{"id":813,"date":"2013-10-15T20:41:39","date_gmt":"2013-10-15T20:41:39","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/?p=813"},"modified":"2013-10-15T20:41:39","modified_gmt":"2013-10-15T20:41:39","slug":"anna-maria-helgadottir-1927-2013","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=813","title":{"rendered":"Anna Mar\u00eda Helgad\u00f3ttir 1927-2013"},"content":{"rendered":"<p>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson<\/p>\n<p><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2013\/10\/annamhelgadottir.png\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2013\/10\/annamhelgadottir.png\" class=\"alignleft size-full wp-image-814\" alt=\"AnnaMHelgadottir\" width=\"168\" height=\"225\"><\/a>Minningaror\u00f0<\/p>\n<p><b>Anna Mar\u00eda Helgad\u00f3ttir<\/b><\/p>\n<p>h\u00fasm\u00f3\u00f0ir og fv. b\u00e6jarfulltr\u00fai<\/p>\n<p>fr\u00e1 \u00cdsafir\u00f0i<\/p>\n<p>19378-2013<\/p>\n<p>\u00datf\u00f6r (b\u00e1lf\u00f6r) \u00ed kyrr\u00feey fr\u00e1 Kapellunni<\/p>\n<p>\u00ed Kirkjugar\u00f0i Hafnarfjar\u00f0ar<\/p>\n<p>\u00feri\u00f0judaginn 15. okt\u00f3ber 2013 kl. 13<\/p>\n<p>Jar\u00f0sett ver\u00f0ur \u00fear a\u00f0 lokinni b\u00e1lf\u00f6r.<\/p>\n<p>R\u00e6\u00f0una er h\u00e6gt a\u00f0 lesa og hlusta \u00e1 h\u00e9r fyrir ne\u00f0an.<\/p>\n<p><!--more--><\/p>\n\n<p>\u201eA\u00f0 vera e\u00f0a ekki vera, \u00fear liggur efinn\u201c, sag\u00f0i prinsinn Hamlet \u00ed samnefndu sk\u00e1ldverki Shakespears. Vi\u00f0 hlj\u00f3tum \u00f6ll a\u00f0 velta fyrir okkur tilvistarspurningum nema vi\u00f0 flj\u00f3tum sofandi a\u00f0 feig\u00f0ar\u00f3si. Hvers vegna er \u00e9g h\u00e9r? Til hvers er \u00feetta l\u00edf? Vi\u00f0 b\u00faum \u00e1 einu pl\u00e1netu alheimsins sem vi\u00f0 vitum a\u00f0 h\u00fdsir vitundarl\u00edf. En til hvers er \u00feessi vitund, \u00feetta l\u00edf? Er \u00fea\u00f0 tilgangslaust? Hvar endar \u00feetta l\u00edf, hvert stefnum vi\u00f0? \u00cd lj\u00f3\u00f0i Gyr\u00f0is El\u00edassonar, L\u00edfi\u00f0 er v\u00f6lundarh\u00fas, er saga um manneskju, sem komin er a\u00f0 m\u00e6rum:<\/p>\n<p>\u00de\u00fa fer\u00f0 inn um dyr<\/p>\n<p>og \u00fe\u00e1 koma a\u00f0rar<\/p>\n<p>dyr r\u00e9tt \u00e1 eftir, \u00fe\u00fa<\/p>\n<p>fer\u00f0 \u00ed gegnum \u00fe\u00e6r<\/p>\n<p>og enn koma n\u00fdjar<\/p>\n<p>dyr, og n\u00e6st eru<\/p>\n<p>tv\u00edbrei\u00f0ar dyr, og<\/p>\n<p>\u00fe\u00fa fer\u00f0 enn lengra<\/p>\n<p>\u00fear til loks eru ekki<\/p>\n<p>fleiri dyr framundan.<\/p>\n<p>\u00de\u00e1 sn\u00fdr\u00f0u \u00fe\u00e9r vi\u00f0,<\/p>\n<p>me\u00f0 baki\u00f0 a\u00f0<\/p>\n<p>gr\u00e1um veggnum,<\/p>\n<p>og allar \u00fe\u00e6r dyr<\/p>\n<p>sem \u00fe\u00fa f\u00f3rst um<\/p>\n<p>\u00e1\u00f0ur eru l\u00e6star<\/p>\n<p>(L\u00edfi\u00f0 er v\u00f6lundarh\u00fas, \u00far b\u00f3kinni H\u00e9r vex engin s\u00edtr\u00f3nuvi\u00f0ur, Uppheimar 2012, s. 30)<\/p>\n<p>Vi\u00f0 komumst ekki til baka. Fort\u00ed\u00f0in er a\u00f0 baki, vi\u00f0 eigum daginn og svo komum vi\u00f0 a\u00f0 hinum miklu m\u00e6rum \u00ed fyllingu t\u00edmans. Og \u00e9g spyr: Hva\u00f0 er handan hins gr\u00e1a veggjar?