{"id":8158,"date":"2026-08-21T22:40:22","date_gmt":"2026-08-21T22:40:22","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/2026\/08\/21\/slaufun-skautun-skommun\/"},"modified":"2026-08-21T22:40:22","modified_gmt":"2026-08-21T22:40:22","slug":"slaufun-skautun-skommun","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=8158","title":{"rendered":"Slaufun, skautun, sk\u00f6mmun"},"content":{"rendered":"\n<p class=\"wp-block-paragraph\">W\u00f3ki\u00f0, vinstri\u00f0 og vestri\u00f0<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deankar um umr\u00e6\u00f0u dagsins og \u00fer\u00f3un heimsm\u00e1la<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/category\/greinar-og-hugvekjur-articles\/\">Greinar og Hugvekjur \/ Articles<\/a><\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"2000\" height=\"1663\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2026\/08\/img_1341.jpg?w=1024\" alt=\"\" class=\"wp-image-8144\" \/><figcaption class=\"wp-element-caption\">Mynd fengin a\u00f0 l\u00e1ni af Veraldarvefnum<\/figcaption><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Viltu hlusta? Smelltu \u00e1 uppt\u00f6kuna!<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-audio\"><audio controls src=\"https:\/\/pub-c849b6aaf98340c4bec7b480b0f7ffe9.r2.dev\/2026\/08\/slaufun-skautun-skommun.m4a\"><\/audio><\/figure>\n\n\n\n<!--more-->\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deessi hugt\u00f6k \u00ed fyrirs\u00f6gninni eru skyld. \u00deau tj\u00e1 \u00fe\u00e1 \u00e1r\u00e1ttu f\u00f3lks a\u00f0 taka dj\u00fapt \u00ed \u00e1rinni \u00ed d\u00f3mum um tj\u00e1ningu samborgara sinna.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">N\u00fdlega sag\u00f0i \u00e9g \u00ed r\u00e6\u00f0u:<\/p>\n\n\n\n<blockquote class=\"wp-block-quote is-layout-flow wp-block-quote-is-layout-flow\">\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Sko\u00f0anir f\u00f3lks breytast \u00ed deiglu daganna. \u00c9g nefndi fyrr \u00e1hrif hei\u00f0innar hugsunar. Hei\u00f0nin kemur m.a. fram \u00ed svonefndri slaufunarmenningu \u2013 \u00ed \u00feeirri \u00e1r\u00e1ttu a\u00f0 kansellera f\u00f3lki \u2013 reka \u00fea\u00f0 \u00fat af vellinum eins og d\u00f3mari \u00ed knattspyrnuleik. En reglurnar \u00ed knattspyrnu, eru ekki l\u00edfsreglurnar st\u00e6rstu og mestu. \u00cd l\u00edfinu gilda hinar kristnu reglur um a\u00f0 elska n\u00e1ungann. Og vi\u00f0 elskum \u00fe\u00e1 manneskjuna en \u00feurfum hvorki a\u00f0 elska e\u00f0a samsinna sko\u00f0unum hennar n\u00e9 verkum, hva\u00f0 \u00fe\u00e1 mist\u00f6kum og misgj\u00f6r\u00f0um. \u00deetta \u00feekkja prestar sem stunda s\u00e1lg\u00e6slu og vita a\u00f0 \u00ed hverri manneskju b\u00fdr gu\u00f0sneisti. Slaufunarmenning er \u00f3menning, h\u00fan er hei\u00f0ind\u00f3mur. Forfe\u00f0ur okkar og m\u00e6\u00f0ur bjuggu vi\u00f0 d\u00f3msvald sem d\u00e6mdi til sk\u00f3ggangs, fj\u00f6rbaugs e\u00f0a til fj\u00e1rsekta. \u00de\u00e1 var engin fyrirgefning, engin n\u00e1\u00f0, engin miskunn, bara \u00fatilokun, bara hefnd og grimmd g\u00f6tunnar. Viljum vi\u00f0 innlei\u00f0a \u00fea\u00f0 \u00e1 n\u00fd?