{"id":759,"date":"2013-09-26T17:14:48","date_gmt":"2013-09-26T17:14:48","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/?p=759"},"modified":"2013-09-26T17:14:48","modified_gmt":"2013-09-26T17:14:48","slug":"reynar-hannesson-1922-2013","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=759","title":{"rendered":"Reynar Hannesson 1922-2013"},"content":{"rendered":"<p><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2013\/09\/reynarhannesson.png\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignleft size-full wp-image-760\" alt=\"ReynarHannesson\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2013\/09\/reynarhannesson.png\" width=\"197\" height=\"293\" \/><\/a>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson<\/p>\n<p>Minningaror\u00f0<\/p>\n<p><b>Reynar Hannesson<\/b><\/p>\n<p>1922-2013<\/p>\n<p>\u00datf\u00f6r fr\u00e1 Neskirkju<\/p>\n<p>fimmtudaginn 26. september kl. 15.<\/p>\n<p>Viltu lesa r\u00e6\u00f0una og\/e\u00f0a hlusta \u00e1 hana?<\/p>\n<p>H\u00fan er h\u00e9r fyrir ne\u00f0an.<!--more--><\/p>\n\n<p>Fri\u00f0ur Gu\u00f0s s\u00e9 me\u00f0 okkur.<\/p>\n<p>Hvernig \u00e1 ma\u00f0ur a\u00f0 lifa?<\/p>\n<p>Hva\u00f0 skiptir mestu m\u00e1li?<\/p>\n<p>\u00deessar spurningar hafa fylgt manninum um aldir og \u00e1r\u00fe\u00fasund. Hva\u00f0 skiptir mestu? Ungur ma\u00f0ur kom til Jes\u00fa og spur\u00f0i \u00feessa sama og hann vissi \u00ed raun svari\u00f0. Mestu skiptir a\u00f0 elska Gu\u00f0 og n\u00e1ungann eins og sj\u00e1lfan sig. Forgangsr\u00f6\u00f0unin er r\u00e9tt \u00ed \u00feessum efnum. Gu\u00f0 skiptir mestu svo n\u00e1unginn og loks ma\u00f0ur sj\u00e1lfur.<\/p>\n<p>\u00c6tli Reynar hafi ekki veri\u00f0 gott d\u00e6mi um mann sem lif\u00f0i \u00ed samhlj\u00f3m vi\u00f0 \u00feetta \u00e6\u00f0sta bo\u00f0or\u00f0 l\u00edfsins? Hann vann vel \u00far s\u00ednu l\u00edfi, r\u00e6kti samf\u00e9lagi\u00f0 vi\u00f0 Gu\u00f0 \u00ed kirkju hans, \u00fej\u00f3na\u00f0i samfer\u00f0af\u00f3lki s\u00ednu af tr\u00famennsku og r\u00e6kta\u00f0i sj\u00e1lfan sig me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 vera hei\u00f0arlegur og sannur \u00ed s\u00ednum verkum og efla sj\u00e1lfan sig me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 r\u00e6kta vin\u00e1ttuna vi\u00f0 Gu\u00f0 og stunda heilbrigt f\u00e9lagsstarf.