<\/p>\n<p>Efinn er fylgifiskur mannsins, gl\u00edman vi\u00f0 tilvistina fylgir okkur eins og skuggi og vi\u00f0 ver\u00f0um a\u00f0 velta um steinum og leita svara vi\u00f0 spurningum l\u00edfsins.<\/p>\n<p>Anna var leitandi kona og h\u00fan r\u00e6ddi vi\u00f0 mig um efann og henni l\u00e9tti \u00feegar h\u00fan heyr\u00f0i a\u00f0 \u00fea\u00f0 v\u00e6ri \u00ed lagi a\u00f0 efast, a\u00f0 tr\u00fain v\u00e6ri ekki eins og alltof st\u00f3rt kj\u00f6tstykki sem ma\u00f0ur yr\u00f0i a\u00f0 me\u00f0taka \u00ed einum munnbita. T\u00fain er leit, h\u00fan ver vegfer\u00f0, h\u00fan er f\u00f3lgin \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 spyrja og leita svara, hlusta og me\u00f0taka, velta fyrir s\u00e9r r\u00f6kum og sko\u00f0a \u00feau \u00ed lj\u00f3si tilfinninga, hugsunar og veruleika. Tr\u00fain er ekki eins og hlutur heldur er h\u00fan d\u00fdnam\u00edskur veruleiki sem \u00e1 s\u00e9r sta\u00f0 \u00e1 milli efans og vissunnar, milli himins og jar\u00f0ar, milli h\u00e9rveru og handanveru, milli Gu\u00f0s og manns. H\u00fan er samtal eins og \u00feegar vinkonur sitja vi\u00f0 eldh\u00fasbor\u00f0i\u00f0 og r\u00e6\u00f0a l\u00edfi\u00f0 og tilverunar yfir kaffibolla og lagk\u00f6ku og l\u00edfi\u00f0 bl\u00f3mstrar af \u00fev\u00ed a\u00f0 samtali\u00f0 og \u00fea\u00f0 a\u00f0 deila reynslunni skapar n\u00fdjar v\u00edddir og veitir gle\u00f0i. Og \u00feess vegna hittast \u00fe\u00e6r aftur og aftur vegna \u00feess a\u00f0 tr\u00fain n\u00e6rist \u00ed samf\u00e9lagi vi\u00f0 a\u00f0ra, \u00ed samf\u00e9lagi vi\u00f0 Gu\u00f0 og f\u00f3lk. Og efinn vefst um allt og alla. Hann er drifkraftur leitar og forvitni um \u00feetta l\u00edf og tilvist, heim og geim.<\/p>\n<p>Og h\u00e9r erum vi\u00f0 og kve\u00f0jum merka konu sem gl\u00edmdi vi\u00f0 margar spurningar. Ein \u00feeirra var: Hvers vegna d\u00f3 pabbi minn fr\u00e1 m\u00e9r \u00feegar \u00e9g var enn \u00ed frumbernsku? Hvernig hef\u00f0i l\u00edfi\u00f0 or\u00f0i\u00f0 ef hann hef\u00f0i lifa\u00f0? En dyrnar a\u00f0 baki eru allar l\u00e6star og vi\u00f0 komumst ekki um \u00fe\u00e6r en vi\u00f0 getum haldi\u00f0 \u00e1fram a\u00f0 lifa og p\u00e6la. Vi\u00f0 eigum bara daginn. Fort\u00ed\u00f0in er farin og framt\u00ed\u00f0in \u00f3komin. Vi\u00f0 erum f\u00f3lk \u00e1 fer\u00f0 eins og h\u00fan Anna var \u00e1 fer\u00f0 um \u00feetta l\u00edf me\u00f0 s\u00ednar tilfinngar og spurnir. H\u00fan reyndi margt og n\u00fa n\u00fdlega \u00fe\u00e1 dj\u00fapu sorg a\u00f0 missa son sinn, g\u00f3\u00f0an mann og greindan. Og okkur finnst a\u00f0 svona eigi