<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">[\u2026]<\/p>\n<\/blockquote>\n\n\n\n<blockquote class=\"wp-block-quote is-layout-flow wp-block-quote-is-layout-flow\">\n<p class=\"wp-block-paragraph\">A\u00f0 vera s\u00e9r \u00feess me\u00f0vitandi a\u00f0 vi\u00f0 erum \u00f6ll syndugar manneskjur er mikilv\u00e6gara en flest anna\u00f0. Syndin er ekki einhver m\u00f3ralismi, einhver tilfellafr\u00e6\u00f0i um \u00fea\u00f0 hvernig f\u00f3lki ver\u00f0i f\u00f3taskortur \u00e1 l\u00edfsveginum. Nei, syndin merkir geigun, a\u00f0 vera \u00ed sundur fr\u00e1 skapara s\u00ednum, e\u00f0li og uppruna, a\u00f0 vera framandi sj\u00e1lfum s\u00e9r og l\u00edfinu \u00ed s\u00ednu st\u00f3ra samhengi. \u00dea\u00f0 er syndin. H\u00fan er geigun. Fyrsti b\u00edlinn sem \u00e9g \u00e1tti var syndugur. Hann var me\u00f0 hlaup \u00ed st\u00fdrinu sem ger\u00f0i \u00fea\u00f0 a\u00f0 verkum a\u00f0 hann leita\u00f0i \u00e6t\u00ed\u00f0 \u00fat af veginum. Mitt hlutverk var a\u00f0 halda b\u00edlnum \u00e1 veginum. L\u00f6ngu s\u00ed\u00f0ar, \u00feegar \u00e9g nam gu\u00f0fr\u00e6\u00f0i, var\u00f0 m\u00e9r lj\u00f3st a\u00f0 sami vandi er \u00ed m\u00e9r sj\u00e1lfum og \u00f6llum \u00f6\u00f0rum m\u00f6nnum, k\u00f6rlum sem konum. Vi\u00f0 erum \u00f6ll me\u00f0 hlaup \u00ed st\u00fdrinu og okkur h\u00e6ttir til a\u00f0 fara \u00fat af hinni r\u00e9ttu lei\u00f0.<\/p>\n<\/blockquote>\n\n\n\n<blockquote class=\"wp-block-quote is-layout-flow wp-block-quote-is-layout-flow\">\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Staksteinar Morgunbla\u00f0sins vitna \u00ed Sigur\u00f0 M\u00e1 J\u00f3nsson bla\u00f0amann undir yfirskriftinni: Er skautunin \u00e1 vinstri v\u00e6ngnum? S\u00e1 texti er \u00ed \u00fatg\u00e1fu greinarinnar \u00e1 heimas\u00ed\u00f0u minni.<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"461\" height=\"1681\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2026\/08\/img_1335-1.jpg?w=281\" alt=\"\" class=\"wp-image-8156\" \/><\/figure>\n<\/blockquote>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Okkur h\u00e6ttir \u00f6llum til a\u00f0 slaufa, skauta og skamma, en \u00fea\u00f0 er vissulega merkilegt, ef s\u00fa \u00e1r\u00e1tta reynist r\u00edkari \u00e1 vinstri v\u00e6ngnum en hinum h\u00e6gri! \u00dea\u00f0 lei\u00f0ir hugann a\u00f0 grunngildum Vesturlanda.<\/p>\n\n\n\n<blockquote class=\"wp-block-quote is-layout-flow wp-block-quote-is-layout-flow\">\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Hinn fr\u00e6gi heimspekingur, J\u00fcrgen Habermas (1929-2026), [\u2026] sag\u00f0i a\u00f0 Vesturl\u00f6nd hef\u00f0u allan sinn si\u00f0agrunn \u00far Bibl\u00edunni. Hann tilt\u00f3k tv\u00f6 hugt\u00f6k. R\u00e9ttl\u00e6tishugsun Gy\u00f0inga \u00far GT og k\u00e6rleikskenningu Krists \u00ed NT. Habermas var yfirl\u00fdstur gu\u00f0leysingi, en hann \u00feekkti r\u00e6tur sinnar menningar og gekkst vi\u00f0 \u00feeim.<\/p>\n<\/blockquote>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Arfur Vesturlanda hv\u00edlir \u00e1 \u00feessum grunni en n\u00fa eru \u00f6fl sem vilja skekja \u00feennan grunn og hreinlega grafa undan l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0i og grunngildum Vesturlanda.&nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Dvergr\u00edki\u00f0 Qatar sem telur um 350 \u00fe\u00fasund \u00edb\u00faa og er \u00fev\u00ed \u00e1l\u00edka fj\u00f6lmennt og \u00cdsland. En Qatar veit ekki aura sinna tal. N\u00fa berast uppl\u00fdsingar \u00ed fj\u00f6lmi\u00f0lum um styrki Qatar til Bandar\u00edskra h\u00e1sk\u00f3la og \u00fear er um a\u00f0 r\u00e6\u00f0a milljar\u00f0atugi \u00ed dollurum tali\u00f0 en \u00ed kr\u00f3num svo miki\u00f0 a\u00f0 ma\u00f0ur skilur ekki sl\u00edkar upph\u00e6\u00f0ir. Og hva\u00f0 f\u00e1 \u00feeir \u00ed sta\u00f0inn? \u00deeir f\u00e1 m.a. \u00fea\u00f0 fyrir grei\u00f0ann a\u00f0 dempa vestr\u00e6n gildi og \u00fea\u00f0 sem Vesturl\u00f6nd standa fyrir.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Fr\u00e1 \u00e1rinu 1991 hefur Qatar styrkt h\u00e1sk\u00f3la \u00ed BNA um 6,25 milljar\u00f0a dollara e\u00f0a&nbsp;<em>sex-komma-tuttugu-og-fimm-\u00fe\u00fasund-millj\u00f3n<\/em>ir, sem gera 7,6 x 10 \u00ed 13. veldi \u00ed kr\u00f3num tali\u00f0 sem eru \u00f3skiljanlegar skrillj\u00f3nir \u00ed m\u00ednum huga.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00e9r eru tenglar \u00e1 greinar um m\u00e1li\u00f0:<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><a href=\"https:\/\/en.wikipedia.org\/wiki\/Qatari_involvement_in_US_higher_education\">https:\/\/en.wikipedia.org\/wiki\/Qatari_involvement_in_US_v_education<\/a><\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00dearna er um a\u00f0 r\u00e6\u00f0a dvergr\u00edki af mei\u00f0i islam sem er me\u00f0 kl\u00e6rnar \u00fati til a\u00f0 sv\u00e6fa vestr\u00e6na menningu og ey\u00f0a henni svo. Qatar er \u00ed miklu vinfengi vi\u00f0 samt\u00f6kin Br\u00e6\u00f0ralag m\u00faslima sem eru \u00f6fgasamt\u00f6k sem fara ekki dult me\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 markmi\u00f0 \u00feeirra er a\u00f0 leggja Vesturl\u00f6nd \u00ed r\u00fast.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00deessi l\u00e6v\u00edsi \u00e1r\u00f3\u00f0ur \u00ed h\u00e1sk\u00f3lum \u00ed BNA hefur s\u00edn \u00e1hrif \u00fev\u00ed hann kemur hugmyndum W\u00f3ksins inn \u00ed huga f\u00f3lks og fyrir \u00feeim \u00e1r\u00f3\u00f0ri er Vinstri\u00f0 veikara en H\u00e6gri\u00f0.&nbsp;Greinar \u00e1 mei\u00f0i f\u00e9lagsv\u00edsinda eru vins\u00e6lar. M\u00e9r \u00feykir margt f\u00f3\u00f0legt koma \u00far \u00feeim ranni en l\u00edka \u00e6\u00f0i margt undarlegt.&nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Ef tekin er \u00f6gn&nbsp;<em>par\u00f3d\u00edsk<\/em>&nbsp;n\u00e1lgun \u00e1 h\u00e1sk\u00f3lana \u00ed BNA \u00fe\u00e1 eru \u00fear upp til h\u00f3pa pr\u00f3fessorar sem e.t.v. hafa aldrei teki\u00f0 \u00fe\u00e1tt \u00ed \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9laginu nema til a\u00f0 vera \u00ed n\u00e1mi og svo kennslu, aldrei fari\u00f0 \u00e1 sj\u00f3, aldrei grafi\u00f0 skur\u00f0 e\u00f0a unni\u00f0 vi\u00f0 uppskipun, flaka\u00f0 fisk \u00ed frystih\u00fasi e\u00f0a unni\u00f0 \u00e6rlegt handtak, nema lyft \u00fev\u00ed gr\u00ed\u00f0arlega grettistaki \u2013 e\u00f0a \u00feannig \u2013 sem er a\u00f0 vera \u00ed sk\u00f3la fr\u00e1 6 \u00e1ra aldri og til sj\u00f6tugs. \u00deekkir sl\u00edkt f\u00f3lk samf\u00e9lagi\u00f0? Lokast menn ekki \u00e1 endanum inni \u00ed sinni eigin s\u00e1puk\u00falu? Til skamms t\u00edma f\u00f3ru \u00edslenskir h\u00e1sk\u00f3lamenn \u00e1 sj\u00f3inn og \u00ed skur\u00f0ina, en f\u00e6rri n\u00fa \u00e1 t\u00edmum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Svo er \u00fea\u00f0 Vinstri\u00f0 sem segja m\u00e1 a\u00f0 r\u00e1\u00f0i r\u00edkjum \u00ed f\u00e9lagsgreinunum.