{"id":748,"date":"2013-09-23T15:03:48","date_gmt":"2013-09-23T15:03:48","guid":{"rendered":"http:\/\/ornbardur.com\/?p=748"},"modified":"2013-09-23T15:03:48","modified_gmt":"2013-09-23T15:03:48","slug":"asgeir-karlsson-1936-2013","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ornbardur.com\/?p=748","title":{"rendered":"\u00c1sgeir Karlsson 1936-2013"},"content":{"rendered":"<p><a href=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2013\/09\/asgeirkarlsson.png\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" class=\"alignleft size-full wp-image-749\" alt=\"asgeirkarlsson\" src=\"http:\/\/localhost:8081\/wp-content\/uploads\/2013\/09\/asgeirkarlsson.png\" width=\"198\" height=\"296\" \/><\/a>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson<\/p>\n<p>Minningaror\u00f0<\/p>\n<p><b>\u00c1sgeir Karlsson<\/b><\/p>\n<p>ge\u00f0l\u00e6knir<\/p>\n<p>Hofsvallag\u00f6tu 49<\/p>\n<p>1936-2013<\/p>\n<p>\u00datf\u00f6r fr\u00e1 Neskirkju<\/p>\n<p>m\u00e1nudaginn 23. september 2013 kl. 13<\/p>\n<p>Ritningarlestrar vi\u00f0 ath\u00f6fnina:<\/p>\n<p>Op J\u00f3h 21.1-7 N\u00fdr himinn og n\u00fd j\u00f6r\u00f0<\/p>\n<p>Matt 5.14-16 \u00de\u00e9r eru\u00f0 lj\u00f3s heimsins.<\/p>\n<p>R\u00e6\u00f0una er h\u00e6gt a\u00f0 lesa h\u00e9r fyrir ne\u00f0an og einnig hlusta \u00e1 hana.<\/p>\n<p><!--more--><\/p>\n\n<p><b>R\u00e6\u00f0an:<\/b><\/p>\n<p>Fri\u00f0ur Gu\u00f0 s\u00e9 me\u00f0 okkur.<\/p>\n<p>\u201eEn sj\u00e1lfur fri\u00f0arins Gu\u00f0 helgi y\u00f0ur algerlega og andi y\u00f0ar, s\u00e1l og l\u00edkami var\u00f0veitist alheil og vammlaus vi\u00f0 komu Drottins vors Jes\u00fa Krists. Tr\u00far er s\u00e1 er y\u00f0ur kallar, hann mun koma \u00feessu til lei\u00f0ar.\u201c<\/p>\n<p>(I \u00deess 5.23-24)<\/p>\n<p>\u00cd \u00feessum kve\u00f0juor\u00f0um P\u00e1ls postula til tr\u00fasystkina sinna \u00ed \u00deessal\u00f3n\u00edku \u00ed Grikklandi talar hann um \u00fer\u00edskiptingu mannsins \u00ed anda, s\u00e1l og l\u00edkama. \u00c9g veit ekki hvort s\u00fa skipting stenst v\u00edsindalegar ranns\u00f3knir en m\u00e9r hefur \u00e6t\u00ed\u00f0 fundist h\u00fan heillandi. L\u00edkaminn er \u00feekkt st\u00e6r\u00f0 og hann \u00fearf n\u00e6ringu og hreyfingu. S\u00e1lin er hugtak sem n\u00e6r utan um vitsmunal\u00edfi\u00f0 sem n\u00e6rist \u00e1 menntun og\u00a0 menningu, fegur\u00f0 og jafnv\u00e6gi. Og svo kemur andinn sem v\u00edsar til \u00feess a\u00f0 ma\u00f0urinn \u00e1 s\u00e9r \u00e6\u00f0ri tilvist. Andinn n\u00e6rist \u00e1 tr\u00fa og b\u00e6n. \u00cd andanum b\u00fdr vitund um hi\u00f0 st\u00f3ra samhengi, um Gu\u00f0. Andinn er helgid\u00f3mur, hi\u00f0 innsta \u00fear sem \u00e6\u00f0ri vitund um r\u00e9tt og rangt \u00e1 s\u00e9r b\u00fasta\u00f0. \u00deetta \u00ferennt gerir manninn heilan, \u00fer\u00edeinan eins Gu\u00f0 sem skapa\u00f0i hann.