r\u00f6\u00f0in ekki a\u00f0 vera. En vi\u00f0 r\u00e1\u00f0um henni ekki og Gu\u00f0 ekki heldur, e\u00f0a hann vill ekki r\u00e1\u00f0a henni, vegna \u00feess a\u00f0 hann leyfir l\u00edfinu a\u00f0 fara s\u00ednu fram \u00e1 \u00feessu leiksvi\u00f0i \u00fear sem ma\u00f0urinn ver\u00f0ur a\u00f0 l\u00e6ra a\u00f0 gl\u00edma og \u00feroskast vi\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 m\u00e6ta hinu \u00f3v\u00e6nta. Hann gaf manninum frj\u00e1lsan vilja og vildi ekki hafa hann sem br\u00fa\u00f0u \u00ed spotta e\u00f0a v\u00e9lmenni \u00ed geisla fjarst\u00fdringar. Og \u00feess vegna erum vi\u00f0 eins og vi\u00f0 erum og \u00feess vegna er l\u00edfi\u00f0 eins og \u00fea\u00f0 er.<\/p>\n<p>L\u00edfi\u00f0 \u00ed \u00feessum heimi \u00f3vissunnar er \u00feroskaferli \u00fear sem vi\u00f0 l\u00e6rum a\u00f0 umgangast anna\u00f0 f\u00f3lk af varf\u00e6rni en l\u00edka me\u00f0 festu. B\u00f6rn l\u00e6ra <i>empat\u00edu<\/i> e\u00f0a samhygg\u00f0 \u00e1 fyrstu m\u00e1nu\u00f0um og misserum l\u00edfs s\u00edns. \u00deau l\u00e6ra a\u00f0 finna til me\u00f0 \u00f6\u00f0rum, finna til samkenndar. Anna haf\u00f0i r\u00edka samhygg\u00f0 og l\u00edfsreynsla hennar hj\u00e1 f\u00e1t\u00e6kri m\u00f3\u00f0ur styrkti hana \u00ed \u00feeirri tr\u00fa a\u00f0 f\u00f3lk yr\u00f0i a\u00f0 standa saman til a\u00f0 b\u00e6ta l\u00edfsskilyr\u00f0i hvers annars. H\u00fan var jafna\u00f0armanneskja og hennar f\u00f3lk var \u00fea\u00f0 flest og setti mark sitt \u00e1 b\u00e6jarl\u00edfi\u00f0 \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i og \u00e1tti s\u00e9r um lei\u00f0 draum um betra \u00cdslands \u00ed anda l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0ishugsunar og samst\u00f6\u00f0u.<\/p>\n<p>H\u00fan kom v\u00ed\u00f0a vi\u00f0. Var h\u00fasm\u00f3\u00f0ir og sj\u00f3mannskona sem st\u00f3\u00f0 s\u00edna vakt me\u00f0 s\u00f3ma, vann vi\u00f0 a\u00f0 g\u00e6ta barna annarra og svo vi\u00f0 a\u00f0 g\u00e6ta sj\u00f3\u00f0a samfer\u00f0af\u00f3lksins og loks kom h\u00fan a\u00f0 b\u00e6jarstj\u00f3rn \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i og bar\u00f0ist \u00fear fyrir g\u00f3\u00f0um m\u00e1lum. H\u00fan vann \u00fea\u00f0 sem \u00feurfti a\u00f0 gera heima og l\u00e9t sig t.a.m. ekki muna um a\u00f0 fl\u00edsaleggja \u00e1 ba\u00f0inu \u00ed kringum vaskinn me\u00f0an Arthur var \u00e1 sj\u00f3.<\/p>\n<p>Anna Mar\u00eda f\u00e6ddist 15. september 1927. H\u00fan h\u00e9lt g\u00f3\u00f0ri heilsu alla t\u00ed\u00f0. H\u00fan \u00e1tti g\u00f3\u00f0a daga og n\u00e1\u00f0i g\u00f3\u00f0um aldri og l\u00e9st a\u00f0 loknu g\u00f3\u00f0u dagsverki \u00feegar h\u00fan haf\u00f0i eki\u00f0 um borg og b\u00e6 og sinnt erindum s\u00ednum og teki\u00f0 \u00fe\u00e1tt \u00ed f\u00e9lagsl\u00edfi \u00ed Bo\u00f0a\u00feingi me\u00f0 f\u00f3lki \u00e1 s\u00ednu reki. H\u00fan kvaddi \u00ed fullu fj\u00f6ri, eins og sagt er.