&nbsp;<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vinstri\u00f0 er \u00feekkt fyrir a\u00f0 vilja ekki hafa miki\u00f0 a\u00f0 gera me\u00f0 kirkju og kristind\u00f3m. \u00dea\u00f0 hr\u00ed\u00f0fellur fyrir grunnhyggnum hugmyndum W\u00f3ksins, k\u00e6rleika \u00e1n \u00e1byrg\u00f0ar, r\u00e9ttindum f\u00f3lks til a\u00f0 fylgja rugli og dellumaker\u00edi \u00e1 \u00f6llum svi\u00f0um. W\u00f3ki\u00f0 er svona nokkurskonar sykurlaus marxismi, diet-drykkur \u00e1n allrar n\u00e6ringar, Pepsi Max sem gefur stu\u00f0 \u00ed heilann og koff\u00edni\u00f0 vekur \u00fe.e. gefur W\u00f3ke-tilfinningu.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Mannkyni\u00f0 er \u00ed vissum skilningi \u00e1 siglingu sem enda mun \u00ed brotsj\u00f3 og ska\u00f0a. S\u00fa sigling er ekki nein Arkar-fer\u00f0 eins og N\u00f3i f\u00f3r \u00ed og bjarga\u00f0i mannkyni for\u00f0um, en \u00fe\u00e1 arfs\u00f6gn fengum vi\u00f0 \u00ed arf \u00ed gegnum gy\u00f0ingd\u00f3m og kristni, en h\u00fan er jafnframt \u00feekkt \u00ed \u00f6\u00f0rum menningarheimum. \u00d6rkin bjarga\u00f0i.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">S\u00e9rhver kirkja \u00ed heiminum hefur kirkjuskip, \u00fe.e. megin sal byggingarinnar. Or\u00f0i\u00f0 kirkjuskip v\u00edsar til arkarinnar. \u00deak kirkjunnar veitir skj\u00f3l fyrir regni og vindum og \u00fea\u00f0 er \u00ed t\u00e1knr\u00e6num skilningi \u00f6rkin sem hvelfist yfir s\u00f6fnu\u00f0inn, veitir skj\u00f3l fyrir ve\u00f0ri og vindum \u00ed s\u00e1linni og kl\u00edfur me\u00f0 m\u00e6ni s\u00ednum \u00f3ve\u00f0ur l\u00edfsins.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Leitum \u00ed \u00fea\u00f0 skj\u00f3l sem gagnast hefur \u00ed 5 \u00fe\u00fasund \u00e1r og lagt grunninn a\u00f0 vestr\u00e6num samf\u00e9l\u00f6gum me\u00f0 \u00f6llum s\u00ednum g\u00e6\u00f0um, mannr\u00e9ttindum, menntun, heilbrig\u00f0is\u00fej\u00f3nustu og frelsi til athafna eftir hollum leikreglum sem upphaflega voru klappa\u00f0ar \u00ed stein en s\u00ed\u00f0ar rita\u00f0ar \u00e1 b\u00f3kfell og b\u00e6kur og n\u00fa stafr\u00e6nt \u00e1 skj\u00e1i sem tilt\u00e6kir eru \u00ed vasa flestra \u00ed okkar heimshluta og v\u00ed\u00f0ar.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Lesum, l\u00e6rum \u2013 og lifum af!<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>W\u00f3ki\u00f0, vinstri\u00f0 og vestri\u00f0 \u00deankar um umr\u00e6\u00f0u dagsins og \u00fer\u00f3un heimsm\u00e1la Greinar og Hugvekjur \/ Articles Viltu hlusta? Smelltu \u00e1 uppt\u00f6kuna!<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[4],"tags":[],"class_list":["post-8158","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-greinar-og-hugvekjur-articles"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/8158","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=8158"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/8158\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=8158"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=8158"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=8158"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}