<\/p>\n<p>Vi\u00f0fangsefni \u00c1sgeirs um \u00e6vina var einkum hi\u00f0 innra l\u00edf manneskjunnar, s\u00e1lin. Ungur heilla\u00f0ist hann af l\u00e6knisfr\u00e6\u00f0i og svo kom a\u00f0 hinu st\u00f3ra vali um s\u00e9rgrein og \u00fe\u00e1 var\u00f0 ge\u00f0l\u00e6knisfr\u00e6\u00f0in fyrir valinu. S\u00fa grein h\u00e6f\u00f0i honum vel enda var hann yfirvega\u00f0ur og h\u00e6gl\u00e1tur \u00ed sinni n\u00e1lgun, \u00edbygginn og vark\u00e1r. Hann humma\u00f0i gjarnan yfir verkefnum s\u00ednum, segir fj\u00f6lksylda hans, f\u00f3r s\u00e9r a\u00f0 engu \u00f3\u00f0slega og \u00feegar hann kom heim \u00far vinnu me\u00f0 \u00f6llum s\u00ednum \u00e1reitum og fl\u00f3knum samskiptum vi\u00f0 f\u00f3lk me\u00f0 \u00f3lgandi ve\u00f0rabrig\u00f0i \u00ed s\u00e1larl\u00edfinu, fanns honum hv\u00edld a\u00f0 koma heim \u00fear sem b\u00f6rnin \u00e6rslu\u00f0ust og f\u00f3ru mikinn. \u00dea\u00f0 virka\u00f0i beinl\u00ednis r\u00f3andi \u00e1 hann.<\/p>\n<p>\u00c1sgeir var g\u00e6fuma\u00f0ur og sag\u00f0i einhverju sinni: \u201e\u00c9g er n\u00e6stum me\u00f0 samviskubit yfir \u00fev\u00ed hva\u00f0 l\u00edf mitt er gott.\u201c \u00cd m\u00e1lt\u00e6kinu segir: \u201eHver er sinnar g\u00e6fu smi\u00f0ur.\u201c \u00c6tli \u00fea\u00f0 s\u00e9 ekki r\u00e9tt a\u00f0 hluta til eins og \u00fea\u00f0 er hugsanlega r\u00e9tt a\u00f0 \u201efj\u00f3r\u00f0ungi breg\u00f0i til f\u00f3sturs\u201c, nema a\u00f0 \u00fear r\u00e1\u00f0i stu\u00f0lun h\u00f6fundar meira m\u00e1li en v\u00edsindalegar m\u00e6lingar? Hva\u00f0 um \u00fea\u00f0. Vi\u00f0 erum l\u00edklega \u00fer\u00edein l\u00edka hva\u00f0 \u00feetta var\u00f0ar, l\u00edf okkar m\u00f3tast af erf\u00f0av\u00edsum og upplagi, svo kemur til s\u00f6gunnar eigin vilji og loks allar \u00fe\u00e6r tilviljanir sem ver\u00f0a \u00e1 vegi okkar. \u00deetta sem h\u00e9r hefur veri\u00f0 r\u00e6tt, hinar gefnu st\u00e6r\u00f0ir, tilviljanirnar og \u00farvinnslan birtast \u00ed \u00fdmsum myndum \u00ed \u00e6vi\u00e1gripum hverrar manneskju.<\/p>\n<p>\u00c1sgeir f\u00e6ddist 11. j\u00fan\u00ed 1936 \u00e1 Akureyri. Hann l\u00e9st \u00e1 Droplaugarst\u00f6\u00f0um \u00ed Reykjav\u00edk 10. september 2013.