<\/p>\n<p>\u00deessi \u00f6\u00f0lingur hefur n\u00fa loki\u00f0 l\u00edfsg\u00f6ngu sinni. Hann lif\u00f0i lungann \u00far li\u00f0inni \u00f6ld og s\u00e1 gr\u00ed\u00f0arlegar \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lagsbreytingar \u00e1 sinni \u00e6vi. Allt er \u00e1 hverfanda hveli og vi\u00f0 sem h\u00f6fum lifa\u00f0 s\u00ed\u00f0ustu 2-3 \u00e1ratugina h\u00f6fum l\u00edklega upplifa\u00f0 mestu byltingu mannkynss\u00f6gunnar, t\u00f6lvu- og netv\u00e6\u00f0inguna, sem hefur gert f\u00f3lki kleift a\u00f0 tengjast me\u00f0 hra\u00f0a lj\u00f3ssins um heim allan. \u00c1 bernsku\u00e1rum Reynars \u00f3ra\u00f0i engan fyrir breytingum li\u00f0innar aldar og vi\u00f0 getum ekki gert okkur \u00ed hugarlund hvernig ver\u00f6ldin ver\u00f0ur \u00e1 morgun, hva\u00f0 \u00fe\u00e1 eftir 10, 50 e\u00f0a 100 \u00e1r. L\u00edfi\u00f0 er \u00e6vint\u00fdri og mestu skiptir a\u00f0 fara ekki \u00e1 l\u00edmingunni vegna breytinganna sem eru \u00ed farvatninu heldur lifa hvern dag \u00ed samhlj\u00f3mi vi\u00f0 hi\u00f0 st\u00f3ra semhengi sem er Gu\u00f0. \u00deannig ver\u00f0ur l\u00edfi\u00f0 \u00e6t\u00ed\u00f0 r\u00e9tt og heilbrigt.<\/p>\n<p>Reynar f\u00f3r s\u00e9 a\u00f0 engu \u00f3\u00f0slega \u00ed r\u00e1s daganna. Hann var yfirvega\u00f0ur, f\u00e1ga\u00f0ur \u00ed framkomu, ann\u00e1la\u00f0 snyrtimenni, sem opna\u00f0i dyr fyrir f\u00f3lki og greiddi g\u00f6tu annarra fremur en sj\u00e1lfs s\u00edn. Hann var eftirs\u00f3ttur til vinnu og gjarnan falin \u00e1byr\u00f0 \u00e1 vandas\u00f6mum verkum. Hann vann \u00e1ratugum saman hj\u00e1 Ol\u00eduf\u00e9laginu h.f. og s\u00e1 um bens\u00ednst\u00f6\u00f0var v\u00edtt og breytt um landi\u00f0. Hann s\u00e1 um a\u00f0 byggja margar sl\u00edkar og \u00feurfti a\u00f0 eiga fl\u00f3knum samskiptum vi\u00f0 sveitastj\u00f3rnarmenn um land allt, verktaka og i\u00f0na\u00f0armenn. Allt gekk \u00fea\u00f0 eins og \u00ed s\u00f6gu og hann var vins\u00e6ll og vel l\u00e1tinn af \u00f6llum. Hann var a\u00f0 breyttu breytanda eins og biskup e\u00f0a \u00ed \u00fea\u00f0 minnsta v\u00edgslubiskup sem hefur umsj\u00f3n me\u00f0 kirkjum v\u00ed\u00f0a um land!<\/p>\n<p>Reynar f\u00e6ddist \u00e1 Va\u00f0stakkshei\u00f0i \u00ed Neshreppi utan Ennis 26. febr\u00faar 1922 of var \u00fev\u00ed 91 \u00e1rs er hann l\u00e9st \u00e1 Hj\u00fakrunarheimilinu S\u00f3lt\u00fani 19. september 2013. \u00dear lei\u00f0 honum vel og hann naut s\u00edn \u00ed f\u00e9lagsskap g\u00f3\u00f0s f\u00f3lks. Sjentilmennskan var honum \u00ed bl\u00f3\u00f0 borin og gjarnan opna\u00f0i hann dyr fyrir konunum \u00ed S\u00f3lt\u00fani, dr\u00f3 fram st\u00f3la handa \u00feeim og s\u00fdndi \u00feeim vir\u00f0ingu sem og kynbr\u00e6\u00f0rum s\u00ednum.<\/p>\n<p>Foreldrar hanns voru Gu\u00f0r\u00fan Gu\u00f0bj\u00f6rnsd\u00f3ttir f. 24.05.1892, d. 11.04. 