{"id":803,"date":"2013-10-10T17:50:45","date_gmt":"2013-10-10T17:50:45","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/?p=803"},"modified":"2013-10-10T17:50:45","modified_gmt":"2013-10-10T17:50:45","slug":"gudmundur-h-jonatansson-1944-2013","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=803","title":{"rendered":"Gu\u00f0mundur H J\u00f3natansson 1944-2013"},"content":{"rendered":"<p><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2013\/10\/gudmhjonatansson.png\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignleft size-full wp-image-804\" alt=\"gudmhjonatansson\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2013\/10\/gudmhjonatansson.png\" width=\"196\" height=\"251\" \/><\/a>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Minningaror\u00f0<\/p>\n<p><b>Gu\u00f0mundur Halld\u00f3r J\u00f3natansson<\/b><\/p>\n<p>1944-2013<\/p>\n<p>fv. starfsma\u00f0ur Sj\u00f3v\u00e1<\/p>\n<p>\u00datf\u00f6r (b\u00e1lf\u00f6r) \u00ed kyrr\u00feey ger\u00f0 fr\u00e1 Fossvogskapellu<\/p>\n<p>fimmtudaginn 10. okb\u00f3ber 2013 kl. 11<\/p>\n<p>R\u00e6\u00f0una getur\u00f0u lesi\u00f0 h\u00e9r fyrir ne\u00f0an og einnig hlusta\u00f0 \u00e1 hana.<\/p>\n<p><!--more--><\/p>\n\n<p>Hvar er \u00f6ryggi a\u00f0 finna \u00ed \u00feessu l\u00edfi? \u00deannig er\u00a0 oft spurt. L\u00edfi\u00f0 er \u00f3vissufer\u00f0. Vi\u00f0 vitum ekki hvert n\u00e6sta skref lei\u00f0ir okkur. Vi\u00f0 vitum hvorki hva\u00f0 n\u00e6sta stund ber \u00ed skaut s\u00e9r, dagur e\u00f0a komandi dagar. Vi\u00f0 lifum \u00ed st\u00f6\u00f0ugri \u00f3vissu um allt sem ver\u00f0ur. Vi\u00f0 eigum bara andartaki\u00f0. Fort\u00ed\u00f0in er horfin og betra a\u00f0 l\u00e1ta hana ekki fj\u00f6tra sig en vei\u00f0a \u00far henni g\u00f3\u00f0ar minningar og fagrar. \u00deannig ver\u00f0ur fort\u00ed\u00f0in okkur til gle\u00f0i. Um lei\u00f0 er gott a\u00f0 vinna \u00far \u00fev\u00ed sem mi\u00f0ur f\u00f3r og nota \u00fea\u00f0 einnig sem aflgjafa til heilla en l\u00e1ta ekki \u00f3uppger\u00f0a hluti ver\u00f0a sem bl\u00fds\u00f6kkur \u00e1 f\u00f3tum s\u00e9r. En hvernig tryggir ma\u00f0ur sig \u00ed l\u00edfinu? Tryggingarf\u00e9l\u00f6gin selja okkur l\u00edftryggingar en \u00fe\u00e6r koma okkur ekki a\u00f0 notum, a\u00f0eins \u00feeim sem eftir lifa. Franski heimspekingurinn og tr\u00fama\u00f0urinn Blaise Pascal reikna\u00f0i \u00fea\u00f0 \u00fat a\u00f0 tryggara v\u00e6ri a\u00f0 tr\u00faa en ekki. Hann ve\u00f0ja\u00f0i \u00e1 Gu\u00f0 \u00ed l\u00edfi og \u00ed dau\u00f0a.<\/p>\n<p>Tr\u00fain hefur fylgt mannkyninu \u00ed gegnum allra aldir og v\u00edsindum og t\u00e6kni mun aldrei takast a\u00f0 \u00fatr\u00fdmi heilbrig\u00f0ri tr\u00fa vegna \u00feess a\u00f0 \u00ed manninum b\u00fdr vitund um hi\u00f0 \u00e6\u00f0ra og st\u00f3ra samhengi l\u00edfsins sem er Gu\u00f0. Okkur mun aldrei takast a\u00f0 sanna tr\u00fana \u00fev\u00ed \u00fe\u00e1 ver\u00f0ur h\u00fan ekki lengur til. Tr\u00fain er eins og \u00e1stin, h\u00fan kemur og hefur \u00e1hrif \u00e1 okkur en ver\u00f0ur hvorki v\u00edsindalega m\u00e6ld n\u00e9 s\u00f6nnu\u00f0.