<\/p>\n<p>Foreldrar hans voru Karl \u00c1sgeirsson, s\u00edmritari \u00e1 Akureyri, f. 29. sept. 1897, d. 12. sept. 1987, og \u00c1sta Sigurj\u00f3nsd\u00f3ttir, h\u00fasm\u00f3\u00f0ir \u00e1 Akureyri, f. 9. jan. 1897, d. 17. n\u00f3v. 1986. Systkini \u00c1sgeirs eru: Ragnar Karlsson, ge\u00f0l\u00e6knir, f. 13. ma\u00ed 1924, d. 1. mars 2006, og \u00c1sta Karlsd\u00f3ttir, bankastarfsma\u00f0ur og h\u00fasm\u00f3\u00f0ir, f. 22. des. 1929.<\/p>\n<p>Hann \u00f3lst upp \u201e\u00ed fj\u00f6runni\u201c en \u00e1tti g\u00f3\u00f0a vini \u201e\u00ed brekkunum\u201c. Gott var a\u00f0 alast upp \u00e1 Akueyri \u00ed f\u00f6grum fir\u00f0i og b\u00e6 me\u00f0 \u00f6flugu atvinnul\u00edfi og g\u00f3\u00f0u menningar- og mannl\u00edfi \u00fear sem t\u00e6kif\u00e6ri til menntunar voru me\u00f0al \u00feess besta sem landi\u00f0 bau\u00f0 upp \u00e1.<\/p>\n<p>\u00c1sgeir kv\u00e6ntist 23. j\u00fal\u00ed 1960 eftirlifandi eiginkonu sinni, Gu\u00f0r\u00fanu Ingveldi J\u00f3nsd\u00f3ttur, innanh\u00fassarkitekt, f. 23. apr\u00edl 1936 \u00ed Reykjav\u00edk.<\/p>\n<p>B\u00f6rn \u00feeirra eru:<\/p>\n<ol>\n<li>Karl, lyfjafr\u00e6\u00f0ingur, f. 17. mars 1962, eiginkona hans er Monika G\u00fcrke, text\u00edlh\u00f6nnu\u00f0ur, f. 28. okt. 1962. B\u00f6rn \u00feeirra eru Daphne \u00d3sk, f. 16. \u00e1g\u00fast 1993, og Kjartan Andreas, f. 12. okt. 1997.<\/li>\n<li>J\u00f3n, verkfr\u00e6\u00f0ingur, f. 19. \u00e1g\u00fast 1967, eiginkona hans er Anna Birna J\u00f3nasd\u00f3ttir, vi\u00f0skiptafr\u00e6\u00f0ingur, f. 12. ma\u00ed 1969. D\u00f3ttir J\u00f3ns af fyrra hj\u00f3nabandi me\u00f0 Gu\u00f0r\u00fanu J\u00f3hannesd\u00f3ttur, framkv\u00e6mdastj\u00f3ra, f. 3. j\u00fan\u00ed 1967, er \u00c1str\u00ed\u00f0ur, f. 18. j\u00fal\u00ed 1991. Synir J\u00f3ns og \u00d6nnu eru \u00c1sgeir Egill, f. 30. apr. 2001, og Arnar, f. 11. n\u00f3v. 2003.<\/li>\n<li>Krist\u00edn \u00c1str\u00ed\u00f0ur, mannfr\u00e6\u00f0ingur, f. 14. j\u00fal\u00ed 1972, samb\u00fdliskona hennar er Katerina Prochazkova, f. 5.\u00e1g\u00fast 1978.<\/li>\n<\/ol>\n<p>\u00c1sgeir \u00f3lst upp \u00e1 Akureyri til n\u00edtj\u00e1n \u00e1ra aldurs og lauk st\u00fadentspr\u00f3fi fr\u00e1 Menntask\u00f3lanum \u00e1 Akureyri \u00e1ri\u00f0 1955. Hann lauk l\u00e6knapr\u00f3fi fr\u00e1 H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands \u00e1ri\u00f0 1962 og s\u00e9rfr\u00e6\u00f0in\u00e1mi \u00ed ge\u00f0l\u00e6kningum \u00e1ri\u00f0 1966 \u00ed Connecticut. Eftir heimkomu a\u00f0 n\u00e1msdv\u00f6l lokinni bjuggu \u00c1sgeir og Gu\u00f0r\u00fan \u00e1samt b\u00f6rnum s\u00ednum \u00ed Reykjav\u00edk. Gegndi \u00c1sgeir \u00fdmsum l\u00e6knast\u00f6\u00f0um uns hann var r\u00e1\u00f0inn s\u00e9rfr\u00e6\u00f0ingur \u00ed ge\u00f0l\u00e6kningum