<\/p>\n<p>Foreldrar \u00d6nnu voru: Margr\u00e9t Rebekka H\u00edramsd\u00f3ttir, f\u00e6dd \u00e1 B\u00fa\u00f0um \u00ed Sl\u00e9ttuhreppi 14. ma\u00ed 1899, d. 11. jan\u00faar 1992, og unnusti hennar, Sakar\u00edas Helgi Gu\u00f0mundsson, f\u00e6ddur \u00ed A\u00f0alv\u00edk 24. ma\u00ed 1900, drukkna\u00f0i 19. okt\u00f3ber 1929 \u00ed r\u00f3\u00f0ri \u00e1 Gissuri hv\u00edta. N.k. laugardag ver\u00f0a li\u00f0in 84 \u00e1r fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 hann d\u00f3 sem h\u00fan \u00fer\u00e1\u00f0i a\u00f0 kynnast alla t\u00ed\u00f0. Anna \u00e1tti einn albr\u00f3\u00f0ur, Helga Gunnar Helgason, f. 12. mars 1930 en hann l\u00e9st \u00far berklum 2. ma\u00ed 1931 \u00e1 H\u00f6f\u00f0astr\u00f6nd. H\u00fan vissi ekki um \u00feenna br\u00f3\u00f0ur sinn fyrr en l\u00f6ngu s\u00ed\u00f0ar \u00fev\u00ed m\u00f3\u00f0ir \u00feeirra loka\u00f0i dyrum a\u00f0 \u00feeim s\u00e1rsauka og sorg. Samm\u00e6\u00f0ra systkini \u00d6nnu eru, Sigr\u00ed\u00f0ur K. Magn\u00fasd\u00f3ttir f. 1932, sem ein lifir systur s\u00edna og Birgir Magn\u00fasson 1934-2009 og \u00d3l\u00edna Rut Magn\u00fasd\u00f3ttir 1936-2004. Fa\u00f0ir \u00feeirra var Magn\u00fas \u00c1sgeirsson fr\u00e1 Kleifum \u00ed Sey\u00f0isfir\u00f0i vi\u00f0 Dj\u00fap. Birgir br\u00f3\u00f0ir \u00d6nnu bar \u00ed raun nafn hins l\u00e1tna albr\u00f3\u00f0ur henna og h\u00e9t fullu nafni: Helgi Gunnar Birgir Magn\u00fasson.<\/p>\n<p>Anna \u00f3lst upp \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i hj\u00e1 m\u00f3\u00f0ur sinni og stj\u00fapa. \u00deau bjuggu \u00ed A\u00f0alstr\u00e6ti, \u00ed Tangag\u00f6tu og \u00ed h\u00fasinu \u00de\u00f3roddsst\u00f6\u00f0um vi\u00f0 Silfurg\u00f6tu. \u00cdsafj\u00f6r\u00f0ur var \u00f6flugur b\u00e6r \u00e1 s\u00ednum t\u00edma og meira a\u00f0 segja \u00ed kreppunni, \u00e1 bernsku\u00e1rum \u00d6nnu, voru \u00fear \u00fe\u00f3 nokkrar framkv\u00e6mdir og samvinnub\u00e1tarnir komu og b\u00e6ttu atvinnul\u00edfi\u00f0 \u00ed b\u00e6num. En l\u00edfi\u00f0 \u00ed \u00fe\u00e1 daga var anna\u00f0 en n\u00fa enda \u00fe\u00f3tt enn finnist f\u00e1t\u00e6kt f\u00f3lk \u00e1 \u00cdslandi. \u00cd barnsminni\u00f0 brenndist upplifun af \u00fev\u00ed a\u00f0 vera send \u00e1 b\u00e6jarskrifstofurnar af m\u00f6mmu til a\u00f0 s\u00e6kja styrk. \u00de\u00e1 h\u00e9t Anna \u00fev\u00ed a\u00f0 h\u00fan mundi fara aftur \u00e1 \u00feessa s\u00f6mu skrifstofu, ekki til a\u00f0 s\u00e6kja styrk, heldur til a\u00f0 r\u00e1\u00f0a \u00fear sj\u00e1lf og stj\u00f3rna. H\u00fan st\u00f3\u00f0 vi\u00f0 \u00fea\u00f0 seinna me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 fara \u00ed b\u00e6jarm\u00e1lin og taka \u00fe\u00e1tt \u00ed p\u00f3lit\u00edk.