<\/p>\n<p>Gu\u00f0mundur Halld\u00f3r f\u00e6ddist \u00ed Reykjav\u00edk 7. apr\u00edl 1944. Foreldrar hans eru Lea Kristj\u00e1nsd\u00f3ttir sem lifir son sinn 93 \u00e1ra og J\u00f3natan Gu\u00f0mundsson sem er l\u00e1tinn. Syskinin Gu\u00f0mundar eru: Sigr\u00ed\u00f0ur, \u00d6rlygur og Ragnar.<\/p>\n<p>Gu\u00f0mundur lauk st\u00fadentspr\u00f3fi fr\u00e1 st\u00e6r\u00f0fr\u00e6\u00f0ideild MR 15. j\u00fan\u00ed 1964. Hann var alla t\u00ed\u00f0 i\u00f0inn n\u00e1msma\u00f0ur og geymdi t.a.m. einkunnarspj\u00f6ld s\u00edn fr\u00e1 14 \u00e1ra aldri. Segir \u00fea\u00f0 margt um hir\u00f0usemi hans vi\u00f0 minningar og minjar. Hann lauk n\u00e1mi \u00ed vi\u00f0skiptafr\u00e6\u00f0i fr\u00e1 H\u00cd 1970.<\/p>\n<p>Gu\u00f0mundur kv\u00e6ntist eftirlifandi eiginkonu sinni Sigr\u00ed\u00f0i Gu\u00f0mundsd\u00f3ttur 21. ma\u00ed 1966. \u00deau eignu\u00f0ust 2 drengi: \u00d3mar f. 7. okt\u00f3ber 1966 og Helga f. 2. mars 1971. Upp \u00far hj\u00f3nabandinu rakna\u00f0i og \u00feau Sigr\u00ed\u00f0ur skildu l\u00f6gskilna\u00f0i og Gu\u00f0mundur f\u00f3r a\u00f0 heiman og einhverjum misserum s\u00ed\u00f0ar t\u00f3k hann saman vi\u00f0 P\u00e1l\u00ednu Kristinsd\u00f3ttur og bjuggu \u00feau saman \u00ed nokkur \u00e1r og eignu\u00f0st S\u00f6ndru Margr\u00e9ti 4. desember 1981.<\/p>\n<p>Fyrstu st\u00f6rfin s\u00edn vann Gu\u00f0mundur \u00ed Ellingsen hj\u00e1 f\u00f6\u00f0ur s\u00ednum en sem unglingur var hann einnig \u00ed byggingarvinnu. Um 19 \u00e1ra aldur f\u00f3r hann a\u00f0 vinna hj\u00e1 Almennum tryggingum sem svo runnu inn \u00ed Sj\u00f3v\u00e1-Almennar sem s\u00ed\u00f0ar stytti nafni\u00f0 \u00ed Sj\u00f3v\u00e1. Hann vann \u00fear allar g\u00f6tur s\u00ed\u00f0an \u00fear til hann f\u00f3r \u00e1 eftirlaun. Hann \u00e1tti g\u00f3\u00f0a vinnuf\u00e9laga \u00ed Sj\u00f3v\u00e1 og einnig nokkra n\u00e1na vini.<\/p>\n<p>Gu\u00f0mundur var r\u00f3legur a\u00f0 e\u00f0lisfari og traustur vinur. Hann var hei\u00f0arlegur \u00ed samskiptum, hreinn og beinn.<\/p>\n<p>Hann t\u00f3k aftur saman vi\u00f0 fyrri konu s\u00edna og gengur \u00feau \u00ed sitt s\u00ed\u00f0ara hj\u00f3naband 5. desember 1986.<\/p>\n<p>\u00deau \u00e1ttu saman g\u00f3\u00f0 \u00e1r og gefandi, r\u00e6ktu\u00f0u gar\u00f0inn sinn, eins og sagt er.<\/p>\n<p>Gu\u00f0mundur haf\u00f0i alla t\u00ed\u00f0 gott samband vi\u00f0 b\u00f6rnin s\u00edn og \u00feau b\u00f6nd styrktust vi\u00f0 drengina eftir a\u00f0 hann flutti aftur til \u00feeirra.<\/p>\n<p>Sandra hitti hann reglulega og \u00feegar h\u00fan stunda\u00f0i n\u00e1m \u00ed Verslunarsk\u00f3lanum sem er n\u00e6rri skrifstofum Sj\u00f3v\u00e1r, hittust \u00feau vikulega og svo unnu \u00feau saman \u00ed ein 2 \u00e1r en h\u00fan er b\u00f3kari og b\u00fdr n\u00fa \u00ed Noregi me\u00f0 manni s\u00ednum J\u00fal\u00edusi Valdimar Finnbogasyni f. 5. mars 1975 og eiga \u00feau eina d\u00f3ttur, Ellen Hebu f. 24. \u00e1g\u00fast 2011. Eldri br\u00f3\u00f0ir S\u00f6ndru er Eyj\u00f3lfur M\u00e1r Thoroddsen.