vi\u00f0 Kleppssp\u00edtala \u00e1ri\u00f0 1971. Starfa\u00f0i hann \u00fear til \u00e1rsins 1977 er hann t\u00f3k vi\u00f0 st\u00f6\u00f0u \u00e1 ge\u00f0deild Borgarsp\u00edtala og var\u00f0 svo yfirl\u00e6knir \u00e1 ge\u00f0deild Sj\u00fakrah\u00fass Reykjav\u00edkur fr\u00e1 1997. Samhli\u00f0a st\u00f6rfum \u00e1 sj\u00fakrah\u00fasum rak \u00c1sgeir eigin l\u00e6knastofu \u00ed Reykjav\u00edk fr\u00e1 1970.<\/p>\n<p>Hann var fr\u00edm\u00farari fr\u00e1 \u00e1rinu 1979 og gegndi emb\u00e6ttum \u00e1 \u00feeim vettvangi. Br\u00e6\u00f0ur hans kve\u00f0ja hann h\u00e9r \u00ed dag, standa hei\u00f0ursv\u00f6r\u00f0 og munu bera kistu hans. Hann var \u00ed St. J\u00f3hannesarst\u00fakunni M\u00edmi. \u00c1sgeir dvaldi seinustu t\u00e6plega tv\u00f6 \u00e6vi\u00e1rin \u00e1 Droplaugarst\u00f6\u00f0um \u00ed Reykjav\u00edk og \u00feakkar fj\u00f6lskyldan fr\u00e1b\u00e6ra um\u00f6nnun og hj\u00fakrun sem hann naut \u00fear.<\/p>\n<p>\u00c1sgeir haf\u00f0i g\u00f3\u00f0a n\u00e6rveru, hann var h\u00f3gv\u00e6r ma\u00f0ur sem kunni a\u00f0 nj\u00f3ta l\u00edfsins og skynja\u00f0i \u00e1 hverri t\u00ed\u00f0 hve l\u00edfi\u00f0 er d\u00fdrm\u00e6tt og mikilv\u00e6gt a\u00f0 gr\u00edpa daginn hverju sinni.<\/p>\n<p>Hann f\u00f3r s\u00e9r a\u00f0 engu \u00f3\u00f0lega \u00ed l\u00edfinu, var enginn sportisti en gekk hratt \u00feegar hann hreyf\u00f0i sig \u00e1 anna\u00f0 bor\u00f0. Hann f\u00f3r reglulega \u00ed sund \u00ed Vesturb\u00e6jarlauginni og synti r\u00f3lega og gjarnan me\u00f0 fingrunum!<\/p>\n<p>Hann var \u00e6t\u00ed\u00f0 til taks, bl\u00e1tt \u00e1fram, en ekki miki\u00f0 \u00fat \u00e1 vi\u00f0, fremur til baka \u00ed fj\u00f6lmenni, en opinn heima fyrir. Hann var r\u00f3legi p\u00f3llinn \u00ed l\u00edfi fj\u00f6lskyldunnar, st\u00f3lpinn sem \u00feau g\u00e1tu treyst \u00e1.<\/p>\n<p>Heimili \u00feeirra hj\u00f3na ber vott um smekkv\u00edsi og listr\u00e6nt inns\u00e6i. Gu\u00f0r\u00fan var\u00f0 fyrst \u00edslenskra kvenna til a\u00f0 ganga \u00ed F\u00e9lag h\u00fasgagna- og innanh\u00fassarkitekta. \u00c6tli \u00fea\u00f0 megi segja a\u00f0 \u00c1sgeir hafi l\u00edka\u00a0veri\u00f0 innanh\u00fassarkitekt, arkitekt s\u00e1larl\u00edfsins? Hva\u00f0 sem \u00fev\u00ed l\u00ed\u00f0ur \u00fe\u00e1 segja b\u00f6rnin a\u00f0 pabbi hafi l\u00e1ti\u00f0 allt eftir m\u00f6mmu sem h\u00fan vildi framkv\u00e6ma heima en stundum vildi hann n\u00fa fremur fara \u00ed gott fer\u00f0alag. \u00deau fer\u00f0u\u00f0ust v\u00ed\u00f0a og heims\u00f3ttu framandi l\u00f6nd. Hann haf\u00f0i gjarnan gaman af a\u00f0 pr\u00f3fa