<\/p>\n<p>H\u00fan var g\u00f3\u00f0um g\u00e1fum g\u00e6dd, b\u00f3khneig\u00f0 en haf\u00f0i ekki t\u00e6kif\u00e6ri til a\u00f0 mennta sig eins og hana langa\u00f0i til. H\u00fan \u00feurfti a\u00f0 leggja fj\u00f6lskyldunni li\u00f0 sem barn og unglingur og \u00feegar Hannibal, \u00fe\u00e1 sk\u00f3lastj\u00f3ri, vildi hvetja hana til a\u00f0 fara \u00ed Gagnfr\u00e6\u00f0ask\u00f3lann sag\u00f0ist h\u00fan ekki geta \u00fea\u00f0 \u00fev\u00ed h\u00fan \u00feyrfti a\u00f0 vinna.<\/p>\n<p>\u00deau voru jafnaldrar Arthur Gestsson og h\u00fan og \u00feau l\u00f6g\u00f0u upp \u00ed fer\u00f0 saman. Hann var f\u00e6ddur 12. jan\u00faar 1927 og l\u00e9st 6. september 2009. Arthur var sj\u00f3ma\u00f0ur lengi vel og \u00feau fluttu su\u00f0ur 1991.<\/p>\n<p>B\u00f6rn \u00feeirra eru: Helgi M\u00e1r f. 19. febr\u00faar 1951, d. 14. j\u00fan\u00ed 2013, El\u00edn Alma, f. 21. febr\u00faar 1956 og Erlingur, f. 20. febr\u00faar 1961. F\u00e6\u00f0ingardagar \u00feeirra \u00feriggja bera \u00fev\u00ed vott a\u00f0 \u00feau eru sj\u00f3mannsb\u00f6rn sem ur\u00f0u til \u00ed kringum lokadaginn og f\u00e6ddust \u00ed byrjun vetrarvert\u00ed\u00f0ar!<\/p>\n<p>Anna var n\u00e6m \u00e1 f\u00f3lk og l\u00ed\u00f0an \u00feess. H\u00fan \u00e1tti au\u00f0velt me\u00f0 a\u00f0 setja sig \u00ed spor annarra og tengjast \u00fev\u00ed. H\u00fan kynntist vel \u00f6llu f\u00f3lki sem h\u00fan leita\u00f0i \u00fej\u00f3nustu hj\u00e1 eins og t.d. h\u00e1rgrei\u00f0slukonunni. Anna var v\u00f6nd a\u00f0 vir\u00f0ingu sinni. H\u00fan var hl\u00e1turmild og h\u00famor\u00edsk, svipurinn var glettinn, augun sk\u00f6rp og brosi\u00f0 \u00f6gn tv\u00edr\u00e6tt. H\u00fan var bindindismanneskja sem haf\u00f0i allan vara \u00e1 s\u00e9r var\u00f0andi v\u00edn og vissi a\u00f0 \u00f6l var og er b\u00f6l \u00ed m\u00f6rgum ranni. H\u00fan var fagurkeri og haf\u00f0i yndi af a\u00f0 kl\u00e6\u00f0a sig upp \u00e1 og var n\u00fdb\u00fain a\u00f0 fata sig upp fyrir veturinn en \u00e1tti bara eftir a\u00f0 f\u00e1 s\u00e9r n\u00fdja sk\u00f3. \u00deeirra var\u00f0 ekki \u00fe\u00f6rf \u00fev\u00ed vegur hennar enda\u00f0i fyrr en h\u00fan e\u00f0a a\u00f0rir v\u00e6ntu. H\u00fan var f\u00e9lagslynd og t\u00f3k virkan \u00fe\u00e1tt \u00ed f\u00e9lagsl\u00edfi fyrir Vestan, var forma\u00f0ur Vezlunarmannaf\u00e9lagsins um t\u00edma og varaforma\u00f0ur og s\u00ed\u00f0ar forma\u00f0ur Slysavarnarf\u00e9lagsins og kom \u00fear \u00e1 svonefndu L\u00ednuhappdr\u00e6tti \u00e1ri\u00f0 1972 a\u00f0 norskri fyrirmynd.<\/p>\n<p>H\u00fan var r\u00e9tts\u00fdn manneskja, sannur jafna\u00f0arma\u00f0ur, \u00edsfirskur e\u00f0alkrati, b\u00e6jarfulltr\u00fai um t\u00edma, forma\u00f0ur b\u00e6jarr\u00e1\u00f0s og \u00e1tti s\u00e6ti \u00ed barnaverndarnefnd og var einu sinni \u00e1 lista til al\u00feingiskosninga og au\u00f0vita\u00f0 fyrir Al\u00fe\u00fd\u00f0uflokkinn. \u00cd seinni t\u00ed\u00f0 fannst henni p\u00f3lit\u00edkin vera or\u00f0in h\u00e1lgert pj\u00e1tur og eftirs\u00f3kn eftir vindi.