<\/p>\n<p>\u00d3mar var giftur Ingu Birgisd\u00f3ttur. \u00deeirra b\u00f6rn eru: Helena S\u00f3l, A\u00feena \u00d6rk og Garb\u00edel M\u00e1ni. Hann er \u00ed samb\u00fa\u00f0 me\u00f0 Gu\u00f0r\u00fanu Krist\u00ednu Sveinbj\u00f6rnsd\u00f3ttur.<\/p>\n<p>Helgi var \u00ed samb\u00fa\u00f0 me\u00f0 Katr\u00ednu R\u00f3s G\u00fdmisd\u00f3ttur. D\u00f3ttir \u00feeirra er Hekla Mar\u00eda. Helgi er kv\u00e6ntur \u00de\u00f3r\u00f6nnu Kolbr\u00fanu J\u00f3natansd\u00f3ttur.<\/p>\n<p>Gu\u00f0mundur naut vel daganna eftir a\u00f0 hann h\u00e6tti hj\u00e1 Sj\u00f3v\u00e1 og f\u00f3r \u00e1 eftirlaun en hann var yfirb\u00f3kari \u00fear s\u00ed\u00f0ustu starfs\u00e1rin. Hann haf\u00f0i gaman af a\u00f0 hitta fyrrum vinnuf\u00e9laga.<\/p>\n<p>\u00c1ri\u00f0 2004 keyptu \u00feau hj\u00f3nin sumarb\u00fasta\u00f0 \u00ed landi St\u00f3ra-\u00c1ss \u00ed H\u00e1lsasveit \u00ed Borgarfir\u00f0i. \u00dear nutu \u00feau margra g\u00f3\u00f0ra stunda. Mummi l\u00e9k vi\u00f0 hvern sinn fingur og vann m\u00f6rg handt\u00f6kin til a\u00f0 fegra og laga b\u00fasta\u00f0inn. N\u00e1kv\u00e6mni hans og snyrtimennska var einst\u00f6k og segja str\u00e1karnir a\u00f0 grindverki\u00f0 vi\u00f0 b\u00fasta\u00f0inn beri \u00fev\u00ed gl\u00f6ggt vitni en \u00fear er hver nagli n\u00e1kv\u00e6mlega sta\u00f0settur og mynstri\u00f0 \u00f3a\u00f0finnanlegt. S\u00e6lureiturinn bl\u00f3mstra\u00f0i og gaf mikla gle\u00f0i \u00feeim sem \u00fear dv\u00f6ldu hverju sinni.<\/p>\n<p>Gu\u00f0mundur var alla t\u00ed\u00f0 vel \u00e1 sig kominn. Hann l\u00e9k badminton me\u00f0 vinum s\u00ednum \u00ed 40 \u00e1r og jafnlengi vann vi\u00f0 tryggingar. Hann var regluma\u00f0ur, reykti ekki en kunni a\u00f0 neyta \u00e1fengis \u00ed h\u00f3fi.<\/p>\n<p>Hann var r\u00f3lyndur a\u00f0 e\u00f0lisfari, fastura fyrir og \u00e1kve\u00f0inn, traustur og hei\u00f0arlegur ma\u00f0ur. Hann var hj\u00e1lpsamur og gjarnan gaf hann sig \u00ed a\u00f0 redda einhverju fyrir a\u00f0ra. Hann l\u00e9t t.a.m. um sig muna \u00ed h\u00fasf\u00e9laginu hvort sem hann var \u00ed stj\u00f3rn e\u00f0a ekki, var vinur vina sina.<\/p>\n<p>B\u00f6rnin og barnab\u00f6rnin voru honum k\u00e6r og hann sakna\u00f0i \u00feess a\u00f0 hafa ekki S\u00f6ndru sem b\u00fdr \u00ed Noregi n\u00e6r s\u00e9r, en h\u00fan og J\u00fal\u00edus komu \u00fe\u00f3 reglulega til \u00cdslands og \u00e1ttu g\u00f3\u00f0a daga \u00ed fa\u00f0mi fj\u00f6lskyldunnar h\u00e9r heima. H\u00fan og ma\u00f0ur hennar segjas bara eiga um hann g\u00f3\u00f0ar minningar og hei\u00f0arleiki hans og mannkostir hafi snorti\u00f0 \u00feau dj\u00fapt. Hans ver\u00f0ur s\u00e1rt sakna\u00f0 af \u00f6llum sem a\u00f0 honum st\u00f3\u00f0u.