eitthva\u00f0 n\u00fdtt matarkyns og panta\u00f0i oftar en ekki skr\u00fdtnustu r\u00e9ttina \u00e1 matse\u00f0linum og ef \u00feeir st\u00f3\u00f0ust ekki v\u00e6ntingar \u00fe\u00e1 hl\u00f3 hann bara og brosti \u00fat \u00ed eitt. Hans fag heima vi\u00f0 var a\u00f0 grilla \u00fati og svo a\u00f0 elda rau\u00f0sprettu. Hann haf\u00f0i mikla \u00e1n\u00e6gju af a\u00f0 nj\u00f3ta g\u00f3\u00f0s matar me\u00f0 skemmtilegu f\u00f3lki.<\/p>\n<p>Hann elska\u00f0i hana Gu\u00f0r\u00fanu s\u00edna og tj\u00e1\u00f0i henni oft og einatt \u00e1st s\u00edn. \u00dea\u00f0 er g\u00f3\u00f0ur si\u00f0ur og vi\u00f0 karlar m\u00e6ttum \u00e1n efa flestir \u00e6fa \u00fe\u00e1 l\u00edfslist meir og betur. \u00dea\u00f0 er v\u00edst ekki n\u00f3g a\u00f0 segja \u00fea\u00f0 bara \u00e1 br\u00fa\u00f0kaupsdaginn!<\/p>\n<p>\u00c1sgeir haf\u00f0i mikinn \u00e1huga \u00e1 starfi s\u00ednu og f\u00f3r \u00ed margar n\u00e1msfer\u00f0ir um \u00e6vina, las miki\u00f0 og s\u00e1 um margar vandasamar ge\u00f0ranns\u00f3knir \u00ed st\u00f6rfum s\u00ednum.<\/p>\n<p>B\u00f6rnin \u00f3lust upp vi\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 umgangast ge\u00f0sj\u00faka og s\u00f3ttu t.a.m. gu\u00f0s\u00fej\u00f3nustur \u00e1 Kleppi \u00feegar \u00feau voru yngri. \u00deannig l\u00e6r\u00f0u \u00feau a\u00f0 umgangast alla sem jafningja. \u00dea\u00f0 var \u00feeim g\u00f3\u00f0ur sk\u00f3li fyrir l\u00edfi\u00f0. \u00c1sgeir \u00feekkti marga og margir \u00feekktu hann sem l\u00e6kni en stundum vildi f\u00f3lk ekki kannst vi\u00f0 ge\u00f0l\u00e6kninn sinn \u00e1 f\u00f6rnum vegi \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 var of vi\u00f0kv\u00e6mt og au\u00f0vita\u00f0 tr\u00faa\u00f0arm\u00e1l hverja hann \u00feekkti sem sj\u00faklinga. Hann a\u00f0skildi jafnan einkal\u00edf og starf me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 hafa ekki skr\u00e1\u00f0an s\u00edma. \u00deegar hann kom heim var vinnan a\u00f0 baki og vi\u00f0 t\u00f3k f\u00f3lki\u00f0 hans, fj\u00f6rug b\u00f6rn og yndisleg kona me\u00f0 \u00e1huga \u00e1 fegur\u00f0 og gl\u00e6silegu heimili sem umgj\u00f6r\u00f0 um fj\u00f6lskylduna. Fegur\u00f0in hefur g\u00f3\u00f0 \u00e1hrif \u00e1 s\u00e1larl\u00edfi\u00f0, litir og r\u00e9tt skipulag, regla og f\u00e1gun.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 eru fimm \u00e1r \u00e1 milli barnanna \u00feriggja. \u00deau brostu og s\u00f6g\u00f0u a\u00f0 svo hef\u00f0i hundarnir komi\u00f0 n\u00e6stir, \u00fe\u00e6r Skotta og Kolgr\u00edma. Hann var eftirl\u00e1tssamur vi\u00f0 hundana og spillti \u00feeim, segja krakkarnir, l\u00e6ddi bita og bita til \u00feeirra undir matarbor\u00f0i\u00f0.