1974 og Hannes El\u00edsson f. 19. 04. 1892, d. 25.04. 1984. \u00deau bjuggu fyrst \u00e1 Hellissandi og s\u00ed\u00f0ar \u00ed Reykjav\u00edk.<\/p>\n<p>Systkini Reynars eru:<\/p>\n<ol>\n<li>Helga f. 17.04.1914, d. 19.04.2006,<\/li>\n<li>El\u00eds f. 04.09.1917, d. 09.10.1954,<\/li>\n<li>Berta f. 06.06. 1919, d. 10.10.2002,<\/li>\n<li>Hallveig f. 03.10.1927, d. 24.05.2013 og yngstur er<\/li>\n<li>Richard f. 09.04.1932 sem einn lifir systkin s\u00edn.<\/li>\n<\/ol>\n<p>\u00deann 17. j\u00fan\u00ed 1944, daginn sem l\u00fd\u00f0veldi\u00f0 var stofna\u00f0i, kv\u00e6ntist Reynar, Sigr\u00ed\u00f0i Sigf\u00fasd\u00f3ttur fr\u00e1 St\u00f3ru Hvals\u00e1 \u00ed B\u00e6jarhreppi \u00ed Strandas\u00fdslu, d. 24.02.1998. Foreldrar hennar voru Sigf\u00fas Sigf\u00fasson f. 07.08.1887, d. 29.01.1958 og Krist\u00edn Gu\u00f0mundsd\u00f3ttir f. 08.10.1888, d. 15.02.1963. Sigr\u00ed\u00f0ur var ein 14 systkina.<\/p>\n<p>B\u00f6rn Reynars og Sigr\u00ed\u00f0ar eru:<\/p>\n<p>1) Gunnar Hannes f. 25. 11.1944, b\u00f6rn hanns eru P\u00e9tur Tyrfingur f. 16.06.1969, Gunnar Reynar f. 12.01.1986 og Sigur\u00f0ur Bj\u00f6rn f. 19.07.1998. Gunnar er \u00ed samb\u00fa\u00f0 me\u00f0 Fj\u00f3lu Ing\u00fe\u00f3rsd\u00f3ttur.<\/p>\n<p>2) Sigr\u00fan f. 15.01.1947. Maki hennar er G\u00edsli Ellerup, b\u00f6rn \u00feeirra eru Sigr\u00ed\u00f0ur Anna f. 01.06.1965 og Reynar Ellerup f. 13.04.197<\/p>\n<p>3) Bjarni f. 05.01.1948, hann er kv\u00e6ntur J\u00f3h\u00f6nnu Einarsd\u00f3ttur f. 11.11.1952. Sonur hans er Ragnar P\u00e1ll f. 09.02.1970. B\u00f6rn Bjarna og J\u00f3h\u00f6nnu eru, Einar Hugi f. 16.11.1977, Reynar K\u00e1ri f. 13.01.1982 og Halld\u00f3ra Sigr\u00ed\u00f0ur f. 26. 01.1989;<\/p>\n<p>4) El\u00eds f. 20.01.1958. Hann var kv\u00e6ntur Steinunn Krist\u00ednu J\u00f3nsd\u00f3ttur. B\u00f6rn \u00feeirra eru, \u00c1str\u00f3s f4.9.1962, J\u00f3n f. 02.08.1984 og Svana Krist\u00edn f. 18.01.1989.<\/p>\n<p>Langafab\u00f6rn Reynars eru 12.<\/p>\n<p>\u00deegar Reynar var um fimm \u00e1ra gamall flutti fj\u00f6lskyldan \u00e1 Hellissand og bj\u00f3 \u00fear til 1941 \u00feegar h\u00fan fluttist til Reykjav\u00edkur.<\/p>\n<p>Eins og fyrr sag\u00f0i vann Reynar lengi hj\u00e1 Ol\u00eduf\u00e9laginu h.f. e\u00f0a \u00ed 40 \u00e1r fr\u00e1 \u00e1rinu 1953, lengst af sem st\u00f6\u00f0varstj\u00f3ri \u00ed Gelgjutanga. \u00dear haf\u00f0i hann yfirumsj\u00f3n me\u00f0 flestum verklegum framkv\u00e6mdum fyrirt\u00e6kisins. Hann var einstaklega vel li\u00f0inn af starfsm\u00f6nnum s\u00ednum. \u00c1\u00f0ur en hann h\u00f3f st\u00f6rf h\u00e1 Esso \u00f3k hann bifrei\u00f0um