\u00f0 \u00fea\u00f0 sem heimurinn telur heimsku til a\u00f0 gera hinum vitru kinnro\u00f0a og hi\u00f0 veika \u00ed heiminum til \u00feess a\u00f0 gera hinu volduga kinnro\u00f0a. 28 Og hi\u00f0 l\u00edtilm\u00f3tlega \u00ed heiminum, \u00fea\u00f0 sem heimurinn telur einskis vir\u00f0i, hefur Gu\u00f0 \u00fatvali\u00f0 til \u00feess a\u00f0 gera a\u00f0 engu \u00fea\u00f0 sem er \u00ed metum. 29 Enginn ma\u00f0ur skyldi hr\u00f3sa s\u00e9r fyrir Gu\u00f0i. 30 Honum er \u00fea\u00f0 a\u00f0 \u00feakka a\u00f0 \u00fei\u00f0 eru\u00f0 \u00ed samf\u00e9lagi vi\u00f0 Krist Jes\u00fa. Hann er or\u00f0inn okkur v\u00edsd\u00f3mur fr\u00e1 Gu\u00f0i, b\u00e6\u00f0i r\u00e9ttl\u00e6ti, helgun og endurlausn. 31 Eins og rita\u00f0 er: \u201eS\u00e1 sem vill hr\u00f3sa s\u00e9r hr\u00f3si s\u00e9r \u00ed Drottni.\u201c<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og \u00e9g segi n\u00fa bara Amen<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">sem merkir: Ver\u00f0i svo!<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Hneykslunart\u00f3nninn og fyrirlitningin leynir s\u00e9r ekki: Sj\u00e1lfur presturinn leyfir s\u00e9r a\u00f0 vara vi\u00f0 islam. Viltu hlusta? Smelltu \u00fe\u00e1 \u00e1 uppt\u00f6kuna: J\u00e1, f\u00f3lk hneykslast og \u00fea\u00f0 er ekki \u00ed fyrsta sinn \u00ed s\u00f6gunni sem f\u00f3lk l\u00e6tur sl\u00edkt \u00ed lj\u00f3si. Sj\u00e1lfur Frelsarinn f\u00e9kk hneykslandi f\u00f3lk yfir sig \u00ed st\u00f3rum sk\u00f6mmtum og fylgjendur hans \u00e1 fyrstu \u00f6ldum kristni [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[4],"tags":[],"class_list":["post-8170","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-greinar-og-hugvekjur-articles"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/8170","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=8170"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/8170\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=8170"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=8170"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=8170"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}