<\/p>\n<p>\u00c1sgeir var fr\u00edm\u00farari eins og fyrr kom fram en \u00ed \u00feeim f\u00e9lagsskap er m.a. leitast vi\u00f0 a\u00f0 \u00edhuga og sko\u00f0a regluna \u00ed l\u00edfinu og finna jafnv\u00e6gi\u00f0 sem h\u00fan lei\u00f0ir af s\u00e9r. Hann naut \u00feess a\u00f0 starfa \u00fear og leita skilnings \u00e1 hinu st\u00f3ra samhengi l\u00edfsins eftir \u00feeim brautum sem \u00fear eru lag\u00f0ar \u00e1 kristnum grunni.<\/p>\n<p>Hann var ekki \u00ed golfi e\u00f0a vei\u00f0i en var fj\u00f6lskylduma\u00f0ur fram \u00ed fingurg\u00f3ma sem naut t\u00f3nlistar og hverskyns sk\u00f6punar mannsandans. \u00deau s\u00f3ttu gjarnan sinf\u00f3n\u00edut\u00f3nleika og f\u00f3ru \u00e1 margar m\u00e1lverkas\u00fdningar. \u201eMamma var \u00e1hugam\u00e1li\u00f0 hans pabba.\u201c segja b\u00f6rnin. Er \u00fea\u00f0 ekki fagur vitnisbur\u00f0ur um f\u00f6\u00f0ur?<\/p>\n<p>Gildin sem hann leita\u00f0ist vi\u00f0 a\u00f0 halda \u00ed hei\u00f0ri voru \u00f6rl\u00e6ti, stu\u00f0ningur vi\u00f0 b\u00f6rnin, a\u00f0 l\u00e1ta gott af s\u00e9r lei\u00f0a, a\u00f0 vera \u00feakkl\u00e1tur fyrir \u00fea\u00f0 sem ma\u00f0ur hefur \u00feegi\u00f0 og l\u00edfi\u00f0 f\u00e6rir manni hverju sinni.<\/p>\n<p>Hann var g\u00f3\u00f0ur hlustandi og lif\u00f0i eiginlega \u00ed anda \u00feessa a\u00f0 vera me\u00f0 tv\u00f6 eyru en einn munn. \u00dea\u00f0 er gott a\u00f0 hafa \u00fea\u00f0 \u00ed huga \u00ed samskiptum vi\u00f0 anna\u00f0 f\u00f3lk.<\/p>\n<p>Gu\u00f0r\u00fan minntist \u00e1 \u00fea\u00f0 \u00e1 fundi okkar a\u00f0 s\u00e9r hef\u00f0i \u00fe\u00f3tt \u00feau vera \u00f3\u00ferosku\u00f0 og \u00f3reynd \u00feegar \u00feau giftu sig en voru samm\u00e1la um a\u00f0 yfir \u00feeim hef\u00f0i veri\u00f0 vernd og blessun. \u00c6tli vi\u00f0 s\u00e9um ekki alltaf \u00f3undirb\u00fain fyrir verkefni l\u00edfsins? \u00deroskinn kemur l\u00edklega \u00e6t\u00ed\u00f0 eftir \u00e1. \u00deannig hefur skaparinn \u00feetta til \u00feess a\u00f0 vi\u00f0 h\u00f6fum eitthva\u00f0 vi\u00f0 a\u00f0 gl\u00edma. Hver kynsl\u00f3\u00f0 ver\u00f0ur v\u00edst a\u00f0 l\u00e6ra s\u00edna lex\u00edu.<\/p>\n<p>\u00c1sgeir treysti b\u00f6rnum s\u00ednum \u00e6t\u00ed\u00f0 og gaf \u00feeim frelsi til a\u00f0 \u00feroskast og l\u00e6ra af reynslunni. Hann stunda\u00f0i \u201ehands off\u201c uppeldi ef svo m\u00e1 or\u00f0a \u00fea\u00f0 og \u00feau segja a\u00f0 \u00e1vallt hafi \u00feau geta\u00f0 leita\u00f0 r\u00e1\u00f0a hj\u00e1 pabba. Hann var ford\u00f3malaus og hl\u00fdr \u00ed sinni n\u00e1lgun \u00ed \u00feeim efnum. \u00dear kippti honum \u00ed kyn f\u00f6\u00f0ur s\u00edns.