Landlei\u00f0a, milli Hafnarjar\u00f0ar og Reykjav\u00edkur. \u00dear sem annars sta\u00f0ar voru honum falin \u00e1byrg\u00f0arst\u00f6rf eins og t.d. a\u00f0 sj\u00e1 um uppgj\u00f6r og fj\u00e1rm\u00e1l. Svo vel l\u00e1tinn var hann sem b\u00edlstj\u00f3ri a\u00f0 sagan segir a\u00f0 b\u00f6rn ungra m\u00e6\u00f0ra sem fer\u00f0u\u00f0ust me\u00f0 Landlei\u00f0um hafi sum veri\u00f0 sk\u00edr\u00f0 \u00ed h\u00f6fu\u00f0i\u00f0 \u00e1 Reynari!<\/p>\n<p>Ungur var hann eitt sumar \u00e1 Siglufir\u00f0i. \u00dea\u00f0 veiddist l\u00edtil s\u00edld \u00feetta sumari\u00f0 og \u00ed minningunni var hans helsta verk a\u00f0 g\u00e6ta stelpnanna \u00ed brakkanum eins og menn b\u00e1ru or\u00f0i\u00f0 fram \u00fe\u00e1. Hann var \u00fe\u00e1 18 \u00e1ra, \u00e1byrg\u00f0arfullur og tr\u00far \u00ed s\u00ednum verkum.<\/p>\n<p>Hann haf\u00f0i ekki m\u00f6rg \u00e1r formlegrar sk\u00f3lag\u00f6ngu a\u00f0 baki en var g\u00e6ddur g\u00f3\u00f0um g\u00e1fum og verkviti og \u00e6t\u00ed\u00f0 falin \u00e1byrg\u00f0. Ungur var hann t.a.m. farinn a\u00f0 telja fram til skatts fyrir P\u00e9tur og P\u00e1l og var \u00fea\u00f0 allt sj\u00e1lfl\u00e6rt. Hann s\u00f3tti s\u00e9r menntun \u00ed gegnum n\u00e1mskei\u00f0 af \u00fdmstu tagi og \u00ed l\u00edfsins sk\u00f3la haf\u00f0i hann \u00e1n efa h\u00e1ar pr\u00f3fgr\u00e1\u00f0ur. Reynar s\u00f3tti t.a.m. b\u00e6\u00f0i verkstj\u00f3rnarn\u00e1mskei\u00f0 og Dale Carnegie n\u00e1mskei\u00f0. \u00de\u00e1 f\u00f3r hann nokkrar fer\u00f0ir til \u00fatlanda til a\u00f0 kaupa v\u00f6rub\u00edla fyrir Esso m.a. Bedford og Man v\u00f6rub\u00edla. Hann minntist margra g\u00f3\u00f0ra verka og framkv\u00e6mda eins og \u00feegar hann og starfsmenn Esso l\u00f6g\u00f0u sl\u00f6ngubr\u00fa yfir J\u00f6kuls\u00e1 \u00e1 Brei\u00f0amerkursandi til a\u00f0 d\u00e6la ol\u00edu yfir \u00f3lgangi vatntsflauminn. Verkvit og \u00fatsj\u00f3narsemi \u00feurfti til og af hvoru tveggja var n\u00f3g \u00ed hans huga og samstarfsmanna hans.<\/p>\n<p>Hann t\u00f3k virkan \u00fe\u00e1tt \u00ed starfi Oddfellowst\u00fakunnar \u00deorkels m\u00e1na \u00ed \u00e1ratugi og var \u00fear yfirmeistari um t\u00edma. \u00dear eigna\u00f0ist hann marga g\u00f3\u00f0a vini og f\u00e9laga og st\u00fakubr\u00e6\u00f0ur hans votta honum vir\u00f0ingu s\u00edna me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 standa hei\u00f0ursv\u00f6r\u00f0 og bera kistu hans \u00far kirkju.<\/p>\n<p>Lengst af bjuggu Reynar og Sigr\u00ed\u00f0ur \u00ed ra\u00f0h\u00fasi sem \u00feau bygg\u00f0u a\u00f0 Hvassaleiti 91 og s\u00ed\u00f0ast \u00e1 Hagamel 46. \u00deau s\u00f3ttu Grens\u00e1skirkju for\u00f0um og Neskirkju eftir a\u00f0 \u00feau fluttu \u00ed Vesturb\u00e6inn.