<\/p>\n<p>Sigr\u00ed\u00f0ur segir a\u00f0 hann hafi sta\u00f0i\u00f0 vi\u00f0 hli\u00f0 s\u00e9r sem klettur eftir a\u00f0 \u00feau t\u00f3ku saman aftur og \u00feau hafi \u00e1tt g\u00f3\u00f0a daga til hinstu stundar. Gu\u00f0mundur var a\u00f0 ditta a\u00f0 b\u00fasta\u00f0num n\u00fd \u00ed\u00a0 haust og hrasa\u00f0i \u00ed brattri hl\u00ed\u00f0 sem liggur ni\u00f0ur a\u00f0 \u00e1nni. Hann slasa\u00f0ist illa og var lag\u00f0ur inn \u00e1 sp\u00edtala. \u00dear var\u00f0 hann aftur fyrir slysi er hann hrasa\u00f0i sem leiddi hann til dau\u00f0a.<\/p>\n<p>\u00c1rin hef\u00f0u geta\u00f0a or\u00f0i\u00f0 fleiri og s\u00e6lustundirnar \u00ed sveit og borg en enginn veit sinn n\u00e6tursta\u00f0, segir \u00ed m\u00e1lt\u00e6kinu. Vi\u00f0 vitum aldrei hva\u00f0 n\u00e6sti dagur ber \u00ed skaut s\u00e9r e\u00f0a hvort vi\u00f0 v\u00f6knum a\u00f0 morgni. \u00deannig er l\u00edfi\u00f0. \u00dea\u00f0 er \u00f3vissufer\u00f0.<\/p>\n<p>\u00deess vegna eru \u00feessi or\u00f0 lesin yfir hverju barni vi\u00f0 sk\u00edrn: Drottinn var\u00f0veiti inng\u00f6ngu \u00fe\u00edna og \u00fatg\u00f6ngu h\u00e9\u00f0an \u00ed fr\u00e1 og a\u00f0 eil\u00edfu. Sama hugsun kemur fyrir \u00ed \u00edslenskri b\u00e6n sem vi\u00f0 \u00feekkjum \u00f6ll:<\/p>\n<p>Vertu Gu\u00f0 fa\u00f0ir, fa\u00f0ir minn,<\/p>\n<p>\u00ed frelsarans Jes\u00fa nafni.<\/p>\n<p>H\u00f6nd \u00fe\u00edn lei\u00f0i mig \u00fat og inn<\/p>\n<p>svo allri synd \u00e9g hafni.<\/p>\n<p>Megi Gu\u00f0 n\u00fa lei\u00f0a okkur \u00f6ll sem \u00e6t\u00ed\u00f0 fyrr og lei\u00f0a \u00e1stvin ykkar \u00e1 \u00feeirri f\u00f6r sem n\u00fa er hafin \u00ed \u00f6\u00f0rum heimi. Megi frelsarinn g\u00f3\u00f0ur taka \u00e1 m\u00f3ti honum \u00fear og lei\u00f0a sem \u00e1\u00f0ur.<\/p>\n<p>Gu\u00f0 blessi minningu Gu\u00f0mundar Halld\u00f3rs J\u00f3natanssonar og Gu\u00f0 blessi \u00feig.<\/p>\n<p>Amen.<\/p>\n<p>B\u00e1lf\u00f6r, ekki l\u00edkfylgd. Signt yfir \u00ed kapellunni.<\/p>\n<p>Erfi \u00ed Safna\u00f0arheimili Neskirkju vi\u00f0 Hagatorg.<\/p>\n<p>Jar\u00f0sett ver\u00f0ur \u00ed S\u00f3llandi.<\/p>\n<p>R\u00e6\u00f0an birt.<\/p>\n<p>Taki\u00f0 postullegri kve\u00f0ju:<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson &nbsp; Minningaror\u00f0 Gu\u00f0mundur Halld\u00f3r J\u00f3natansson 1944-2013 fv. starfsma\u00f0ur Sj\u00f3v\u00e1 \u00datf\u00f6r (b\u00e1lf\u00f6r) \u00ed kyrr\u00feey ger\u00f0 fr\u00e1 Fossvogskapellu fimmtudaginn 10. okb\u00f3ber 2013 kl. 11 R\u00e6\u00f0una getur\u00f0u lesi\u00f0 h\u00e9r fyrir ne\u00f0an og einnig hlusta\u00f0 \u00e1 hana.<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[4],"tags":[],"class_list":["post-803","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-greinar-og-hugvekjur-articles"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/803","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=803"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/803\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=803"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=803"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=803"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}