<\/p>\n<p>Erf\u00f0ir og uppeldi, \u00fea\u00f0 sem \u00e1 vegi manns ver\u00f0ur og loks \u00farvinnslan, r\u00e1\u00f0a l\u00edklega miklu um g\u00e6fu hvers og eins. Vi\u00f0 erum ekki r\u00f3b\u00f3tar sem l\u00e1ta stj\u00f3rnast af einni \u00e6\u00f0stu veru heldur b\u00f6rn sem nj\u00f3ta frelsis til or\u00f0s og \u00e6\u00f0is. Vi\u00f0 h\u00f6fum frj\u00e1lsan vilja til a\u00f0 velja og hafna \u00ed \u00feessu l\u00edfi. L\u00edfi\u00f0 er reyndar l\u00edka \u00e1kve\u00f0i\u00f0 lotter\u00ed. Vi\u00f0 r\u00e1\u00f0um \u00fev\u00ed ekki hva\u00f0 ver\u00f0ur \u00e1 vegi okkar, hvort vi\u00f0 f\u00e1um \u00feennan sj\u00fakd\u00f3minn e\u00f0a hinn, \u00fe\u00f3 a\u00f0 sumt kunni reyndar a\u00f0 vera \u00e1skapa\u00f0 \u00ed \u00feeim efnum. Vi\u00f0 erum \u00e1 fer\u00f0 um l\u00edfsins veg og \u00fear m\u00e6tir okkur eitt og anna\u00f0 sem hefur \u00e1hrif \u00e1 l\u00edkama og s\u00e1l. Svo er \u00fea\u00f0 andinn, \u00feetta innsta \u00ed l\u00edfi hverrar manneskju, hi\u00f0 helgasta, sem er lj\u00f3s af lj\u00f3si, l\u00edf af l\u00edfi, brot af hinu allra helgasta sem til er, helgid\u00f3mur hjartans sem er eins og geisli af hinu sk\u00e6rasta lj\u00f3si sem \u00e1 a\u00f0 hj\u00e1lpa okkur til a\u00f0 r\u00e6kja hin \u00e6\u00f0ri verkefni \u00feessa l\u00edfs. \u00dear liggur kannski leyndard\u00f3murinn mesti sem var\u00f0ar hamingjuna, a\u00f0 lifa \u00ed samhlj\u00f3mi vi\u00f0 kjarna tilverunnar sem er lj\u00f3s og l\u00edf og elska. \u00c6tli innvi\u00f0i, str\u00fakt\u00far l\u00edfsins sj\u00e1lfs, s\u00e9 ekki a\u00f0 finna \u00ed hinu innsta, \u00ed andanum \u00fear sem hinn gu\u00f0legi neisti b\u00fdr?<\/p>\n<p>Og aftur v\u00edsa \u00e9g til or\u00f0a postulans og n\u00fa me\u00f0 form\u00e1la hans og hvatningu:<\/p>\n<p>\u201e\u00c9g hvet ykkur, systkin:\u00a0Vandi\u00f0 um vi\u00f0 i\u00f0julausa, hughreysti\u00f0 \u00edst\u00f6\u00f0ulitla, taki\u00f0 a\u00f0 ykkur \u00f3styrka, veri\u00f0 \u00feolinm\u00f3\u00f0 vi\u00f0 alla. G\u00e6ti\u00f0 \u00feess a\u00f0 enginn gjaldi neinum illt me\u00f0 illu en keppi\u00f0 \u00e1vallt eftir hinu g\u00f3\u00f0a, b\u00e6\u00f0i hvert vi\u00f0 anna\u00f0 og vi\u00f0 alla a\u00f0ra.<\/p>\n<p>Veri\u00f0 \u00e6t\u00ed\u00f0 gl\u00f6\u00f0. Bi\u00f0ji\u00f0 \u00e1n afl\u00e1ts. \u00deakki\u00f0 alla hluti \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 er vilji Gu\u00f0s me\u00f0 ykkur \u00ed Kristi Jes\u00fa.