<\/p>\n<p>Reynar var s\u00f6ngelskur og b\u00f6rnin hans hafa \u00f6ll sungi\u00f0 \u00ed k\u00f3r. M\u00f6rg kv\u00f6ldin \u00ed Skorradalnum var sungi\u00f0 vi\u00f0 raust og svo l\u00e9k hann l\u00edka \u00e1 harm\u00f3niku. \u00c9g man Reynar vel \u00far kirkjustarfinu h\u00e9r og \u00far Grens\u00e1skirkju \u00fear sem \u00e9g \u00fej\u00f3na\u00f0i for\u00f0um. \u00c6t\u00ed\u00f0 var hann lj\u00fafur \u00ed framkomu, gl\u00e6silegur og flottur, h\u00f3gv\u00e6r og vir\u00f0ulegur.<\/p>\n<p>Hannes, fa\u00f0ir Reynars, sem var h\u00fasv\u00f6r\u00f0ur \u00ed Brei\u00f0ager\u00f0issk\u00f3la s\u00ed\u00f0ustu starfs\u00e1r s\u00edn, var fyrsti me\u00f0hj\u00e1lpari \u00ed Grens\u00e1ss\u00f3kn sem n\u00fa um \u00feessar mundir fagnar 50 \u00e1ra afm\u00e6li s\u00ednu.<\/p>\n<p>\u00deau voru gl\u00e6sileg hj\u00f3n, Reynar og Sigr\u00ed\u00f0ur. Heimili\u00f0 \u00feeirra \u00feekkt fyrir rausnarskap og snyrtimennsku. \u00c6t\u00ed\u00f0 var k\u00e6rt me\u00f0 \u00feeim hj\u00f3num. H\u00fan var mikil hannyr\u00f0akona, f\u00e6r \u00ed kj\u00f3lasaum. H\u00fan l\u00e6r\u00f0i k\u00e1pusaum hj\u00e1 Andr\u00e9si Andr\u00e9ssyni, kl\u00e6\u00f0skera.<\/p>\n<p>H\u00fan kom \u00far h\u00f3pi 14 systkina sem \u00feurftu a\u00f0 l\u00e6ra a\u00f0 bjarga s\u00e9r, vera n\u00fdtin og \u00fatsj\u00f3nars\u00f6m til \u00feess a\u00f0 komast \u00e1fram \u00ed h\u00f6r\u00f0um heimi. Allt l\u00e9k jafnan \u00ed h\u00f6ndum hennar.<\/p>\n<p>Sigr\u00ed\u00f0ur og Reynar komu s\u00e9r upp sumarh\u00fasi \u00ed landi Fitja \u00ed Skorradal og \u00e1ttu \u00fear margar \u00e1n\u00e6gjustundir. B\u00fasta\u00f0urinn bar \u00feess merki a\u00f0 \u00fear r\u00e9\u00f0u r\u00edkjum vandvirkur hagleiksma\u00f0ur og smekkv\u00eds h\u00fasm\u00f3\u00f0ir.<\/p>\n<p>Sigr\u00ed\u00f0ur l\u00e9st 1998. Hin s\u00ed\u00f0ari \u00e1rin sem \u00feau \u00e1ttu saman f\u00f3ru \u00feau nokkrar fer\u00f0ir til heitari landa og nutu s\u00edn vel \u00ed geislum s\u00f3lar. Reynar a\u00f0laga\u00f0ist n\u00fdju l\u00edfi eftir andl\u00e1t hennar, s\u00e1 sj\u00e1lfur um allt heimilishald, elda\u00f0i, sk\u00fara\u00f0ir og \u00fevo\u00f0i \u00fevotta, t\u00f3k ni\u00f0ur gard\u00ednur og hreinsa\u00f0i \u00fe\u00e6r \u00feegar \u00feess \u00feurfti vi\u00f0 og var eins og fiskur \u00ed vatni \u00ed h\u00fasverkunum. Allt l\u00e9k \u00ed h\u00f6ndum hans og hann a\u00f0laga\u00f0ist \u00e6t\u00ed\u00f0 \u00feeim a\u00f0st\u00e6\u00f0um