<\/p>\n<p>H\u00fan haf\u00f0i gaman af a\u00f0 fer\u00f0ast innan lands og utan og fara \u00ed b\u00edlt\u00far h\u00e9r heima til a\u00f0 sko\u00f0a sig um. H\u00fan naut s\u00edn \u00ed s\u00f3l og hita og kannski var \u00ed henni su\u00f0r\u00e6nt bl\u00f3\u00f0 eins og m\u00fdtan segir um marga Vestfir\u00f0inga. Augun d\u00f6kku, h\u00e1ri\u00f0 svart og nefi\u00f0 v\u00edsu\u00f0u \u00ed su\u00f0ur\u00e1tt. El\u00edn Alma minnist \u00feess er \u00fe\u00e6r voru \u00ed \u00fatl\u00f6ndum 1978 a\u00f0 mamma hennar panta\u00f0i s\u00e9r oftar en ekki salatr\u00e9tti en \u00fe\u00e1 var landinn n\u00fa almennt ekki farinn a\u00f0 eta grasi\u00f0 gr\u00e6nt. H\u00fan var l\u00edka leitandi manneskja og pr\u00f3fa\u00f0i \u00fdmislegt n\u00fdst\u00e1rlegt og \u00fev\u00ed til sannindamerkis s\u00f3tti h\u00fan n\u00e1mskei\u00f0 \u00ed kringum 1980 \u00ed a\u00f0 \u00fatb\u00faa <i>makr\u00f3b\u00ed\u00f3t\u00edskt<\/i> f\u00e6\u00f0i.<\/p>\n<p>\u00c9g \u00e6tla n\u00fa ekki a\u00f0 gleyma fj\u00f6lskyldunni hennar.&nbsp;B\u00f6rn Helga M\u00e1s heitins og eftirlifandi konu hans, Sigr\u00ed\u00f0ar \u00c1rnad\u00f3ttur, eru Gunnar Arth\u00far og El\u00edn \u00de\u00f3ra en fyrir \u00e1tti Helgi fyrir 3 d\u00e6tur: \u00d6nnu Mar\u00edu Helgad\u00f3ttur og Rebekku og S\u00f6ru Andr\u00ednud\u00e6tur.<\/p>\n<p>[\u00c9g, h\u00f6fundur og lesari \u00feessara or\u00f0a, hef af \u00f3skiljanlegum \u00e1st\u00e6\u00f0um gleymt a\u00f0 lesa upp n\u00f6fn d\u00e6tranna \u00feriggja \u00ed ath\u00f6fninni, en n\u00f6fnin voru til sta\u00f0ar \u00ed textanum. Mist\u00f6kin voru m\u00edn og \u00e9g harma \u00feau. \u00d6BJ].<\/p>\n<p>El\u00edn Alma \u00e1 Agnesi G\u00edslad\u00f3ttur og b\u00fdr me\u00f0 Rafni Ingimundarsyni en \u00fe\u00e6r Anna og Agnes voru einkar n\u00e1nar. H\u00fan var elsk a\u00f0 \u00f6llum s\u00ednum barnab\u00f6rnum en \u00fe\u00e6r voru n\u00e1nast eins og m\u00e6\u00f0gur.&nbsp;Erlingur \u00e1 Arnar og Kristinn me\u00f0 Ingibj\u00f6rgu Arth\u00farsson.<\/p>\n<p>H\u00fan \u00e1tti sinn \u00fe\u00e1tt \u00ed a\u00f0 tryggja kylfingum a\u00f0st\u00f6\u00f0u \u00ed Tungudal og fannst a\u00f0 sv\u00e6\u00f0i\u00f0 \u00e6tti a\u00f0 vera opi\u00f0 almenningi til \u00fatvistar. H\u00fan var alla t\u00ed\u00f0 \u00f3hr\u00e6dd a\u00f0 tj\u00e1 sig um hva\u00f0 sem var og gat r\u00e6tt vi\u00f0 hvern sem var um allt. Henni fannst alla t\u00ed\u00f0 v\u00e6nt um \u00cdsafj\u00f6r\u00f0 en \u00fe\u00f3tti n\u00fa fj\u00f6llin samt \u00ferengja a\u00f0 s\u00e9r og fann til frelsis er h\u00fan kom hinga\u00f0 su\u00f0ur \u00ed v\u00ed\u00f0\u00e1ttuna.<\/p>\n<p>H\u00fan lag\u00f0i upp \u00far \u00fev\u00ed vi\u00f0 b\u00f6rnin a\u00f0 \u00feau st\u00e6\u00f0u sig \u00ed l\u00edfinu, v\u00e6ru hei\u00f0arleg, duglega og s\u00f6nn.