<\/p>\n<p>Sl\u00f6kkvi\u00f0 ekki andann. Fyrirl\u00edti\u00f0 ekki sp\u00e1d\u00f3msor\u00f0. Pr\u00f3fi\u00f0 allt, haldi\u00f0 \u00fev\u00ed sem gott er. En for\u00f0ist allt illt \u00ed hva\u00f0a mynd sem er.<\/p>\n<p>En sj\u00e1lfur fri\u00f0arins Gu\u00f0 helgi y\u00f0ur algerlega og andi y\u00f0ar, s\u00e1l og l\u00edkami var\u00f0veitist alheil og vammlaus vi\u00f0 komu Drottins vors Jes\u00fa Krists. Tr\u00far er s\u00e1 er y\u00f0ur kallar, hann mun koma \u00feessu til lei\u00f0ar.\u201c<\/p>\n<p>(I \u00deess 5.23-24)<\/p>\n<p>\u00deessi or\u00f0 postulans g\u00e6tu \u00feess vegna veri\u00f0 forskrift a\u00f0 l\u00edfi ge\u00f0l\u00e6knis \u00e1 hverjum t\u00edma. Vi\u00f0 kve\u00f0jum g\u00f3\u00f0an samfer\u00f0amann sem leita\u00f0ist vi\u00f0 a\u00f0 lifa g\u00f3\u00f0u l\u00edfi og gefandi, samfer\u00f0af\u00f3lki s\u00ednu til l\u00edknar og l\u00edfsb\u00f3tar. Geymi hann n\u00fa himinn Gu\u00f0s, eil\u00edf elska og hi\u00f0 sk\u00e6rasta lj\u00f3s.<\/p>\n<p>Blessu\u00f0 s\u00e9 minning \u00c1sgeirs Karlssonar og Gu\u00f0 blessi \u00feig. Amen.<\/p>\n<p>Jar\u00f0sett ver\u00f0ur \u00ed Gufunesi a\u00f0 loknu erfi h\u00e9r \u00ed safna\u00f0arheimilinu.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00d6rn B\u00e1r\u00f0ur J\u00f3nsson Minningaror\u00f0 \u00c1sgeir Karlsson ge\u00f0l\u00e6knir Hofsvallag\u00f6tu 49 1936-2013 \u00datf\u00f6r fr\u00e1 Neskirkju m\u00e1nudaginn 23. september 2013 kl. 13 Ritningarlestrar vi\u00f0 ath\u00f6fnina: Op J\u00f3h 21.1-7 N\u00fdr himinn og n\u00fd j\u00f6r\u00f0 Matt 5.14-16 \u00de\u00e9r eru\u00f0 lj\u00f3s heimsins. R\u00e6\u00f0una er h\u00e6gt a\u00f0 lesa h\u00e9r fyrir ne\u00f0an og einnig hlusta \u00e1 hana.<\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_hide_featured_image":false,"_jetpack_featured_image_duplicate_dismissed":0,"_jetpack_feature_clip_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_post_was_ever_published":false},"categories":[4],"tags":[],"class_list":["post-748","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-greinar-og-hugvekjur-articles"],"jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_featured_media_url":"","_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/748","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=748"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/748\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=748"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=748"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ornbardur.com\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=748"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}