sem hann var \u00ed hverju sinni. B\u00f6rnin voru alltaf \u00ed g\u00f3\u00f0u sambandi vi\u00f0 pabba og br\u00e6\u00f0urnir segja a\u00f0 Sigr\u00fan systir \u00feeirra hafi sinnt f\u00f6\u00f0ur \u00feeirra af stakri elsku og tr\u00famennsku hin s\u00ed\u00f0ari \u00e1rin og \u00feakka \u00feeir \u00fe\u00e1 elskusemi alla. Systkinin \u00feakka \u00fej\u00f3nustu og umhyggju sem hann naut \u00ed S\u00f3lt\u00fani.<\/p>\n<p>Reynar var gla\u00f0sinna og l\u00e9ttur \u00ed samskiptum vi\u00f0 f\u00f3lk. Hann komst \u00e1fram \u00e1 eigin ver\u00f0leikum.<\/p>\n<p>Hann var alla t\u00ed\u00f0 einl\u00e6gur Sandari og sem sl\u00edkur stoltur af uppruna s\u00ednum og fannst f\u00f3lk af Sn\u00e6fellsnesi yfirleitt standa flestum \u00f6\u00f0rum framar \u00e1n \u00feess \u00fe\u00f3 a\u00f0 hann ger\u00f0i l\u00edti\u00f0 \u00far f\u00f3lki \u00far \u00f6\u00f0rum s\u00f3knum. Foreldrar hans voru hei\u00f0arlegt og gott f\u00f3lk sem l\u00f6g\u00f0u sitt af m\u00f6rkum til a\u00f0 efla gott mannl\u00edf og ger\u00f0u \u00fea\u00f0 m.a. me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 sty\u00f0ja og styrkja kirkjustarf \u00ed sinni s\u00f3kn. \u00deau g\u00e1fu Ingjaldsh\u00f3lskirkju lj\u00f3sprenta\u00f0 eintak af Gu\u00f0brandsbibl\u00edu \u00e1 s\u00ednum t\u00edma en s\u00fa b\u00f3k er eins og vi\u00f0 vitum einn mesti d\u00fdrgripur \u00edslenskrar menningar og b\u00f3kmenntas\u00f6gu. M\u00f3\u00f0ir Reynars var tr\u00fau\u00f0 kona og fa\u00f0ir hans einnig og \u00feau b\u00e6\u00f0i kirkjur\u00e6ki\u00f0 hei\u00f0ursf\u00f3lk.<\/p>\n<p>Hvernig \u00e1 ma\u00f0ur a\u00f0 lifa?<\/p>\n<p>Hva\u00f0 skiptir mestu m\u00e1li?<\/p>\n<p>Eins og fram kom \u00ed upphafsor\u00f0um \u00feessara minningaror\u00f0a skiptir mestu a\u00f0 lifa \u00ed takti vi\u00f0 innsta e\u00f0li tilverunnar, a\u00f0 lifa \u00ed samf\u00e9lgi vi\u00f0 Gu\u00f0, l\u00e1ta gott af s\u00e9r lei\u00f0 og annast eigi\u00f0 sj\u00e1lf af kostg\u00e6fni. \u00deannig finnum vi\u00f0 hamingjuna. H\u00fan eykst \u00ed hlutfalli vi\u00f0 \u00fea\u00f0 sem menn gefa. Hagf\u00e6\u00f0i himinsins er andhverfa hagfr\u00e6\u00f0i heimsins og gr\u00e6\u00f0gishugsunar.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 erum k\u00f6llu\u00f0 til a\u00f0 lifa \u00ed samf\u00e9lagi vi\u00f0 Gu\u00f0 sem er allt \u00ed \u00f6llu. Vi\u00f0 erum eins og fiskar \u00ed gu\u00f0shafinu hvort sem vi\u00f0 vi\u00f0urkennum \u00fea\u00f0 e\u00f0a ekki. Vi\u00f0 komumst aldrei \u00fat \u00far \u00e1hrifasv\u00e6\u00f0i skaparans sem elskar allt sem lifir og vill \u00fev\u00ed einungis hi\u00f0 besta. Himinninn er opin vegna \u00feess a\u00f0 Kristur opna\u00f0i okkur lei\u00f0 \u00feanga\u00f0. G\u00f3\u00f0verk og gott l\u00edf duga \u00fe\u00f3 ekki til a\u00f0 komast \u00feanga\u00f0 hversu m\u00f6rg sem \u00feau annars eru. Himinninn ver\u00f0ur \u00e6t\u00ed\u00f0 gj\u00f6f hins h\u00e6sta, k\u00e6rleiks- og n\u00e1\u00f0argj\u00f6f.