<\/p>\n<p>H\u00fan naut menningar af \u00fdmsu tagi, las alla t\u00ed\u00f0 kynstrin \u00f6ll af b\u00f3ku sem h\u00fan s\u00f3tti oftar en ekki \u00e1 b\u00f3ks\u00f6fn. Sem barn og unglingur st\u00f3\u00f0 h\u00fan \u00ed bi\u00f0r\u00f6\u00f0 \u00ed b\u00f3kasafninu heima \u00e1 \u00cdsafir\u00f0i til a\u00f0 n\u00e1 \u00ed sk\u00fdrteini n\u00famer eitt. H\u00fan bar heim stafla a\u00f0 b\u00f3kum og svo haf\u00f0i h\u00fan komi\u00f0 s\u00e9r upp \u00feeirri skilgreingum \u00e1 menningu a\u00f0 h\u00fan v\u00e6ri f\u00f3lgin \u00ed \u00fev\u00ed sem gleddi sig: \u201eList er \u00fea\u00f0 sem gerir mig gla\u00f0a\u201c, sagi h\u00fan.<\/p>\n<p>H\u00fan s\u00e1 \u00e6t\u00ed\u00f0 um peningam\u00e1lin heima og svo sneri h\u00fan \u00f6llu vi\u00f0 \u00feegar henni var fari\u00f0 a\u00f0 lei\u00f0ast uppr\u00f6\u00f0un h\u00fasgagna og stokka\u00f0i allt upp til a\u00f0 f\u00e1 tilbreytingu og n\u00fdjan svip l\u00f6ngu \u00e1\u00f0ur en nokkur ma\u00f0ur \u00e1 \u00cdslandi \u00feekkti hugtaki\u00f0 <i>Fengsui<\/i>.<\/p>\n<p>H\u00fan l\u00e6r\u00f0i \u00e1 b\u00edl \u00e1 7. \u00e1ratugnum. Arthur hvatti hana til a\u00f0 taka pr\u00f3f og aka b\u00edl og \u00feegar \u00feau fluttu su\u00f0ur og hann s\u00f3tti vinnu \u00e1 heimilisb\u00edlnum keypti h\u00fan s\u00e9r b\u00edl til a\u00f0 komast sinna erinda um borgina. \u00dea\u00f0 var Mazda og h\u00fan t\u00f3k 3 aukat\u00edma hj\u00e1 \u00f6kukennara til a\u00f0 fr\u00edska upp \u00e1 kunn\u00e1ttuna.<\/p>\n<p>El\u00edn Alma og Anna voru n\u00e1nar m\u00e6\u00f0gur og t\u00f6lu\u00f0u saman daglega \u00ed a.m.k. 44 \u00e1r ef fr\u00e1 er talin bernska El\u00ednar. Barnab\u00f6rnin voru henni afar k\u00e6r og Sigr\u00ed\u00f0ur tendad\u00f3ttir segir hana hafa veri\u00f0 einstaka konu sem hei\u00f0ur var a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0 kynnast. \u00de\u00e6r ur\u00f0u tr\u00fana\u00f0arvinkonur og t\u00f6lu\u00f0u miki\u00f0 saman um dagana.<\/p>\n<p>Og n\u00fa er h\u00fan horfin, \u00feessi eftirminnilega kona me\u00f0 sinn skarpa og greindarlega svip, spyrjandi augu og leitandi huga.<\/p>\n<p>\u00c9g heyr\u00f0i ykkur sem \u00e9g hitti \u00ed g\u00e6r segja: \u201eH\u00fan var \u00ed senn vi\u00f0kv\u00e6m og sterk.\u201c \u00cd \u00fev\u00ed sambandi ver\u00f0ur m\u00e9r hugsa\u00f0 til inngangs r\u00e6\u00f0unnar \u00fear sem \u00e9g tala\u00f0i um tr\u00fana og \u00fea\u00f0 sem gerist \u00e1 milli heimanna, milli tr\u00faar og efa, milli f\u00f3lks. \u00c1 milli hins vi\u00f0kv\u00e6ma og sterka ver\u00f0ur til eitthva\u00f0 g\u00f6fugt. Anna \u00fer\u00e1\u00f0i a\u00f0 tr\u00faa og eignast vissu. H\u00fan var a\u00f0 breyttu breytanda eins og T\u00f3mas postuli sem kalla\u00f0ur er efasemdama\u00f0urinn \u00ed h\u00f3pi l\u00e6risveina Jes\u00fa. Hann \u00feurfti sannanir &#8211; og hann f\u00e9kk \u00fe\u00e6r \u00feegar Jes\u00fas m\u00e6tti honum upprisinn og sag\u00f0i:<\/p>\n<p>\u201eKom hinga\u00f0 me\u00f0 fingur \u00feinn og sj\u00e1 hendur m\u00ednar og kom me\u00f0 h\u00f6nd \u00fe\u00edna og legg \u00ed s\u00ed\u00f0u m\u00edna og vertu ekki vantr\u00faa\u00f0ur, vertu tr\u00faa\u00f0ur. T\u00f3mas svara\u00f0i: \u201eDrottinn minn og Gu\u00f0 minn!