<\/p>\n<p>\u00deess vegna er l\u00edfi\u00f0 svo undursamlega fagurt og gott &#8211; og hvatningin um a\u00f0 lifa vel svo mikilv\u00e6g. A\u00f0 lifa vel og fallega \u00ed \u00fej\u00f3nustu vi\u00f0 Gu\u00f0 og menn er \u00feakkarf\u00f3rn fyrir \u00fea\u00f0 sem Gu\u00f0 hefur \u00feegar \u00ed Kristi gefi\u00f0 okkur \u00f3keypis.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 kve\u00f0jum hei\u00f0ursmann me\u00f0 vir\u00f0ingu og \u00fe\u00f6kk. Gu\u00f0 blessi minningu Reynars Hannessonar og Gu\u00f0 blessi \u00feig. Amen.<\/p>\n<p>\u00c9g flyt ykkur kve\u00f0ju fr\u00e1 Andra Geirssyni, langafabarni Reynars, sem er vi\u00f0 n\u00e1m \u00ed Danm\u00f6rku.<\/p>\n<p>B\u00e1lf\u00f6r &#8211; kistunni stillt upp \u00ed forkirkju og signt yfir, jar\u00f0sett ver\u00f0ur \u00ed Fossvogi.<\/p>\n<p>Erfi \u00ed Safna\u00f0arheimilinu.<\/p>\n<p>Postulleg kve\u00f0ja: Gu\u00f0 vonarinnar fylli ykkur \u00f6llum f\u00f6gnu\u00f0i og fri\u00f0i \u00ed tr\u00fanni. Svo a\u00f0 \u00fei\u00f0 s\u00e9u\u00f0 au\u00f0ug a\u00f0 voninni \u00ed krafti heilags anda. Amen.<\/p>\n<p>&nbsp;<\/p>\n<p>Ritningarlestrar vi\u00f0 ath\u00f6fnina:<\/p>\n<p>Dav\u00ed\u00f0ss\u00e1lmur 90: 1-4, 12<\/p>\n<p>Matteusargu\u00f0spjall 5:13-16<\/p>\n<p><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2013\/09\/salmaskra-reynar.pdf\">Salmaskra-Reynar<\/a><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson Minningaror\u00f0 Reynar Hannesson 1922-2013 \u00datf\u00f6r fr\u00e1 Neskirkju fimmtudaginn 26. september kl. 15. Viltu lesa r\u00e6\u00f0una og\/e\u00f0a hlusta \u00e1 hana? H\u00fan er h\u00e9r fyrir ne\u00f0an.<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[4],"tags":[],"class_list":["post-759","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-greinar-og-hugvekjur-articles"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/759","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=759"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/759\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=759"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=759"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=759"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}