\u201c Jes\u00fas segir vi\u00f0 hann: \u201e\u00de\u00fa tr\u00fair af \u00fev\u00ed \u00fe\u00fa hefur s\u00e9\u00f0 mig. S\u00e6lir eru \u00feeir sem hafa ekki s\u00e9\u00f0 og tr\u00faa \u00fe\u00f3.\u201c (Jh 20.27-29)<\/p>\n<p>\u00cd m\u00f6rgum tilfellum \u00ed l\u00edfinu f\u00e1um vi\u00f0 engar sannanir en vi\u00f0 f\u00e1um a\u00f0 heyra vitnisbur\u00f0 \u00feeirra sem s\u00e1u. Vitnisbur\u00f0ur NT er a\u00f0 st\u00e6rstum hluta vitnisbur\u00f0ur sj\u00f3narvotta. Vi\u00f0 s\u00e1um ekki hinn upprisna en vi\u00f0 h\u00f6fum heyrt um hann. Vi\u00f0 ver\u00f0um a\u00f0 b\u00faa \u00e1fram \u00ed landi efans, \u00e1 milli spurnar og vissu. \u00deannig er l\u00edfi\u00f0, \u00fea\u00f0 er leit sem gefur skilning \u00feegar lj\u00f3si\u00f0 kviknar \u00e1 milli tveggja p\u00f3la.<\/p>\n<p>Gu\u00f0 lei\u00f0i okkur \u00ed \u00feeirri leit sem mestu skiptir og opni okkur dyr \u00fear sem gr\u00e1r veggurinn m\u00e6tir okkur vi\u00f0 l\u00edfslok. Steininum var velt fr\u00e1 grafarmunnanum for\u00f0um og lei\u00f0in opna\u00f0ist \u00fat. Enn eigum vi\u00f0 von um a\u00f0 Gu\u00f0 sprengi kl\u00f6pp og gr\u00e1an vegg og lei\u00f0i okkur \u00fat \u00ed lj\u00f3si\u00f0 &#8211; og heim!<\/p>\n<p>Gu\u00f0 blessi minning \u00d6nnu Mar\u00edu Helgad\u00f3ttur og Gu\u00f0 blessi \u00feig.<\/p>\n<p>Amen.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson Minningaror\u00f0 Anna Mar\u00eda Helgad\u00f3ttir h\u00fasm\u00f3\u00f0ir og fv. b\u00e6jarfulltr\u00fai fr\u00e1 \u00cdsafir\u00f0i 19378-2013 \u00datf\u00f6r (b\u00e1lf\u00f6r) \u00ed kyrr\u00feey fr\u00e1 Kapellunni \u00ed Kirkjugar\u00f0i Hafnarfjar\u00f0ar \u00feri\u00f0judaginn 15. okt\u00f3ber 2013 kl. 13 Jar\u00f0sett ver\u00f0ur \u00fear a\u00f0 lokinni b\u00e1lf\u00f6r. R\u00e6\u00f0una er h\u00e6gt a\u00f0 lesa og hlusta \u00e1 h\u00e9r fyrir ne\u00f0an.<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[4],"tags":[],"class_list":["post-813","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-greinar-og-hugvekjur-articles"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/813","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=813"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/813\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=813"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=813"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=813"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}